Tíminn - 23.11.1946, Side 4
Flokksfcfing Framsóknarmanna hefst í
Reykjavík 28. nóvember næstkomandi
4
REYKJAVlK
Skrifstofa Framsóknarllokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
23. JVÓV. 1946
216. blað
t
œnum
í dag:
Sólin kemur upp kl. 9.22. Sólarlag
kl. 15.20. Árdegisflóð kl. 4.55. Síðdeg-
isflóð kl. 17.15.
í nótt:
Næturakstur annast bifreiðastöðin
Hreyfill, sími 6633. Næturvörður í
Reykjavíkur Apoteki. Næturlæknir er
í læknavarðstofunni í Austurbæjar-
skólanum, sími 5030.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 19.40 Auglýsingar. 20.00 Préttir.
20.20 Leikrit: „Swedenhielmsfólkið",
eftir Hjalmar Bergman (Leikstjóri:
frú Soffía Guðlaugsdóttir). 22.00 Frétt-
ir. 22.05 Danslög. 24.00 Dagskrárlok.
Skipafréttir:
„Brúarfoss" fór frá Reykjavik kl.
16.00 í gær til Vestmannaeyja. „Lag-
arfoss" kom til Reykjavíkur 19. nóv.
frá Gautaborg. „Selfoss" kom til
Reykjavíkur 20. nóv. frá Leith, fer 25.
nóv. til Leith. „Fjallfoss" kom til
Patreksfjarðar í gærmorgun á norð-
urleið. „Reykjafoss" fór frá Réykja-
vík 18. nóv. til Hamborgar. „Salmon
Knot“ kom til New York 11. nóv. frá
Reykjavík. „True Knot‘“ kom til
Reykjavíkur 20. nóv. frá Halifax.
„Becket Hitch" hleður í New York
síðari hluta nóvember. „Anne“ kom
til Kaupmannahafnar 21. nóv. frá
Fredriksværk. „Lublin" hleður í Ant-
werpen næstu daga. „Lech“ kom til
Leith 22. nóv. frá Reykjavík. „Horsa"
fór frá Leith 20. nóv. til Hull.
Farþegar
með m.v. „True Knot“ frá New York
til Reykjavíkur: Kristín H. Thorfins-
dóttir, Ragna H. Bjarnadóttir. Hólm-
friður Jónsdóttir, Jón Björnsson. Lára
Björnsson, Gylfi Björnsson, Ólafur R.
Björnsson, Karl Guðmundsson, Aðal-
steinn Thorsteinsson, Bent J. Ósk-
arsson.
Farþegar
með e.s. „Lagarfoss" frá Norður-
löndum til Reykjavíkur: Sigríður
Sandholt, Solvey Bjarnadóttir m. barn
4 ára, Einar Þorvaldsson, Magnús O.
Magnússon, Henni Kristensen, Eggert
Proppé, Valur Hinriksson og allmargir
útlendingar.
Framsóknarfélögin
efndu til skemmtunar í Brelðfirð-
ingabúð s.l. fimmtudagskvöld. Var
skemmtunin vel sótt. Þar var spiluð
hin vinsæla Framsóknarvist. Bjarni
Ásgeirsson alþingismaður flutti þar
gamanþætti og Valdimar Helgason las
upp kvæði. Var þeim báðum vel fagn-
að af samkomugestum. Samkoman fór
vel fram í hvívetna eins og venja er
til um skemmtanir Framsóknar-
manna.
Áheit á Strandarkirkju:
frá tveim austfirzkum sveitabörnum
kr. 20.00. Óþekktum að norðan kr.
20.00. B. V. G. 30.00. H. Á. 50.00. N.
N. 15.00.
Áheit á Hallgrímskirkju:
frá Á. E. K. kr. 20.00.
Sterkir þjófar.
Tveimur kössum var nýlega stoliö
af ógirtu geymslusvæði, sem Eim-
skipafélagið hefir við Haga í Reykja-
vík. Annar kassinn var hálf smál. að
þyngd og voru geymdir í honum flug-
vélavarahlutir.
Kolakraninn af sporinu.
í fyrradag vildi það tii að kola-
kraninn fór út af sporinu og lá við
að stórslys hlytist af. Kraninn rann
sex metra út af sporinu og hallaðist
mikið, svo litlu munaði að hann félli
ofan á Brúarfoss, sem lá vlð uppfyll-
inguna.
Anglíufundurinn,
í fyrrakvöld var fjölsóttur. Var það
fyrsti fundur félagsins á þessum vetri
Mr. Willey umboðsmaður Britlsh
Council flutti erindi á fundinum mn
eyjuna Cyprus, en þá voru kvikmyndir
sýndar og að lokum dans.
