Tíminn - 30.09.1947, Blaðsíða 1
nrrmsóm:
ÞÖRARINN ÞÓRARINBSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Slmar 33S3 02 «S73
PRENTSMEÐJAH EDDA hj.
r:
EDDUHÚSI. Lindargðtu W A |
tílCiíir 23S3 08 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA \
OG AtfGLÝSINGASKRIPSTOPA: \
EDDUHÚ8I, IJndargðtu BA \
Steil tm l
31. árg.
Reykjavík, þriðjudagmit 30. sept. 1947
177. blað
Konur krefjast þjóðaratkvæðis
um aðflutningsbann á áfengi
Átelja skort á uauðsynlegum fatnaði og' toús-
áhöldum, þegar nóg er til af krystal og
postúlúisvarningi
Bandalag kvenna í Reykjavík og Áfengisvarnarnefnd kven-
félaga í Reykjavík og Hafnarfirði boðuðu til almenns kvenna-
fundar í Iðnó síðastliðið fimmtudagskvöld, og var hann vel sóttur
þrátt fyrir óveður. Undirbúningsnefnd beggja aðila lagði fram
eftirfarandi tillögur, sem allar voru samþykktar í einu hljóði.
Um nýja fœðingadeild Lands-
spítalans.
„Vegna undangenginna blaða
skrifa um hina nýju fæðinga-
deild Landspítalans,' og ítrek-
aðra yfirlýsinga landlæknis um
það, að deildin muni ekki geta
tekið til starfa fyrst um sinn,
lýsir fundurinn yfir megnri ó-
ánægju yfir hinum óskiljanlega
seinagangi þessa máls. Jafn-
framt skorar fundurinn á heil-
brigðisstjórn landsins að sjá um
að deildin taki til starfa sem
allra fyrst, enda þótt eitthvað
kunni ef til vill að vanta af
hinum fullkomnu tækjum, sem
ætluð hafa verið til hennar.
Er hvort tveggja jafn óverj-
andi, að láta fullgert húsið
standa ónotað og að gera ekki
allt, sem unnt er, til þess að
að leysa vanda þeirra kvenna,
sem árlega verður að neita um
inntöku á núverandi fæðingar-
deild Landsspítalans.
Um framkvœmd heilbrigðis-
samþykktar Reykjavíkur.
, Fundurinn lætur í ljós undr-
un og ónægju yfir því, að enn
skuli engin merki sjást þeirra
miklu umbóta, sem hefjast áttu
á síðast liðnu ári á hreinlætis-
ERLENDAR FRÉTTIR
Creech Jones nýlendumála-
ráðherra Breta hefir lýst því yf-
ir á þingi sEpneinuðu þjóðanna,
að Bretar myndu framfylgja
sérhverri laujfen Palestínumál-
anna, sem Gyðingar og Arabar
gætu sætt sig við, en að öðrum
kosti myjpdu þeir afsala sér um-
boðss.tjórninni og flytja her
sinn frá Palestínu. Churchill
hefir lýst sig fylgjandi þessari
stefnu brezku stjórnarinnar í
Palestínumálunum.
Spellvirkum heldur áfram í
Palestínu. Nýlega var lögreglu-
stoðin í einni borginni sprengd
upp og fórust 8 menn, en margir
særðust hættulega. Þá var
banjti nýlega rændur, fjórir
varðmenn hans drepnir og 40
þús. sterl.pd. stolið.
f iranska þinginu er nú hörð
mótstaða gegn frv., sem stjórnin
hefir lagt fram um sameiginlega
olíuvinnslu Rússa og Iranbúa í
norðurhéruðum Iran. Er jafnvel
búizt við því, að frv. verði fellt.
í Búlgaríu hafa nýlega verið
hafin mélaferli gegp, 50 her-
möni/um, sem eru ákærðir fyrir
óleyfileg^ pcfjtíska starfsemi.
f Albs?<?íu hefir nýlgga verið
kveðjinn upp dómur í máli fjölda
manna, sem liafa verið ákærð-
ir fyrir pólitísk spellvirki.
Stfórnu: Frakklands, Hollands
og Belgíu hafa mótmælt þeim
fyrir/itlusiu{n Breta og Banda-
ríkjaynanna að fela Þjóðverjum
..stjórn Ruhrhéraðanna.
Nýlega er lokið aukakosningu
1 Bretlandi og hélt verkamanna-
flokkurinn sætinu. Síðan stjórn
Attlee kom til valda hafa farið
fram 20 aukakosningar í Bret-
landi og hefir stjórnin engu
þiingsæti tapað.
og heilbrigðismálum bæjarins.
I Fundurinn skorar á Bæjar-
I stjórn Reykjavíkur, að ganga nú
i þegár frá heilbrigðissamþykkt
ibæjarins og hlutast til um, að
1 hinn læknisfróði heilbrigðis-
fulltrúi, sem bæjarstjórnin
skipaði fyrir 13 mánuðum, geti
jþegar tekið til starfa“.
