Tíminn - 31.08.1946, Blaðsíða 3
158. blaS
TÍMIM, laagardaglmi 31. ágúst 1946
3
Dánarmiimiug.
HANS MARTIN:
Guðlaug Kristín Halldórsdóttir
SKIN OG SKURIR
frá Efri-l»ver;t
Annan þessa mánaðar var
jörðuð hér í Reykjavík ungfrú
Guðlaug Kristín Halldórsdóttir
frá Efri-Þverá í Vesturhópi.
Um 20 ár hafði hún átt við
þungbær veikindi að stríða, en
borið þau með meiri kjarki og
rósemi en almennt er títt. Jafn-
vel þegar sjúkdómurinn svarf
fastast að henni, átti hún
huggunarorð til, bæði við þján-
ingarfélaga sína og þá vini og
vandamenn, er komu að sjúkra-
beði hennar.
Von hennar og trú var sá
styrkur, er sífellt lét hana eygja
sólglit bak við svörtustu ský.
Enda lýsir þetta erindi, er hún
skrifaði heim, hugarástandi
hennar betur, en okkur kunn-
ingjum hennar annars mundi
takast:
Vonin örvar veikan þrótt.
Varpast ljósi skuggar.
Ævin mín er aldrei nótt.
Alvaldur mig huggar.
Guðlaug sál. var fædd að
Efri-Þverá 21. júlí 1914, dóttir
hjónanna þar, frú Pálínu Sæ-
mundsdóttur ljósmóður og Hall-
dórs Sigurðssonar. Hjá þeim
ólst hún upp, og var hvers
manns hugljúfi, sökum prúðrar
framkomu og meðfæddra hæfi-
leika. 16 ára gömul veiktist hún
i lungum, og varð að flytjast að
Vífilsstöðum. Þar varð hún að
dvelja um 8 löng ár. Oft á þeim
tíma hugði enginn henni líf, en
að lokum sigraðist hún á sjúk-
dómnum til fulls, þótt hún bæri
hans ætíð menjar síðan. Má víst
fullyrða, að nákvæmni hennar
og samvizkusemi um að hlíta
settum reglum hælisins, hafi
ekki átt minnstan þátt í sigrin-
um.
Þegar hún fór af hælinu var
hún að sjálfsögðu ekki það
hraust að henni væri unnt að
vinna hvað er var, en handlagni
hennar og smekkvísi við handa-
vinnu gerðu henni brautina
gíreiða, enda vand&mönnum
hennar einkar ljúft að veita
henni þá aðstoð er hún þarfn-
aðist. Dvaldist hún á sumrum
heima hjá foreldrum sínum, en
hér í bænum hjá systur sinni
aðra tíma, og nú hin siðustu ár
að öllu leyti.
Guðlaug sál. var gædd góðri
greind, las mikið þegar heilsan
leyfði, og lærði af eigin ram-
Guölaug Kristín Halldórsdóttir.
leik útlend mál, svo að hún gat
lesið sér til gagns og skemmt-
unar bækur á þeim. Skólavistar
naut hún engrar,’ nema lítils-
háttar farkennslu í æsku. En
allajafna mun hún hafa haft
eitthvað góðra bóka sér við
hönd, sérstaklega voru,ljóða-
bækur henni hugþekkar, enda
kunni hún mikið af beztu ljóð-
um öndvegisskálda þjóðarinnar.
Næmi og smekkvísi hennar var
þar sem annars staðar öruggur
vegvísir, enda sjálf vel skáld-
mælt eins og hún átti kyn til.
Hún var trúhneigð og las og
hugsaði þau efni mikið, en ræddi
þau sjaldan. Hið fagra, hreina
og bjarta, var hennar framtíð-
arland.
Fátt mun nú til af því er
Guðlaug sál. orti, aðeins einstök
erindi er hún sendi frá sér i
bréfum. Hún flíkaði þvl ekki,
en trúlegt þætti mér að mörg-
um þætti gaman að kynnast
því, en þess er nú ekki lengur
kostur. Eitt sýnishorn set ég hér,
úr bréfi til bróður hennar:
Brautin þín verði björt og heið,
þess bið ég af einlægu hjarta.
Sífellt um ævina lýsi þér leið,
ljómandi vorsólin bjarta.
Þetta litla og látlausa erindi
felur í sér meiri innileik, en sum
(Framhald á 4. síOu).
hornspangagleraugun á hilluna.
— Breytingin var mikil, hefði
tæplega verið meiri, þó hér
hefði verið um að ræða persónu
í kvikmynd frá Hollywood.
Tæpast mun þarft að taka
það fram, að ráðherrann og
skrifstofustjórinn höfðu fellt
hugi saman, eða hefði það ekki
einnig geta skeð í kvikmynd
frá Hollywood?
