Tíminn - 31.05.1947, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hl.
\
: .ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
1
aimur 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: j
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Siml 2323 )
31. árjg.
Reykjavík, laugardaginn 31. maí 1947
98. blað
Keppnin vift hrezkatattspyrnu-Dakotavé|in rakst á Hestfjall í Héðinsfirði
liðið hefst á þriðjudaginn f(jrst með aUri ahofn
Það er talið sterkasta knattspyrnuliðið, sem
hefir komið hingað til lands
Á mánudaginn kemur er væntanlegt hingaff til lands meff flug-
vél frá Prestwick, frægt liff brezkra knattspyrnumanna. Er þaff
knattspyrnuflokkurinn Queens Park Rangers, sem talinn er
standa framarlega meffal brezkra atvinnuliffa.
Það er Knattspyrnuráð
Reykjavíkur, sem gengst fyrir
komu hinna brezku knatt-
spyrnumanna, en þeir koma
hingað í sumarleyfi sínu. Er það
siður brezku atvinnuliðanna að
fara til annarra landa, þegar
leiktímabilinu heima i Englandi
er lokið. Hafa slík lið oft heim-
sótt Norðurlöndin hin og einnig
meginlandslöndin.
Það er í fyrsta sinn, sem ís-
lendingum gefst kostur á því að
sjá þá menn leika knattspyrnu,
sem hafa það að atvinnu. Er
þetta talið sterkasta liðið, sem
hingað hefir komið, en þó búast
reykvískir knattspyrnumenn við
því að úrvalslið okkar geti staðið
sig sæmilega í viðureigninni við
þá, þótt ólíklegt sé að íslending-
ar beri sigur úr býtum.
Ákveðið er, að liðið leiki hér
fjóra leiki. Fyrsti leikurinn verð-
ur á þriðjudagskvöldið við úr-
valslið úr reykvísku knatt-
spyrnufélögunum. Annar leik-
urinn verður á miðvikudags-
kvöld við Fram, núverandi ís-
landsmeistara. Þriðji leikurinn
verður mánudaginn 9. júní og
keppa Bretarnir þá við K.R.,
sem staðið hefir sig einna bezt
í þeim knattspyrnuleikj um, sem
farið hafa fram í vor. Fjórði og
seinasti leikurinn verður aftur
við úrvalslið og fer fram dag-
inn eftir. Allir leikirnir hefjast
kl. 8.30, nema síðasti leikurinn,
sem hefst kl. 8. Að honum lokn-
um verður brezku knattspyrnu-
mönnunum haldið skilnaðar-
samsæti. Þá er gert ráð fyrir að
bjóða gestunum austur að Þing-
völlum, Gnllfossi og Geysi og ef
til vill einnig austur að Heklu.
Lið það, sem hingað kemur, er
eins og áður er sagt, talið sterkt
knattspyrnulið. Af 40 leikjum,
sem það hefir leikið í Bretlandi
í vetur hefir það aðeins tapað
7, og er það nú annað bezta liðið
í 3. fl. brezku atvinnuliðanna. í
því eru margir afburðagóðir
knattspyrnumenn. Má þar með-
al annars nefna markmanninn,
Allen, sem er ungur maður, sem
getið hefir sér mjög gott orð
fyrir leik sinn. Keypti Rangers
hann fyrir of fjár, en síðan hafa
önnur atvinnulið ekki linnt lát-
unum oo; boðið í hann hvert í
kapp við annað. í vetur bauð
t. d. eitthvert allra bezta at-
vinnulið Breta, Arsenal, yfir 200
þús. krónur í hann, en Rangers
lét hann ekki falan fyrir það
verð. Þá er Powell framvörður
mjög þekktur knattspyrnumað-
ur, sem Rangersfélagið keypti
nýlega fyrir mikið verð. Hann
leikur með úrvalsliði fyrir Wells.
Eiun af beztu knattspyrnu-
(Framhald á 4. síðu)
STAÐURINN, ÞAR SEM FLUGVÉLIX FÓRST
Handknattleikskeppni
Svía og íslendinga
Yfirburðir Svía byggðust á góðum samlcik
Heimsóknir erlendra íþróttaflokka hingaff til lands eru nú aff
verffa alltíffar og ber að fagna því. Þótt íslendingar gangi sjaldan
meff sigur af hólmi úr þeim viffskiptum enn sem komiff er, geta
þeir margt lært af hinum erlendu gestum, og þaff mun hjálpa
Islendingum aff ná því marki aff verffa lifftækir á alþjófflegum
íþróttavettvangi.
