Tíminn - 22.05.1947, Page 3
92. blað
TÍJIIITVX. fimmtndagiim 22. maí 1947
3
Sjötíu og flmm ára:
Gunnlaugur Jónasson
á Eiði, Langanesi
Hann er fæddur í Hlíð á
Langanesi 22. maí 1872, sonur
Jónasar Jónssonar bónda þar
og konu hans, Helgu Þorleifs-
dóttur, sem var aðflutt úr Eyja-
firði. Eftir lát föður síns flutt-
ist Gunnlaugur frá Hlíð að
Brimnesi ásamt móður sinni og
systkinum, þá 19 ára gamall, og
árið 1897 að Eiði, en þar hefir
hann átt heima síðan, eða rétt
um 50 ár, þótt eigi hafi hann
dvalið þar að staðaldri síðasta
áratuginn. Vorið 1900 gekk hann
að eiga Þorbjörgu Daníelsdóttur
Jónssonar bónda á Eiði og hófu
þau búskap á þriðjungi jarðar-
innar. Þar bjuggu þau hátt á
fjórða tug ára með miklum
myndarskap. Eindrægni, hlýtt
viðmót, geðró og starfsemi ein-
kenndu þar allan heimilisbrag.
Þar var jafnan gott að koma.
Þorbjörg lézt árið 1936, og mun
hún jseint gleymast þeim, er
hana þekktu.
Eftir lát Þorbjargar brá Gunn-
laugur búi, enda voru börnin
að mestu uppkomin. Þrjú
þeirra búa nú á æskustöðvunum.
Eru tveir bæir í heimatúnina
eins og áður, en auk þeirra ný-
býlið Ártún í landi jarðarinnar.
Af börnum þeirra hjóna eru níu
á lífi (og ein fósturdóttir) og
eiga sjö þeirra heima á Langa-
nesi. Barnabörn þeirra Gunn-
laugs og Þorbjargar eru nú orð-
in yfir fjörutíu talsins, þar af
um hálfur þriðji tugur heima á
Eiði og í Ártúni. Við slíka staði
er tengd framtíðarvon íslenzkra
sveita.
Það er ekki ofmælt að Gunn-
laugur á Eiði hafi innt af hendi
mikið og gott ævistarf. Búskap
hóf hann við fremur lítil efni á
túnlitlum og nærri húsalausum
jarðarparti. Þriðjungurinn af
Eiðislandi var að vísu eign
þeirra hjóna, en bústofninn var
um 20 ær, einn hestur og leigu-
kýr. Varð Gunnlaugur því að
stunda vinnu utan heimilis
meira og minna fyrstu árin.
Lengi vel sótti hann sjó á
sumrum eftir því sem ,tíð og
tími leyfði.
Fljótlega gerðist hann einn
mesti athafna- og umbótamað-
ur í sveitinni. Varð þá fyrst fyrir
að koma upp viðeigandi bæjar-
húsum og slétta túnið, en síðar
vann hann að.stækkun þess af
miklu kappi. Árið 1912 byggði
hann fjögur hundruð hesta hey-
hlöðu úr steinsteypu, þá fyrstu
þar um slóðir. Sá hann fljótt
hvers virði það myndi vera, að
hirðing af hinu stóra, slétta
túni gæti gengið greiðlega og
heyin geymst sem bezt og þaS
því fremur sem mjög óþurrka-
samt er á Eiði og mikil nauðsyn
fyrninga. Á síðustu búskaparár-
tim sínum var Gunnlaugur bú-
inn að tífalda töðufenginn eða
vel það, og hafði byggt upp bæ
sinn í annað sinn yið hæfi
nýrra tíma, ásamt peningshús-
um og steyptri votheyshlöðu.
