Tíminn - 14.08.1947, Qupperneq 2

Tíminn - 14.08.1947, Qupperneq 2
TÓIiW. fimmtndagiim 14. ágiist 1947 145. blað 2 Fimmtudagur 14. ágúst Tvær leiðir Reynslan er nú sem óðast að skera úr því, hverjir spáðu rétt- ast, þegar ríkisstjórn Ólafs Thors var mynduð hau$tið 1944. Framsóknarmenn héldu því fram þá, að ekki mætti drag- ast deginum lengur að hefja tafarlaust viðnám gegn dýrtíð- inni og koma í veg fyrir að hún ykist. Þessa skoðun sína stað- festu þeir í verki með því að mæla með eftirgjöf bænda á sexmannanefndarverðinu í trausti þess, að aðrar stéttir gerðu hið sama og mynduð yrði ríkisstjórn á þeim grundvelli. Framsóknarmenn sögðu, að aukin verðbólga myndi fyrr en varði stöðva framleiðsluna og stórauka gjaldeyriseyðsluna. Sjálfstæðismenn virtust um skeið á sömu skoðun, en sneru skyndilega við blaðinu, þegar formaður flokksins taldi sig geta náð meiri vegtyllum á ann- an hátt. Ríkisstjórn Sjálfstæðis- manna og kommúnista var síð- an mynduð á þeim grundvelli, að ekki þyrfti að óttast dýrtíð- ina og það væri ekki annað en afturhald og hrunstefna að vera með kvíðboga í sambandi við hana. Það væri líka hægt að gera framleiðsluna samkeppn- ishæfa með aukinni tækni, ný- sköpuninni svokölluðu, þótt dýr- tíð væri hér miklu hærri en annars staðar. Reynslan hefir nú ekki að- eins staðfest skoðanir Fram- sóknarmanna, heldur er orðið miklu ver ástatt en þeir héldu nokkru sinni fram. í nóvember- byrjun 1944 nam gjaldeyrisinn- eignin nær 600 milj. kr., en nú er hún öll gengin til þurrðar og skuldasöfnun byrjuð erlendjis, þrátt fyrir óvenjulega hagstæð- an útflutning á þessum tíma. Dýrtíðarvísitalan hefir hækkað um 40 stig, þrátt fyrir stór- auknar niðurgreiðslur og miklar hækkanir á grunnkaupi. Sjávarútvegurinn er því raun- verulega rekinn með halla, þótt enn sé toppverð á afurðun- um. Afkoma „nýsköpunartog- aranna“ svokölluðu mun sízt verða betri en annarra veiði- skipa í þeim efnum, enda þótt þeir hafi yfirleitt verið heppnir með aflasölur. Ríkisútgjöldin eru komin yfir 200 m,ilj. kr. og hafa bæði skattar, tollar og út- svör stórhækkað á þessum tíma. Bankar og lánsstofnanir eru tæmdar og víðs vegar um allt landið eru nauðsynlegustu framkvæmdir stöðvaðar vegna fjárskorts. Framundan er ekki aðeins stöðvun atvinnuveganna, heldur ríkisgjaldþrot, þegar tekjurnar af innflutningnum og atvinnurekstrinum dragast saman. Eftir þá óstjórn, sem hefir ríkt í landinu seinustu árin, hefir þjóðin ekki nema um tvær leiðir að velja. Annað er að sofa and- varaleysissvefninum áfram og reyna að fleyta sér með söfnun gjaldeyrisskulda meðan það er hægt. Sú leið getur ekki endað með öðru en fjárhagslegu ósjálfstæði og erlendri yfirdrottn un. Þrátt fyrir það dreymir vissa menn um þessa leið og krafa komið fram um gjaldeyrislán- töku í heildsalamálgagninu Vísi. Hin leiðin er að reyna að rétta við fjárhaginn með sparnaði, sjálfsafneitun og dugnaði, eins og Bretar gera nú. Þjóðin verður ekki aðeins að spara við sig allan óþarfa, heldur draga úr ýmsri VETTVHNGUR flESKUNNRR MÁLGAGN SAMBAMDS UAGKA FRAMSÓKKARMANNA. RITSTJORI: JO\ IIJALTASOÁ. Málefnaþjófnaður og sögufals Það er háttur þeirra, sem lítið hafa til málanna að leggja að hlaupa upp til handa og fóta og eigna sér ákveðin málefni, ef sýnt er að þau hljóti almennar vinsældir. Það er eiginleiki drauganna á Fróðá, sem Einar Ben. segir um: „Að verma sitt hræ við annarra eld og eigna sér bráð, sem af hinum var felld.