Tíminn - 04.02.1947, Side 1

Tíminn - 04.02.1947, Side 1
í RITSTJÓRI: S ÞÓRARINN ÞóáARINSSON \ ÚTGEPANDI: i PRAMSÓKNARFLOKKURINN S Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A Símar 2353 og 4373 ; AFGREIÐSLA, INNHEIMTA í OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A ; Sími 2323 31. árg. Reykjavík, þriðjjudagtiin 4. febr. 1947 23. blað ERLENJ YFIRL'IT: /T Umræðurnar um Svalbaröamálin Umræður þær, sem urðu um Svalbarðamálið á dögunum, hafa nú hjaðnað í bili, en allar líkur benda þó til, að það komizt fljót- lega á dagskrá aftur. Haldi Rússar fram kröfum sínum, virðist sennilegast, að málið komi fyrr eða síðar undir úrskurð sameinuðu þjóðanna. Svipuð getur orðið niðurstaðan með Grænland, ef Bandaríkjamenn falla ekki frá kröfum sínum um stöðvar ,þar. Dóttir Churchills Mynd þessi er af Mary Churc- hill, yngstu dóttur Winston Churchill. Henni þykir svipa á ýmsan hátt til föðursins og hafa þau feðgin verið mjög samrýmd. T. d. var Mary með föður sínum á flestum ferðalögum hans á stríðsárunum. Á þeim tíma kynntist hún Charles prins, sem nú fer með konungsstjórnina í Belgíu, og var sagt, að þau legðu hugi saman. Mörg blöð spáðu því, jpegar Churchill var boðið til Belgíu síðastl. haust, að Charles og Mary myndu þá opinbera trú- lofun sína. Af því varð þó ekki, en á heimleiðinni frá Belgíu, komu feðginin við í París og þar kynntist Mary ungum og glæsi- legum liðsforingja, Soames að nafni,. er starfaði við brezku hersveitina. Eftir að þau höfðu verið kunnug i fáa daga, var trúlofun þeirra opinberuð. Churchill á tvær dætur aðrar, Önnur hefir fengizt við leikara- störf og verið gift þekktum kvikmyndaleikara. Hin er gift Sandy, sem var byggingamála- ráðherra i seinustu stjórn Churchills, en féll í þingkosn- ingunum 1921. Þekktastur af börnum Churchills er þó Rand- olp sonur hans. — Hann var í fyrstu ævintýramaður mikill (Framhald á 4. síðu) ERLENDAR FRÉTTIR Gasperi. hefir myndað nýja stjórn á Ítalíu. Að stjórninni standa kaþólski miðflokkurinn og kommúnistaflokkurinn. Markmið stjórnarinnar er að út- rýma atvinnuleysi, lækka tíð og lækka ríkisútgjöld. Herstjórn Breta í Palestínu hefir ákveöið að flytja þaðan brezkar konur og börna og einn- ig karlmenn, sem ekki gegna þar sérstökum skyldustörfum. Brottflutningar þessir eru þegar hafnir. Eftirlitsnefnd Bandamanna á Ítalíu hefir veriö lögð niður og er stjórn landsins því raunveru- lega komin í. hendur ítala sjálfra. Samtök verkamahna og at- vinnurekenda í byggingaiðnað- inum í Ameríku hafa orðið á- sátt um að koma í veg fyrir.'að deilur um kaupgjaldsmál leiði til verkafalla. Líklegt þykir, að þetta geri republikönum erfið- ara fyrir að fá verkfallslöggjöf- inni breytt verkalýðsfélögunum í óhag’. a Samkvæmt yfirlýsingu þeirri, sem norska stjórnin birti um Svalbarðamálið 16. þ. m., bar rússneska stjórnin fram haustið 1944 ósk um endurskoðun Sval- barðasamningsins frá 1920. Styrjöldin stóð þá yfir og hafði leitt í ljós, að stöðvar á Sval- barða gátu haft mikla hernaðar lega þýðingu, einkum varðandi siglingar til Norður-Rússlands. Norska stjórnin kvaðst þá strax hafa viðurkennt, að aðstaðan hefði breytzt svo mikið síðan 1920, að endurskoðun samnings- ins væri eðlileg. Jafnframt lýsti stjórnin sig fúsa til þess að gera bráðabirgðasamning við Rússa um sameiginlegar varnir á Sval- barða, en þó væri það bundið því skilyrði, að hann yrði samþykkt- ur af stjórnum þeirra' ríkja, sem stóðu að Svalbarðasamningnum frá 1920 og ekki börðust gegn Bandamönnum, þ. e. stjórn- um Bretlands, Bandaríkjanna, Frakklands, Hollands, Dan- merkur og Svíþjóðar. Þannig stóðu málin í apríl 1945 eða um það leyti og stríð- inu lauk. Samningaviðræður féllu þá niður og var ekki á málið minnst ^ftur fyrr en í ágúst síðastl. sumar. er utanríkisráð herrar Rússlands og Noregs hittust á Parísarfundinum: Við- ræður þeirra héldu síðan áfram í New York i nóvembermánuði