Tíminn - 11.01.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
í
< ÚTGEFANDI:
PRAMSÓKNARFLOKKURINN }
S
Símax 2353 og 4373
FRENTSMIÐJAN EDDA hS.
31. árg.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
CDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREBDSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA;
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Sími 2323
Reykjavík, laugardaginn 11. janúar 1947
7. Mað
ERLENT YFIRLIT:
Verða mestu átök milli Rússa
og Bandaríkjamanna í Kírra?
Það fer vart hjá því, að tveir atburðir, sem gerzt hafa nýlega,
veki verulega athygli og verði settir í samband hvor við annan.
Annar er sú yfirlýsing kommúnista í Kína, að þeir muni slíta
samningaviðræðum við stjórn Chiang Kai Shek og mynda eigin
ríkisstjórn fyrir þau héruð landsins, sem verið hafa undir yfir-
ráðum þeirra seinustu árin. Hinn atburðurinn er skipun Mars-
halls hershöfðingja í utanríkisráðherraembætti Bandarikjanna,
en hann hefir verið sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í
Kína seinustu misserin.
Ymsir hafa þótzt verða þess
varir, að nokkur breyting hafi
orðið á utnríkismálastefnu
Rússa seinustu vikurnar. Þeir
slökuðu talsvert til á ráðherra-
fundinum í New York, þeir hafa
Chiang Kai Shek.
Hvtn aetlar að draga sig í hlé, þegar ný
stjórnarskrá hefir verið samþykkt.
minnkað herafla sinn í Þýzka-
landi og látið leppstjórn sína í
Aserbeidjan sveigja til sam-
komulags við Teheranstjórnina.
Þeir, sem vel hafa fylgst með
utanríkismálastefnu Rússa,
segja það einkenni hennar að
vera aðeins í sókn á einum stað
í einu. Framangreixid dæmi
telja þeir benda til þess, áð
Rússar séu að undirbúa utan-
ríkismálasókn á nýjum stað,
sem að öllum likindum sé Kína.
Þeir, sem þessu halda fram,
telja Rússa líka hafa á margan
hátt góða taflstöðu í Kína, eins
og málin standa þar nú. Komm-
únistaflokkurinn er mjög vel
skipulagður þar og hefir miklu
víðar ítök en í þeim héruðum,
sem lúta stjórn hans. Þjóðin er
þreytt eftir stríðið og þráir
batnandi lífskjör, en erfiðleik-
arnir eru margir og því auðvelt
að vekja óánægju. Meðal Kín-
verja er vaxandi tortryggni á
stjórn Bandaríkjamanna í Jap-
an, því að þeim finnst hún vera
of vinsamleg við Japani. Sá
áróður á því allgóðan jarðveg,
ERLENDAR FRETTIR
í London eru nú að hefjast
viðræður milli brezku stjórnar-
innar og fulltrúafrasamtökum
Burmabúa um framtíðarstjórn
Burma. Sjálfstæðishreyfingin í
Burma er orðin mjög öflug.
Öryggisráðið situr nú á fund-
um. Ósamkomulag er milli
Rússa og Bandaríkjamanna um
dagskrána. Bandaríkjamenn
vilja láta ræða um atómmálið
fyrst, en Rússar um afvopnun-
armálið.
Pólski bændaflokkurinn hefir
lýst yfir því, að hann muni taka
þátt í þingkosningunum i Pól-
landi 19. þ. m.
Frosthörkur fara nú minnk-
andi í Mið.Evrópu, en þær hafa
valdið þar miklum samgöngu-
erfiðleikum.
Neita sósíalistar að styðja Stefán Jóhann?
að Bandaríkin ætli sér að gera
Japan að eins konar útvirki
gegn Rússum. Meðal yngri
manna og æstustu þjóðernis-
sinna veitist og létt að vekja
andúð gegn hersetu Bandaríkja-
manna í landinu. Svo mikið ber
líka orðið á þeirri andúð, að
kínverska stjórnin hefir nýlega
bannað mótmælafundi og
kröfugöngur, er beindust gegn
Bandaríkjunum. En jafnframt
er það athyglisvert, að stjórnin
fyrirskipaði blöðum sínum um
líkt leyti að skrifa vingjarnlega
um Rússa. Telja ýmsir það merki
\>ess að stjórnin hafi viljað sýna
Bandaríkjamönnum, að hún
hefði fleiri möguleika en
að fylgja þeim, ef þeir
vilji ekki veita henni aukinn
efnahagslegan styrk til viðreisn-
arinnar og taka upp strangari
stjóm gegn Japönum.