“ Ungir Sjálfstæðismenn hafa öðru hvoru verið að státa af forustu sinni fyrir löggjöfinni um félagsheimilin. En þar sem samvizkan er miðlungi góð, með málflutning þennan er fjar- stæða þessi endurtekin á fárra mánaða fresti í þeirri veiku von, að með nógu mörgum end- urtekningum fari einhverjir að trúa því, að Sjálfstæðisflokkur- inn geti haft forustu um merki- legt menningarmál. Ja, heyr á endemi! Skyldi ekki næsta sporið verða, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft forustu um setningu íþróttalaganna, byggingu sund- hallarinnar í Reykjavík, Há- skólans, héraðsskólanna, um stofnun menntaskóla á Akur- eyri, gagnfræðaskóla í kaup- stöðum, íþróttakennaraskólans, húsmæðrakennaraskólans, garð- yrkjuskólans á Reykjum svo nefnd séu nokkur menningar- mál, sem Framsóknarflokkur- inn knúði fram, oft gegn harðri andstöðu íhaldsins. Það eru bjálfalegir tilburðir hjá ungum Sjálfstæðismönnum að eigna sér forustu fyrir löggjöfinni um félagsheimilin eða öðrum menn- ingarmálum, vitandi það að eðlilegri eyðslu, svo að hún hafi handbæran gjaldeyrir til að afla sér nýrra og fullkomnari at- vinnutækja til sjós og sveita. Ríkisútgjöldin verða að lækka stórkostlega og framleiðslu- kostnaðurinn verður að lækka svo mikið, að atvinnuvegirnir geti borið sig. Hvers konar óþörf milliliðastarfsemi verður að hverfa úr sögunni. Trúna á gjaldmiðilinn verður að endur- lífga og glæða sparifjársöfnun- ina, svo að fjármagn verði handbært til nauðsynlegra framkvæmda. Aðeins með slík- um allsherjar viðreisnarráðstöf- unum verður hægt að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar og vel- megun hennar í framtíðinni. Það ætti að gera íslendingum valið auðveldara, að allar þær bjóðir, sem hugsa um framtíð sína, hafa valið síðari leiðina. Það er ekki aðeins hægt að benda á fordæmi Breta, heldur engu síður frændþjóðanna á Norðurlöndum, einkum þó Norð- manna. íslendingar mega ekki halda að allt sé fengið með lýð- veldisnafninu, eins og virzt hefir um skeið, heldur fylgja því auknar skyldur. Að óreyndu verður ekki öðru trúað en að bjóðij.i bregðist vel og vasklega við vandanum, þegar hún sér þær tvær leiðir, sem hún hefir nú um að velja. Enn til þess að svo geti orðið, þurfa líka for- ustumenn hennar að vera vel á varðbergi, gera henni ljóst hvernig komið er, og vinna að því, að hún velji rétta veginn. flokkurinn hefir aldrei haft slíka forustu né einu sinni verið ætlast ýsl þess af honum. Það er fullkominn málefna- þjófnaður og fölsun staðreynda að halda því fram, að ungir Sjálfstæðismenn hafi haft for- ustu fyrir setningu laganna um félagsheimilin, eins og nú skal sýnt fram á með nokkrum díémum. Ungir Sjálfstæðismenn geta svo lifað sælir í sinni ímynduðu forustu, en vegna þeirra, sem vilja hafa það sem satt er og rétt, skal þetta mál rakið nokkuð, af marg gefnu tilefni. 