Tíminn - 11.12.1946, Síða 1

Tíminn - 11.12.1946, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN88ON ÍJTGEPANDI: FRAMSÓKNARPTiOKKDRINN Slmar 3383 og <373 PRENT8MIÐJAN EDDA hJ R.ITS7 J' R.ASKRIFSTí >«,!)< EDEV'Jl 81. j i/öt.u «• a Slms r" 2353 at <37í AFGREIÐSIA.. INNHÍ.TMTA OG AUGLÝHLNGASK.aF8TOP EDDUHtJSL IJi dargðtt. W A aiaol 3323 30. árg. Reykjavík, miðvikudagixiii 11. des. 1940 228. blað Brezk-íslenzka félagið 60 ára í dag Félagið hefir unnið mikið og merkilegt starf Hinn 11. desember þ. á. eru 25 ár síðan félagið Anglia var stofnað. Fyrsti fundur þess var haldinn þann dag árið, 1921 í Ingólfshvoli, og höfðu tii hans boðað þeir Helgi H. Eiríksson, skólastjóri, Ólafur Þorsteinsson, verkfræðingur j og Snæbjörn Jónsson, bók- sali. Tilgangur félagsins var þegar ákveðinn sá, að stuðla að gagn- ! kvæmri kynningu þjóðarinnar Félagið hefir jafnan starfað samkvæmt þessari upprunalegu stefnuskrá, haldið sér eingöngu við hin menningarlegu kynni og útbreytt gagnkvæma þekkingu á íslenzku og brezku þjóðinni, en algerlega ópólitiskt félag. Það hefir gengist fyrir því, að komið varð á kennslu í ensku við Há- skóla íslands, safnað fé til að koma UPP tveim herbergjum á stúdentagarðinum, sem enskir stúdentar við nám hér við há- skólann hafa forgangsrétt að, komið upp bókasafni fyrir fé- lagsmenn og beitt sér fyrir mörgum fleiri málum til að auka kynningu og útbreiða gagn- kvæman skilning og vináttu milli íslendinga og hins ensku- mælandi heims. í Angliunefndinni, sem und- irbjó að koma á kennsJu í ensku við háskólann, voru þeir dr. Guðmundur Finnbogason, próf. Ólafur Lárusson og Snæbjörn Jónsson. Síðan bættust í nefndr ina þeir Klemens Jónsson ráð- herra og Haraldur .Nielsson prófessor. Fyrsta fyrirlestur i félagínu hélt hr. K. T. Sen M.A. 21. jan. 1922, er dvaldi þá um tíma á Breiðabólstað á Álftanesi hjá tengdaforeldrum sinum. Skoskur fræðimaður og rit- höfundur, Alexander MacGilI safnaði um 300 bindum bóka og gaf félaginu, og varð sú bóka gjöf undirstaðan að núverandi bókasafni féla,gsins. Fyrstu bóka verðir félagsins voru þeir Ás mundur Gestsson gjaldkeri og HalJgr. mag. Hallgrímssim. Á styrjaldarárunum vann Angilia mikið starf með því að eyða misskilningi og breiða út þekkingu á íslenzkum málum meðal hersins, og höfðu bæði brezkir og bandarískir hermenn aðgang að fundum félagsins meðan þeir dvöldust hér. í vetur mun félagið halda fundi mánaðarlega þar sem fyr- irlestrar verða haldnir og ýms önnur skemmtiatriði. Félagið mun halda upp á 25 ára starf- semi sína með skemmtifundi í Oddfellowhúsinu þann 12 þ.m. kl. 8.45. Fyrirlestur heldur Sveinn Sigurðsson ritstjóri, sem hann kallar „þáttur úr sögu ensk-íslenzkra samskipta.“ Enn fremur mun herra Birgir Hall- dórsson, syngja með aðstoð Dr. Urbantschitsch, og Miss Wassell og Mr. Burgess fara með stutt- an leikþátt. Að lokum verður dansað til kl. 2 f. h. Athyglisverð viðurkenning sósíalista: Eftir tveggja ára stjórn þeirra fer enginn bát- ur á flot að óbreyttum fjárhagsaðstæðum FRÁ KAPPAKSTFRSMÓTI I DANMÖRKF Minningarathöfn Minningarathöfn um þá, sem fórust með Borgey 5. f. m. fer fram i Dómkirkjunni í dag kl. 4.40 síðdegis. Athöfninni verður útvarpað. 