Tíminn - 22.05.1947, Qupperneq 4
tRAMSÖKNARMENN!
Munib ab koma í flokksskrifstofuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarfíokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
22. MAÍ 1947
92. blað
ll i
œnum
í dag.
Sólin kemur upp kl. 4.19. Sólarlag
kl. 22.32. Árdegisflóð kl. 7.35. Síðdegis-
flóð kl. 20.00.
í nótt.
Næturakstur annast bifreiðastöðin
Hreyfill,, sími 6633. Næturlæknir er
í læknavarðstofunni í Austurbæjar-
skólanum, simi 5030. Næturvörður er
í Laugavegs Apoteki, sími 1616.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.00 Préttir. 20.20 Útvarpshljóm-
sveitin (Albert Klahn stjórnar): a)
Skáld og bóndi eftir Suppé. b) Raddir
vorsins — vals eftir Strauss. c)
Preludium eftir Járnefeldt. d) Mars
eftir Fucik. 20.45 Dagskrá kvenna
(Kvenfélagasamband íslands) Erindi:
Björgunarstarf (frú Ingveldur Einars-
dóttir frá Grindavík). 21.10 Einleikur
á píanó: Verk eftir Schumann (frú
Jórunn Féldsted). 21.40 Frá útlöndum
(Gisli Ásmundsson). 22.00 Fréttir
22.05 Kirkjutónlist (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Skipafréttir.
„Brúarfoss" er í Kaupmannahöfn.
„Lagarfoss" fór frá Kaupmannahöfn
20. maí til Gautaborgar. „Selfoss" er
á Akureyri í dag. „Fjallfoss" fór frá
Vestmannaeyjum 20. maí til Ham-
borgar. „Reykjafoss" fór frá Hull 20
maí. „Salmon Knot“ kom til Halifax
N.S. 20. maí frá Reykjavík. „True
Knot“ kom til Halifax N.S. 18. maí frá
New York. „Becket Hitch“ fór frá
Reykjavík 17. maí til New York.
„Anne“ kom til Reykjavikur 15. maí
frá Gautaborg, fer 23. maí til Siglu-
fjarðar og þaðan til Hamborgar og
Kaupmannahafnar. „Lublin" fór frá
Reykjavík 17. maí til Grimsby. „Horsa'
fór frá Fáskrúðsfirði 19. mai til
Boulogne. „Björnefjell" fór frá Ant-
werpen 17. maí, til Leith. „Dísa“ lest-
ar i Raumo í Finnlandi um 23. maí.
„Resistance" fór frá Leith 17. maí til
Reykjavíkur.
N afnskráning
á innstæðum
(Framhald af 1. síðu)
Skýrslugjöf Iánsstofnana.
Frá og með framtalsdegi er
sérhverri lánsstofnun óheimilt
að greiða fé út af innstæðu-
reikningi, fyrr en hún hefir
fengið í hendur innstæðuyfir-
lýsingu reikningseiganda.
Ávísanir, sem út eru gefnar
fyrir framtalsdag, er þó heimilt
að færa reikningi útgefanda til
skuldar, þótt hann ha*fi ekki enn
fullnægt yfirlýsingarskyldu
sinni, enda sýni viðtakandi
vegabréf sitt eða nafnskirteini.
Lánsstofnanir gefa framtals-
nefnd skýrslu um allar þær inn-
stæður, sem yfirlýsingar hafa'
ekki borizt um innan tilskilins
tíma samkvæmt framansögðu.
