Tíminn - 28.05.1947, Page 4
I
f-RAMSÖKNARMENN!
4
MunÍð ab koma í flokksskrifstotuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
28. MAÍ 1947
95. blað
Bæmlasamtökin . . .
(Framhald af 1. síðu)
Bændum skulu tryggðar svipað-
ar tekjur og hliðstæðum
stéttum.
Söluverð landbúnaðarvara á
innlendum markaði skal miðast
við Jjað, að heildartekjur þeirra,
er landbúnað stunda, verði í
sem nánustu samræmi við tekj-
ur annarra vinnandi stétta. Hag
stofu íslands er skylt að afla
nauðsynlegra gagna fyrir 1. júlí
ár hvert um framleiðslukostnað
landbúnaðarvara og tekjur ann-
arra vinnandi stétta á sama
tíma.
Við útreikning framleiðslu-
kostnaðar og verðlagningu á
söluvörum landbúnp,ðarins á
innlendum markaði í heildsölu'
og smásölu, skal samkvæmt áð-
urnefndum ákvæðum byggt á
verðgrundvelli, sem fenginn er
með samkomulagi milli þriggja
fulltrúa, sem tilnefndir eru af
stjórn Stéttarsambands bænda
og 3ja fulltrúa frá þessum fé-
lagssamtökum neytenda: Al-
þýðusambandi íslands, Lands-
-sambandi iðnaðarmanna og
Sjómannafélagi Reykjavíkur. —
Nefndinni til aðstoðar er hag-
stofustjóri og formaður bú-
reikningaskrifstofu landbúnað-
arins. Verði samkomulag með
öllum nefndarmönnum, er það
bindandi.
Gerðardómur, sem fellur niður
þegar niðurgreiðslur hætta.
Nú næst ekki samkomulag um
einhver atriði snertandi út-
reikning framleiðslukostn., eða
verðlagningu landbúnaðarvara,
og skal þá vísa þeim atriðum, er
ágreiningi valda, til sérstakrar
yfirnefndar. Yfirnefnd þessi
skal skipuð 3 mönnum, einum
tilnefndum af fulltrúum Stétt-
arsambands bænda, öðrum af
fulltrúum neytenda og hagstofu
stjóra sem oddamanni. Fellir
hún fullnaðarúrskurð um á-
greiningsmálin. Akvæðin um
yfirnefnd gilda á meðan greitt
er niður með ríkisfé verð land-
búnaðarafurða eða ef útflutn-
ingsuppbætur eru greiddar á
þær.
Fyrsta verðskráning fyrir
1. ágúst n. k.
Verðlagsgrundvöllur sá, er
um ræðir að framan, svo og
verðlagning söluvaranna, skal
ákveðinn í fyrsta skipti fyrir 1.
ágúst 1947 og gildir eftir það,
þar til annar verðlagsgrundvöll-
ur er fundinn. Fulltrúar fram-
leiðenda og neytenda geta hvor
um sig óskað endurskoðunar á
verðlagsgrundvellinum. Ef ósk
fulltrúa um endurskoðun er
komin til gagnaðila fyrir lok
febrúarmánaðar það ár, sem
óskað er eftir að endurskoðunin
verði látin fram fara, skal hún
þegar tekin til greina. Við end-
urskoðun þessa skal fylgja áð-
urnefndum fyrirmælum og skal
henni lokið svo tímanlega, að
söluverð á landbúnaðarvörum
verði ákveðið í samræmi við
hana fyrir 1. ágúst sama ár.
Hagstofa íslands reiknar ár-
lega framleiðslukostnað land-
búnaðarvara, eða vísitölu hans
á grundvelli áðurgreinds sam-
komulags eða tillagna yfir-
nefndar og skal framleiðsluráð
miða verðlagningu á landbún-
aðarvörum árlega við þann út-
reikning.
