Tíminn - 06.12.1946, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
ERAMSÓKNARPLOKKURINN
Simar 2SSS og 4371
PRENTSMIÐJAN EDDA bJ.
30. árg.
Reykjavík, föstudagmn 6. des. 1946
RITST J ÓRASKRHTSTOFUR:
EDDTJB 'SI. Líndrirgðtu * A
Simar 2353 og 4S7J
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSENGASKRIFSTOFA-
EDDUHÚSI, Lindargötu BA
Siml 2323
225. blað
Áíyktanir f[okksjDÍngsin.s
í menntanrLátum
I. Skólamál.
Annarleg sjónarmið mega ekki lengur
hindra markaðsöflnn fyrir sjávarútveginn
A.
Áttunda flokksþing Framsóknarflokksins telur, að fræðslu- og
uppeidismál séu meginþátturinn í því að efla menningu og þroska
þjóðarinnar.
Leggur flokksþingið áherzlu á:
a) Að sem allra flestir fái aðstöðu til að njóta sem beztrar
skólamenntunar umfram lögskipaða barnafræðslu, er miðuð sé
við hæfni þeirra og þarfir þjóðfélagsins.
b) Að fjárhagsleg aðstaða manna til skólanáms verði gerð
jafnari en nú er, hvar sem þeir búa í landinu.
c) Að framleiðslan til lands og sjávar og aðrar nauðsynlegar
starfsgreinar þjóðfélagsins eigi jafnan kost nægilega margra sér-
menntaðra manna.
B.
Um framkvæmdir til að ná þessu marki leggur flokksþingið
megináherzlu á þessi atriði:
1) Að hraðað verði sem mest byggingu skólahúsa og fjárfram-
lög ríkisins aukin í því skyni.
2) Að héraðs- og gagnfræðaskólar verði efldir að húsakosti,
tækjum og kennslukröftum, svo að þeir geti sem fyrst fullnægt
þörfum unga fólksins fyrir gagnfræðanám í bóklegum og verk-
legum greinum í hverju fræðsluhéraði.
3) Að reistur verði menntaskóli í sveit.
4) Að komið verði upp nauðsynlegum húsakosti fyrir Mennta-
skólann í Reykjavík ásamt heimavist fyrir nemendur.
5) Hraðað sé byggingu bændaskóla Suðurlands og lögð sem
mest áherzla á verklegt nám í bændaskólum í samræmi við aukna
vélanotkun við landbúnaðarstörf og breytta' búnaðarháttu.
6) Þar sem reynslan sýnir, að húsmæðrafræðslan í landinu
er ófullnægjandi, telur flokksþingið nauðsynlegt að tryggja bæði
almennari og gagngerðari fræðslu húsmæðra.
7) Komið sé upp iðnfræðslu í sveitum, sem miðað sé við þarfir
þeirra. Afnumdar verði þær hömlur, sem nú eru á iðnaðarnáminu.
8) Flokksþinginu er ljóst að starfsemi skólanna byggist á dug-
andi og vel menntaðri kennarastétt, og lýsir fylgi sínu við þá
stefnu að auka menntun kennara.
9) Að nemendur utan af landi, sem sækja skóla í bæjum, geti
átt kost á húsnæði og fæði fyrir sannvirði.
10) Flokksþingið endurtekur fyrri yfirlýsingu um það, að heim-
ilið eigi að vera hyrningarsteinn uppeldis- og þjóðmenningar og
leggur áherzlu á, að skólarnir móti starf sitt í samræmi við þetta,
efli þjóðlega menningu og virðingu fyrir tungu þjóðarinnar, sögu
og minjum.
II. Önnur menningarmál.
1) Flokksþingið lýsir ánægju sinni yfir vaxandi lþróttastarfsemi
í landinu og telur hana hina mikilsverðustu fyrir manndóm og
þroska þjóðarinnar, og beri því að efla íþróttasjóð og íþrótta-
kennaraskóla.
2) Það er staðreynd, að skilyrði til heilbrigðs félagslífs æsku-
lýðsins víða í landinu eru alls ófullnægjandi. Þess vegna telur
flokksþingið nauðsynlegt, að ríkið styrki byggingu félagsheimila
og veiti félagsskap æskumanna stuðning á annan hátt.
3) Flokksþingið lýsir yfir stuðningi við þjóðlega og frjálslynda
klrkju.
Víðtækt þjófnaðarmál í
Gullbringusýslu
Allmiklu liefir verið stolið af Kefiavíkur-
flugvellinum.