Um skömmtun dfengis
og tóbaks.
„Fundurinn mótmælir því
harðlega, að haldið verði áfram
hömlulausri sölu áfengis og
jtóbaks, á meðan nauðsynjavör-
ur eru skammtaðar naumt.
Þó að vitað sé að vísu, að
minni erlendur gjaldeyrir fer til
1 áfengiskaupa en ætla mætti af
hinu háa útsöluverði, þá er upp-
hæðin ósæmilega há, þegar þess
er gætt, að henni er varið til
þess að kaupa þjóðinni van-
sæmd og einstaklingum henn-
ar vanmátt til að halda velli í
þeirri baráttu fyrir afkomu og
frelsi, sem nú stendu fyrir dyr-
um.
Fundurinn telur óhætt að
fullyrða, að yfirgnæfandi meiri
hluti íslenzkra kvenna, en það
er meiri hluti kjósenda lands-
ins, stendur fast með þessari
tillögu."
i
Um heimilin og innflutninginn.
„Þrátt fyrir endurteknar á-
skoranir undanfarin ár frá kven
félögum og kvenfélagasambönd-
um landsins, um að fá fluttar
inn heimilisvélar, til þess að
létta störf á heimilunum, hafa
þeir, sem ráðstafað hafa gjald-
eyrinum þessi ár, lítílð sinnt
þessu, þess vegna lýsir fundur-
inn óánægju sinni yfir ráðstöf-
unum gjaldeyris, að því er nauð-
synjum heimilanna við kemur í
þessu efni.
Auk þess er nú svo komið, að
um langan tíma hefir ekki feng-
ist efni í fatnað á ungbörn né
álmennan vinnufátnað handa
konum, og sængurfatnað. Enn-
fremur skortir tilfinnanlega
diska og bollapör til almennrar
notkunar, — þótt ekki hafi
skort dýran krystal og postu-
línsvarnig.
Konur dýralæknar
I Egyptalandi eru konur dýralæknar. Hér sjást tvær þeirra sprauta blóð-
vatni í sýkta kú.
j Eins og málum er nú komið,
fer fundurinn ekki fram á, að
annað sé flutt til landsins en
það, sem brýnust þörf er á, svo
sem efni í föt á ungbörn, vinnu-
fatnað, rúmfatnað og nauðsyn-
legustu búsáhöld,
Skorar fundurinn á fjárhags-
ráð að afla þessa varnings næst
á eftir nauðsynlegustu matvör-
um og því, er nauðsynlega þarf
til útgerðar.
Ennfremur lýsir fundurinn
sig algerlega mótfallinn erlend-
um lántökum og vill styðja alla
skynsamlega viðleitni til sparn-
aðar, svo að landið geti haldið
áfram að vera efnalega sjálf-
stætt“.
Loks var samþykkt tillaga frá
Karolínu Zimsen, Katrínu Páls
dóttur og Rósu Vigfúsdóttur
um áskorun til Alþingis að láta
fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðfluttningsbann á-
fengis. »
Að Bandalagi kvenna standa
16 fjölmenn félög, og að Áfeng-
isvarnarnefndinni 26 félög í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Bát hvolfir og þrír menn drukkna
í Úlafsvík
Slysið skeðl um 600 metra frá landi
í gúðu veðrl
Það slys vildi til í Ólafsvík síðastliðinn laugardag, að bát, er
á voru fimm menn, hvolfdi um 600 metra undan landi. Þrír
mannanna drukknuðu, en tveimur var bjargað,
Á 6. þúsund börn í barnaskólum
Reykjavíkur í vetur
Húsrúm allra barnaskólanna er of lítlð
Þessa dagana eru barnaskólarnir hér í bænum og ýmsir fram-
haldsskólar að taka til starfa. Yngstu deildir barnaskólanna
byrjuðu þó yfirleitt 1. september. Nýi barnaskólinn á Melunum
hefir nú 17 stofur til umráða, en að öðru leyti mun það sammerkt
með öllum skólunum, að húsrúm þeirra allra er orðið of lítið,
þrátt fyrir að það hefir verið aukið og endurbætt mjög mikið
á síðustu árum.
A laugardaginn var báturinn
„Framtíðin“ við kolauppskipun
í Ólafsvík. Báturinn flutti kolin
á þilfari ,en sama og enginn
flutningur var í lest. Veður var
gott, en nokkur undiralda. Um
kl. 5,30 var báturinn á leið til
lands með kolafarm. Reið þá
alda undir bátinn og hvolfdi
honum þegar. Annar bátur Vb.