Ekki má því gleyma, að þeir
Eiðisbændur, Gunnlaugur og
Daníel tengdafaðir hans, komu
upp i félagi tveim mannvirkjum,
sem telja mátti einstök í sinni
röð. Hið fyrra var Eiðisbrautin,
4—5 km. upphlaðinn vegur yfir
ótræðið í Eiðisskarði, og var það
verk hafið árið 1916. Hið síðara,
rafveitan, var gert árið 1927 og
kostaði stórfé. — Naut Gunn-
laugur við búskap sinn og fram-
kvæmdir hin síðari ár, mikils-
verðar aðstoðar barna sinna, er
þau komust á legg, þvi að þau
voru þá lengst af heima og
lögðu fram lið sitt.
Ekki hefir Gunnlaugur verið
neinn auðmaður um ævina,
enda fyrir mörgum að sjá, en þó
kom hann sér upp góðum bú-
stofni jafnframt því, sem hann
stóð í meiri og minni fram-
kvæmdum ár hvert. Allan bú-
skap hans einkenndf snyrrti-
mennska sú, hagleikur og út-
sjónarsemi, sem honum er í blóð
borin, samfara miklum dugnaði,
áhuga og ósérhlífni. Lét hann
hvergi undan siga, enda þótt
heilsa hans væri um tíma eigi
svo góð sem skyldi. Seint gleymi
ég því, hve mikið mér fannst
(Framhald á 4. síðu)
•að undra, þótt margar tóm-
stundir fari til lítils og mörgum
verSi hált á þessu svelli. Enda er
ekki hægt að neita því, að tóm-
stundalíf á þessum stöðum
skapar marga þverbresti í fari
ungra manna nú á dögum. „Ef
starfinu linnir, er hjartanu
hætt, öll hvíld er þá drepandi
þreyta.“ En hvíldin, ráðleysi
tómstundanna og skipulagsleysi
lífsins verður þá ekki aðeins
drepandi þreyta, heldur brýzt
út í sukki og svalli. Það er reynt
að svala tómleikanum, sem fyllir
sálina, með tóbaksreykingum,
áfengisdrykkju, jazzmúsík og
öðru slíku. Þó er enginn maður,
hvorki karl eða kona, fæddur til
að lifa slíku lífi. Það eru lang-
oftast hin ytri skilyrði, sem
leiða menn, eða hrinda þeim
. út í slíka ófæru.
Af langri kennarareynslu get
i'ég lýst því yfir, að ég hefi aldrei
þekkt þann bekk í skóla, er
hafði nokkra tilhneigingu til
óknytta, óhlýðni eða annarra
skólaódyggða, ef honum leið vel
1 skólanum, ef hann hafði kenn-
ara, sem var starfi sínu vaxinn
og hafði nægilegt starf, sem var
þannig búið í hendur hans, að
börnunum geðjaðist að því.
Þannig er ungu fólki farið yfir-
leitt. Það þráir umfram allt
starf og gleði. Enginn ungling
ur er fæddur með áfengisþorsta
eða tóbakshungur. Óuppfylltar
þarfir unga fólksins skapa hjá
því þessa ímynduðu þörf, ásamt
sýktum aldaranda og ljótu og
ábyrgðarlausu fordæmi. Ekkert
hús er lengi tómt. Ef það er ekki
fyllt með einhverju góðu, kem
ur hið illa og sezt þar að. Þetta
er lögmál, sem ekki verður um-
flúið. Hafi unga fólkið ekki
tækifæri til að fylla tómstundir
sínar með góðu og þroskandi
starfi eða skemmtunum, koma
hinir illu andar athafnaleysis-
ins og fylla hið auða rúm. Á
þessu sviði þörfnumst við ein-
hverra uppeldisaðgerða, og sjá-
um svo til, hvort ekki verður
færra af reykjandi og drekkandi
kaffihúsa- og kvikmyndalýð,
sem er að týna sjálfum sér í
eintómu tilgangsleysi.
Framhald.
Gunnar Widegren:
*
Ráðskonan á Grund
bæði stórt og fallegt kvikindi, sem sigraði hjarta mitt
á svipstundu — það er að segja hundurinn. Mér fannst
minna til um hinn.
— E-há og einmitt, sagði húsbóndinn. Svona er hann
— ja-há.
