Tíminn - 06.12.1946, Page 2
2
TÍMKMV, föstudaginn 6. des. 1946
225. blað
Halldór Kristjánsson:
Ferðalag til fróðleiks og skemmtunar
Föstudayur G. des.
Hagfræðingaálitið
Hvar fékk Vísir upplýsingar
um álit hagfræðinganna?
Hvers vegna vill Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki birta hagfræð-
ingaálitið óbrjálað, en lætur
blað sitt birta sumt úr því
brenglað og villandi?
Er þetta skipulagt til að draga
stjórnmálin enn niður í eymd
og sorp með svikum á svik of-
an?
Er þetta nýtt herbragð hjá
Ólafi Thors?
Á nú Vísir að vinna þau
óþrifaverk, sem þykja undir
virðingu Morgunsblaðsins?
Þannig spyr nú maður mann,
hvar vetna í Reykjavík.
Tíminn veit ekki þau skil á
þessum málum, að hann kunni
hér úr að leysa. En skammt ger-
ist nú milli þeirra, hneykslismál-
anna á hæstu stöðum.
Eins og áður hefir verið sagt,
lögðu Pramsóknarmenn til í
tólfmannánefndinni, að álit
hagfræðinganna yrði birt, enda
var nefnd þeirra mynduð til
þess að gera athuganir á því
ýmsu, sem þjóðina varðar mjög
miklu að vita um. Þetta var
fellt af stjórnarflokkunum,
sem lögðu mikla áherzlu á, að
halda yrði álitinu leyndu, og
töldu það versta trúnaðarbrot,
ef nokkuð yrði sagt frá því, a.
m .k. á þessu stigi málsins. Fyr-
ir þessu beygðu Framsóknar-
menn sig, meðan starfað væri í
tólfmannanefndinni, þar sem
þeir treystu stjórnarflokkunum
til að rjúfa ekki þau heit, er
þeir sjálfir beittust fyrir. Efnd-
irnar má nú sjá í flokksblaði
forsætisráðherrans.
Það er nú nokkurn veginn
ljóst, af því sem fram er komið,
að álit hagfræðinganna afhjúp-
ar meginhlutann af kosninga-
áróðri stjórnarflokkanna frá í
vor. Básúnuhljómur sá hinn
mikli, sem sigurvegararnir
gjörðu í þeim leik, þolir því
ekki þá lýsingu staðreynda, sem
þar virðist vera. Það er því e.
t. v. skiljanlegt, að forsætisráð-
herrann vildi ekki láta þetta
álit birtast, meðan blað hans
var að birta tölur Odds Guð-
jónssonar og sams konar vís-
indi og leggja út af þeim. En
hvorki gætti þjóðhollustu né
heiðarleika í slíkri afstöðu, þó
að skiljanleg gæti hún verið.
Það er líka hægt að skilja
það, að vinir braskara og fjár-
plógsmanna, hafi gjarnan vilj-
að bera þeim njósn, svo að þeir
gætu búið sem tryggilegast um
rángsfeng sinn. Það gat því
verið sniðugt herbragð, að láta
Vísi segja með sínu lagi frá
nokkrum atriðum álitsins. —
Sennilegt er, að jafnframt hafi
hann tínt til og rangfært, það
sem helzt hefir þótt von til, að
vakið gæti óánægju almennings.
Það er nú vonandi, að forsæt-
isráðherra og menn hans vindi
bráðan bug að upplýsingastarf-
semi, er kveði niður allar grun-
semdir og getsakir af þessu tagi.
Nokkurra athygli vekur af-
staða Alþýðublaðsins í þessu
máli. Það segir að aldrei hafi
verið ákveðið að leggja hag-
fræðingaálitið til grundvallar
fyrir stjórnarsamstarfi fram-
vegis, og hér sé verið að hræða
fólk að óþörfu. Er helzt svo að
sjá, sem blaðið vilji sem minnst
úr öllu gera, nema trúnaðar-
broti Vísis, og láta svo, sem ekki
bera að taka neitt mark á álit-
inu. Er það mjög undarlegt, þar
Þetta á ekki að vera ferða-
saga, en það eru hugleiðingar,
sem eru skrifaðar eftir lítið
ferðalag til fróðleiks og skemmt-
unar. Ég ákvað nýlega að verja
einum sunnudegi til snöggrar
ferðar austur yfir fjall. Ég ætl-
aði mér að koma þar á merkilega
staði, — ákveðna staði, sem ég
hafði heyrt getið um og heyrt
að hefðu merkilega sögu að
segja um þróun þjóðlífsins.