síðastl. Afstaða norsku stjórn- arinnar er óbreytt frá því sem hún var í aprílmánuöi 1945, þ. e. hún er reiðubúin til að gera sérsamning við Rússa um varn- ir Svalbarða,. ef hin ríkin, sem stóðu að samningnum frá 1920, vilja fallast á það, en samkvæmt honum mega engar hervarnir vera á Svalbarða. Málið er þann- ig raunverulega orðið átakamál milli Rússa og Vesturveldanna. Norski utanríkisráðherrann hef- ir líka nýlega látið svo ummælt ■í blaðaviðtali, að stjórnin íhugi m. a. að vísa málinu til sam- einuðu þjóðanna. í ýmsum víðlesnum blöðum er leitt getum að því, að Rússar hafi, tekið Svalbarðamálið upp aðj nýju á síðastl. sumri vegna kröfu Bandaríkjanna um stöðv- ar á íslandi og Grænlandi. Þessi skoðun hefir t. d. komið fram í hinu þekkta enska íhaldsblaði „Daily Telegraph.“ Stjórnmála ritstjóri blaðsins segir, að kröfur Rússa um Svalbarða verði að dæm#, með tilliti til þess, að Bandaríkjamenn hafi óskað her- stöðva á íslandi. Hernaðarsér- fræðingur blaðsins, H. G. Martin, segir, að „kröfur Rússa séu beint svar við útþenslustarfsemi Bandaríkjamanna, ekki aðeins á íslandi, heldur einnig alls staðar á norðurskautssvæðinu." Hann telur einnig, að Rússar fyrirhugi stöðvar á Svalbarða eingöngu í varnarskyni, því að þær geri þeim kleift að hafa fullt eftirlit með siglingum til Petsamo, Murmansk, Archang elsk og Neviport. Ameríska blað ið „Baltimore Sun,‘ bendir á að frá Svalbarða séu 1000 km. loft leiðis \til Detroit og Chicaco, en frá íslandi sé flugleiðin mun styttri til Moskvu. Danska blaðið „Politiken" ræðir petta mál nýlega í forustu- grein undir fyrirsögninni, „Sval barði og Grænland." Blaðið segir, að rússnesk blöð hafi oft gagnrýnt, að Bandarikjamenn hefðu enn stöðvar á Grænlandi (Framhald á 4. slðu) Tveir básar í fyrirmyndarfjósi Þessi mynd er tekin í ensku fyrirmyndarfjósi í Berkskíri. Allt er hreint og fágað, kýrnar og básarnir, andrúmsloftið' hlýtt og hreint. Fyrir aftan kýrnar erif keðjur, svo að þær stígi ekki aftur af básunum og ati sig út á klaufunum og beri síðan mykjuna upp á básinn. Og auðvitað er mjólkað með mjaltavélum, sem rennt er fram og aftur á ryöfrírri stálgrind. Aðalfundur Blaðamannafélagsins: Tíu norskum blaöamönn- um boðið hingað í sumar Kvöfdvökur Blaöamaunafélagsiiis hefjast að nýjju — hin fyrsta verðnr aimað kvöld Blaðamannafélag íslands hélt aðalfund sinn á sunnudaginn var. Voru þar rædd ýms mál, bæði sérmál blaðamanna og almenn menningarmál. Meðai annars var ákveðið að bjóða hingað á íæsta sumri tiu norskum blaðamönnum. Fráfarandi formaður, Her- steinn Pálsson, ritstjóri Vísis, gerði grein fyrir starfi félagsins á liðnu ári. Hagur félagsins er allgóður. í menningarsjóði fé- lagsins, sem ætlað er þaó hlut- verk að styrkja bláðamenn til þess að afla sér þekkingar og kunnáttu, er má þeim að gagni komá í starfi þeirra, eru nú um 32 þúsund krónúr. í félagssjóði, sem stendur straum af öllum kostnaði við starfsemi félagsins, eru á fjórða þúsund krónur. Stjórnarkosning. Formaður Blaðamannafélags- ins var kosinn Bjarni Guð- mundsson blaðafulltrúi, vara- formaður Valtýr Stefánsson rit- stjóri, ritari Jón Bjarnason, blaðamaður við Þjóðviljann, gjaldkeri Þorsteinn J^þsepsson, blaðamaður við Vísi, og með- stjórnandi Jón Magnússon, fréttastjóri útvarpsins. - Fráfarandi stjórn skipuðu Hersteinn Pálsson formaður, Jón Bjarnason ritari, Jón Helga- son gjaldkeri og Jón Magnúss'on meðstjórnandr. Jens heitinn Síldin horfin úr Vciðiskipin leita inn í Ilvalf jörð í gær og í fyrradag var engin síldveiði í Kollafirði. Bátar, sem þar voru að veiðum, urðu ekki síldar varir. í gær fóru margir bátar inn í Hvalfjörð, er enga síld var að fá í Kollafirði. Þar fékk einn bátur 400 mál í vörpu á 20 faðma dýpi. Þegar blaðið fór í prentun í gær, var ekki vitað um afla báta þeirra, er voru að veiðum í Hvalfirði í gær. Benediktsson var varaformaður félagsins. . \ Norömönnum boðið heim. Það stóð