í skýrslunni skal greina upphæð
hverrar innstæðu, ásamt þeim
upplýsingum, sem stofnunin
getur í té látið um það, hver
eigandi muni vera. Birta skal
opinbera innköllun varðandi
innstæður þessar og með þeim
fyrirvara, er fjármálaráðherra
ákveður. Komi eigandi ekki
fram, áður en innköllunarfrest-
ur er liðinn, rennur innstæðan
óskert í ríkissjóð,
Refsiákvæði,
Nú kemur fram innstæðuyfir-
lýsing, eftir að frestur er lið-
inn, en fyrir lok innköllunar-
frestsins, og getur þá fjármála-
ráðherra gert eiganda innstæð-
unnar að greiða sekt til ríkis-
sjóðs vegna dráttarins, ef ekki
þykjá nægar afsakanir fyrir
hendi. Sekt má nema allt að
25% af innstæðunni, eftir nán-
ari reglum, sem ráðherra setur í
samráði við framtalsnefnd.
Hver sá, sem af ásetningi eða
stórfelldu gáleysi gefur rangar
eða villandi yfirlýsingar um
innstæðueign, skal sæta sektum
allt að 200000 krónum. Hlut-
deild í broti er refsiverð á sama
hátt.
Bílaokrið
(Framhald af 2. síðu)
rúm 40.000,00 krónur. Með næstu
skipsferð fékk hann senda nýja
jeppa-bifreið til baka eftir sögn
þess, sem seldi fyrir hann
Dodge-bifreiðina.
Margir læknar hafa fengið
2—3 nýjar bifreiðar á rúmu ári
og sumir selt þær og bíða eftir
einffii til. Sýslumaður einn á
Norðurlandi mun hafa getað
krækt sér í 2—3 bifreiðar til
sölu á svörtum markaði.
Á bifreiðastöðina Hreyfill eru/
nú nýkomnar 12 nýjar bifreið-
ar. Þar af hefir aðeins tveim-
ur verið úthlutað til atvinnu-
bílstjóra þar.
Hinar 10 eru keyptar á svört-
um markaði fyrir 55 þús. kr.
stykkið.
Það er daglegt brauð, að ýms-
ir menn, sem hafa getað logið
sér út innflutningsleyfi fyrir
bifreið, koma á framangreinda
stöð og bjóða leyfi til sölu fyrir
20—30 þúsund krónur. Þá er
einnig öllum, sem lesa blöðin,
kunnugt um að flesta daga eru
fleiri og færri nýjar bifreiðar
auglýstar til sölu „ef viðunandi
tilboð fæst.“
Sé ekki boðið um 60 þúsund
krónur í bifreiðina, er það ekki
talið viðunanlegt.
Sagt er, að nefnd sú, sem bif-
reiðaumboðin kusu til að út-
hluta bifreiðainnflutningi síð
asta árs hafi úthlutað sjálfri sér
1 bifreið á hvern meðlim og mun
það geta kallazt að nota sér að-
stöðu sína. Af slíkum trúnaðar-
mönnum mun þjóðin eiga full-
mikið.
Fjöldamörg fleiri dæmi mætti
nefna, en þessi ættu að nægja
flestum til að sjá, hvílíkt rang-
læti hér er framið gagnvart at
vinnubílstjórum og öðrum, sem
nauðsynlega þurfa á bifreiðum
að haþ&ji, og hvílíkt handahófs-
og hlutdrægnisverk svonefnd
bifreiðaúthlutun er.
Þetta ástand hefir skapazt af
þVí, að fjárhagui- almennings
er góður og að ekki hefir verið
hægt að flytja inn svo mikið af
bifreiðum, að það fullnægði eft-
irspurninni.
Framhald.
Drekkið Maltko
Sjötín og fimm ára
(Framhald af 2. síðu)
til um stórhug hans og áræði,
er ég kynntist honum fyrst sem
unglingur. Eins og nærri má
geta hefir slíkur maður orðið
samfrðamönnum sínum og
sveitarfélagi næsta þarfur á lífs-r
leiðinni. Han.fi er lika einn þeirra
er bæði vilja oj? kunha að leysa
annarra manna vandræði. Ótál-
in eru handtök hans utan heim-
ilis fyrr og síðar. Hefir hann átt
mikið við smíði og húsabygging-
ar, staðið fyrir vegagerð, og
einnig hafði hann með höndum
verkstjórn við hafnarbætur á
Þórshöfn fyrsta sumarið, sem að
þeim var unnið, þá kominn
nokkuð á sjötugsaldur. En einn-
ig í félagsmálum og sveitar-
stjórnarmálum hefir hann verið
meðal liögengustu manna, átti
lengi sæti í hreppsnefnd og
fræðslunefnd, sömuleiðis í
stjórn Kaupfélags Langnesinga.