Ég ætlaði að sjá ávexti sterkra
afla, sem eru að verki í þjóðlífi
okkar. Ég vildi sjá með eigin
augum, því að sjón er sögu rík-
ari og sá veit gerzt er reynir.
Ég vildi komast í persónulega
snertingu við framvindu þjóð-
lífsins og sjálfur sjá bæði já-
kvæðar og neikvæðar nýsköp-
unarframkvæmdir.
Ég er ánægður með þessa ferð
því að hún svaraði tilgangi sín-
um. Ég kom til baka andlega
endurnærður. í þessari ferð
styrktist trú mín á framtíð
þjóðarinnar, landbúnað hennar
og sveitamenningu. En jafn-
framt megnaðist líka óbeit mín
og skömm á braskarastétt og
sníkjumennsku. Ég sannfærðist
bæði um heilbrigða og þjóðholla
nýsköpun alþýðlegra sveita-
manna, en jafnframt óhófslíf
og eyðslusiði yfirstéttarfólks.
Ég skildi betur eftir „en áður,
vaxtarmáttinn í þjóðarstofnin-
um, en líka þau bitsár, sem
snikjumennskan veldur honum.
Og nú ætla ég að segja lítils
háttar frá þessari reynslu, því
að hér er efni, sem alla varðar.
Tvö hús.
Austur við Þingvallavatn
neðanvert stendur hús eitt mik-
ið , hlaðið úr gulleitum og fram-
andlegum tígulsteini á steypt-
um kjallara. Innan við glugg-
ana lýsir af dýrum tízkutækj-
um, sem prýða og fegra heim-
ili sumra manna og létta störfin.
Þar glampar á ísskáp og þar eru
stólar þægilegir. Allt er húsið
hið vandaðasita og hvergi til
sparað. Myndi það sóma sér hið
bezta í sveit, þar sem 2 eða 3
fjölskyl'dur byggju saman víð
rausn.
Slíku er þó ekki til að dreifa
þarna, enda landið í kring
hrjóstrugt. Þetta hús er ekkl
sveitabær og það er heldur ekki
venjulegt íbúðarhús. Þetta er
sumarbústaður, sem einn af for-
stjórum Kvöldúlfs hefir byggt
sér þarna á síðustu árum.
Samtímsis því hefir annar
þeirra Kvöldúlfsmanna, forsæt-
isráðherrann sjálfur, byggt sér
sumarhús, sem sízt mun minna,
ofar við Þingvallavatn. Er það
rausnarleg bygging með loft-
svölum á gildum staurum um-
hverfis sig á þrjá vegu.
sem einn af þingmönnum flokks
ins var í nefndinni, en skyld-
leiki er með skrifum þessum og
fyrrverandi stjórnarsamstarfi.
Það er illt að þola, úr því
sem nú er komið, að hagfræð-
ingaálitið verði ekki birt, svo að
menn sjái það sjálft. Nú er þar
ekki neitt, sem þarf að fela
þjóðarinnar vegna. Og þeir, sem
ekki kynnu að þola, að þjóðin
sjái sannleikann, ættu að þoka
til hliðar sem fyrst.
Menn eru tregir til að taka á
sig byrðar að óþörfu, en ef nauð-
syn krefur, mun allur þorri
fólks bregðast vel við. Því verð-
ur nú að láta sannleikann koma
í ljós.
Ég hefi ekki aðstöðu til að
lýsa þessum húsum náið, þó að
ég hafi séð þau utanfrá, en þau
munu í flestu líkjast húsum
sem byggð eru til munaðar, með
tilgerð og íburði. En í tilefni af
þeim koma ýmsar hugsanir í
hugann.
Fyrir hverra fé er þetta byggt?
Ég gat þessara húsa í grein í
Tímanum í vor og velti því þar
fyrir mér hver hefði kostað
byggingu þeirra. Ég spurði hvort
peningastofnanir hefðu lagt til
lánsfé í þetta, hvort eigendurnir
hefðu byggt þetta skuldlaust
fyrir afgangstekjur örfárra
missera, þrátt fyrir skattajög-
gjöf og, að því sem talið er,
engan sérstakan sparnað á öðr-
um sviðum, eða hvort þetta væri
byggt fyrir fé, sem dregiö væri
út úr rekstri Kvöldúlfs og talið
með útgerðarkostnaði hans.
Engin svör hafa komið fram
við þessu,. Engirm hefir sagt
neitt um það, hvernig þessi hús
urðu til. Það er ekki einu sinni
svo, að Mbl. hafi kallað mig sleí-
bera vegna þessara skrifa, eins
og þegar ég deildi á forseta-
brennivínið, hvað þá, að send
haíi verið kæra út af ummæl-
unum, eins og stundum er gert,
þegar mönnum svíður untían
sannleika, sem þeir geta ekki
breitt yfir.