Það getur einníg orðið vatn
á myllu kommúnista, að sam-
heldni innan Kuomitangflokks-
ins er ekki jafn góð og áður.
Flokkurinn skiptist í hægri og
vinstri. Auðmennirnir og stór-
garðaeigendur í hægra armi
flokksins standa gegn öllum
róttækum breytingum, en yngri
mennirnir berjast fyrir þeim.
Við þetta hefir bætzt, að Chiang
Kai Shek hefir lýst yfir því, að
hann ætli að draga sig í hlé
þegar búíð sé að ganga frá nýrri
stjórnarskrá, þvi að hann telji
sig orðinn ofgamlan til a?
stjórna endurreisninni eftir
stríðið, og það gæti jafnframt
orðið vísir til einræðis, ef sami
maður fær lengur með stjórn.
Ég ætla að láta það verða sein-
asta verk mitt, segir hann, að
tryggja þjóð minni lýðræðis-
stjórnarfar og veita síðan yngri
og óþreyttari mönnum tækifæri
til að halda starfinu áfram.
Það hefir verið hlutverk
Marshalls hershöfðingja í Kína
að reyna að koma á sáttum milli
Kuomintangflokksins og komm-
únista. Hann er talinn hafa
rækt verkefni sitt af viðsýni og
skilningi ' og unnið sér tiltrú
beggja aðila. Honum er ekki að
neinu leyti kennt um, þótt sætt-
ir þessar hafi mistekist. Sjálfur
segr hann, að þær hafi strandað
jöfnum höndum á öfgamönnum
hjá kommúnistum og aftur-
haldsmönnum hjá Kuoming-
tahgflokknum. Marshall hefir
ekki aðeins kunnugleika á mál-
efnum Kína frá dvöl sinni þar
seinustu misserin. Hann gegndi
herstjórn fyrir Bandaríkin í
Tietsin á árunum 1924—28.
Það hefir vafalaust átt drjúg-
an' þátt í skipun Marshalls í
utanríkismálaráðherraembættið,
að hann er líklegri öðrum
Bandaríkjamönnum til að halda
með festu og víðsýni á málefn-
um Bandaríkjanna varðandi
Kína. Það benda jafnframt
sterkar líkur til, að á þeim slóð-
um verði hörðust átök milli
stórveldanna, þ. e. Rússlands og
Bandaríkjanna, á komandi
misserum, en Evrópumálin
muni jafnvel heldur þokast í
skuggann. Þungamiðja heims-
málanna heldur áfram að fær-
ast til Asiu, þar sem meirihluti
mannkynsins býr.
FASTHELDNI BRETA I FORNAR VENJUR
Það hefir veriS venja enskra dómara að ganga í skrúðgöngu á Mikjálsmessudag frá Westminster Abbey til
Palace of Westminster. Þessi venja féll niður á stríðsárunum, en nú hefir hún verið tekin aftur. Er myndin'frá
göngunni í haust. Yfirleitt er nú kappkostað í Bretlandi að taka upp aftur allar gamlar venjur, sem féllu
niður á stríðsárunum.
Loðdýrafélag íslands flytur inn
minka til kynbóta
Loðdýraræktarfélag íslands sýndi blaðamönnum í gær all-
marga minka, sem það hefir útvegað hingað frá-Ameríku. Er hér
um kynbótadýr að ræða og er ætlun félagsins að bæta þannig
minkastofn landsmanna. Vestur-íslendingurinn Skúli Benja-
mínsson, sem er með fróðustu mönnum um þessi mál, hefir að-
stoðað félagið við kaupin.
Minkarnir, sem nú eru fluttir
inn, fyrir forgöngu L. R. í. eru
alls 59 og flokkast þannig: 20
Royal pastel", þar af 5 pör alblóðs
og 10 Rerbu hálfblóðs, 24 Yuk-
onminkar (þ. e. 8. tríó), 4 Silver-
blue (2 pör), 4 Ebonyblue (2
pör), 5 Black cross karlar, 2
Bluefrost karlar.
Það er nýstofnað minkarækt-
arfélag, sem kaupir alla Royal
pastel minkana og Ebonyblue
minkana, og 5 tríó af Yukon-
minkunum. Tilgangur hins
nýja félags er að koma upp
kynbótabúi, er selt geti úrvals-
minka víðs vegar út um land.
Félag þetta á ekki að starfa í
gróðaskyni.. Hin dýrin kaupa
einstök minkabú.