3Sjávarntvegsmálaráðherra þelrra lætur því flytja frv. nm rikisábyrgð á stórfelldri hækkun fiskverðsins • í gær var lagt fram í neðri deild Alþingis frv. um ráðstafanir vegna framlciðslu og útflutnings á afurðum bátaútvegsins. Frv. er flutt af minnihluta fjárhagsnefndar (Einari Olgeirssyni) fyrir hönd Sjávarútvegsmálaráðherra, þar sem mcirihluti nefndarinnar vildi ekki flytja það að svo stöddu. Aðalefni frv. er að ríkið ábyrg- ist hraöfrystihúsunum á næsta ári 133 aura verði fyri hvert enskt pund (verðið hefir verið 98 aurar í ár) og ábyrgist jafnframt sölu á 30 þús. smál. af fullsöltuðum og fullstöðnum stórfiski fyrir kr. 2.25 hvert kg., auk tilsvarandi ábyrgðar á öðrum saltfiski. Ábyrgð- ir þessar eiga að tryggja að verð á nýjum fiski geti hækkað úr 50 uurum í 65 aura hvert kg. Mynd þessi er tekin á fyrsta kappakstursmóti, sem haldiö hefir verið í Danmörku, siðan stríðinu lauk. Var það nýlega haldið og sést hér er nokkrir þátttakendurnir leggja upp í aksturinn. Bygging blindra- heimilis undirbúin Rliudraviiiafél. á 313 ■ þás. kr. í byggingar- sjóði Aðalfundur Blindravina- félags islands var haldinn 4. þ. m. Var þar skýrt frá starfsemi félagsins á síð- astliönu ári, en tilgangur fé- lagsins er að leitast við á sem flestan hátt að hlynna að blindum mönnum, ungum og gömlum hér á landi og vinna að útbreiðslu þekking- ar á augnsjúkdómum. Starfsemi félagsins þetta ár var sú sama og að undanförnu. Níu blindir menn unnu á vinnu- stofu félagsins, þar af þrjár konur. Auk þess var tveim blind Um iagt til efni til heimavinnu og tveim, sem búsettir eru úti á landi liðsint um efniskaup. — Laun þessa blinda fólks, sem vinnur á vegum vinnustofunn- ar, námu þetta ár kr. 29.956.00 og er það að meðaltali mun hærri upphæð en s.l. ár. Félagið hefir að undanförnu séð um úthlutun viðtækja til fátækra, blindra manna og ann- ast nokkra blindrakennslu. í húsi félagsins við Ingólfs- stræti búa níu blindir og starfa sex þeirra hjá félaginu. Aðalmarkmið félagsins er að koma upp fullkomnu dvalar- og starfsheimili fyrir blinda og er í þeim tilgangi starfandi bygg- ingarnefnd og fjársöfnunar- nefnd — Blindraheimilissjóður- inn nemur nú, með því sem er 1 vörzlu söfnunarnefndar, kr. 313.369.00. Á fundinum var svohljóðandi tillaga samþykkt: „Aðalfundur Blindravinafélags íslands hald- inn 4. des. 1946, beinir eindregn- um tilmælum tll byggingar- nefndar félagsins og þeirra op- inberra aðilja, sem leitað hefir verið til um stað fyrir blindra- (Framhald á 4. slöu) tekur við rekstri náttúrugripasafnsins Tveir fræðimeiiii ráftnir forstöftiuiieiin þess Það hefir orðið að ráði milli hins íslenzka náttúrufræðifélags og menntam.ráðuneytisins, að náttúrugripasafnið skuli nú afhent ríkinu, svo sem ávallt hefir verið fyrirhugað. Afhendingin fer þó ekki formlega fram fyrr en aöalfundur náttúrufræðifélagsins hefir fjallað um málið. Segir svo uin þetta i frétta- tilkynningu frá menntamála- ráðuneytinu: Náttúrugripasafnið hefir verið frá öndverðu í umsjá Hins Is- lezka náttúrufræðifélags. Átti dr. Bjarni Sæmundsson drýgst- an þátt í því með eljusemi og hagsýni að auka safnið og afla því vinsælda og umhyggju al- mennings. Jafnan hefir safnið notið nokkurs styrks úr ríkis- sjóði og í vaxandi mæli hin siðari ár. Er safnið nú svo stórt, að ókleift má kalla, að gæzla þess fari fram sem aukavinna þeirra, er föstum störfum gegna. Hefir því orðið að ráði milli Hins islenzka náttúrufræðifé- lags og menntamálaráðuneytis- ins, að