Má segja, að hugur hans hafi
jafnan verið vel vakandi 1
hverju máli, bæði heima fyrir
og einnig í þeim málum, er
þjóðarheildina varða.
Eins og áður er sagt hætti
Gunnlaugur búskap eftir ‘missi
konu sinnar, og síðasta áratug-
inn hefir hgnn sinnt ýmis kon-
ar vinnu svo sem byggingum,
vegagerð, fiskvinnu og fl„ enda
er hann jafnvígur á margt.
Hingað til hefir hann gengið að
erfiðisvinnu með yngri mönn-
um og sjaldan unnað sér hvíld-
ar. Við og við heimsækir hann
vandamenn og vini, tekur til
hendinni þar sem honum þykir
helzt við þurfa og á þar að von-
um hlýju að mæta.’f vetur kom
hann til Rvíkur í fyrsta sinn til
að leita sér lækninga við sjón-
depru, og dvelur þar nú um
stund. En þó að hann sé nú
nokkuð tekinn að lýjast eftir
lamgan dag, er áhujginn enn
svipaður og áður var, fyrir starfi
og lífi á landi og sjó og öllu því,
er mannshöndin með hjálpar-
tækjum sínum fær til vegar
komið. Nú, þegar tóm gefst til,
kann hann frá mörgu að segja,
sem á dagana hefir drifið í blíðu
og stríðu. Það er bjart yfir end-
urminningum hans og trú hans
á það líf, sem aldrei þrýtur. ___
Margir munu í dag hugsa til
hans með virðingu og þökk.
G. G.
' oni húnir að læra . .
(Framhald af 1. siðu)
brenndar voru, voru kennslu-
bækur (fjölritaðar) í dönsku og
efnafræði auk danskrar
kennslubókar i eðlisfræði.
Bókabrenna þessi var ekki
gerð af andúð til áðurnefndra
námsgreina, heldur í mótmæla-
skyni við íslenzka námsbókaút-
gáfu eð^ m. ö. o„ að skólafólki
sé boðið upp á fjölritaða snepla,
sem ekki hanga saman hálfan
vetur, eða jafnvel kennslubæk-
ur á erlendum tungumálum.
Þá viljum vér og víta harðlega
þann fréttaflutning, er lögregl-
an hefir viðhaft í þessu máli,
þar eð henni voru allar aðstæð-
ur kunnar.
Bergmál
2. hefti er komið út.
Flytur eingöngu skemmtiefni.
í þessu hefti er m. a.
Ljósið í turninum, smásaga
eftir Valerian Tornius.
Ráð undir rifi hverju, frásögn
af njósnum seinústu styrj-
aldar.
Úr heimi kvikmyndanna, fjöldi
mynda og greina um leik-
ara.
Endurfundir, ástarsaga eftir
Q. Patrick.
Undur tækninnar, fréttir af
tæknilegum nýjungum.
Kleópatra, síðari hluti af spenn-
andi ævisögu.
Skógurinn brennur, framhalds-
saga eftir J. O. Curwood,
og margar fleiri greinar.
Nýir kaupendur, sem greiða
árgang Bergmáls fyrirfram,
kr. 60,00, fá
ó k e y p i s
bókina Kabloonu, sem seld
hefir verið í bókabúðum á kr. !
62.