í umsögn Skúla Benjamíns-
sonar um minkana segir á
þessa leið:
Silverblue eiga eflaust mikla
framtíð. Þeir eru mjög gæfir,
hraustari en flest onnur af-
brigði, þrifagóðir og ætið góðir
útlits. Mjög fár karlar eru ófrjó-
ir. en kvendýrin eru tæplega í
meðallagi frjósöm. Liturinn
hreinn, blágrár og hárafarið
mjög jafnt yfir alla hjörðina.
Silverblue hafa verið kallaðir
platínuminkar.
Blendingar af Silverblu og
Yukon eru mjög frjósamir.
2. Pastelminkarnir eiga einnig
eflaust mikla framtíð. Þeir eru
gulleitir og mjög fínhærðir,
ekki eins stórir og Silverblue, en
þó stærri en venjulegir minkar.
Mjög gæfir pg gott að hirða þá.
Búðakauptún
í hættu
Þorpið Fáskrúsfjörður var í
mjög mikilli hættu af tundur-
dufli, sem rak þar upp í fjöru
um síðustu helgi. Tók duflið
land beint niðurundan þorpinu,
mjög nærri verzlunarhúsi
kaupfélagsins.
Um fjöruna var taug fest í
(Framhald á 4. síðu)
Vel í meðallagi frjósamir. í
kápum úr pastelskinnum koma
fram "falleg litbrigði, 'eftir því
hvernig birtah fellur á og eftir
hreyfingum dömunnar, sem
kápuna ber á sér. Ganga lit-
brigði þessi i.bylgjum um káp-
una og þykir hún þá aðdáanlega
falleg. Þetta á einkum við um
það afbrigð/i' Pastelminka, er
kallast Tarry moone.
Royal pastel (kallaöist áðtir
Golden Sable) þykir nú beztur
af Pastelafbrigðunum.
,3. Black cross (einnig kallaðir
Koh-i-noor) er ríkjandi af-
brigði. Þeir eru ekki jafnlitir í
hjörðinni heldur eru sumir
miklu ljósail en aðrir og eru þá
ljósu hárin hreinhvit, en hins
vegar eru dökku hárin á þeim
dökku gljáandi svört.
Þessir minkar eru fallegir, í
meðallagi stórir, hraustir og vel
frjósamir.
4. Bluefrost er líka ríkjandi af-
brigði, en litatilbrigðin eru meir
í þessu afbrigði en nokkru öðru.
Blái liturinn er sterkur og skín
í gengum vindhárin, sem eru
blendingur af gráum, brúnum
og svörtum hárum. Þeir eru
stórir og hraustir, karldýrin vel
frjósöm en kvendýrin síður.
Skúii segir að sér hafi vel reynst
að láta Yukonkerlur fá við
Bluefrostkarli.
5. Ebonyblue. Hann er allra
minka stærstur og tilkomumest-
ur, hefir mikið blátt þel, undir
hrafnsvörtum vindhárum. Sum-
ir seljast á háu verði.
6. Yukon og Eastern eru hvort
tveggja dökkir minkar bæði í
Bandaríkjunum og " Kanada,
einkum Yukon. Yukon minnk-
urinn er stór, dökkur (ekki
brúnn). Þelið á að vera blágrátt,
— ekki o'f dökkt — þétt og
mjúkt, vindhárin einnig þétt og
þykir bezt að þau standi um iy5
cm. upp úr þelinu. Kviðurinn á
að veja dökkur, en ekki rauð-
brúnn.
Þess má geta að Norðmenn
hafa nýlega keypt mörg hundr-
uð minka frá Ameríku í kyn-
bótaskyni.
Talsamband við Ame-
ríku opnað 13. þ. m.
Beint talsamband milli ís-
lands og Ameríku verður opnað
á mánudaginn hinn 13. þ. m.
kl. 14. Talsamband þetta fer
fram um stuttbylgjustöð lands-
símans á Vatnsenda og í Gufu-
nesi og hefir nýjum tækjum af
fullkomnustu gerð verið komið
þar fyrir í þessu skyni, en und-
irbúningur, tilraunir og prof-
anir hafa farið í'ram undan-
farið tímabil.
Samtalagjaldið er 78 krónur
fyrir viðtalsbilið, það er fyrir
3 fyrstu mínúturnar, en 26
ferórmr jEyrir hverja mínútu þar
fram yfir. Er gjaldið eitt og hið
sama milli íslands og allra staða
í Bandaríkjunum.
Fyrst; um sinn verða símtöl
milli íslands og Ameríku aí'-
greidd alla virka daga frá -kl. 13
—16, þegar skilyrði' leyfa.