ERLENDÁR FRÉTTIR
TiIIögum Rússa um afvopn-
unarmálin hefir verið vísað til
undirnefndar í stjórnmálanefnd
sameinuðu þjóðanna.
Grikkir hafa kært Jugoslava,
Albani og Búlgari fyrir banda-
lagi sameinuðu þjóðanna. Telja
þeir þessar þjóðir standa að baki
uppreistinni í Norður-Grikk-
landi.
Franska þingið hefir kjörið
jafnaðarmanninn Gouin for-
seta sinn. Það hefir hafnað
Thorez, foringj a kommúnista,
sem forsætisráðherraefni, með
259 gegn 310 atkv. Thorez fékk
atkvæði kommúnista og jafnað-
armanna.
Námumannafélagið, sem
stendur fyrir kolaverkfallinu,
hefir verið dæmt í 3.5 milj. doll-
ara sekt fyrir ólöglegt verkfall.
(Framhald á 4. slðu)
Undanfarið hefir gengið sterk-
ur orðrómur um, að miklir
þjófnaðir hafi verið framdir á
Keflavíkurflugvellinum. Sýslu-
maðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu hefir í tilefni af því
sent blöðunum frásögn, þar sem
segir á þessa leið:
„Þegar íslenzka ríkisstjórnin
tók við flugvellinum og eignum
setuliðsins á Reykjanesi sam-
kvæmt flugvallarsamningum við
Bandarikin, kom í ljós, að tals-
verðum verðmætum hafði verið
stolið á þessu svæði, meðan eign-
irnar voru ennþá í vörzlu setu-
liðsins og einnig um þær mund-
ir, sem afhending þeirra til ís-
lendinga fór fram. Var þá þeg-
ar í stað gerð gangskör að því
að rannsaka mál þetta og
stemma stigu fyrir áframhald-
andi þjófnaði. Var þess vegna
gerð húsleit hjá allmörgum
mönnum á Suðurnesjum, sem
grunur lék á, að hefðu í vörzl-
um sínum stolna muni með
þeim árangri að í einum hreppi
(Framhald á 4. síöu)
NÝR SIGUR I LI GTÆKMXWR
^Reipdráttur stjórnarflokkaima veldur jiví,
að sáralíttð er nú aðhafzt I jiessum málum.
Útvegsmenn hafa lýst yfir því, að þeir muni ekki gera skip sín
út á komandi vetrarvertíð, að óbreyttum aðstæðum. Þetta er
áreiðanlega ekki gert að ófyrirsynju, heldur er hitt furðulegra,
að útgerðarmenn skuli ekki hafa gripið fyrr til slíkra ráðstaf-
ana, eins grálega og þeir hafa verið leiknir af dýrtíðarstefnu
ríkisstjórnarinnar. Af hálfu þeirra flokka, sem að stjórninni
standa, virðist þó þessi yfiriýsing ekki tekin alvarlega, enda
munu þeir treysta því, að þeir geti enn með blíðmælum og for-
tölum fengið útvegsmenn til að dansa með þeim Óla-skans-
dansinn, þótt þeim verði það þvert um geð. Hversu mikið á-
hugaleysi stjórnarflokkanna er fyrir viðreisn útgerðarinnar, má
gleggst marka á því, að markaðsöflunin fyrir sjávarafurðir
Iiggur nú í eins konar dauðadái í stað þess, að við ættum að
hafa um þessar mundir starfandi sendinr^ndir í þessum erinda-
gerðum í Bretlandi, Rússlandi, Bandaríkjunum og víðar, ef vel
ætti að vera.
Þessi tegund af Helikopter flugvélum hefir þann sérstaka eiginleika,
að hún getur bæði lent á sjó og landi. Það er því hægt að komast
með henni hvert sem er, þar sem þessi flugvélategund getur tekið sig upp
og sest lóðrétt. Talið er líklegt, að þessi flugvél komi til með að verða
vísindamönnum að miklu gagni, þar sem með henni er hægt að komast
á staði, sem ekki er með öðru móti hægt að ná til.
Lofsamlegir dómar um Karla-
kór Reykjavíkur
Kórinn heldur heimlelðis 17. ji. m.