safnið skuli nú afhent VÍSITALAN Hagstofa og Kauplagsnefnd hafa reiknað vísitölu fram- færslukostnaðar fyrir desember mánuð. Reyndist hún vera 306 stig. Hefir hún þvi hækkað um þrjú stig síðan í jióvember, en þá var hún 303 stig. Hækkunin stafar aðallega af því, að brauðið hefir hækkað í verði, ennfremur sykurog fatn- aður. ríkinu, svo sem ávalt hefir verið fyrirhugað. Ráðuneytið hefir þegar ráðið við safnið tvo starfsmenn, þá dr. Sigurð Þórarinsson og dr. Finn Guðmundsson, sem haft hefir umsjón með safninu síðan Bjarna Sæmundsson lelð. Sam- tímis láta þeir af störfum hjá Atvinnudeild HáskóJans og Rannsóknarráði ríkisins. Skipulagsbreyting þessi færir safninu aukna starfskrafta, en er einnig fjárhagslega hagkvæm fyrir ríkissjóð. Hinir nýju starfs- menn safnsins eru ráðnir fyrir sömu laun og þeir nú taka úr ríkissjóði. — Báðir skulu þeir annast kennslu í náttúrufræði við háskólann, ef tekin verður upp kennsla 1 þeirri grein. Sig- urði Þórarinssyni er m. a. ætlað að koma skipan á samskipti ís- lenzkra og erlendra fræðimanna á sviði náttúruvísinda og veita jarðfræðilega aðstoð og leið- beiningar um opinberar fram- kvæmdir, þar sem slíks er þörf. Auka-sykurskammtur Viðskiptamálaráðuneytið hef- ir ákveðið að úthluta auka- skammti af sykri til jólanna. Stofnauki nr. 14 af núgild- andi matvælaseðli gengur í dag, sem innkaupsheimild fyrir 1/2 kg. af sykri. Stofnaukinn er í gildi til næstu áramóta. Framsóknarvist Skemmtun Framsóknarfélag- anna í Reykjavík verður í Breiðfirðingabúð n. k. föstu- dagskvöld og hefst kl. 8.30. Til skemmtunar verður: Spiluð Fra'msóknarvist. Sigurður Óla- son syngur einsöng og stutt ræða. Pöntunum á aðgöngu- miðum er veitt móttaka í síma 2323. Er æskilegt að framsókn- arfólk dragi ekki að tryggja sér miða. Þar sem mikil eftirspurn hefir verið eftir aðgöngumið- unum, má búazt við, að þeir verði fljótlega uppseldir. Mið- arnir eru seldir í afgreiðslu Tímans. Auglýsingastarfsemi sósíalista. Frv. þetta var fyrst lagt fyrir fjárhagsnefnd -oieðri deildar á fundi hennar í fyrradag. Meiri- hluti nefndarinnar, þ. e. full- trúar Sjálfstæðiðfl., Framsókn- arflokksins og Alþýðuflokksins, vildu ekki taka frv. til flutnings fyrr en búið væri að ræða við fjármálaráðherra og fyrir lægi, að ekki finndust önnur úrræði í sambandi við væntanlega stjórnarmyndun. Hins vegar voru allir nefndarm. sammála um að gera þyrfti ráðstafanir til að tryggja bátaútveginum arð- vænlegan rekstur. Fulltrúi sósíalista taldi sig ekki geta átt samleið með sam- nefndarmönnum sínum um frestun á flutningi frv. meðan leitað væri álits fjármálaráð- herra og umrædd athugun ætti sér stað. Má vel sjá á þessu, að sósíalistar hugsa sér að nota þetta mál til auglýsingastarf- semí fyrir sig og þykjast ætla að sýna með skyndiflutningi frv., að þeir séu mestir vinir og vel- unnarar bátaútvegsins. Stjórnin hefir siglt báta- útveginum í strand. Menn þurfa þó ekki annað en að lesa greinargerð frv. til að komast að raun um, að sósíal- istar hafa sízt af öllum af miklu að státa í þessum málum. Þeir hafa haft forustu í sjávarút- vegsmálum tvö undanfarin ár. Eftir þessa stjórn þeirra er svo komið, samkvæmt greinargerð frv., að óhjákvæmilegt er að gera framangreindar neyðar- ráðstafanir „til þess að hægt sé að fá menn á bátana, ráða fólk í hraðfrystihúsin