Þessi hús eru staðreynd. Og
ég hefi sagnir af því, aö þau
hafi verið byggð þarna, en séu
ekki send í heilu lagi af himn-
um ofan. En hvernig er þá til
þeirra stofnað?
Ég hef þá trú, að þessi hús
séu byggð fyrir fé, sem dregið
hefir verið út úr rekstri Kveld-
úifs og stolið frá honum. Ég
trúi því, að þau séu byggð með
svikum og fjárdrætti. Og ég held
að öll þjóðin trúi þessu með mér,
án tillits til flokkaskiptingar, þó
að mörgum sönnum „Sjálfstæð-
ismanni“ finnist það bara fremd
og prýði á mönnunum, að hafa
komið húsunum upp á þann
hátt.
Þetta er móðgun við þjóðina.
Ég hefi samúð með þvf að
menn, sem búa í bæjum eins og
Reykjavík, eigi sér eitthvert
Rigningardag einn í sept-
ember, þegar veðráttan hindr-
aði útivinnu, brá tíðindamaður
SLU blaðsins sér að Bakka til
að hitta Mörtu Andersson, sem
vann til verðlauna á mjalta-
mótinu í ár og bar af öllu kven-
fólki, sem tók þátt í þeirri
keppni. Ég ætlaði mér að masa
stutta stund við þessa miklu
mjaltakonu.
— Afi er úti í skemmu, segir
lítill snáði, 4 til 5 ára, sem ég
hitti á hlaðinu. Ég hugsa mér
að Marta eigi hann og spyr
hvort mamma sé heima. Hug-
mynd mín er rétt og sá litli vís-
ar mér rakleitt inn í stofu, þar
sem Marta stagar í sokka.
Innan skamms er ég seztur,
og eftir að hafa skoðað verð-
iaunagripinn, förum við að tala
um keppnina og fleira í því
athvarf til dvalar í orlofum sin-
um og tómstundum. Ég hefi
notið þess að koma í litla og
snotra sumarbústaði, þar sem
prýtt hefir verið í kring með
græðandi umhyggju svo að gró-
andi líf blasir við augum. Hygg
ég að fátt sé hollara starfsfólki
í borgum í tómstundum þess, en
slík þjónusta við fegurð lands-
ins og lífsins, Og sízt megum
við á þeirri óöld áfengis og tó-
baks, sem nú geysar, finna að
því, þó að einstakir menn leggi
andvirði nokkurra flaskna og
talsverða tómstundavinnu í það,
sem er til fegurðar og yndisbóta,
þó að ekki gefi beinlínis af sér
fjárhagslegar tekjur.
Ég myndi ekki hafa fundið að
því, þó að Kvöldúlfur hefði byggt
eitt hentugt hús til dvalar fyrir
starfsfólk sitt í fríum þess, þar
sem æðri og lægri af landi og
sjó hefðu getað látið fyrirber-
ast nokkra daga. Hygg ég að
starfsmenn af skrifstofum hefðu
gott af að liggja þar við með
sjómönnum og starfsfólki úr
portinu og gæti það orðið öllum
til góðs. En þessu fer alls fjarri.
Hér eru byggð hús fyrir þá
eina, sem búa þess á milli í
rausnarlegum stórhýs|um, Það
er gert á þeim tma, sem þúsund-
ir manna hafast við í hrynjandi
hreysum og fá ekki efni til að
fcyggja yfir sig. Veit ég það vel,
að þessi tvö hús hefðu lítt
bætt úr þörf alþjóðar. En þau
eru fulltrúar margra húsa, sem
byggð hafa verið síðustu árin.
Þessi hús sýna réttlætið í
landinu.
Þau sýna heilindi þjóðarleið-
toganna.
Meðan stjórnmálamaðurinn
Thors talar um jafnrétti, er
fjárplógsmaðurinn Thors að
byggja sér einum dýra sumar-
höll.
Meðan stjórnmálamaðilrinn
talar um að beina fjármagninu
að atvinnulífinu er braskarinn
að stela frá atvinnuvegunúm.
Meðan stjórnmálamaðurinn
hrópar um byrðar á breiðu
bökin og að fé verði sótt í rottu-
holurnar, er svindlarinn að
leika sér að miljónunum og fela
þær.
sambandi.
— Eru þessi kappmót SLU
líkleg til þess að auka álit og
vinsældir landbúnaðarstarf-
anna?