Samkvæmt skeyti, er nýlega hefir borizt frá Karlakór Reykja-
víkur, munu söngmennirnir halda heimleiðis frá New York 17. þ.
m. í tveimur Skymaster-flugvélum. Kórinn hefir sungið undan-
farið á ýmsum stöðum við mikinn orðstír og fara hér á eftir
nokkur blaðaummæli, er birtust í síðastl. viku um söng kórsins:
: 10 Detroit Free Press: Þrjátlu og
Leiðrétting hagfræð-
inganefndarinnar
„í tilefni af grein Vísis í dag
um álit hagfræðinganefndar-
innar svokölluðu viljum við
undirritaðir, sem áttum sæti í
þessari nefnd, taka lætta fram:
Frásögnin er í ýmsum atrið-
um mjög villandi og í sumum
beinlínis röng, og er fjarri því,
að hún veiti rétta heildarmynd
af efni álitsins. Sökum þess, að
það hefir fram til þessa verið í
höndum aðeins fárra manna,
sem öllum hefir verið talið skylt
að fara með það sem algert
trúnaðarmál, getum við á þessu
stigi málsins ekki rætt einstök
atriði greinarinnar opinberlega
og sýnt fram á, í hvaða atriðum
frásögnin er villandi og röng.
En til þess mun væntanlega
gefast tækifæri síðar.
Reykjavík, 4. des. 1946.
Gylfi Þ. Gíslason.
Jónas H. Haralz.
Klemens Tryggvason.
Ólafur Björnsson.“
sex söngvarar komu frá íslandi
til að fylla hljómleikasalinn
með hlýjum röddum og ágæti
listar sinnar. Það er undarlegt,
að svo litlíð land skulii geta
framleitt svo fágaða list, tón-
smíðar og flutning.
Cincinnati Enquirer: — Vel
þjálfaður kór og dásamleg
hljómfögur lög.
Youngstown Vindicator: —
Raddir kórsins voru í mjög góðu
jafnvægi. Flutningurinn var með
ágætum og öll meðferð óað-
finnanleg.
Pittsburg Post Gazette: Þótt
undarlegt megi virðast kom í
Ijós, aö söngur íslendinganna á
laugardagskvöldið var meðal
beztu kórsöngva ársins.
Dayton Journal: Við, sem höf-
um hugsað okkur ísland sem
kuldalegan jökul, er þiðnar of-
urlítið um miðsumars leytið,
komumst að því á samsöngnum
í gærkvöld, að þetta land er
nógu vistlegt til þess að menn-
ing hefir þróast hjá þjóðinni
sem það byggir.
Söngmennirnir gera ráð fyrir,
eins og áður segir, að leggja af
stað heimleiðis frá New York
hinn 17. þessa mánaðar í tveim-
ur Skymaster flugvélum.
Tjón aí völdum
ofviðrisins
Síðdegis í fyrradag gerði mik-
ið hvassviðri með úrkomu suð-
vestanlands. Verst mun veðrið
hafa verið í Reykjavík og í
kringum Faxaflóa, og mátti
heita, að óstætt væri um tíma.
Um miðnætti í fyrrinótt tók
veðrið að lægja. Kl. 5 í gær-
morgunn hafði rignt 20 mm.
seinustu 12 klst. í Reykjavík.
Skemmdir munu hafa orðið
víða af völdum þessa veðurs á
suðvesturlandi. Einkum hafa
skemmdir orðið á símalínum,
sem slitnað hafa niður, og er nú
símasambandslaust með öllu við
Búðardal og vestur um fjörðu
til Patreksfjarðar og Bíldudals,
en línur þangað liggja um Búð-
ardal. Þá hafa einnig orðið
aðrar minniháttar skemmdir á
öðrum símalínum. Vegna úrkom-
unnar rann víða mikið af ofaní-
burði úr vegum, og gerir það
umferð erfiðari.
(Framhald á 4. slSu)
Óverjandi vanræksla.
Eins og málum er komið, er
öflug markaðsöflun eitt höfuð-
mál sjávarútvegsins. Það þarf
með þrautseigju og víðfeðmu
starfi að gera sér ljóst, hvar
hina beztu markaði er að finna
og láta síðan ekkert ógert til að
tryggja sér þá. Meðan óvissan
ríkir um þessi mál, er líka stór-
um óhægra um aðgerðir í dýr-
tíðarmálunum, þvi að vitanlega
hljóta þær að fara mjög eftir
markaðshorfum og verðlags-
horfum á útflutningsvörunum.