ERLENDAR hRETTIR
Danska stjórnin hefir nýlega
borið þau tilmæli fram við
Bandaríkjastjórn, að samning-
urinn frá 1941 um hersetu
Bandaríkj amanna á Grænlandi
verði felldur úr gildi. Banda-
ríkjastjórn hefir svarað því, að
húu sé fús til að ræða um nýjan
samning, er fjalli um hervarnir
Grænlands. Hefir Marshall látið
svo ummælt, að Grænland sé
mikilvægur þáttur í landvarna-
kerfi Bandaríkjanna og verði
því Bandaríkjamenn að fá
trygyt, að önnur stórveldi fái
iekki herstöðvar þar.
Flokksþing brezka verka-
Tnannaflokksins felldi í fyrra-
'dag með yfirgnæfandi atkvæða-
mun tillögur um vantraust á
utanríkismálastefnu stjórnar-
innar.
A fimmtudagskvöldið var kl.
7.30 s.d. kom sænska handknatt-
leiksliðið IFK Kristianstad
hingað og keppti sama kvöld kl.
9 við úrvalslið íslendinga.
Forseti Í.S.Í., Ben G. Waage
bauð Sviana velkomna og síðan
lék lúðrasveit þjóðsöngva ís-
lands og Svíþjóðar.
Yfirburðir Svíanna komu í
ljós þegar í leiksbyrjun. Staða
þeirra og hreyfingar á vellinum
voru mjög hnitmiðaðar og það
var sérstaklega athyglisvert, hve
vörnin var heil og sterk. íslend-
ingar voru hins vegar ákaflega
staðbundnir og í sókn þeirra
vor* áberandi eyður, einkum til
hliðar á vellinum, þegar sókn
þeirra nálgaðist mark Svíanna.
Fyrri hálfleik léku íslending-
ar á móti vindi, og Svíar skor-
urðu fyrsta mark sitt þegar, er
fjórar mínútur voru af leik, og
(Framhald á 4. síðu)
þVrtuktaroogar
Brifbtótfear
firik
Skwfcl
Krossinn hjá Stokksskeri sýnir staðinn, þar sem flugvélin fórst. Slysið
hefir að líkindum orsakast þannig, að flugvélin hefir verið komin inn á
Héðinsfjörð, þegar flugmennirnir hafa áttað sig og snúið við aftur, en af
einhverjum ástæðum farið ofnærri landi að vestanverðu. Flugvélin mun
hafa átt örstutta leið eftir til að sleppa framhjá fjallinu.
Hátíðahöld sjómannadagsins
Þau hefjast í dag með suiidkeppni «í* kapp-
róðri sjgómanna
Tíundi sjómannada gurinn er á morgun og verður hann hald-
inn hátífflegur af sjómönnum um allt land. Hér í bænum hefjast
hátíffahöldin meff kappróffri og sundkeppni sjómanna, sem fara
fram í dag, en affalhátíffahöldin verffa á morgun.
Líkin flutt til
Akureyrar
Vélskipið Egill, sem flutti lík
þeirra, er fórust með flugvélinni
lagffist aff bryggju á Akureyri kl.
10 í gærkvöldi. Um 4000 manns
hafffi safnazt saman á bryggj-
unni og í nærliggjandi götum.
Lúffrasveit lék sorgarlag, en síff-
an söng karlakórinn Geysir
„Hærra minn guff til þín.“ Aff
því loknu flutti séra Pétur Sig-
urgeirsson stutta ræðu og bæn.
Aff því loknu söng Geysir „Lýs
milda ljós.“
Líkin höfðu veriff lögff á börur
á skipsfjöl og breiddir íslenzkir
'fánar yfir þau.
EUefu vörubílar voru á
bryggjuiyii og voru börurnar
settar á þá ^ þeir óku síffan í
röff upp aff Akureyrarkirkju, en
þar voru líkin borin inn.
Öll athöfnin var mjög hátið-
leg.
