Tíminn - 22.11.1946, Page 4
Flokksþing Framsóknarmanna /íe/sf í
Reykjavik 28. nóvember næstkomandi
REYKJÆVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
22. XÓV. 1946
215. blaff
Ú l,
œnum
í dag:
Sóun kemur upp kl. 9.18. Sólarlag
kl. 15.24. Árdegisflóö kl. 4.25. Síðdegis-
flóö kl. 16.40.
í nótt:
Næturakstur annast Litla bílastöðin,
sími 1380. Næturlæknir er í lækna-
varðstofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunni, sími 7911.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 10.25 Þingfrettir. 19.40 Auglýs-
ingar. 20.00 Préttir. 20.30 Útvarpssag-
an: „í stórræðum vorhugans", eftir
Jonas Lie, IV (séra Sigurður Einars-
son). 21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett nr. 17 í F-dúr eftir Mozart.
21.15 Erindi: Skólar í Bandaríkjunum;
síðara erindi (ungfrú Þorbjörg Árna-
dóttir magister). 21.40 Tónlelkar:
Norðurlandasöngmenn (plötur). 22.00
Fréttir. 22.05 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): Tónverk ef tir Stravinsky: a)
Brúðkaupið. b) Sálmasymfónían. 23.00
Dagskrárlok.
Skipafréttir:
„Brúarfoss" kom til Reykjavíkur 17.
nóv. frá Kaupmannahöfn. „Lagar-
foss“ kom til Reykjavíkur 19. nóv. frá
Gautaborg. „Selfoss" kom til Reykja-
víkur 20. nóv. „Fjallfoss" fór frá
Reykjavík í gærkvöld, vestur og norð-
ur. „Reykjafoss" var í Stykkishólmi
um hádegi í gær á norðurleið. „Sal-
mon Knot“ kom til New York 11. nóv.
frá Reykjavík. „True Knot“ kom til
Reykjavíkur 20. nóv. frá Halifax.
„Becket Hitch“ hleður í New York
síðari hluta nóvember. „Anne“ kom
til Fredriksværk 20. nóv. frá Leith.
„Lublin" hlóð í Antwerpen um 20.
nóv. „Horsa“ fór frá Leith í dag 21.
nóv. til Hull. „Lech“ fór frá Reykja-
vík 16. nóv. til Leith.
Félag Vestur-íslendinga,
Aðalfundur Félags Vestur-íslend-
inga var haldinn í Oddfellowhúsinu
miðvikudaginn 20. þ. m. Félagsmenn
eru nú á annaS hundrað og hefir
þeim fjölgað verulega á starfsárinu.
Fjárhagur félagsins er góður.
Stjórn félagsins var endurkosin:
Hálfdán Eiríksson formaður, Þórarinn
Gr. Víkingur ritari, Guðni Sigurðsson
gjaldkeri. Varaformaður var einnig
endurkosinn sr. Jakob Jónsson.
Sr. Jakob Jónsson flutti á fundin-
um ítarlegt og snjallt erindi um
vestur-íslenzku skáldkonuna Guðrúnu
Finnsdóttur.
Heiðursgestur á fundinum var Birg-
ir Halldórsson söngvari, sem er ný-
kominn heim að vestan.
Hjónaefni:
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
Ungfrú Þórhalla Gunnarsdóttir frá
Skógum í Axarfirði og Sigurður Jó-
hannesson (Björnssonar frá Hofsstöð-
um) bankaritari, Þingholtsstræti 31.
Gjafavörur til Þýzkalands.
Með Reykjafossi fóru héðan síðastl.
mánudagskvöld, um 40 smál. af gjafa-
vörum til Þýzkalands, er skipið flytur
beint til Hamborgar. f>ar á meðal
voru 1300 gjafabögglar frá einstakling-
um til einstaklinga, sent með aðstoð
Rauðakrossins, um 15 smál. af ýmsum
vörum frá Þýzkalandssöfnuninni, og
gjafir frá stofnunum og fleiri til
þýzkra hjálparstofnana.
Normannslaget,
félag Norðmanna í Reykjavík hélt
aðalfund sinn nýlega. í stjórn hlutu
kosningu, Harald Faaberg skipamiðl-
ari, formaður, Tomas Haarde verk-
fræðingur, Gunnar Akselsson stór-
kaupmaður, frú Ingrid Markan og
Árni G. Eylands fulltrúi.
Eimreiðin,
3. hefti 52. árg. er komin út. Efni
þessa heftis er m. a. Hjálpin að heim-
an. — Áhrif erlendra blaða, grein eftir
Þorstein Stefánsson rithöfund (með
mynd). Prédikun í helvíti, eftir Helga
Konráðsson (með mynd). Kvæðið 17.