— Ef ég má láta mína skoðun í ljós, sagði ég hæ-
versklega, þá yrði manni nú eins og dálítið rórra innan-
brjósts, ef það væri hundur á bænum, hvort sem hús-
bóndinn keypti nú þennan eða einhvern annan.
—_Ég er viss úm, sagði Arthúr tvístígandi og drap
tittlinga framan í mig, að þið fáið hvergi slikan hund
sem þennan. Ég þekki hann Lund, og ég veit, að hann
býður fólki ekki annað en það, sem boðlegt er.
— O-ne-ei, sagði Lund dimmum rómi.
— Hans nafn er frægt meðal allra, sem hafa vit á
hundum, og hann hefir fengið verðlaun fyrir hunda-
uppeldi og fleiri verðlaun. Það er fullt af verðlauna-
bikurum heima hjá honum.
— O-ja-á, drundi í komumanni.
— Svo mér finnst, að húsbóndinn ætti að þekkjast
þetta boð. Það veit enginn, hvað hér kann að gerast
í nótt.
— O-ne-ei, tautaði Lund.
— Mig langar bara mest til að taka hann upp í til
mín, sagði Hildigerður hvellum rómi.
— E-há og einmitt, sagði húsbóndinn. Jæja — það
er þá bezt ég kaupi hundinn. Kvenfólkinu lízt vel á
hann, og það kemur hvort eð er mest á það að hirða
um hann. Hvað heitir hann?
— Skjöldur, svaraði Lund, sem nú sannaði loks, að
hann gat sagt fleira en „o-ne-ei“ og „o-ja-á.“
— Það er ágætt nafn, sagði húsbóndinn. En við
Hildigerður kynntum okkur Skildi.
— Skjöldur — irr, sagði Lund og benti á húsbóndann.
Þetta er bóndinn, og honum átt þú að þjóna.
Skjöldur dillaði rófunni og leit gáfulegum augum
á alla viðstadda.
— Og hérna er motta handa þér, og hana átt þú að
fara vel með, sagði ég.
Skjöldur sletti klónni upp á trýnið á sér eins og hann
vildi segja: Hí á stelpuna.
— Og þetta er vinnukonan .... sagði Lund.
— Mikil afdæmis ósköp, hvein í Hildigerði. Ég er
ekki meiri vinnukona en hún, og hefði ég ekki verið
hér í dag, væri hún hér ekki heldur. Svo að það er jafnt
á komið, hefði ég haldið!
— Ég bið afsökunar, sagði Lund, sem féll fúslega
frá röngum hugmyndum sínum um stöðu mína á heim-
ilinu. Þær eru þá báðar vinnuhjú — sei-sei já, hús-
bóndinn hefir efni á því að hafa tvær vinnukonur —
o-jú-jú, þá hefir hann líka ráð á því að eiga hund — og
þú átt líka að vera góður við þær.
Skjöldur gaf til kynna, að hann skildi þetta líka, og
síðan skipti lítil ávísun um eiganda, en Skildi var gefið
margs konar lostæti og þar með boðinn veíkominn að
Grund. Arthúr og Lund voru hresstir á góðum kaffi-
sopa. „Fóvetinn,“ sem kom skömmu síðar, naut einnig
góðs af örlætj okkar, áður en hann fékk heimfararleyfi
og Skjöldur var settur á vörð í hans stað. Nóttin var
hin friðsælasta.
En þegar birti af næsta degi og ég rumskaði í bóli
mínu, heyrði ég, að Hildigerður var í háværum sam-
ræðum við húsbóndann.
— Ef húsbóndinn vissi, hvað ég veit! sagði hún.
— Einmitt, já — e-há, rumdi húsbóndinn þumbara-
lega.
— Anna er harð-trúlofuð, sú dálitla!
— E-há og einmitt. Svo hún er trúlofuð.
— Það er hann Kalli á Hóli.
— E-há og einmitt — heitir hann Kalli, og er á Hóli.