Hið nýja verðlag tekur gildi
1. ágúst ár hvert. Enginn má
kaupa . eða selja búfjárafurðir
eða garðávexti, sem verðskráðir
eru samkvæmt lögum þessum,
fyrir annað verð en það, sem
ákveðið er á hverjum stað og
tíma.
Önnur ákvæði nýju laganna
eru mjög í samræmi við ákvæði
eldri laga.
Flugfélag Islands lækkar f argjöld
á utanlandsflugfsrðum
Vfir 120 utanlamlsfliigfcrðir á vegum fclagsins
á eimi ári •
í gær var eitt ár liðið frá því að Flugfélag íslands hóf reglu-
hundnar flugferðir milli íslands og Stóra-Bretlands og íslands og
Danmerkur með leiguflugvélum sínum. Ferðir þessar urðu þeg-
ar í upphafi mjög vinsælar og hefir það verið mörgum aðdáunar-
efni, hversu vel flugvélarnar hafa haldið áætlun.
Haldið hefir verið uppi reglu-
bundnum flúgferðum á fyrr-
greindum flugleiðum allt árið,
að vikunni milli jóla og nýárs
undantekinni, en þá voru ferðir
látnar falla niður.
Á þessu tímabili hafa verið
farnar 71 ferð milli Reýkjavík-
ur og Kaupmannahafnar, fram
og til baka, ætíð með viðkomu
í Prestwick í báðum leiðum.
Auk þess hafa verið farnar 49
ferðir milli Reykjavíkur og
Prestwick, fram og til baka, og
tvær aukaferðir milli Reykja-
víkur og New York. Flugvélarn-
ar fóru flugleiðina milli Reykja-
víkur og Prestwick 240 sinnum
á árinu. v
Meðalflugtími frá Reykjavík
til Prestwick var 4 klst. 30 mín.,
en 4 klst. 25 mín. frá Prestwick
til Reykjavíkur. Skemmstur
flugtími á þessari leið var 3 klst.
15 mín. Meðalflugtími frá Prest-
wick til Kaupmannahafnar var
3 klst. en 3 klst. 44 mín frá
Kaupmannahöfn til Prestwick.
Meðalfkigtími milli Reykjavíkur
og Kaupmannahafnar var því
8 klst. 9 mín. aðra leiðina en 8
8 klst. 11 mín hina.
í ferðum þessum hafa flug-
vélarnar verið alls 1638 klst. á
flugi, en það lætur nærri að
jafngilda 5. hverri klukkustund
allt árið.
Vegalengdin, sem flugvélam-
ar hafa flogið, er 490,120 km.,
en það jafngildir rúmlega 12
ferðum umhverfis jörðina við
miðjarðarlínu.
Flugvélarnar fluttu 1.568 far-
þega milli Reykjavíkur og Prest-
wick, 1.607 farþega milli Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar og
92 milli Reykjavíkur og New
York, eða samtals 3.267 farþega.
Póstflutningur nam um 12.000
kg. og vöruflutningur um 8.00
kg. Auk þess fluttu flugvélarnar
um 75 tonn af farangri farþega.
Félagið lækkaði fargjöldin á
utanlandsflugleiðum um síðustu
helgi. Fargjaldið milli Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar,
sem verið hefir kr. 1.180.00, —
lækkaði um 17% og er því nú
kr. 980.00. Fargjajdið milli
Reykjavíkur og Prestwick lækk-
aði úr kr. 760.00 í kr. 680.00.
Allar ferðir félagsins, til og
frá útlöndum, eru upppantaðar
langt fram á sumar.
I llihilim nýjit bæjar-
íbáðanna.
(Framhald af 1. síðu)
og heilsuspillandi húsnæði, eða
eru með öllu húsnæðislausir
að þeir gengju fyrir, sem
hefðu flest börn innan 16 ára á
framfæri, en þó jafnframt
haft í huga að rýma herskála
eftir föngum.