Bifreiðaeign
íslendinga
Samkvæmt nýjum Hagtíðind-
um voru skráðar bifreiðar hér á
landi 7164 i árslok 1946. Þar af
voru 3479 fólksbifreiðar og 3685
vörubifreiðar. í Reykjavík einni
voru skráðar 2395 fólksbifreiðar
og 1615 vörubifreiðar.
Fólksbifreiðarnar skiptast
þannig eftir tegundunum: Ford
665, Austin 347, Dodge 312, Jeep
(Willy’s) 294, Chevrolet 278,
Plymouth 245, Chrysler 160, Jeep
(Ford) 137, Buick 122 og Stude-
baker 119. Af öðrum tegundum
Strax á morgun verða fánar
dregnir að hún á öllum skipum
á höfninni kl. 8. Klukkan 10.30
fer fram reipdráttur milli skips-
hafna á planinu sunnan við há-
skólann,- Allan daginn verða
merki dagsins og Sjómanna-
dagsblaðið selt á götunum,. og
rennur allur ágóðinn af sölunni
— sem aðrar tekjur sjómanna-
dagsins — til dvalarheimilis
aldraðra sjómanna.
Klukkan 12,45 safnast sjó-
menn saman til kappgöngu og
verður gengið kringum tjörnina
og staðnæmst við Austurvöll, en
þar fer fram minningarathöfn.
Hefst athöfnin með því að Guð-
mundur Jónsson syngur með
undirleik lúðrasveitar, en bisk-
upinn yfir íslandi minnist lát-
inna sjómanha. Að því búnu
verður lagður blómsveigur á
leiði óþekkta sjómannsins.
Af svölum Alþingishússins
flytur forsætisráðherrann, Stef-
án Jóhann Stefáusson, ávarp,
ennfremur fulltrúi útgerðar-
manna, Tryggvi Ófeigsson, og
Böðvar Steinþórsson, er talar af
hálfu sjómanna. Verður öllum
þessum liðum dagskrárinnar út-
varpað.
Dagskrá útvarpsins verður að
mestu leyti helguð sjómönnum.
Kl. 7.30 um kvöldið flytur séra
Jakob Jónsson ræðu i útvarpið
frá hófi sjómanna að Hótel
Borg. Um kvöldið verða skemmt
anir í flestum samkomuhúsum
bæjarins.
Líkin voru flutt til Akureyrar í gær
Þau sorgartíðindi urffu kunn um níuleytiff í gærmorgun, að
Dakotaflugvélin, sem saknaff var daginn áffur, hefffi rekizt á
fjall í Héðinsfirði og farizt meff allri áhöfn. Flugmenn á einni
af leitarflugvélum Flugfélags íslands höfffu þá komiff auga á
flakiff af vélinni og séff þau vegsummerki, aff enginn hefffi komizt
lífs af. Vöktu þessi tíðindi mikla hryggff, þegar þau bárust um
landiff. í Reykjavík og á Akureyri blöktu fánar í hálfa stöng allan
daginn og öllum skemmtisamkomum var aflýst.
voru bifreiðar innan við 100.
Vörubifreiðarnar skiptast
þannig eftir tegundunum: Ford
842, Chevi’olet 798, Jeep
(Willy’s) 360, Austin 232. Ford-
son 232, GMC 192, Dodge 154,
Studebaker 142, International
109. Af öðrum tegundum voru
bifreiðarnar innan við hundrað.
Flugvélin finnst.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær, var strax og óttazt
var um flugvélina hafin leit að
henni og hélt hún áfram á sjó
og landi langt fram á nótt.
Snemma í gærmorgun fóru þrjár
flugvélar Flugfélags íslands, —
tveir Katalínubátar og ein lítil
vél — í leitarleiðangur, og bar
hann þann árangur, að annar
Katalínubáturinn fann flakið af
flugvélinni nokkru eftir kl. 8.
Var það í gilskoru í fjalli utar-
iega í vestanverðum Héðinsfirði.
Mikil sprenging og eldur hafði
bersýnilega komið upp í flugvél-
inni, V-cgar hún rakst á fjallið,
og engar líkur virtust því til, að
nokkur þeirra, sem var í vélinni
hefði komizt lífs af.
Líkin nást.