til, að norskir blaða- menn kæmu hingað til lands sumarin 1945 og 1946 í boði íslenzka blaðamannafélagsins. En af því gat ekki orðið sökum þess, hvernig ástatt var í Nor- egi. Nú var ákveðið að ^era tíu norskum blaðamönnum heim- boð á næsta sumri, en þá mun norska stjórnin senda hingaö skip vegna fyrirhugaðrar Snorra hátíðar í Reykholti, og mu hin- um norsku blaðamönnum þykja hentugt að koma með því. Er gert ráð fyrir því, að hinir norsku blaðamenn verði hér viku til tíu daga á vegum Blaða- mannafélags íslands og verður þeim þá kynnt land og þjóð eftir föngum. Þetta er í annaö sinn, sem Blaðamannafélag íslands býður hingað hóp erlendra blaða- manna. Fyrsta heimboðið var (Framhald á 4. síðu) Ný ríkisstjórn tekur við i dag Að stjórninni standa Alþýðuflokk- urinn, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Ásgeirsson og Eysteinn Jónsson ráð- herrar Framsóknarf! :: í gær náðist samkomulag milli Alþýðuflokksins, Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um myndun ríkis- stjórnar undir forustu Stefáns Jóhanns Stefánssonar. Mun hin nýja stjórn taka við völdum á ríkisráðsfundi í dag. Stjórnin verður þannig skipuð: Stefán Jóhann Stefáns- »on forsætis- og félagsmálaráðherra, Emil Jónsson sam- göngu- og viðskiptamálaráðherra, Bjarni Ásgeirsson at- vinnumálaráðherra (landbúnaðarmál, rafmagnsmál, Landssmiðjan, atvinnudeild háskólans, rannsóknarráð rík- isins o. fl.), Eysteinn Jónsson menntamálaráðherra (fer einnig með kirkjumál, landhelgismál, heilbrigðismál, flug- mál), Bjarni Benediktsson utanríkis- og dómsmálaráð- herra og Jóhann Jósefsson fjármála- og sjávarútvegsmála- ráðherra. Málefnasamningur hinnar nýju stjórnar mun verða birtur í dag. > 35. skjaldarglíma Armanns Sigurjón Guðmundsson U.M.F. Vöku vann Tvö lítil börn fengu flugvélina Frá skrifstofu S.Í.B.S. hefir blaðið fengið þær upplýsingar, að flugvélina hafi hreppt 4 ára gamall drengur Björn Björg- vinsson að nafni og óskírð^systir hans. Var litla drengnum afhent flugvélin í gærmorgun suður á flugvelli með mikilli viðhöfn og að viðstaddri allri miðstjórn Sambandsins. Drengurinn er sonur hjónanna Ingu Krist- finnsdóttur og Björgvins Þor- bjarnarsonar, Sörlaskjóli 3. Þeg- ar drengnum var afhent flug- vélin, ætlaði hann ekki að trúa því, að hann ætti hana. Hin árlega skjaldarglíma Ármanns fór fram í Tripolileikhúsinu ó Melunum síðastl. laugardagskvöld, að viðstöddu miklu fjöl- menni, eða um 500 manns. Sigurvegari i skjaldarglímunni varð Sigurjón Guðmundsson frá Kálfhhltshelli í Villingaholtshreppi, Árnessýslu, og keppti hanh fyrir Umf. Vöku. Guðmundur Ágústs- son sem unnið hefir glímuna síðastl. fjögur ár tapaði í þetta sinn, en vann þó fyrstu verðlaun íyrir fegurðarglímu. Hefir hann þá unnið þau verðlaun samtals fimm sinnum í röð. Vaxandi áhugi fyrir glímunni. Það er gleðilegur vottur um vaxandi áhuga almennings fyrir glimunni, hve margt fólk sæk- ist eftir að horfa á glímukapp- leiki, þegar þeir eru haldnir. Glíman er þjóðaríþrótt okkar íslendinga og unga fólkið í landinu á að keppa að því, að koma þessari þjóðlegu og fornu íþrótt í öndvegi hjá þeim sem stunda iþróttir hér á landi. Þeir fimm hundruð áhorfend- ur sem voru viðstaddir skjald- arglímuna á laugardagskvöldið fylgdust með keppninni af mikl- um áhuga og klöpþuðu sigurveg- urunum óspart lof í lófa. Sigurjón GuÖmundsson vann skjöldinn. Þátttakendur í skjaldarglím- unni. sem var hin 35 í röðinni voru samtals 11. j Sigurjón Guðmundsson frá Vöku, sem vann skjöldinn er ‘þaulæfður glímumaður. Hann vann sigur í glímu á landsmóti U.M.F.Í. að Laugum síðastl. vor og ennfremur vann hann sigur í glímu á héraðsmóti Skarphéð- ins í Haukadal í sumar. Hann er 22 ára gamall. Guðmundur á enn eftir að reyna sig. Guðmundur Ágústsson hefir um langt skeið verið einn snjall- asti glímumaður okk^r. Hann (Framhald á 4. slðu) §

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.