Tíminn - 13.03.1947, Síða 1

Tíminn - 13.03.1947, Síða 1
RITSTJÓRI: ' ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON | ÚTGEFANDI: ,J FRAMSÓKNARFLOKKURINN ' Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.í. J IiITSTJ ÓRASKRIFSTOFUR: ) EDDUHÚ3I. Lindargötu 9 A ( Slmar 2353 og 4373 ) ' AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: J EDDUHÚSÍ, Lindargötu 9A ' \ Sími 2323 \ < ■ ’ S 31. árg. ISeykjavík, fimmtudagiim 13. marz 1947 50. lilað Stjórnarfrumvarp um fjárfestinguná og verzlunarmálin: Fjárhagsráð tekur við öllum störfum Viðskiptaráðs Nýbyggingarráðs og fær enn meira valdsvið Ný fyrirtæki má ekki stofna né ráðast i stórar framkvæmdir. án leyfis ráðsins Fyrirtæki, sem selja vörur sínar ódýr- ast, skulu sitja fyrir innflutningsleyfum i gær var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verölagseftirlit. Þar er gert ráð fyrir stórfelldum breytingum á skipun þessara mála frá því, sem hefir verið undanfarin ár, í samræmi við málefnasamning ríkisstjórnarinnar. Nýbyggingarráð og viðskiptaráð verða lögð niður, en í staðinn kemur fjárhagsráð, er mótar aðalstefnuna í þessum málum. Undir það mun heyra sérstök innflutnings- og gjaldeyrisdeild, sem annast úthlutun innflutningsleyfa eftir lieildaráætlun fjárhagsráðs. — Frumvarpið skiptist í fjóra kafla, sem fjalla um fjárhagsráð og fjárfestingu, um innflutning og gjaldeyrismeðferð, um verðlag, og um almenn ákvæði. Aðalatriði frv. Verkefui fjárhagsráðs. ( Ríkisstjórnin skipar 4 manna nefnd, er nefnist fjárhagsráð. HJutverk þess er að samræma framkvæmdir einstaklinga og aímannavaldsins, meðan hinar miklu framkvæmdir í islenzku atvinnulífi standa yfir, þannig að þær verði gerðar eftir fyrir- fram saminni áætlun fjárhags- ráðs, er ríkisstjórnin staðfestir. Fjárhagsráð miði störf sín við eftirfarandi: 1. Að öll framleiðslugeta sé hagnýtt til fulls og öllum verk- færum mönnum tryggð næg og örugg atvinna. 2. Að öllum vinnandi mönn- um, og þó sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyriy óeðli- leg sérréttindi og spákaup- mennsku.. 3. Að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vöru- dreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt. 4. Að áframhald verði á öflun nýrra og fullkominna fram- leiðslutækja til landsins, eftir þvi sem gjaldeyrisástæður og vinnuafl leyfir frekast, enda verði tryggt fé til framkvæmd- anna jafnóðum. 5. Að byggðar verði verk- smiðjur og iðjuver til þess að vinna sem mest og bezt úr öll- um framleiðsluvörum til lands og sjávar, þannig, að þær séu seldar úr lantíi eins fullunnar og frekast er kostur, og við stað- setningu verksmiðjanna verði tekið tillit til hvors tveggja i senn, framleiðsluskilyrða og at- vinnuþarfa elnstakra byggðar- laga. 6. Að atvinnuvegir lands- manna verði reknir á sem hag- kvæmastan hátt á arðbærum grundvelli og stöðvist ekki vegna veröbólgu og dýrtíðar. 