1. Þáttur íþróttanefndar ríkisins. Eftir að íþróttanefnd ríkisins hafði starfað í nokkur ár kom í Ijós, að þörf var á styrk til bygginga íþrótta- og samkomu- húsa. Vegna aðkallandi verk- efna, einkum sundlaugabygg- inga, gat íþróttasjóður ekki sinnt samkomuhúsunum, nema að sára litlu leyti og miðaði þá aðeins við íþróttaaðstöðuna, sem húsin veittu. íþróttanefnd- inni var samt sem áður ljóst, að samkomuhúsin voru sú undir- staða félagslífsins, sem verð- skuldaði fyllilega opinbera að- stoð. Hún átti því nokkrar um- ræður um aukinn stuðning ríkisins við samkomuhýsbygg- ingar, er hún nefndi félags- heimili. Um þessi mál skrifaði ég m. a. all ítarlega grein í Tím- ann 19. júni 1945. 2. Þáttur ungrnennafélaganna. Ungmennafélögin tóku þetta mál tveim höndum, sem eðlilegt var, og birti tímarit þeirra, Skinfaxi, nokkrar grfeinar um málið árið 1945, eftir áhuga- sama ungmennafélaga. Þá skrif- aði Þorsteinn Einarsson íþrótta- fulltrúi gagnmerka grein um félagsheimili í 2. hefti Skinfaxa 1945. Var þar samandreginn allur helzti rökstuðningur fyrir málinu og vitnað í löggjöf ná- grannaþjóðanna og birtar myndir af félagsheimilum þeirra. Var þetta hefti Skinfaxa sent öllum alþingismönnum með tilmælum um, að þeir tækju málið upp. Var íþróttafulltrú, óþreytandi að vinna því fylgi, hvar sem tækifæri gafst. 3. Þáttur Framsóknarflokksins. Á flokksþingi ^ Framsóknar- manna 17. apríl 1944 er gerð eft- irfarandi samþykkt: „Flokksþingið telur að efla beri skilyrði til heilbrigðs fé- lagslífs æskulýðsins og sjá hon- um fyrir bættum húsakosti í því skyni, bæði í sveitum og kaup- stöðum, meðal annars með byggingu æskulýðshallar í Reykjavík.“ Málið þurfti vitanlega allmik- inn undirbúning. Þingflokkur Framsóknarmanna samþykkti á fundi sínum 25. febr. 1946 að flytja málið í þinginu og fól Páli Þorsteinssyni alþm. að semja frumvarp til laga um fé- lagsheimili, sem hann svo flutti í neðri deild ásamt Bjarna Ás- geirssyni núverandi atvinnu- málaráðherra, þann 8. marz 1946, sem viðauka við frumv. til laga um æskulýðshöll í Reykja- vík, en það mál hafði Umf. Reykjavíkur vakið upp 1943. Með þessu frumv. var lagður grundvöllur að málinu í þinginu og endanleg afgreiðsla þess að verulegu leyti byggð á því. í þetta sinn dagaði frv. uppi, en það vakti með sér almenna á- hugaöldu. Áskoranir bárust víða að, einkum frá ungmennafélög- um og samböndum þeirra, um að samþykkja frumv. Engar undirtektir fékk málið hjá Sjálf- stæðisflokknum á þingi né í PEARL S. BUCK: í skugga kynþáttahatursins Niðurlag. Fram að þessu hafði ég haft mikla ánægju af að sitja þarna. Ég hafði verið að hugsa með sjálfri mér. „Hér er gömul kyn- blendingsætt, sem virðist njóta sín til fulls, þrátt fyrir lit sinn. Þau voru augsýnilega vel efnuð, hámenntuð og hamingjusöm, Þetta var ólíkt öllu, sem ég hafði áður kynnzt. Ég hafiji aldrei fyrr hitt amerískan kyn- blending, sem ekki bar þennan nagflndi sársáuka óréttlætisins, sem þeim er sýnt. Þessi fjöl- skylda — hugsaði ég með ánægju — sýnir, að það er hægt að vera kynblendingur í Amer- íku pg vera ánægður með allt og alla. „Hefir maður yðar ekki jafnt hvíta og svarta sjúklinga,“ spurði ég. „Ó jú,“ svaraði þessi fagra kona. „Hann fer til hvers og eins, sem leitar hans. „Og þér,“ spurði ég, „eigið þér ekki lika hvíta vini?“ „Nei,“ svaraði hún lágt „ég á enga.