Flugmönnunum, sem sáu
flakið, virtist það myndi verða
mjög örðugt að komast að því,
nerr*a helzt með því móti að
fara upp á fjallið og síga niður
í gilið, þar sem flakið lá. Klettar
ganga þarna í sjó fram og er
fjallið bæði bratt og hömrótt.
Bátum, sem voru á nálægum
stöðum, var þó gert viðvart, og
nokkru fyrir hádegi tókst vel-
bátnum Agli frá Ólafsfirði að
leggjast að klöpp þarna rétt hjá
og gátu skipverja,r síðan klifrað
upp að flakinu. Blasti við þeim
mjög Jhörmuleg sjón, er þangað
kom. Allt var brunnið af flug-
vélinni, sgm brunnið gat, og hún
hafði brenglazt mikið við
sprenginguna. Flest líkin lágu
á víð og dreif í kringum flakið,
sum allfjarri. Hafa þau senni-
lega henzt úr vélinni, er spreng-
ingin varð. Mörg þeirra höfðu
mikla áverka, en (jnnur voru
með minni. Minnstir áverkar
höfðu orðið á líkum barnanna.
í vélinni sjálfri voru nokkur
lík.
Virffuleg móttökuathöfn
á Akureyri.
Skipverjar af Agli og fleiri
skipum, sem komu á vettvang,
hófust strax handa um að flytja
líkin til skips. Voru þau slðan
flutt í línuveiðarann Atla frá
Akureyri, en hann hafði verið
fenginn til að flytja þau til Ak-
ureyrar. Um fjögurleytið í gær
var búið að ná öllum líkunum,
nema einu, en leitað verður að
því í dag. Atli var væntanlegur
til Akureyrar milli kl. 10—11 í
gærkvöldi og hafði verið undir-
búin virðuleg mótttaka. Séra
Mörg flugslys
Meiri flugslys urðu fyrra sól-
arhring en á jafnskömmum
tíma áður síðan stríðinu lauk.
Á La Guardiavellinum í New
York hrapaði flugvél, þegar hún
var að hefja sig upp, og fórust
þar 39 manns.
I Japan fórst amerísk her-
flugvél með 41 manns.
í Suður-Ameríku fórst banda-
rísk farþegaflugvél með um 40
manns.
í Hollandi rákust á tvær flug-
vélar og varð nokkurt mann-
tjón.
í Alaska fórst bandarísk
hernaðarfiugvél og varð nokk-
urt manntjón.
Alls munu hafa farizt hátt á
annað hundrað manns í flug-
slysum á þessum eina sólar-
hring.
Pétur Sigurgeirsson átti að
flytja ávarp, en karlakórinn
Geysir átti að syngja.
Orsök slyssins?
Eins og áður segir, fannst flak-
ið í gilskoru í fjallinu í tæplega
100 m. hæð, en hæð fjallsins
mun vera þarna um 250 m.
Flakið lá þannig, að líklegt
þykir, að flugvélin hafi tekið
ranga stefnu, þegar hún var
komin fram hjá Siglunesi og
flogið inn Héðinsfjörð í stað
þess að halda inn Eyjafjörð, en
flugmaðurinn hafi síðan áttað
sig og ætlað að fljúga út úr
Ifirðinum aftur, en þá flogið
of nærri landi að vestanverðu.
Þetta verður þó ekki fullyrt
á þessu stigi málsins, en nánari
athugun mun verða gerð á þessu
síðar. Mun engin athugun hafa
verið gerð á flakinu í gær, held-
ur fyrst og fremst hugsað um
að bjarga likunum meðan sjór
var svo kyrr, að bátar gátu lagzt
þarna við land.
Um þá, sem fórust.
í blaðinu í gær birtist skrá
yfir þá, sem voru með flugvél-
inni, en ekki var tfmi til þess þá
’ að afla sér nánari upplýsinga
um þá, nema Garðar Þorsteins-
son alþingismann.
j Meðal þeirra, sem fórust með
flugvélinni, var Tryggvi Jó-
hannsson (Kristjánssonar bygg-
ingameistara) vélaverkfræðing-
(Framhald á 4. síðu)
Mynd þessi var tekin af Dakotaflugvélinni, sem fórst í fyrradag, þegar
hún settist í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvöllinn í vetur.