7. Að húsnæðisskorti og heilsu- splllandi íbúðum, hvar sem er á landinu, verði útrýmt með bygg- ingu hagkvæmra íbúðarhúsa. Áætlun inii framkvæmdir. Fjárhagsráð semur fyrirfram fyrir ár hvert áætlun um heild- arframkvæmdir. Fyrir yfir- standandi ár semur ráðið áætl- un þessa svo fljótt sem auöið verða rakin hér á eftir. 0 er og að svo miklu leyti sem við verður komið. ^ í áætlun- þessari skal gerð grein fyrir kostnaði við hverja framkvæmd, svo og með hverjum hætti. fjár skuli aflað, enda skal kveða á um það, í hverri röð framkvæmdir skuli verða, svo að vinnuafl og fjár- magn hagnýtist þannig, að sem mest not verði að. - Enn fremur semur fjárhags- ráð fyrir ár hvert heildaráætlun um útflutning og innflutning þess árs, magn og verðmæti. Skal áætlun þessi miðast við það, að hagnýta sem bezt mark- aðsmöguleika og fullnægja sem hagkvæmast innflutningsþörf landsmanna. Fjárhagsráð leitar samvinnu um samning heildaráætlunar við opinberar stofnanir, félög og einstaklinga, sem framleiðslu, verzlun, iðnað eða annan at- vinnurekstur hafa með hönd- um, er fjárfestingu þarf til. Skulu þessir aðilar senda fjár- hagsráði fyrir þann tima, er það ákveður, áætlun um stofn- fjárþörf sína, lánsfjárþörf, gjaldeyrisþörf og vinnuaflsþörf. Enn fremur skal fjárhagsráð hafa samvinnu við lánsstofnanir í landinu um samning fjárfest- ingaráætlunar, og ber þeim að skýra fjárhagsráði frá fjár- magni því, er þær hafa yfir að ráða. Jafnhliða því sem fjárhags- ráð semur áætlun þá um heild- arframkvæmdir, er áður grein- ir, skal það og gera sérstaka áætlun um framkvæmdir ríkis- ins áður en fjárlög eru samin ár hvert, og sé við samningu þeirrar áætlunar, er ríkisstjórn- in og Alþingi geti haft til hlið- sjónar, stefnt að því að tryggja landsmönnum öllum næga at- vinnu, en koma jafnframt í veg fyrir ofþenslu. Leyf i tll framkvæiuda. i Tii hvers konar fjárfestingar, , einstaklinga, félaga og opin- 1 berra aðilj a, hvort sem er til stofnunar nýs atvinnurekstrar, i til aukningár á þeim, sem fyrir . er, húsbygginga eða annarra ^mannvirkja, þarf leyfi fjárhags- | ráðs og gildir þetta einnig um ' framhald þeirra framkvæmda, 1 sem þegar eru hafnar. | Þó skal ákveðið í reglugerð, að tilteknar minni háttar fram- kvæmdir séu heimilar án fjár- festingarleyfis. Nánari ákvæði | um fjárfestingarleyfi séu sett í reglugerð. Fjárhagsráð skal beita sér fyrir samvinnu atvinnutekenda og verkamanna um bætta að- stöðu verkafólks á vinnustöð- um, betri hagnýtingu vinnuafls og aukin vinnuafköst. Fjárhagsráði er heimilt að leggja fyrir vinnumiðlunarskrif- stofur landsins, að láta fara fram skrásetning verkafólks al- mennt eða í einstökum starfs- greinum á þeim tíma og eftir þeim reglum, er fjárhagsráð á- kveður. Ríkisstjórnin í heild hefir yfirstjórn fjárhagsráðs og tekur áSkvarðanir um höfuðatriði og sker úr um ágreiningsmál, sem einhver fjárhagsráðsmaður skýtur til hennar. Ríkisstjórnin setur með réglu- gerð ákvæði um skipan, stjórn og starfssvið hinna einstöku deilda fjárhagsráðs, að fehgn- um tillögum þess. Þá er ákvæði um, að 15%\ af andvirði útflutnings hvers árs skuli eingöngu verja til kaupa á framleiðslutækjum. Ltlilutuii gjaldeyrlsleyfa. Fjárhagsráð