Tekið á móti áskrifendum
hjá
BÓKAÚTGÁFU
GUÐJÓNS Ó. GUÐJÓNSSONAR,
Hallveigarstíg'' 6A.
Sími 4169.
(jamla Síó
Grunaðnr um
njósnir
(Hotel Reserve)
Spennandi, ensk njósnaniynd,
gerð eftir sögu Eric Amblers.
’Aðalhlutverk:
James Mason
Lucie Mannheim
Herbert Loin
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
Utjja Síi
(vW Shúlayötu)
Leyndardómur
fornsölunnar
(„River Gang“)
Spennandi mynd og einkennileg
Aðalhlutverk:
Gloria Jean
John Qualen
Sýnd kl 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri
en 12 ára.
Tjatnatbíó
Meðal flökkufólks
(Caravan)
Afar spennandi sjónleikur eftir
skáldsögu Lady Eleanor Smith.
.. .J
Stewart Cranger,
Jean Kent,
Anne Crawford
Dennis Price
Robert Helpman.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
OPN a
lækningastofu
í Lækjargötu 6 B.
Viðtalstími þriðjud. kl. 10—11,
föstudaga kl. 4—5 og eftir um-
tali.
Sími: 5970, heima 1789.
Sérgrein: lungnasjúkdómar
JÓN SIGURÐSSON
dr. med.
‘Ctf
<&
PQ
£
£
Þ-.
o3
40
o3
'5
£
o3
a. .
.a
<&
ÖD
£
P
40
s
u
<3
r£
o
co
£
40
•H
<D
bfi
bD
o
o3
£
aJ
5
<D
‘<D
'O
£
<D
CO
s
03
<Q
£
o3
£
<D
„FarmalS’”
Höfum fyrirliggjandf á „FARMALL“
dráttarvélar
Ljósaútbúnað með tilheyrandi
startara og geymum
KEÐJUR — REIMSKÍFUR
Samband ísl. samvinnuf élaga
:::jj:j«::«jj«:::jj::j::j:j:k:j:j:j«jj::jjjj«jj:jjjjj:j:jjjjj:j«::jjj:jjjjjjjjjj:jjjjjj:«j«u:::
UTBREIÐIÐ TIMANN
Hin nýja útgáfa íslendingasagna
Innan örfárra daga kemur út seinni hluti íslendingasagna. Hafa enn bætzt við nýjar sögur frá því, sem upphaflega
var lofað svo að nú eru í útgáfunni samtals 127 sögur og þættir og þar af 33 sögur og þættir, sem ekki eru í fyrri út-
gáfum og 8 þeirra hafa aldrei verið prentaðir áður.
Þeir áskrifendur sem ekki hafa fengið fyrri hluta sagnanna eru vinsamlegast beðnir að vitja þeirra í Bókaverzlun
Finns Einarssonar Austurstræti 1 eða í skrifstofu íslendingasagnaútgáTunnar í Kirkjuhvoli, sími 7508.
Enn er hægt að eignast útgáfu þessa á lága verðinu með því að gerast áskrifandi. Öll bindin kosta aðeins kr. 300,00
óbundin en kr. 423,50 i vönduðu skinnbandi.
Þvi aðeins eignist þér allar íslendinga sögurnar að þér kaupið þessa útgáfu.
MUNIÐ: Ekki brot, heldur heildir. Saman í heild, það, sem saman á.
tJJJJKJJJJJKJKJJJKJKJJJJJJJJKJJJJJJJJKJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJKJJKJJKKJJ
Ég undirrit..... gerist hér með áskrifandi að
íslendingasögum íslendingasagnaútgáfunnar, og
óska að fá þær bundnar, óbundnar.
Nafn
islendingasagnaútgáfan
Heimili
Póststöð
pósthólf 73, Reykjavík.
ÍSIMIXCASACMtTGÁFAN
Pósthólf 73, Reykjavík.
: jjjj jj:j jjjjjjjj jjjj jj jjjj jj jjj