— Já. Það tel ég víst. Mörgum
finnst að landbúnaðarstörfin séu
erfið og leiðinleg, en það eitt,
að þau eru unnin sem keppni
breytir viðhorfi sumra. Það er
þægileg tilfinning að vita sig
geta gert þetta eða hitt verkið,
eins vel og hver annar. Auðnist
•cvo að viima verðlaun, hvetur
það til að halda lengra, og reyna
að verða beztur í sínum flokki,
íélagi o. s. frv. Verðlaun, sam við
vinnum, eru sérlega dýnnæt
vegna þess, að þau eru endur-
minning um starfið. Oft þegar
ég sit hér heima og mjólka,
hugsa ég um það, hve skemmti-
legt og heillandi hafi verið á
Stjórnmálamaðurinn Thors
glepur þjóðina með leikarabrag
og loddarahætti, svo að brask-
arinn Thors fái frið til að sjúga
merginn úr framleiðslugreinun-
um sér til leiks og munaðar.
Bjartari bær.
Austur í Flóa, skammt fyrir
neðan Selfoss, er gamalt höf-
uðból, sem mikið er nú umtalað.
Það er Stóra Sandvík. Þar býr
maður, sem heitir Ari Páll Hann-
esson og bræður hans þrír. í
sumar skrifaði hrifinn sumar-
gestur stuttorða lýsingu af
heyskapnum þar, í Tímann, en
sðan hefir vðar og ýtarlegar
verið um hann rætt. Ég hafði
þá hugmynd, að þarna væru að
gerast merkilegir hlutir, og því
fór ég og fékk að sjá.
Ég skrifa hér ekki neina lýs-
ingu á afrekunum í Sandvík.
En skemmst er frá því að segja,
að þar voru öll hey af fyrra
slætti látin í hlöðu í sumar ný
af ljánum. Þau voru súgþurrk-
uð í hlöðunni. Loftið, sem blásið
var í heyið, var hitað í 20 stig
með kolakyndingu. Alls voru
þurrkaðir h. u. b. 1500 hestar.
Vinna við að slá heyhestinn,
flytja hann heim og koma fyrir
í hlöðu tók 2 klst. Eldsneyti til
upphitunar varð 1 króna á hest
og brennsluefni vélarinnar, sem
blásarana knúði, varð líka 1
króna á heyhest. í
Háin var verkuð sem vothey.
Ég sá heyið í hlöðunni. Ég
get ekki hugsað mér betri verk-
á heyi og held þó, að ég sé
vanur vandvirkni í þeim efn-
um. Heyið var grænt, mjúkt og
ilmandi frá gólfi og upp úr.
Frægur sigur.
Ari Páll sagði mér, að eftir
óþurrkasumarið 1945, hefði
hann hugsað sér, að annað hvort
skyldi hann sigrazt á óþurrkun-
um eða taka sér annað fyrir
hendur. Hann hafði ekki lund-
arlag til að taka því, að verða
þræll ótíðarinnar og sjá hey sín
grotna niður. En honum sýndist
að kaldur blástur heys, með
lofti, sem er mettað raka, væri
þýðingarlaust verk. Og hann
fann enga von í þeim skrifum,
að heyið hans ætti að flytjast
langa vegu til þurrkunar vlð
jarðhita.
Nú hefír Ari Píill unnlð sigur,
sem er merkilegur og öðrum til
lærdóms og örvunar. Hann
sagði mér, að síðastliðið ár hefði
verið gefinn aðkeyptur fóður-
einum og öðrum kappmótum.
— Hvaða starf er skemmti-
legast? Eru það mjaltirnar?
— Mér hefir alltaf þótt gam-
an að mjólka, en anriars þykja
mér öll sveitastörf skemmtileg.
Fullkomnari verkfæri létta líka
af okkur sumu því, sem
óskemmtilegast er. Og mér
finnst, að það sé svo fjölbreytt
og mikilsvert, sem gera þarf á
hverjum sveitabæ, að það verði
aldrei einhæft eða vélrænt.
— Hefir þig aldrei langað til
að skipta á mjaltaskemlinum og
t. d. skrifstofustól?
Marta Andersson hlær, þegar
ég spyr að þessu.
— Það hefi ég aldrei liugsað
um. Ég er ánægð með hlutskipti
mitt eins og það er, og finnst
að það væri mér mótlæti að
sitja kyrr á stól. og gera sama
verkið sí og æ. En auðvitað get
ur það líka vanizt, og einhverjir
verða að gera það, en ég vildi
ekki skipta.
— Er það svona ljújft að hugsa
til þ£ss að stunda landbúnað
alla ævina?