Og með það þrammaði rauðúlfurinn út í garð, en
útvarpsstöðin skálmaði inn í eldhúsið, hálf-vonsvikin
yfir því að hafa ekki fengið að segja allt, sem henni bjó
í brjósti um. þetta hugðnæma mál.
E-há og einmitt — heitir hann Kalli, og er á Hóli!
Kalli á Hóli hafði verið fyrsta karlmannsnafnið, sem
mér flaug í hug, þegar ég sá strokufangann við hænsna-
kofann. Ég hafði hugsað mér að hræða hann með því
að hrópa eitthvert karlmannsnafn, og þetta var nú
tiltækilegast, af því að ég hafði einmitt verið að söngla
vísuna um hann Kalla á Hóli, eins og svo margar stúlkur
gera. — Nú jæja, ég tek þá Kalla á Hóli — ef ekki til
annars, þá til þess að verja mig, þegar næstu biðlar
koma. — Hildigerður er þannig gerð, að hún snýr öllu
á bezta veg og rekur úr manni alla ólund. Við skulum
vona, að þess verði ekki langt að bíða, að hún hafi
frætt alla í næstu byggðarlögum um ástir okkar Kalla
á Hóli. Fólkið hérna á bæjunum er ekki eins kaldrana-
legt og áhugalaust og húsbóndinn á Grund.
Auk þess verð ég að meta það að makleikum, að
Hildigerður hefir bjargað mér frá bráðum bana. Þegar
ég kem heim, ætla ég að kaupa handa henni fallega
gjöf fyrir afganginn af sumarkaupinu mínu og kannske
eitthvert tillegg úr bankabókinni hans pabba.
í drottins ást og friði!
Þin
Anna Andersson.
Getum afgreitt nú þcgar
handsáðvéfar „Jalco”
fyrlr rófur.
Samband ísl. samvinnufélaga
Faðir okkar
Ólafur Guðmundsson
fyrrum ferjumaður á Sandhólaferju, andaðist að Elli-
heimili Hafnarfjarðar þriðjudaginn 20. maí.
Kjartan Ólafsson
Jón Ólafsson.
Hjartanlegt þakklæti færum við sveitungum okkar og
öðrum vinum, er sýndu okkur hlýhug og vináttu, með því
að halda okkur veglegt samsæti á gullbrúðkaupsdegi okkar
13. maí s.l.
Ennfremur þökkum við hinum mörgu vinum okkar fjær
og nær, er sendu okkur vinarkveðjur og árnaðaróskir.
GUDRÚN BJÖRNSDÓTTIR
PÁLL HANNESSON
GUDLAUGSSTÖÐUM.
Innilega þakka ég öllum þeim, er glöddu mig á sextugs-
afmæli mínu, mð heimsóknum, skeytum og gjöfum.
BENEDIKT BLÖNDAL
BRÚSASTÖÐUM
VATNSDAL.
Sundhöll Reykjavíkur
O
o
o
o
O
O
Sundhöllin verður framvegis opin fyrir bæjarbúa o
frá kl. 7.30—10 virka daga og 8—3 sunnudaga.
Aðgöngumiðasala hættir 45 mínútum fyrir lokunar-
tíma. -
Stúlkur óskast
til Kleppjárnsreykjahælisins i Borgarfirði til
aðstoðar við hjúkrun og saumaskap.
upplýsingar í skrlfstofu ríkisspltalanna, sími
1765.
o
o
o
o
O
I *
< I
•iitit
Nýr jeppabíll
Vil kaupa nýjan eða nýlegan jeppabíl.
Guðmundur Tryggvason
Símar 5564 og 2353.
iitttitittttntttittittttitittittitiiiititiiKttitKttttttiKittiiiiitiitttiiitttitiUtiiimtitiiittiiii
Starfsstúlkur og
hjúkrunarmenn
vantar á Kleppsspítalann. Tppl. í
síma 2319.
VINNIÐ ÖTULLEGA AB ÚTBREIÐSLU TÍMANS