Samkv. þessum meginreglum
var íbúðunum úthlutað þannig:
Til 29 umsækjenda úr her-
skálahverfum, 69 fullorðnir (16
ára og eldri) 100 börn.
Til 11 umsækjenda úr óhæf-
um kjöllurum, 23 fullorðnir og
46 börn.
8 umsækjenda úr skúrum,
súðaríbúðum og öðru óhæfu
húsnæði, 17 fullorðnir og 36
börn.
Til 7 algerlega húsnæðis-
lausra fjölskyldna, 17 fullorðnir
og 24 börn.
Alls 55 fjölskyldur, 126 full-
orðnir og 206 börn.
Umsækjendur voru alls 964.
EYLANDSLJÁIR
Pantanir óskast sem fyrst
Samband ísl. samvinnufélaga
Erlent yfirlit
(Framhald af 1. siðu)
ha^in ætti að vera í stjórn, sem
kommúnistar tækju ekki þátt í.
Hafði flokkurinn áður samþykkt
að taka ekki þátt í slíkri stjórn.
Þessari ákvörðun var nú breytt
eftir harðar umræður á lands-
fundi flokksins með frekar litl-
um atkvæðamun. Átti Blum
einna drýgstan þáttinn í þeim
ákvörðunum.
Óljós afstaða kommúnista.
Síðan hin nýja stjórn Rama-
diers kom til valda í byrjun
þessa mánaðar, hefir verið all-
róstursamt í verkalýðsmálunum.
Miklar kauphækkunarkröfur
hafa verið bornar fram, en ekki
hefir enn komið til meiriháttar
verkfalla. Virðast kommúnistar
smeykir við að leggja út í stór-
felld átök og .er tvennt talið
valda því. Annað er óttinn við
að einangrast alveg og eiga ekki
afturkvæmt í stjórn, en komm-
únistar virðast leggja á það
mikla áherzlu að komast sem
fyrst aftur í stjórnina og þykir
líklegt, að því valdi framandi
sjónarmið. Hitt er óttinn við
hreyfingu de Gaulle, sem vafa-
laust fengi mikinn byr í seglinn,'
ef stjórn Ramadiers misheppn- j
aðist.
Vafasamt þykir, að kommún- j
istar geti leikið þann leik lengi
að taka ekki ákveðnari afstöðu. 1
Þeir eru komnir út á þá braut, j
sem þe(*v eiga erfitt með að
stöðva sig á, því að verkalýður-
inn mun heimta af þeim, að þeir
láti nú sjást, hvers þeir eru
megnugir.
Samvinna miðflokkanna.
Stjórnmálaástandið í Frakk-
landi hefir verið mjög tvísýnt
að undanförnu. Kommúnista-
flokkurinn er þar stærri en í
nokkru lýðfrjálsu landi öðru og
íhaldshreyíingu de Gaulles hefir
mjög vaxið fylgi síðustu mán-
uðina. Það virðist stefna Rama-
diers og þeirra 'stjórnmála-
manna, sem eru ráðunautar
hans, að gera nú úrslitatilraun
til að íylkja saman liði mið-
flokkanna og halda þannig í
skefjum öígahreyfingnnum til
hægri og vinstri, jafnframt og
fjárhagsmálunum sé komið á
fastari grundvöll. Misheppnist
þessi tilraun eru fuílar horfur á
fjárhagslegu hruni í Frakklandi
og að lýðræðisskipulagið falli þá
einnig í sömu gröf.
Tilraunir Ramadiers til að ná
samkomulagi um kaupgjalds-
málin eru mjög athyglisverðar.
Hann býður verkamönnum upp
á óbreytt kaup, en síðar skuli
þeir fá uppbót í hlutfalli við
aukna framleiðslu þjóðarinnar.
Takist sættir á þessum grund-
velli er ekki aðeins verkfalls-
hættan úr sögunni, heldur eru
verkamenn einnig hvattir á
hinn raunhæfasta hátt til að
auka framleiðsluna, en það er
Frökkum nauðsynlegra nú en
nokkuð annað.