Héraðabönn
(Framhald af 1. síSu)
verulega úr áfengisbölinu, og
það úrræði, sem tvímælalaust á
mestu fylgi að fagna meðal
þjóðarinnar, er það, sem hér er
lagt til, sem sé þetta, að Al-
þingi gefi ríkisstjórninni ákveð-
in fyrirmæli um að láta heim-
ildarlögin um héraðabönn koma
tll íramkvæmda.“
Yínveitingar
(Framháld af 1. slðu)
um. Ekki verður séð, að ástæða
sé til að láta einstaka menn
njóta sérréttinda hjá víneinka-
sölunni. Þar eiga allir að búa
við sömu viðskiptakjör."
Af tillögum þeim um áfengis-
málin, sem liggja fyrir Alþingi
er þessi tillaga Skúla tvímæla-
laust þýðingarmest. Áfenginu
verður ekki útrýmt fyrr en búið
er að skapa það almenningsálit,
að það samræmist ekki heil-
brigðum lifnaðarháttum og
menningu. Fyrsta sporið í þá
átt er að gera það útlægt úr
opinberum samkvæmum, sem
oftast eru öðrum veizluhöldum
til fyrirmyndar. Það er viður-
kennt um allan heim, að veizlu-
siðirnir séu ein helzta undirrót
áfengisneyzlunnar, enda er það
hvarvetna eitt af helztu bar-
áttumálum bindindissamtak-
anna að fá þessum siðum breytt.
í Svíþjóð, þar sem bindindis-
samtökin eru öflugust á Norð-
urlöndum, er það t. d. efst á
stefnuskrá þeirra, að vinveit-
ingar verði bannaðar í epinber-
um veizlum.
Um gjafaáfengið, sem veitt
er ráðherrum og þingforsetum,
er óþarfi að fjölyrða. Það setur
óvirðingarmerki á þessi virðu-
legu embætti, að slík hlunnindi
skuli fyigja þeim, — og ætti sú
ástæða ein að nægja til þess, að
slíkur ósómi verði afnuminn.
FerSSafél. Islands
(Framhald af 1. síðu)
hliðsjón af því, að árgjöld fé-
lagsins rétt hrökkva fyrir kostn-
aði við útgáfu árbókarinnar. en
hins vegar ýmiskonar önnur út-
gjöld, sem félagið verður að
standa straum af, þótti ekki
fært annað en hækka árgjöld-
in úr 15 kr. í 20 kr. Sömuleiðis
hækka ævifélagagjöld í 300 kr.
og gjöld fjölskyldufélaga í 10
krónur. Skuldlausar eignir fé-
lagsins nema nú, samkvæmt á-
ætlun, um 220 þús. kr.
Þá var og skýrt frá því, að
árbókin fyrir þetta ár væri nú
fullbúin til prentunar, en vegna
pappirsskorts í augnablikinu,
myndi hún naumast koma út
fyrr en eftir áramót. Sú bók
fjallar um Skagafjarðarsýslu,
og hefir Hallgrímur Jónasson
kennari ritað hana. Það verður
ein stærsta bók, sem félagið
hefir gefið út og mjög myndum
skreytt. Hefir Páll Jónsson aug-
lýsingastjóri tekið flestar mynd-
irnar.
Forseti félagsins, Geir G.
Zoega, var endurkjörinn, sömu-
leiðis varaforseti, Steinþór Sig-
urðsson. Auk þeirra áttu Krist-
ján Ó. Skagfjörð, Helgi Jónas-
son, Hallgrímur Jónasson, Jó-
hannes Kolbeinsson og Þor-
stein Jósepsson að ganga úr
stjórninni, en voru allir endur-
kosnir. Aðrir í stjórninni eru:
Gísil Gestsson, Guðmundur Ein-
arsson'frá Miðdal, Jón Eyþórs-
son, Pálmi Hannesson og Lárus
Ottesen.
Náttúrnlækningafél.
(Framhald af 1. siðu)
til þess, að litlar líkur eru til,
að fundinn verði annar staður,
sem sameinar betur alla þá
kosti, sem nauðsynlegir eru fyrir
væntanlegt heilsuhæli.
Stjórn sjóðsins hefir unnið
að fjársöfnun undanfarin ár.