og gera aðrar ráðstafanir, scm nauðsynlegar eru til þess að geta hafið fisk- j veiðar í vertíðarbyrjun. Ef gerðar hefðu verið ráð- stafanir til þess, þegar sósíal- istar tóku stjórn sjávarútvegs- málanna, að stöðva dýrtíðina eins og Framsóknarmenn beittu sér fyrir og vinna jafnframt að því, að draga úr hvers konar miililiðaokri, sem sýgur merg úr útgeijðinni, hefði áreiðanlega ekki þurft að grípa nú til þeirra neyðarráðstafana að taka á- hættusömustu ríkisábyrgð á hækkun fiskverðsins. Útgerðin hefði þó getað borið sig með því útflutningsverði, sem nú er. í stað þess að fara þessa leið, hafá sósíalistar unnið ötullega að aukningu dýrtíðarinnar, sem þyngt hefir byrðar útvegsins að sama skapi, og ekki aðhafst hið minnsta til að létta milliliða- okrinu af útgerðinni. Þess vegna er nú svo komið, að útgerðin er nú stöðvuð, eins og segir í grein- argerðinni, nema að gripið verðl til óvenjulegra ráðstafana. Rætt um ölæöi þingmanna , AUmiklar og harðar umræður urðu um drykkjuskap þing- manna á fundi sameinaös þings í gær, þegar tillagan um hér- aðabönn var til umræðu. Hannibal Valdimarsson var framsögumaöur að tillögunni og komst hann svo að orði, að Al- þingi ætti sinn þátt í drykkju- skapnum, því að það væri þjóð- inni mjög slæm fyrirmynd f þessum efnum. Jóhann Jósefsson, er mun enn reiður Hannibal fyrir að segja frá „faktúrunni“ í tunnunni, reis þá upp með miklurn þjósti og kvað það firrur einar, að þingmenn væru siæm fyrirmynd í þessum efnum. Hannibal svaraði aftur og studdi mál sltt m. a. með því, að hann hefði séð þingmenn flytja ræðu á þingfundi undir áhrifum áfengis. Jón Pálmason lýsti því þá yfir sem forseti sameinaðs þings, að það væri hrein ósannindi, að þingmenn hefðu mætt á þlng- fundi undir áhrifum áfengis, og ■ Þorsteinn Þorsteinsson gaf sam- hljóða yfirlýsingu sem forsetl efri deildar. Þegar hér var komiö, skarst Páll Zóphóníasson í leikinn og sagðist ekkl geta orða bundist yfir þeim viðbjóði, að þingfor- setar gæfu vísvitandl rangar yfirlýsingar. Hann minnti síðan Þorstein Þorsteinnson á, að hann hefði horft á það í eifri deild, að þingmaður hefði orðið að greiða atkvæði fyrir dauða- drukkinn flokksbróður sinn. Þá minnti hann Jón Pálmason á, að hann hefði horft á ofurölva þingmann, sem hefði sofnað í sæti sínu á þingfundi. Eftir þessa frásögn muldraði Jón Pálmason nokkur afsökun- arorð og kvað yfirlýsingu sína hafa aðeins átt að ná til yfir- standandi þings. Þorsteinn Þor- steinsson hafði hins vegar laumast út úr salnum meðan Páll talaði. Ræða Páls hafði að öðru Jeyti þau áhrif, að þeir, sem höfðu varið ölæði þingmanna tóku ekki tii máls aftur. Ábyrgðarleiðin er ekki framtíðarlausn. Það liggur í augum uppi, að það er engin framtíðarlausn fyrir útveginn, þótt tekin verði ábyrgð á fiskverðinu í eitt ár og ríkinu kannske bökuð með því tugmilj. kr. útgjöld. Til þess að tryggja útgerðinni arðbæran rekstur til frambúðar. Þarf að gera aðrar og róttækari ráð- stafanir og þá fyrst og fremst að létta af henni milliliðaokrinu. Framsóknarflokkurinn hefir ekki farið dult með þá stefnu sína, að hann vill koma kaup- gjaldi og verðlagi í landinu í það horf, að útgerðinni verði tryggður arðbær rekstrargrun- völlur og sjómönnum fullkom- lega jafngóð kjör og öðrum (Framhald á 4. slöu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.