Þetta mikilvæga verkefni
hefir ríkisstjórnin svo til alger-
lega vanrækt. Ekkert hefir verið
gert til að semja við Breta um
ísfisksöluna, en á sama tíma
semja Færeyingar við þá um
ísfisksölu, sem er mjög mikil á
þeirra mælikvarða. Eftirgrennsl-
un Rússa um fiskviðskipti við
íslendinga hefir verið tekið
með hangandi hendi, svo að
ekki sé meira sagt. Við Banda-
ríkin hefir ekki verið reynt að
gera neina samninga, svo að
kunnugt sé. Markaðsleit í lönd-
um Mið-Evrópu hefir verið jafn-
vel svo lítill sómi sýndur, að er-
indrekum, sem ætluðu að fara
þangað (til Póllands), hefir ver-
ið neitað um vegabréf! Nær
ekkert mun hafa verið reynt til
að selja fisk til Spánar, enda
þótt það væri eitt helzta mark-
aðsland okkar fyrir striðið.
Pólitískur reipdráttur um
utanríkisviðskiptin.
Það væri rangt að segja, að
þessi óheyrilega vanræksla af
hálfu stjórnarinnar stafaði ein-
göngu af áhugaleysi fyrir vel-
farnaði útvegsins. Hér liggja að
miklu leyti pólitískar ástæður
til grundvallar. Forustumenn
Sjálfstæðisflokksins vilja hafa
sem minnst viðskipti við Rúss-
land og þjóðirnar, sem fylgja
þeim að málum. Þeir halda, að
það geti haft pólitísk áhrif hér
innanlands, sósíalistum i vil. Á
sama hátt vilja sósíalistar hafa
Firam dauðsföll af
völdum mænuveik-
innar í Reykjavík
Mænuveikin er enn ekki í
rénun hér í bænum. Kunnugt
er nú orðið um 40 tilfelli frá
því fyrst tók að bera á veikinni
hér, en það var síðast í október.
Veikin hefir lagzt misjafnlega
þungt á fólk. Fimm manns hafa
látist af völdum veikinnar, fjór-
ir fullorðnir og eitt barn.
sem allra minnst viðskipti við
Engilsaxa og aðrar þjóðir, sem
ekki lúta Rússum, því að þeir
álíta það pólitískt óhagstætt
fyrir sig.
Framangreindu viðhorfi Sjálf-
stæðisflokksins er vel lýst í eft-
irfarandi ummælum, er Þjóð-
viljinn hefir eftir Áka Jakobs-
syni 3. þ. m.:
„Utanríkisráðherra, Ólafur
Thors, hefir sýnt óheyrilegt
áhugaleysi fyrir því að koma
á viðskiptasamningum við
Sóvétríkin, og það frá upphafi.
Þau skref, sem hann hefir
stigið í þessu máli einkennast
öll af tregðu og óvilja að semja
við Sóvétríkin, og hann hefir
ekki fengizt til að'gera þær
ráðstafanir, er gerðar hafa
verið, nema eftir deilur innan
ríkisstjórnarinnar“.
Hér er áreiðanlega rétt frá
sagt. Það er lika mjög líklegt,
að þessi tregða hafi spillt fyrir
viðskiptum austur á bóginn, m.
a. komið í veg fyrir allmikla
hestasölu til Póllands.
En sú tregða, sem kemur fram
hjá Ólafi Thors, þegar fjallað
er um viðsklpti við Rússa og
nábúa þeirra, kemur jaínvel
enn greinilegar fram hjá sósíal-
istum, þegar fjallað er um við-
skipti við Engilsaxa og aðrar
þjóðir, sem ekki fylgja Rússum.
Það gerðist t. d. á þingi í haust,
þegar borin var upp tillaga um
markaðsleit í Bandaríkj unum,
að allir þingmenn sósialista
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna,
nema einn, sem greiddi atkvæði
á móti. Ástæðan til þess, að
ekki hefir verið reynt að selja
fisk til Spánar, er aðallega sú,
að Alrþýðusambandið lagði hann
á Spánarviðskipti.
Sjónarmiðiff, sem verffur
aff ráða.
Það má vera hverjum einum
(Framhald á 4. síðu)
Lélegur ræðari
í grær var frumvarplð um
breytingu á búnaðarmálasjóðs-
Iögunum til 1. umræðu í neðri
deild. Við umræðurnar reis Jón
Pálmason upp með miklu of-
forsi og heimtaði, að i'rv. væri
fellt, þegar við 1. umræðu. Pét-
ur Ottesen svaraði Jóni og sagði,-
að þessi krafa hans bæri vott
um mikilmennskubrjálæði. Pét-
ur taldi hins vegar, að Jón hefði
ekki af miklu að státa. Það
hefði oftast verið svo í land-
búnaðarnefnd n. d., að Jón
Pálmason og kommúnistinn
hefðu róið tveir saman og hefði
kommúnistinn jafnan reynzt
betri ræðari og snúið á Jón,
þótt hann væri breiðari um
bakið og herðarnar.