Júní 1944, eftir Kristinn Arngrímsson.
Fornritin og vísindamennirnir, eftir
Eirík Kerúlf (með mynd). Gervihetjur,
eftir Svein Sigurðsson. í greinar-
flokkninn, Við þjóðveginn, eru grein-
ár um Inntökubeiðni íslahds í UNO,
Samningagerðirnar við vesturveldin,
Dansk-íslenzka sambandsnefndin og
störf hennar. Ennfremur grein um
Leikllstlna eftir Lárus Sigurbjörnsson.
Fráfærur og yfirseta, eftir Einar Frið-
riksson (með mynd). Tvö skaut stjórn-
Glnndroðmu á
Alþingi . . .
(Framhald af 1. slSu)
un þjóðstjórnar. Sú aðferð hlaut
alltaf að verða mjög seinvirk,
þar sem engin aðili var þar til
forustu, enda er það komið á
daginn.
En samt skammar aðalmál-
gagn Sjálfstæðisflokksins þing-
ið fyrir seinagang — enda þótt
seinagangurinn stafi að veru-
legu leyti af því, að fylgt hefir
verið tillögu frá Sjálfstæðis-
flokknum um vinnuaðferð, sem
flokkurinn bar fram eftir að
hann hafði gefist upp við að
fullnægja sjálfsögðustu skyldu
sinni.
Slík framkoma er þó raunar
í samræmi við annan feril Sjálf-
stæðisflokksins hin seinni ár. En
hvers getur þjóðin vænst af
flokki, sem þannig hagar sér?
Afstaffa Framsóknarmanna.
Um afstöðu Framsóknar-
manna til stjórnarmyndunar er
það að segja, að þeir hafa þar
sérstöðu. Þeir eiga engan þátt í
því, hvernig komið er. Þeir vör-
uðu við þeirri stefnu, sem fylgt
var, og neituðu að fylgja henni.
Vitnisburður útgerðarmanna
sýnir að hefði verið farið
að ráðum Framsóknarflokksins
haustið 1941, myndi hagur út-
gerðarinnar nú vera með blóma.
En þótt Framsóknarflokkurinn
beri ekki ábyrgð á því ástandi,
sem nú ríkir í þjóðfélaginu og
öðrum beri á þann hátt ríkari
skylda til að vinna að úrbót-
um, mun flokkurinn síður en svo
skorast undan að taka á sig á-
byrgð af erfiðum stjórnarráð-
stöfunum,' ef hann telur þær
stefna í rétta átt. Flokkurinn
mun því á þinginu sem annars
staðar beita sér fyrir því, að
reynt sé að ráða fram úr ríkj-
Kaupfélög!
Höfum
fyrirllggjandf
stunguskóflur
Vinsamlegast
sendið oss
pantanir
sem fyrst.
Samband ísl. samvinnuf élaga
(jamla Síc
30. sek. yfir Tokió
Aðalhlutv. lelka:
Spencer Tracy,
Van Johnson,
Sýnd kl. 6 og 9.
Teiknimyndin
MJALLHVÍT
og dvergarnir sjö.
Sýnd kl. 4.
1hjja Síó
(VÍff Shúlnaötu)
lAtlm drottin
DÆMA.
(Leave Her To Heaven)
Gene Tierney
Jeanne Crain.
Cornel WUd
Bönnuð yngri en 14 ára.
. Sýnd kl 9._________
Karlar í kröggnm.
Sprellfjörug skopmynd með
kynjakörlunum
Oisen og Johnson.
Sýnd kl. 5 og 7.
■ i 4»
^tiéiní pál^fbnat
JÚaflbœhuc op titítc&ic
1791-1797
7’jantarh'c
Eitur og pipar
(Arsenic and Old Lace)
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýning kl. 9.
Eldilirandur.
(Incendiary Blonde)
Amerísk músikmynd í eðlileg-
um litum.
Betty Hutton,
Arturo dr. Cordova.
Sýning kl. 5 og 7.
VINNIÐ ÖTULLEGA AÐ ÚTBREIÐSLU TÍMANS
andi erfiðleikum með róttæk-
um og heiðarlegum aðgerðum.
Hitt er svo eftir að sjá, hvort
hinir flokkarnir hafa opnað
augun fyrir því að nú sé þörf
samstilltra og þjóðhollra vinnu-
bragða.
Frá bæjarstjórnarfundi:
Rætt um strætisvagnana og
hömlur á byggingu timburhúsa
Mótmæli gcgn oliuportinu við Amtmannsstíg
Bæjarstjórn Reykjavíkur hélt fund í gær. Voru fulltrúar venju
fremur skrafhreifir, þótt fátt merkra mála lægi fyrir fundin-
um, enda um nóg aff tala, sem aflaga fer í bænum. Varff tals-
vert þóf manna milli.