Um jólin voru þau gefin sam-
an. Brúðkaupsför fóru þau til
vatnsins Lugano. Síðasta verk
Suzy Boral sem skrifstofustjóra
var að undirrita vegabréf þeirra
Bidault til þessarar farar.
Heim aftur.
Eftir heimkomuna fluttu þau
fyrst í litlu, tveggja herbergja
íbúðina yfir Quai d’Orsay. En nú
búa þau í höllinni La Petit ^
Luxembourg, sem Marít af
Medici gaf kardínálanum á sín-
um tíma.
Þau hafa ekki haft mikinn
tíma aflögu síðan þau komu
heim úr brúðkaupsförinni, enda
er Bidault önnum kafnasti mað-
ur Frakklands og Suzy er enn
einkaritari hans í raun og sann-
leika, þótt það heiti ekki svo
opinberlega.
Einu takmarki hefir Suzy
auðnast að ná í hjónabandinu.
Henni hefir tekizt að gera einn
af ófáguðustu sonum Frakk-
lands að fáguðum manni. Hún
hefir kennt honum að borða
eins og maður, — eins og Frakki.
Og nú orðið má svo heita, að
Bidault keppi við konu sína i
góðum klæðaburði. Það er jafn-
vel talið vafamál, hvort nokkur
utanríkisráðherra í Evrópu hafi
verið jafn vel klæddur, síðan
Anthony Eden lét af störfum.
Langur dagur.
En eitt gengur Suzy erfiðlega.
Það er að fá Bidault til að sofa
nægilega mikið. Komið hefir
það fyrir við mikilvæg funda-
höld, að Bidault hefir sézt dotta
yfir skjölum sínum. Hann hef-
ir blátt áfram verið að gefast
upp af svefnleysi.
Suzy Bidault, hin orðhvata og
hvasseyga kona méð horn-
spangagleraugun, er alls ekki
eins og Parísarkonan var og
átti að vera. En hún er ágætur
fultrúi hinnar nýju, frönsku
konu, sem nú krefst þess, að fá
að ráða nokkru um örlög lands
síns. Það er ekki nema eðlilegt,
að franskar konur séu upp með
sér af henni.
^egjandi. Ég sé líka betra ráð. Ég fer einfaldlega heim, og svo
komið þið til min í kvöld, og þá tölum við um ykkar athuganir
og ráðagerðir."
Sonur hans og tengdasonur mótmæla, en Wijdeveld stendur
upp, tekur hatt sinn og kveður.
Nú hefir ný kynslóð tekið við Wijdevoldsútgerðinni, og hann
vill, að hún fái að ráða ráðum sínum óhindruð.
Þeir sitja allir þrir í stofu Wijdevelds.
Hann býður ungu mönnunum vindla, sem þeir þiggja, og kaffi,
sem þeir hafna.
„Hefir þú lesið tillögur okkar, pabbi?“ spyr Janni.
„Þú ert of óþolinmóður, drengur minn. En ég skal ekki draga
ykkur á þessu. Ég hefi litið yfir þetta — og ég er ykkur að flestu
leyti sammála."
Janni dregur andann léttar — Sjoerd kinkar kolli.
„En þó er eitt, sem mér virðist helzt til ógætilegt. Þið gerið
ráð fyrir, að láta smíða tvö ný skip. Mér hefði fundizt ráðlegra
að bæta aðeins við einu skipi að þessu sinni — svona fimm þúsund
smálesta skipi.“
„Það hefði mér eiginlega líka fundizt hyggilegast,“ segir Sjoerd.
„En Janni hefir talið þér hughvarf," segir Wijdeveld. „Það
munaði litlu, að honum tækist líka að telja mig á sitt mál. Hann
er djarfur, og það þarf líka dirfsku til þess að reka stórt fyrir-
tæki þannig, að það haldi áfram að vaxa. Og nú ætla ég ekki að
leggjast gegn þessari aukningu skipastólsins, þótt hún sé meiri
heldur en ég hefði þorað að hætta á. Svo að þið sjáið svart á
hvítu, að mér er alvara, skrifa ég hér undir í ykkar viðurvist."
Og um leið og Wijdeveld segir þe^ta, tekur hann pennann sinn
og skrifar neðan á plaggið:
„Hefi lesið þessar áætlanir. Samþykki þær að öllu leyti. Veiti
hér með þeim, sem þær hafa undirritað, umboð tH þess að leita
tilboða samkvæmt þeim og gera þar að lútandi bindandi samn-
inga.
Willem Wijdeveld."
*
Wijdeveld reikar um garðinn — Sómi trítlar á eftir honum.
Hann nemur staðar fyrir framan húsið og virðir það fyrir sér.
Þetta er hans hús — þetta er eina heímilið, sem hann hefir átt
síðan á æskuárunum. Hér þekkir hann hvert tré, hvern grasblett,
hvern stein. Og þó finnst honum hann uppgötva eitthvað nýtt
á hverjum degi, þegar hann er á reiki í garðinum.