starfrækir inn- flu-tnings- og gjaldeyrisdeild, er einnig hefir með höndum verð- lagseftirlit. Engar vörur má flýtja til landsins, nema að fengnu inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfi. Frá þessu getur fjárhagsráð gefið undanþágu með auglýsingu, að fengnu samþykki ríkisstjórnar- innar. Innflutnings- og gjaldeyris- deild er heimilt, ef nauðsyn krefur, aö ákveða vöruskömmt- un, að fengnu samþykki fjár- hagsráðs. Hlutverk innflutnings- og gjaldeyrisdeildar er að fram- kvæma í umboöi fjárhagsráðs og í samráði við það heildar- áætlun þá, er gera ber sam- kværnt 3. gr., þar í innifalið: 1. Að úthluta til innflytjenda innflutningi á þeim vörum, sem háðar eru leyfisveitingum, og setja þau skilyrði um hann, sem nauðsynleg kunna að vera vegna viðskiptasamninga eða af öðr- um ástæðum. Sé úthlutun leyfanna við það miðuð, að verzlunarkostnaður verði sem minnstur. Reynt verði, eftir þvi sem frekast er unnt, að láta þá sitja fyrir inn- flutningsleyfum, sem bezt og hagkvæmust innkaup gera og sýna fram á, að þeir selji vörur sinar ódýrast í landinu. 2. Að ráðstafa gjaldeyri til vörukaupa erlendis fyrir þær vörur, sem eigi eru háðar inn- flutningsleyfi, svo og til annarra nauðsynja. 3. Að ráðstafa, ef því þykir nauðsyn bera til, farmrými í skipum, er annast eiga vöru- flutninga' til lai\dsins og eru eign íslenzkra aðila eða á veg- um þeirra. 4. Að fara með verðlagsá- kvarðanir og verðlagseftirlit. 5. Að fara meö vöruskömmt- un eftir því, sem ákveðið verð- ur. Gjaldeyriskaup haiikaiina. Engan gjaldeyri má láta af hendi án leyfis innflutnings- og gjaldeyrisdeildar, nema séu greiðslur vegna ríkissjóðs og banka eða vextir og afborganir bæjar- og sveitarfélaga. Lands- banki íslands og Útvegsbandi íslands h.f. hafa einir kauprétt á erlendum gjaldeyri. Þeim gjaldeyri, sem bankarn- ir kaupa, skal skipt milli Lands- banka íslands og Útvegsbanka íslands h.f. þannig, að hinn síð- arnefndi fái einn þriðja hluta gjaldeyris, ef hann óskar, fyrir innkaupsverð, hlutfallslega af hverri mynt, sem keypt er á mánuði hverjum. Hlutfalli. því, sem hvor banki fær, getur rík- isstjórnin breytt, ef báðir bank- arnir samþykkja. Enginn hefir rétt til að selja erlendan gjald- eyri nema Landsbanki íslands og Útvegsbanki íslands h.f. Þó er póststjórninni heimil slík verzlun innan þeirra takmarka, sem ríkisstjórnin setur. Bannað er að fiytja íslenzkan eða erlendan gjaldmiðil úr landi, nema nauðsynlegan far- areyri, eftir reglum sem ríkis- stjórnin setur. i Hver sá, sem innflutnings- leyfi eða gjaldeyrisleyfi fær, greiði fjárhagsráði y2% af fjár- hæð þeirri, sem leyfið hljóðar um, þó aldrei minna en 1 krónu fyrir hvert einstakt leyfi. Skal gjaldi þessu varið til að stand- ast kostnað af fjárhagsráði og framkvæmd þessara laga. Leyf- isgjaldið greiðist við afhend- ingu leyfanna. Eftirlit með verðlagi. Innflutnings- og gj aldeyris- deild skal í umboði fjárhags- ráðs og í saihráði við það, hafa með höndum eftirlit með öllu verðlagi og skal miða verðlags- ákvarðanir við þörf þeirra