Allur fyrri hluti fundarins
snerist um tregðu þá, sem bygg-
ingaryfirvöld bæjarins sýna
þeim mönnum, sem vilja byggja
timburhús á bæjarlóðinni, og
ýmsar hömlur, er þau setja, en
valda því, að byggingar verða
iðulega dýrari en þörf er á.
Spruttu þessar umræður út af
því, að byggingarnefnd hafði
neitað ákveðnum manni um
leyfi til þess að reisa múrhúðað
timburhús með steyptum kjall-
ara og kjallaralofti inn í Hlíð-
um. Samþykkti bæjarstjórnin
að lokum fyrir sitt leyti, að mað-
ur þessi mætti byggja húsið.
Sænsku húsin komu nokkuð
til umræðu í þessu sambandi,
og var meðal annars rætt um
þá tregðu og óvild, sem þau
hefðu mætt hjá bæjaryfirvöld-
unum, þrátt fyrir hið geigvæn-
lega húsnæðisleysi, sem steðjar
að almenningi. Guðlaugur Rós-
inkranz, fulltrúi Framsóknar-
manna, skýrði frá því, að bæj-
aryfirvöldin í Stokkhólmi hefðu
tekið þessi mál allt öðrum tök-
um. Þar væru stór og mikil
hverfi, þar sem eingöngu væru
slík hús, sem bæjaryfirvöldin í
Reykjavík gætu helzt ekki vitað
á sínu yfirráðasvæði. í einu
slíku smáhýsahverfi Stokk-
hólmsborgar byggju hvorki
meira né minna en 60 þúsundir
manna.
málanna, eftir Halldór Stefánsson
(með mynd). Sagan Flótti, undir dul-
nefninu Hákon stúdent. ísland 1945
stutt yfirlit um liðna árið. Einnig eru
i heftinu ýmsar greinar um dulræn
efni og ritsjá, þar sem getið er ýmsra
nýútkominna bóka 0. s. írv.
Þá var nokkuð rætt um
strætisvagnana og þau sam-
gönguvandræði, sem sum út-
hverfin ættu við að búa. Allt
það öngþveiti, sem einkennir
rekstur strætisvagnanna, er
annars almenningi of kunnugt
til þess, að það þurfi að fara
mörgum orðum þar um.
Var tillögu um að ráða
bót á vandræðum Fossvogsbúa í
þessu efni vísað til bæjarráðs
Þá kom fram á fundinum
fyrirspurn um það, hvort olía
eða bensín hefði verið geymt í
olíupostinu" við Amtmannsstíg.
Kvað borgarritari svo ekki
myndi hafa verið, nema slattar
á olíuflutningabílunum.
Fólk, sem býr þarna í grennd
hefir krafizt þess, að olíufélag-
ið flytji þessa stöð sína á brott.
Djörf skáldsaga um ástir og ástríður
Út er komin hin heimskunna franska ástarsaga eftir
Madame Colette.
Saklaus léttúð
Saklaus léttúff er óvenjuleg skáldsaga um blóffríkar
ástir og brennandi ástríffur.
SAKLAUS LÉTTÚÐ segir frá ungum elskendum, mis-
heppnuðu samlífi þeirra, tilraunum þeirra til þess að
fullnægja ástríðum sínum utan hjónabandsins og að
lokum hamingju þeirra, er þau finna hvert annað. Frá-
sögn bókarinnar er fögur og listræn, og þótt einstökum
þáttum ástalífsins sé lýst af raunsærri bersögli, hvílir
yfir allri skáldsögunni hlýr og rómantískur blær. Fólk
sem er mjög feimið og teprulegt, er varað við að lesa
bókina.
I
Saklaus léttúð mun vekja affdáun, hneyksli og deilur.
Lesiff Saklausa léttúff og fellff yffar eigin dóm.
Madame Collette er ef til vill
kunnasti seinni tima ástar-
sagnahöfundur Frakka. Það er
staðreynd, að bækur Colette eru
metsölubækur víða um heim, t.
d. seldist síðasta bók hennar í
270.000 eintökum 1 Frakklandi.
Hins vegar ber því ekki að
neita, að miklar deilur hafa
staðið um Colette, sökum
djarfra ástarlifslýsinga hennar
og bersögli í kynferðismálum.
Telja ofsatrúarmenn og tepru-
legir lesendur hana „klámrit-
höfund", en fólk, sem metur
dirfsku og hispursleysi 1 írá-
sögnum um ástir sem annað,
dáir hreinskilni hennar og þrótt,
en allir lesa þeir samt bækur
Colette, hvort sem þeir eru með
henni eða móti.