Hún hefir m. a. gefið út minn-
ingarspjöld, smekkleg og vel
gerð. Verður nú settur aukinn
kraftur í fjársöfnunarstarfið, í
trausti þess, að almenningur
sýni málinu þann skilning og
þann stuðning, að brátt geti ris-
ið þarna myndarlegt heilsuhæli,
sem á ekki aðeins að lækna
sjúka, með böðum, mataræði og
og öðrum náttúrulegum aðferð-
um, þeldur einnig að kenna fólki
að lifa þannig, að menn getl
varðveltt heilsu slna óskerta til
hárrar elli.
Garðyrkjustöð mun verða sett
upp 1 Gröf á næsta ári á vegum
hlutafélagsins Gróska h f., sem
er eign NFLÍ og nokkurra fé-
lagsmanna. Stöð félagsins í
KRAFTTALÍUR
fyrirliggjandi í eftirfarandi stærðnm:
Fyrir 1 yz tonn
- 2
- 3
- 5
Samband ísl. samvinnufelaga
*
Utgáfustarfsemi
N áttúrulækninga-
félagsins
Stjórn Náttúrulækningafé-
lagsins skýrði blaðamönnum frá
því í gær að félagið hefði nú
mikinn hug á að efla verulega
bókaútgáfu sína og hefði þegar
hafið útgáfu tímarits.
Alls hefir félagið nú gefið út
fimm bækur. Sannleikurinn um
hvítasykurinn og Nýjar leiðir
eftir Jónas Kristjánsson lækni,
sem báðar eru uppseldar. Bæk-
urnar Matur og megin og Nýjar
leiðir II fást enn, og 5 bókin
kemur í bókabúðir næstu daga.
Hún heitir Heilsan sigrar og er
stutt, snilldarleg frásögn af
ungri konu, sem hafði árum
saman þjáðst af margs konar
kvillum, án þess að fá nokkra
meinabót með venjulegum lækn-
ingaaðferðum, en varð heil
heilsu á skömmum tíma, við
það eitt að breyta lifnaðarháitt-
um sínum.
Tímarit. Þá er félagið að hefja
útgáfu tímarits, sgm heitir
Heilsuvernd og á fyrst um sinn
að koma út 4 sinnum á ári. Er
nú komið út tvöfallt hefti, sem
er verið að senda til félags
manna o<j verður sett i bóka-
búðir næstu daga. Heilsuvernd
mun flytja lærdómsríkar frá-
sagnir af heilsubót manna, er-
lendra og innlendra, ritgerðjí,
þýddar og frumsamdar, um
heilbrigðismál, mataruppskrift-
ir og margs konar bendingar og
hollráð. Verður mest áherzla á
það lögð, að kenna lesendum
hagnýt ráð til verndar heilsunni,
þannig að hver maður geti orðið
sinnar eigin heilsu smiður og —
innan vissra takmarka — sinn
eigin læknir.
Á wæsta ári mun félagið gefa
út fleiri bækur, þ. á. m. stór-
merkilegan fyrirlestur um sam-
bandið milli næringar, heil-
brigði og sjúkdóma eftir heims-
frægan lækni og vísindamann,
Mac Carrlson.
Smíðisgallar
(Framhald af 1. síðu)
hægt væri að ganga að nokkr-
um, þá væri það ísl. ríkisstjórn-
in. Skipstjórarnir hefðu á sinni
tíð, þegar þeir veittu bátunum
móttöku, neitað að láta vinna
meira við bátana, vegna tíma-
skorts, og m. a. t. d. óskað eftir
að toggálgar yrðu ekki settir
upp, en nú fari þeir fram á
skaðabætur fyrir það, að það
hefði ekki verið gert, svo að
eitt dæmi sé nefnt.
Ólafur kveðst myndi senda
skýrslu til nefndarinnar um
öll þessi mál við fyrsta tæki-
færi, og ef til vill kæmi hann
heim I stutta heimsókn síðast
í þessum mánuði.
Laugarási verður seld, en hin
nýja mun halda áfram að sjá
Matstofunni fyrir grænmeti og
svo heilsuhælinu sjálfu, þegar
þar að kemur.
IPEDOX
er nauðsynlegt í fótabaðið, ef :
þér þjáist af fótasvita, þreytu :
í fótum eða líkþornum. Eftir :
fárra daga notkun mun ár-
angurinn koma í ljós. — Fæst
í lyfjabúðum og snyrtivöru-
verzlunum.
ctíinm
Tónlistarfélagið
gengst fyrir æsku-
Beethovenshátíð í vor.
Tónlistarfélagið gengst fyrir
því, að haldnir verða í vetur
10—20 æskulýðshljómleikar I
Reykjavík. Eru þeir einkum
ætlaðir unglinum og ungu fólki
og við það miðaðir að vekja á-
huga æskulýðsins á göfugri tón-
list.