— Já. Ef heilsan helzt, þá er
ekkert í vegi. Mér finnst það
misskilningur, áð sveitastörfin
séu leiðinleg. Að hugsa sér verk-
bætir fyrir 16 þúsund krónur í
fjósinu . hans. En nú mjólka
kýrnar sízt lakar en þá, af heyi
einu saman.
. i r »
Fleira merkilegt.
En það er fleira merkilegt að
sjá í Sandvk. Þeir bræður stunda
vikursteypu allt árið og selja
bæði einangrunarplötur og
holsteina í stórum stíl. Er sá
iðnaður þeirra allur með myrid-
arbrag.
í ágúst í sumar fóru þeir að
grafa fyrir íbúðarhúsi handa
sér. Og nú er það orðið fokhelt,
10X20 metrar að flatarmáli,
tvær hæðir á kjallara. Mér
skilst að slíkt hús myndi kosta
mikið fé í Reykjavík fullbúið,
alls ekki minna en þrjá fjórðu
úr miljón.
Framkvæmdirnar í Sandvík
og búskapurinn þar sýnir, hvað
hægt er að gera í sveitum ís-
lands, ef dugnaður og sam-
heldni fylgir ráðdeild og hygg-
indum. Það er hressandi að
koma á slíka staði. Þar má sjá
fram í tímann bjarma af hin-
um nýja degi, sem er að renna
upp yfir íslenzkan landbúnað og
sveitamenningu. Um þá dags-
brún mun ég ræða nánar síðar.
Hér þarf stefnuhvörf.
Nú vil ég biðja lesendur mína
að hafa í huga þær staðreyndir,
sem ég hefi nefnt og draga á-
lyktanir af. Hvor er nú meiri og
merkilegri nýsköpunarmaður
Ólafur Thors eða Ari Páll Hann-
esson?
Ég veit að ég þarf ekki að
sv.ara þessu sjálfur eða ræða
nánar að sinni mismun þessara
manna. En í ljósi þessara stað
reynda sýnir það sig, að þjóð-
inni er þörf að taka upp nýja
stefnu og stjórn í fjármálum
og haga skiptingu þjóðartekn-
anna á annan veg en verið hefir.
Þjóðin má ekki við þvi að
hlaða lengur undir braskarana
á kostnað hinna sönnu fram-
leiðenda og nýsköpunarmanna
í sveitum og við sjó. Sú vissa
verður þvl sterkari, sem við
kynnumst betur framkvæmdum
eins og þeim, sem ég hefi hér
lýst í stuttu máli.
Við höfum engin efni á því, að
láta loddarana glepja okkur
sýn, lengur en orðið er. Alllr,
sem meta mest þjóðarhagi verða
nú að taka höndum saman til
að styðja sannar framfarir eða
segjum nýsköpun, en blnda enda
á sníkjumennskuna.
smiðjustúlkur, sem vinna sama
verkið dag eftir dag. Ekki get
ég skilið að það sé eftirsóknar-
vert. Mörgum þykir gott að hafa
litla ábyrgð, en þá höfum við
heldur ekkert hlutverk til að
lifa fyrir.
— Hvað eigum við þá að segja
um fásinni sveitalífsins og leið-
indi, sem oft er talað um?
— Það er helzt að spyrja ein-
hvern annan um það. Ég veit
ekki skil á því, fremur en grís
veit grein á sunnudegi, segir
Marta hlæjandi, meðan hún
dúkar kaffiborðið. Ég skil ekki
hvaða leiðindi átt er við. Vinn-
an er skemmtileg, hressandi og
fjölbreytt. Og það er óþarfi að
hafa áhyggjur af tómstundun-
um. Ungmennafélagið hefir
námshringi og þar er margt
hægt að læra. Alltaf má lesa
bækur og svo er náttúran til að
leita til og ótalmargt. Ekki get
ég skilið, að það sé svo skemmti-
legt að vera borgarbúi, bara
vegna þessj, að húsln standa
þétt saman og skemmtiefnin eru
mörg. Það veitir í sjálfu sér
enga lífsfyllingu.
Nú segir tengdamóðir Mörtu,
að kaffið sé til, og unga konan
(FramhalcL á 4. síöu)
Beztur arður er ánægð lund
Marta Andersson heimsótt
Meðal frændþjóða okkar eru háð kappmót í ýmis konar starfs-
greinum eins og líka hefir verið gert hér á landi. (Kappsláttur,
kappbeiting). Þessi grein segir frá heimsókn til konunnar, sem
sigraði á mjaltakappmóti í Svíþjóð þetta ár.