Ugluútgáfan
Tólfmannanefndin
fær nýjan frest
Nefnd sú skipuð fulltrúum
allra þingflokka, sem síðastliðn-
ar fimm vikur hefir unnið að
því að reyna að skapa grund-
völl fyrir samstjórn allra flokk-
anna, hefir tjáð forseta íslands,
að hún hafi af alveg sérstökum
ástæðum ekki getað lokið störf-
um sínum fyrir 21. nóvember,
eins og forseti hafði mælzt til.
Forseti hefir tjáð nefndinni, að
ef verulegur dráttur verði enn
á því, að nefndin komist að ein-
hverri niðurstöðu, telji hann ó-
umflýjanlegt, að reyndar verði
aðrar leiðir til myndunar nýrr-
ar ríkisstjórnar.
Bókasýning Helgafells
(Framhald af 1. síöu)
venjulegt íbúðarherbergi. Við
veggina eru tveir Helgafells-
skápar, fullir af Helgafellsbók-
, um, en á veggjum hanga ýms
málverk og teikningar, þar á
meðal af Jakob Thorarensen,
Halldóri Kiljan Laxness og
Steini Steinarr.
Á hverjum degi meðan sýn-
ingin stendur, verður einhverj-
um tveimur sýningargesta gefið
sitt eintakið hvorum af við-
hafnarútgáfunni af Njálssögu.
Um leið og sýningin var opn-
uð, voru látnar í bókabúðir
þrjár nýjar bækur frá Helga-
fellsútgáfunni. Er þar fyrst að
telja Grettissögu í viðhafnar-
útgáfu, skreytta teikningum
eftir Þorvald Skúlason. Önnur
bókin er síðara bindi skrautút-
gáfunnar á verkum Jónasar
Hallgrímssonar. Er í þessu
bindi óbundið mál — sögur,
greinar og bréf. Er efni bókar-
innar bæði ætlað að vera útval
þess, sem Jónas hefir skrifað af
slíku, og sýnishorn þess. —
Þrlðja bókin nefnist Síðustu
blómin — teiknibók eftir ame-
rískan mann, með ljóðatexta,
Heimavistarhús.
(Framhald af 1. síðu)
deildum setuskáli. Bókasafn er
í kjallara undir lesstofu og er
sérstakur stigi þar á milli. í
byggingunni verða íbúðir fyrir
3 kennara og hefir hver þeirra
tvö herbergi.
íbúð. umsjónarmanns er fimm
herbergi og geymsla, og þrjú
herbergi eru ætluð fyrir
sjúklinga.
Búnaður hvers nemendaher-
bergis verður handlaug með
heitu og köldu vatni, tveir
rúmfataskápar, tveir legubekkir,
borð, bókahilla og stólar.
Af þessari lýsingu er ljóst, að
heimavistarbygging þessi verð-
ur ein glæsilegasta bygging, sem
reist hefir verið hér á landi í
þágu menntamálanna, sem bæt-
ir stórlega menntunarskilyrði
sveitaæskunnar, er sækja vill
menntaskóla.
þý.ddan af Magnúsi Ásgeirssyni.
Þessi bó?í skal sýna tortíming-
una, sem styrjaldimar hafa 1
för með sér, og sigur lífsins og
mannsandans yfir öllum þeirra
ógnum. Er hún hin skemmtileg-
asta, þótt fáorð sé.
STÚLKA HVERFUR
Síðastliðinn sunnudag hvarf
25 ára gömul stúlka héðan úr
bænum og hefir ekkert til henn-
ar spurzt síðan. Er það Hrefna
Sólveig Ingólfsdóttir Nýlendu-
götu 19 B. Fór hún að heiman
frá sér saint um kvöldið og fann
móðir hennar bréf frá henni, en
í því voru peningar, er hún hafði
átt, en engin skýring á hvarfi
hennar. Á umslaginu voru þrir
krossar, auk utanáskriftarinnar.
Hrefna hafði fengið berkla í
bakið fyrir nokkrum árum og
sjúkdómurinn lagzt þungt á
hana. Hún hafði verið þunglynd
upp frá því. Leitað hefir verið
allmikið að Hrefnu með sjó
fram og viðar, en án árangurs.
Lögreglan biður þá, er kynnu að
hafa orðið varir við ferðir henn-
ar, að tilkynna það. — Þetta er
önnur stúlkan, sem hverfur hér
í bænum á skömmum tíma. Ný-
lega hvarf hér dönsk stúlka,
eins og áður hefir verið sagt frá.
Vinniff ötullega tyrlr
Tímann.