Hér er hann nú flesta daga. Nú fyrst gefur hann sér tíma til
þess að hvíla sig og njóta unaðssemda hins kyrrláta lífs. En þó
leynist í huga hans ásökun. Er það rétt af honum að lifa svona
í makindum og láta Janna og Sjoerd eina um stjórn útgerðar-
ínnar?
Ef til vill væri hyggilegast af honum að fara í ferðalag —
leggja land undir fót — komast suður í sól og sumar? Kannske
veitir honum ekki af að hvíla sig í nýju umhverfi?
*
„Hér er það, Hanna — hér býr mamma..........“
Hún virðir fyrir sér litla húsið og garðinn umhverfis það.
Þannig hefir hún líka Imyndað sér æskuhelmili Occos.
Nú er útidyrahurðinni hrundið upp, og Kóra, móðir Occos,
birtist í dyrunum.
Occo faðmar hana að sér. Litla stund þegja bæði og halla kinn
að kinn.
„Occo,“ hvíslar hún svo, „sárt hefi ég saknað þín, drengur
minn. Það er sárt, að þú skulir koma of seint.“
„Já, mamma . .. . í fyrsta skipti í marga mánuði brugðum við
okkur í stutt ferðalag með kunningjum okkar. Ég var nýbúinn
að ljúka nýrri sögu og langaði til þess að lyfta mér dálítið upp.
Þetta er sorgleg tilviljun. — Hönnu féll þetta mjög þungt.“
Og nú kemur Hanna og leggur hendurnar á axlir Kóru og kyssir
hana á kinnina.
„Hér er svo hræðilega tómlegt,“ segir Kóra, þegar þau eru
komin inn. „Ég get ekki lýst því, hve fegin ég er, að þið eruð
komin.“
„Má ég ekki fyrst af öllu svipast um í húsinu, mamma?“ spyr
Occo.
„Jú — auðvitað, drengur minn.“
„Komdu líka, Hanna. Annars kannastu sjálfsagt við hvern
einasta krók og kima. Svo vandlega hefi ég lýst öllu fyrir þér.“
„Já — mér finnst eiginlega eins og ég hafi búið hér árum
saman. Ég kannast við hvern einasta hlut.“
Þau leiðast upp stigann. Occo tekur hikandi um húninr. á
hurðinni að herbergi föður síns.
„Farðu bara inn,“ segir móðir hans.
Allt er eins og það var áður fyrr. Enn er jafnvel talsverður
tóbaksþefur I herberginu, og á borðinu stendur stór leirkrukka,
hálf af tóbaki.
„Það er ekki svo ýkjalangt síðan ég var að stríða honum með
því, að hann fengi líklega ekki að hafa pípuna með sér inn í
himnaríki," segir Kóra lágt. Stór tár læðast niður kinnarnar.
Svo fara þau upp í kvistherbergið . .*.. Þar er lítið borð og
járnrúm. Þau horfa þegjandi á það um stund. Svo fleygir Hanna
sér í fangið á honum og faðmar hann að sér.
*
„Þú varst að tala um nýja bók, Occo,“ segir móðir hans.
„Já — ég er með handritið, ef þig langar til þess að líta í það.“
„Þú veizt, að mig langar til þess — og aldrei meira en nú. Hvað
heitir sagan?“
ÚTBREIÐIÐ TÍMANN
Höfum fyrjrligjíjainli hinar ájfætn SYLVIA skilvindur í eftlrtöldum stærðumt 65 lítra 100 — 135 — Samband ísf. samvinnuf élaga
Glæsileg jörð til sölu ásamt bústofni. Vandaðar byggingar, 700 hb. tún véltækt. Mikil og góð garðlönd. 10 km. girðingar um tún, garða og haga. Góð markaðsskilyrði. Sanngjarnt verð. Fyrirspurnir skulu sendar í pósthólf 963, Reykjavík.
Orðsending til iiwheimtumanna Tímanw. Innheimtumenn Tímans eru vinsamlega beðnir að senda áskriftargjöld blaðslns htö allra fyrsta. Gjalddagi var 1. Júli. ; Verð blaðsins utan Reykjavlkur og Hafnarfjarðar, er kr. 45,00. Innheimta Tímans.
MATVÆLAGEYMSLAN H.F. 1 Pósthólf 658. 1 :í: Undirritaður óskar að taka á lelgu til eins árs : ;i; .... geymsluhólf. ;; Nafn:
Heimili: Í
1
j TÍMANN j vantar unglinga til að bera út blaðið í eftirtaUn hverfi: Laugaveg Ljósvallagötu óðínsgötu Rauðarárstíg Afgreiösla Tímans Simi 2323. Lindargötu 9A.
Stúlka óskast í eldhúsið á Kleppi. Lpplýsingar hjá ráðskonunni og í skrlf- stofu ríkisspítalanna.