E.s. ,Resistance’
fer frá Reykjavík fimmtudag-
inn 29. maí til Austfjarða og
Antwerpen.
Viðkomustaðir á Austfjörð-
um:
Djúpivogur,
Fáskrúðsfjörður,
Reyðarfjörður,
Eskifjörður,
Norðfjörður,
Seyðisfjörður.
Skipið fer frá Antwerpen 19.
júní og frá Hull 26. júní.
Es. „Selfoss”
fer frá Reykjavik föstudaginn
30. maí til Vstur- og Norður-
landsins:
Viðkomustaðir:
ísafjörður,
Djúpavík,
Sauðárkrókur,
Siglufjörður,
Akureyri,
Húsavík.
H.f. Eimskipafélag
fslands.
Frá Hollandi
og Belgíu
E.s. Zaanstroom
frá Amsterdam 31. maí,
frá Antwerpen 3. júní.
Einarsson, Zoéga & Co.
Hafnarhúsinu.
Símar 6697 og 7797.
Vinnið ötullega ft/rir
Tímann.
LEIKFELAG REYKJAVIKUR:
Ærsladraugurinn
Gamanleikur eftir NOEL COWARD.
Sýning annaðkvöld klukkan 20.
Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 4 í dag.
Svarað í síma 3191 frá kl. 3.
ATH. Engin sýning á sunnudag.
Jarðarför föður okkar
Ólafs Guðmundssonar,
fyrrum ferjumanns,
fer fram föstudaginn 30. maí og hefst með kveðjuathöfn
í þjóðkirkjunni í kafnarfirði kl. 11 árdegis.
Jarðsett verður á Stokkseyri og hefst athöfnin í Stokks-
eyrarkirkju kl. 3 síðdegis.
KJARTAN ólafsson. jón ólafsson.
Sýslunefnd Árnessýslu og öðrum þeim er sendu mér heilla-
óskaskeyti og sýndu mér annan vinarvott á sjötugsafmæli
mínu 'færi ég innilegustu þakkir.
Sigurður Jónsson frá Torfustöðum.
Tveggja ára telpa
bjargar foreldrum
sínum frá því að
farast í eldsvoða
í fyrrinótt um kl. 3.30 kom
upp eldur í húsinu Hlíðarvegur
éC á Siglufirði, sem er stórt tví-
lyft timburhús, eign Björgvins
Bjarnasonar lögfræðings. Mátti
heita að eldurinn magnaðist á
svipstundu og var húsið alelda,
er slökkviliðið kom á vettvang.
Allar slökkviliðstilraunir reynd-
ust því árangurslausar. Húsið
brann á skammri stundu til
kaldra kola að heita má, svo
nú standa ekki uppi nema uppi-
stöðurnar einar.
Það mátti ekki tæpara standa,
að fólk bjargaðist út úr húsinu,
en í því bjó ekki annað fólk en
hjón með tvö börn. Hjónin og
annað barnið sváfu sem fastast
er húsið var orðið alelda og má
líklegt heita, að allir hefðu
brunnið inni, ef tveggja ára
dóttir hjónanna hefði ekki
vaknað við reyk inni í svefn-
herberginu og vakið foreldra
sína, sem ekki biðu bóðanna
með að bjarga sér og börnunum
út, á náttklæðunum einum. All-
ir innanstokksmunir brunnu og
varð engu bjargað úr húsinu af
því, sem í því var nema fólkinu.
Húsið var lágt vátrygggt og er
því tjón eigandans tilfinnanlegt.
SK9PAÚTG6M0
RIKISINS
„SÚÐIN”
fer til Patreksfjarðar, Bíldudals,
Þingeyrar og ísafjarðar. Vöru-
móttakfi árdegis í- dag.
Farseðlar óskast einnig sóttir
í dag.
Cftbreiðið TímannJ