Amerískt' flugfélag
semur um Keflavík-
urflugvöllinn
Samningur var undirritaður
í fy^radag milli BaAdaríkja-
stjórnar og flugfélagsins Ame-
rican Overseas Airlines þess
efnis, að flugfélagið taki við
Keflavíkurflugvellinum i stað
hennar. Félagið mun hefja
bráðlega reglubundnar. flug-
ferðir milli Ameríku og Evrópu
með viðkomu á íslandi.
Flugferðir
Loffleiða
Flugvélár Loftleiða h.f. flugu
Á árinu fluttu þær 5663 farþega
á árinu 1946 samtals 302785 km.
í 1302 flugferðum. Farangur
farþega og annar flutningúr vóg
samtals 46.354 kg., en póstur
7.195 kg. Flugvélarnar voru
1523 klst.' á lofti. Farin voru 12
sjúkraflug.
Loftleiðir á nú 9 flugvélar.
Fimm Grummanflugbáta, éina
Ansonvél, tvær* af Stinsongerð
og eina Norsemanflugvél. Þá er
í smíðum fyrir félagið Skymast-
erflugvél, en allri vinnu við
hana héfir seinkað svo, að óvíst
er hvenær hún. verður afhent
félaginu.
n hví gátu þeir
þá stutt ðlaf
Thors?
Stefán Jóhann Stefánsson
mun hafa snúið sér til allra
þingflokkanna í gær og óskað
þess, að þeir tilnefndu nefndir
til viðtals við sig um stjórnar-
my^ndun. Bæði Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokk-
urinn munu hafa orðið við þess-
um tilmælum. Hins vegar virð-
ist mega ráða það af Þjóðvilj-
anum í gær, að þéir ætli að neita
að taka þátt í stjórn undir for-
ustu hans.
Það verður ekki annað sagt
en erfitt yrði að skilja þessa neit-
um sósíalista eftir að þeir hafa
lýst' sig reiðubúna til að faraí
stjórn undir forustu Ólafs
Thors, því að þeir munu ekki
geta hermt upp á Stefán neina
galla né vanefndir, sem þeir
geta ekki hermt -upp á Ólaf í
stórum ríkara mæli. Þess er t. d.
.skemmst að minnast, að sósíal-
istar telja Ólaf hafa lofað sér
því margsinnis og hátíðlega, að
hann myndi ekkert aðhafast i
Ameríkumálinu, áib( vitundar
samráðherra sinna, en þetta
loforð sveik hann eins fullkom-
lega og framast var hægt.
Þá er það og ekki lítið kald-
hæðnislegt að lesa i Þjóðviljan-
um í gær ummæli, sem hljöða á
þessa leið: .
„í%ð er talið, að það sé fyrir
bein og ákveðin tilmæli Ólafs
Thors, að forseti hefir falið'
þessum manni stjórnarmyndun.""
Stefán Jóh. Stefánsson er nú
sá, er versta afturhaldið á ís-
landi setlar sér að notá til
skemmdarverka sinna og til
þess að geta hrifsað til sín
völdin."
Hér er maðurinn, sem sósíal-
istar hafa stutt til stjórnar-
forustu í tvö ár, hvorki meira
né minna en lýstur „ver.sta aft-
urhaldið á íslandi". Það er líka
vibssulega rétt, en hlutur só-
sialista vex ekki við það, að þeir
hafa alveg nýlega verið reiðu-
búnir til að styðja Ólaf Thors ti
valda aftur, vitandi vits, að
hann væri'„versta afturhaldið á
íslandi".
Það er og næsta kaldhæðnis-
legt að lesa í Þjóðviljanum, að
stjórnmálasaga Stefáns Jó-
hanns hafi verið „síðustu árin
auðmjúkasta þjónusta við svart-
asta afturhaldiS", þar sem sös-
íalistar sjálfir hafa veitt aftur-
haldinu nákvæmlega sömu
þjónustuna.
Það mun hafa verið tiiætlun
Stefáns Jóhanns,'cþegar hann
sneri sér til ,allra flokkanna,
að reyna að mynda þjóðstjórn.
Sú von hefir brostið með áður-
nefndu svari sösíalista. Stefán
hefir þá þrjá möguleika eftir,
að reyna að mynda stjórn með
hinum flokkunum tveimur, með
Sjálfstæðisflokknum einum,
eða hreina flokksstjórn með
stuðningi eða hlutleysi annarra
flokka. Hvort hann reynir ein-
hvern þennan möguleika, alla
eða enga, verður ekkert fullyrt
um á þessu stigi.
Vélstjóranámskeið
Nýlega er lokið á ísafirði vél-
stjóranámskeiði, sem haldið var
á vegum "Fiskifélags íslands.
Þátttakendur voru 28 og luku
þeir allir prófi.