“ „En dóttir yðar?“ hélt ég áfram, „hún segir mér, að hún gangi í skóla með hvítum stúlk- um.“ „Það gerði ég líka, svaraði móðirin, „en að loknu skóla- námi sé ég ekki meira af þeim.“ „En hvers vegna?“‘ spurði ég. „Mann langar lítið til að komíi þar, sem vafi er á um við- tökurnar," svaraði hún. Skugginn yfir svip hennar var nú mjög greinilegur, og ég ákvað að reyna að finna orsakir hans, „Vjð skulum tala af fullri hreinskjlni um þetta kynþátta- vandamál,“ sagði ég„ „Verðið þér fyrir óþægindum vegna þjóðernisins hér í Phila- delphiu?" „Ó nei,“ flýtti hún sér að svara. „Það eru mörg ágæt veit- ingahús, sem okkur er leyft að koma á og við gætum þess að fara ekki á aðra staði. Við finn- um fljótt hvar okkur er ætlað að vera og getum þá sneitt hjá — smán.“ „En leikhúsin?" „Þau beztu gera engan mannamun,“ svaraði hún, „og við getum hlustað á góða hljóm- blöðum flokksins fyr en full- trúaráð S. U. S. samþ. seint í maí 1946, að nauðsynlegt sé, úð hið opinbera styrki félög og félagasamtök æskunnar í sveit- um landsins til að koma sér upp félagsheimilum til afnota fyrir starfsemi sína.“ Þessi skörulega og frumlega! tillaga heitir svo forusta á máli S. U. S„ enda segja þeir, að við hana hafi „skriður komizt á málið.“ Ég held þeir ættu held- ur að tileinka sér hógværð mús- arinnar og segja: „Lítið munaði um þetta.“ Þessi tillaga var ekkert annað en dauft bergmál af því, sem búið var að segja og skrifa um þetta mál og hafði ekki hin minnstu áhrif á gang þess. Það hafði alltaf verið gert ráð fyrir því, að eitthvað af skemmtanaskattinum gengi til leikhússbygginga úti á landi, þegar þjóðleikhúsið yrði full- byggt, og kom það m. a. fram í umræðum á Alþingi, er lögin um skemmtanaskattinn voru sett. Hins vegar lá ekkert fyrir um það, hvenær það yrði, fyr en komið var fram á þetta ár. Töldu flestir, sem börðust fyrir félagsheimilunum, að ekki mætti bíða þar til þjóðleikhús- inu væri lokið, enda munaði Al- þingi ekki um að klípa smá- upphæð af 200 millj. kr. fjár- lögum til þeirra mála. Páll Þorsteinsson og Bjarni Ásgeirsson fluttu á ný frumvarp sitt um félagsheimili 11. nóv. 1946, nokkuð aukið og breytt frá fyrra þingi. Fáum dögum áður eða 31. okt. báru þeir Sig. Bj. og Ing. Jónsson fram frumv. til laga um breytingu á skemmt- anaskattinum, þ. e. að verulegur hluti hans gengi til samkomu- hússbygginga. Þá var ekki vitað, hvort þörfum þjóðleikhússins væri fullnæg't að sinni. Páll Þorsteinsson, sem mest allra manna hafði barizt fyrir málinu i þinginu, reyndi að ná samvinnu um þessi frumv., ef auðið yrði að klófesta hluta af skemmtanaskattinum. En þungt var undir fæti. Brynjólfur Bjarnason, 'þáverandi mennta- málaráðherra, hafði starfandi nefnd, til þess að gera tillögur um rekstur þjóðleikhússins. Þeg- ar hún loksins skilaði áliti, kom í ljós, að skemmtanaskatturinn hrakk ekki fyrir rekstrarhalla þess. Það var því' augljóst, að sæti stjórn' Ólafs Thórs áfram, var langþráð hugmynd um breyt- ingu á meðferð skemmtana- skattsins alveg út í bláinn, því þingmenn Sjálfstæðisflokksins urðu að sætta sig við það sem öðruvísi var frá þeim kommún- istaráðherrunum án þess að mögla. Vitað var, að Brynjólf- ur gerði tillögur nefndarinnar að sínum og þar með hefði frumv. Sig. Bj. og Ing. J. vérið afgreitt. 