Fyrstu hljómleikarnir verða í
næstu viku. Mun þá ungverski
fiðlusnillingurinn, Emil Tel-
manyi leika. Kom hann hingað
til lands með Drottningunni í
fyrrakvöld.
Tónlistarfélagið hefir unnið
mikið og gagnlegt starf í þágu
tónlistarlífsins hér í bænum.
Er þessi nýja hugmynd, æsku-
lýðshljómleikarnir, eitt af
mörgu, sem það hefir ráðizt í
til þess að glæða áhuga og
skilning manna á þessu sviði.
Til þess 'að gefa sem fiestum
kost á að njóta þessara tón-
leika verður 100 gjafamiðum
úthlutað á hvern hljómleik.
Skulu þeir, sem þeirra vilja
verða aðnjótandi, senda Tón-
listarfélaginu umsóknir sínar.
í vor hyggst Tónlistarfélagið
að gangast fyrir Beethoven-
hátíð hér í bænum, og er það
gert í tilefni af því, að þá eru
120 ár liðin frá dánardægri tón-
skáldsins. Gert er ráð fyrir, að
þá verði leikin einhver af stór-
verkum Beethovens, og ætlar
Tónlistarfélagið að fá hingað til
lands fræga, erlenda hljómlist-
armenn íslenzkum hljómlistar-
mönnum til aðstoðar.
Aðf lutningsg j ald
(Framháld af 1. síðu)
nokkra vernd. Undanfarið hafa
íslenzkar bátasmíðastöðvar alls
ekki getað með nokkru móti
tekið að sér smíði allra þeirra
báta, sem keyptir hafa verið.
Það virðist því óeðlilegt, að þeir,
sem keypt hafa báta frá öðrum
löndum, greiði sérskatt af bát-
um þessum.
Ef til vill er ekki búið að Inn-
heimta aðflutningsgjöld af öll-
um innfluttum bátum, og sé svo,
þá er að sjálfsögðu ætlazt til
þess, að fallið verði frá inn-
heimtunni."
(jatnla Síc
30. sek. yfir Tokió
ASalhlutv. leika:
Spencer Tracy,
Van Johnson.
Sýnd kl. 6 og 9.
v
'V
Vtjja Síé
(vi9 Shúlnnötu )
LÁTIJM DROTTEV
DÆMA.
(Leave Her to Heaven)
Hin miklð umtalaða stórmynd.
Sýnd kl 9.
Patrekur inikli
FJörug gamanmynd meB
Donald O’Connor og
Peggy Ryan.
Sýnd kl. 3. 5 og 7.
^tí&ðbúli
^uéíníí $5álgfonat
$)aflbæhuc oo ritfltc&ic
1791-1797
7jathatbíc
í kvennafans
(Bring on the Girls)
Amerisk söngvamynd í eðlileg-
um litum.
Veronica Lake
Sonny Tuíts
Eddie Bracken
í
Marjorie Reynoids
Sýning kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: !!
" o.
Jónsmessudraumur
á fátækraheimilinu. *1
o
Leikrit í 3 þáttum, eftir Pár Lagerkvist. <1
o
Leikstjóri: LÁRUS PÁLSSON.
Sýning á smmudag kl. 30.
Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 3 í dag. — Tekið á móti !!
pöntunum í síma 3191 kl. 1 til 2 og eftir 3V2. Pantanir 0
sækist fyrir kl. 6. X
ÖLLUM vinum mínum og vandamönnum, fjær og nær,
sem glöddu mig og heiðruðu á níræðisafmælinu þann
17. nóv., sendi ég mínar beztu þakkir.
MAGNÚS ÓLAFSSON, Eyjum.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
TENGILL H.F.
Heiði við Kleppsveg,
tekur að sér hvers konar raflagnir og uppsetningu á raf-
stöðvum, viðgerðir á mótorum og heimilisvélum.
Fljót vinna. Góðir menn.
Upplýsingar í síma 5994.
■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
f
o
o
o
O
o
O
o
o
O
o
o
o
o
O
<»
.0
Kaupendur og inn-
heimtumenn Tímans
Gjalddagi blaðsins var 1. júlí.
Vinsamlegast, dragið ekki lengur að
senda greiðslur.
Árgangurinn kostar kr. 45.00 ntan
Reykjavíknr og Hafnarfjarðar.
INNHEIMTA TÍMANS
ÚTBREIÐIÐ TÍMANN