fyrir- ta^kja, sem hafa vel skipulagð- an og hagkvæman rekstur. Hefir deildin, bæði af sjálfsdáðum og að fyrirlagi fjárhagsráðs eða ríkisstjórnar, vald og skyldu til að ákveða hámarksverð á hvers konar vörur og verðmæti, þar á meðal hámark álagningar, um- boðslauna og annarrar þókn- unar, sem máli skiptir um verð- lag í landinu. Svo getur inn- flutnings- og gjaldeyrisdeild úr- skurðað um aðra kostnaðarliði, sem máli skipta um verðlagn- ingu á vörum. Þá getur og inn- flutnings- og gjaldeyrisdeiid á- kveðið gjöld fyrir flutning á landi, sjó og í lofti, þar með tal- in farmgjöld og afgreiðslugjöld, enn fremur greiðslur til verk- stæða og annarra verktaka fyr- ir alls konar verk, svo sem pípu- og raflagningar, smíðar, máln- ingu og veggfóðrun, sauma- skap, prentun og því um líkt. Þá getur innflutnings- og gjald- eyrisdeild og ákveðið hámarks- verð á greiðasölu, veitingum, fæði, snyrtingu, fatapressun og aðgöngumiðum að almennum skemmtunum og öðru slíku. Á- kvæði þessarar greinar taka ekki til vörutegunda, sem verðlagð- ar eru samkvæmt sérstökum lögum, né til vöru, sem seld er úr landi, eða launa fyrir verk, sem ákveðin hafa verið með samningum stéttarfélaga. Ríkisstjórnin skipar, að fengn- um tillögum fjárhagsráðs, verð- lagsstjóra, sem gerir tillögur til innflutnings- og gjaldeyris- deildar um verðlagsákvæði og hefir á hendi framkvæmd þeirra og eftirlit með, ’að þeim sé hlýtt. Hann skipar trúnaðar- menn um land allt til verðlags- eftirlits. Hann hefir á hendi allan daglegan rekstur í sam- bandi við verðlagseftirlitið. Ef upp rís ágreiningur um skilning á verðlagsákvæðum, sker inn-' flutnings- og gj aldeyrjsdeild úr. Allar verðlagsákvarðanir, sem samþykktar eru af innflutn- ings- og gjaldeyrisdeild, skulu birtar af verðlagsstjóra þegar í stað, og ganga þær í gildi jafn- skjótt og gilda, þar til öðruvísi er ákveðið. Ákvarðanir skulu birtar á þann hátt, að þær verði kunnar almenningi á því verðlagssvæði, er þær ná til. IterMákvæði. Fjárhagsráðsmönnum, inn- flutnings- og gjaldeyrisdeildar- mönnum, verðlagsstjóra, og starfsmönnum þessara aðila er bannað, að viðlagðri ábyrgð eft- ir ákvæðun\ almennra hegning- arlaga um opinbera starfsmenn, að skýra óviðkomandi mönnum frá þeim atriðum, er þeir verða áskynja um af skýrslum þeim, sem látnar eru í té samkvæmt lögum þessum, að því leyti, sem þau varða einstaka menn eða einstök fyrirtæki. v Hver sá, er vanrækir að láta fjárhagsráði, innflutnings- og gjaldeyrisdeild eða ‘embættis- mönnum þeim, sem þessir aðil- ar til þess setja, í té skýrslur þær, sem honum er skylt að gefa samkvæmt ákvæðum laga þessara, skal sæta 20—200 kr. dagsektum. Sá, sem gefur sömu aðilum rangar skýrslur, skal sæta refsíngu samkvæmt á- kvæðum 15. kafla almennra hegningarlaga. Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum sam- kvæmt þeim, varða sektum allt að 200 þús. kr. Ef miklar sakir eru eða ef brot er ítrekað, má svipta sökunaut atvinnurétti. Upptaka eigna samkvæmt 69. gr. almennra hegningarlaga skal og heimil vera. 10 læknishéruð laus Tíu læknishéruð hafa nýlega verið auglýst laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Héruðin eru þessi, eftir þvi sem blaðinu var tjáð af heilbrigðis- málaráðuneytinu: Reykhólahérað, Breiðaból- staðarhérað, í Skaftafellssýslu, sem áður hét Síðuhérað, Djúpa- vogshérað, Bakkagerðishérað. Kópaskershérað, Árneshérað, Hesteyrarhérað, Ögurhérað, Flateyjarhérað og Hafnarfjarð- arhérað. Öll veitast þessi emb- ætti frá 1. júlí í sumar. Yanofskymótinu lokið Yanofsky sig’raði, Áss- imndiir næstefstur Biðskákum frá síðustu um- ferð Yanofskymótsins lauk í gærkvöld og fóru leikar þannig: 7. UMFERÐ: Eggert Gilfer 0, D. A. Yan- ofsky 1, Guðm. Ágústsson 0, R. G. Wade 1, Árni Snævarr y2, Baldur Möller y2, Guðm. S. Guðmundsson y2 Ásm. Ásgeirs- son y2. Heildarúrslit eru því þau að sigurvegari varð D. A. Yanofsky og hlaut 6 vinninga (af 7 mögu- legum), 5 unnar og 2 jafntefli. Ásmundur Ásgeirsson fékk 5 vinninga, Guðmundur S. Guð- mundsson 4, Baldur Möller 3, Guðm. Ágústsson 3, Eggert (Framhald á 4. síðu) Ungmennafélag Reykjavíkur fimm ára Ársfajgnaðnr á laugar- claginn Ungmennafélag Reykjavíkur er fimm ára um þessar mundir. Efnir það af þessu tilefni til árs- fagnaðar í Tjarnarlundi á laug- ardaginn að kemur.' Einnig er verið að gefa út af- mælisrit, og skrifa þeir í það, meðal annarra, Ingimar Jó- hannesson kennari um Aðal- stein Sigmundsson, stofnanda félagsins, og Páll S. Pálsson, um sjálfa félagsstofnunina. Ungmennafélag Reykjavíkur hefir starfað vel á undanförn- um árum. Meðal annars hefir það æft flokk glímumanna, og voru úr honum sumir þeir, sem beztan orðstír gátu sér í flokka- glímunni á dögunum. Formaður félagsins er Stefán Runólfsson frá Hólmi, og hefir hann verið það í þrjú ár. Aðgöngumiðar að ársfagnað- inum fást heima hjá Stefáni, að Gunnarsbraut 34, og í bóka- verzlun Guðmundar Gamalíels- sonar. Tóbaksverðið stórhækkar Álagning' kaupmanna lækkuð úr 25 í 20% — ! þó fá þeir meira en áður í fyrradag var samþykkt á alþingi frumvarp til laga nm heimild til handa Tóbakseinka- sölu ríkisins að hækka álagn- ingu á tóbaki úr 150% í 250%. Var frumvarpið flutt í neðrl deild þá samdægurs af meiri hluta fjárhagsnefndar og að beiðni fjármálaráðherra. Voru afbrigði leitt frá þingsköpum, svo að það gæti náð samþykki á einum degi. Þessi heimild um verðhækkun á tóbaki var þegar notuð og kom til framkvæmda í gær. Út- söluverð á amerískum sígarett- um var áður kr. 3,60 pakkinn, en verður nú kr. 4,80. Annað tóbak hækkar í samræmi við þetta. Áður var kaupmönnum leyft að leggja 25% á tóbakið í búð- um sínum, en nú verður álagn- ing þeirra lækkuð niður í 20%. Eigi að síður fá kaupmenn meira fyrir að selja sama magn tó- baks en íl'fur. Áður fengu þeir 72 aura fyrir að selja sígarettu- pakkann, en hér eftir fá þeir 80 aura fyrir það. Að sama skapi eykst ágóði þeirra af sölu ann- ars tóbaks. AIIs mun aukinn hagnaður þeirra af sölu tóbaks nema um hálfri miljón króna á ári, miðað við svipaða tóbaks- sölu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.