4. Þáttur Eysteins Jónssonar. Þangað til núverandi ríkis- stjórn var mynduð gerðist ekk- ert á Alþingi. Strax eftir að Ey- steinn Jónsson varð mennta- málaráðherra tók hann málið upp. Lét hann gera áætlun um það, hvenær Þjóðleikhúsið gæti orðið af skemmtanaskattinum til byggingarinnar og hversu mikið þyrfti að ætla rekstri þess í framtiðinni, eins og hann gæti talist eðlilegur. Að því búnu lét hann semja frumv. til laga um breytingu á skemmtanaskatt- inum, er miðaðist við ársbyrj- un 1948 og var skemmtana- skatturinn felldur inn í frumv. P. Þ. og Bj. Á. um félagsheimili og það gert að stjórnarfrumv. Með þvi var málinu tryggður .skjótastur íramgangur. Örugg forusta Eysteins Jónssonar færði málið í höfn. Án hennar hefði frumv. dagað uppi í annað sinn. Að lokum hefði það vitanlega sigrað, eins og flest önnur góð mál. Hér að framan hefir stað- reyndum málsins verið lýst. (Framliald á 4. siðu) list. Þeir leyfa okkur að koma á söngleikahúsin.“ „Þeir?“ spurði ég. „Hvíta fólkið,“ svaraði hún hóglátlega. „En þér eigið þó vini,“ spurði ég. „Ójá,“ svaraði hún og það birti yfir svip hennar. „Ég á mjög góða vini meðal míns fólks, og dætur þess eru líka vinir barna minna. Við eigum okkar litla vinahóp, sem við skemmtum okkur með.“ Samtalið hélt áfram í klukku- tíma enn. Ég kom með spurn- ingar og hún svaraði með þess- ari hógværu hreinskílni, sem mér fannst svo aðlaðandi. Öðru hverju sagði hin blakka dóttir hennar nokkur orð til þátttöku í samræðunum. Á meðan við sátum þarna og töluðum saman leitaði hugur minn liðinna atburða. Hvar hafði ég séð þessar aðstæður áður — glæsilegar fagrar konur, gáfuleg andþt, prúgmannlega íramkomu og fágað mál, áhuga á hljómlist og leiklist, en þó allt bundið í viðjar dulinnar hræðslu. Ég leitaði í minning- um liðinnar ævi unz ég fann það, sem þessar tvær konur minntu mig á. Þær minntu mig á útlaga, ég hefi kynnzt útlög- um frá mörgum löndum. Þær minntu mig á rússneska aðals- menn i Shanghai, sem komm- únistar höfðu gert útjæga. Eins og ég sat hér nú meðal þessara kvenna, hafði ég oft setið áður preðal rússneskra kvenna í Shanghai. Setið með þeim í lít- illi stofu þar, sem þær reyndu að gleyma raunveruleikanum með því að lifa sig inn í sinn eigiú litla, lokaða heim. Já, ég minr/úst útlaga frá Frakklandi,. — fyrstu útlaganna frá Þýzka- landi, — ættgóðra og mennt- i aðra manna, sem í sjálfsvörn reyndu að gleyma því liðna,. lifðu saman í smáhópum í sín- um heimi út af fyrir sig. — Og í New York — fyrir aðeins nokkrum dögum, mættu mér enn útlagar, — kínverskar kon- ur í New York, — konur frá Hong Kong og Shanghai, frá Hangchow og Peking, sem koma til Ameríku svo hræðilega fram- andi í öllum sínum veikleika og fegurð, reyna að halda hópinn og byggja sinn litla heim mitt í hinni ægilegu tilveru, sem um- lykur þær. Já, á þetta minntu þær mig, þessi ameríska móðir og dóttir. „Finnst yður þér vera Am- eríkani?“ spurði ég allt t einu. Þær urðu forviða við spurning- una. „Jú, vissulega,“ svaraði móð- irin. Það var það fyrsta, sem ég heyrði hana segja með nokk-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.