Hrönn — formaður Guðmundur
Jensson — var einnig við þessa
flutninga. Fór hann strax á
slysstaðinn og tókst að bjarga
Gunnari Randverssyni háseta,
16 ára gömlum, og Sigurdóri
Eggertssyni 10 ára, en Gunnar
hélt sér uppi á sundi, en Sigur-
dór náði í rekald úr bátnum og
hélt sér uppi á því, hann hafði
fengið að fara eina ferð með
bátnum út að skipinu.
Þeir, er þarna létu lífið, voru:
Lárus Sveinsson formaður á
bátnum, 27 ára gamall, lætur
eftir sig konu og tvö börn, Sig-
urður Sveinsson, (bóðir Lárus-
ar), vélamaður, 24 ára gamall,
ókvæntur og barnlaus. Þriðji
maðurinn var Magnús Jóhann-
esson, 26 ára, háseti frá Ólafs-
vík, ókvæntur, en átti aldraðan
föður.
í fyrradag fannst lík Lárusar
Sveinssonar, formanns á bátn-
um. Kom í ljós við rannsókn á
því, að hann hafði látizt af
áverka, en ekkki drukknað. —
Eru miklar líkur taldar benda
til, að hinir tveir, er með hon-
um fórust, hafi einnig látist
með svipuðum hætti. Hefir ver-
ið leitað að líkum þeirra'án ár-
angurs. Ráðstafanir hafa verið
gerðar t:l þess að fá kafara héð-
an úr Reykjavík til að leita að
líkunum, sem enn eru ófundin.
Bátinn hefir nú rekið að landi
og er hægt að vaða út að hon-
um á lágstígvélum. Sökk hann
aldrei eftir að honum hvoldi,
heldur maraði hann í hálfu
kafi.
Báturinn „Framtíðin“ var um
16 brúttó-smálestir, eign þeirra
Lárusar heitins Sveinssonar og
Víglundar Jónssonar, Ólafsvík.
Var Lárus formaður á bátnum
eins og fyrr segir. Hann var af-
burða duglegur maður og afla-
sæll formaður. Hinir tveir, er
fórust með honum, voru mjög
vaskir menn, enda á bezta aldri.
Gjaldeyrismál ísl. námsmanna
Ályktim íslenzkra stúdenta í Kaupmaniialiöfn
Á fundi Félags íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn, sem
haldinn var mánudaginn 22. sept. 1947 í húsi danska stúdenta-
félagsins, var rætt um gjaldeyrisveitingar til íslenzkra náms-
manna eriendis. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun.
„Með tilvísun til tilkynningar
háttvirtrar Viðskiptanefndar
dags 10. sept. 1947, þar sem m. a.
er tekið fram, „að allar greiðsl-
ur til þeirra, er við nám dveljast
erlendis, verði minnkaðar frá
því er áður tíðkaðist" vill Fé-
lag íslenzkra stúdenda í Kaup-
mannahöfn taka fram eftir-
farandi:
1) að það álítur algerlega ó-
viðunandi, að gjaldeyrisyfir-
færslur til námsmanna erlendis
verði ákveðnar og fastbundnar
við hámark án undangenginn-
ar rannsóknar á því, hvað telja
má sanngjarnan framfærslu-
kostnað í hverju landi.
2) að það telur brýna nauðsyn
á því, að þeim mönnum, sem er-
lendis dveljast við nám, verði
þegar í stað veitt trygging fyrir
ákveðinni lágmarksyfirfærslu á
gjaldeyri hvern mánuð, svo að
þeir viti, á hvaða fjármagn þeir
geta treyst og hagað sér sam-
kvæmt því (sbr. fyrsta lið).
3) að með tilvísun til þeirrar
greinar i áðurnefndri tilkynn-
ingu, þar sem segir, „að um-
sóknir til að hefja nám erlendis
verði eigi teknar til greina,
nema alveg sérstakar ástæður
séu fyrir hendi“ telur félagið,
að eðlilegast sé. að Menntamála-
ráð eða annar aðili, sem heyr-
ir undir menntamálaráðuneytið,
fjalli um slíkar umsóknir í sam-
ráði við Viðskiptanefnd.
Að lokum vill félagið leggja
ríka áherzlu á það, að þessum
tilmælum þess verði sinnt eins
fljótt og auðið er, þar sem meg-
inþorri íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn er í algerri ó-
vissu um hag sinn á komandi
vetri.“
Tíminn hefir viðað að sér
upplýsingum um nemenda-
fjölda og starfshætti skólanna
á komandi vetri. Er skýrt frá
þeim málum hér á eftir.
Austurhœjarskólinn.
í Austurbæjarskólanum verða
um 1550 nemendur á komandi
vetri. Eins og kunnugt er, er sá
skóli stærsti barnaskólinn á
landinu og þótt víðar væri leit-
að. í öllum barnaskólunum
hafa deildir fyrir yngstu nem-
endurna starfað frá 1. septem-
ber, en aðal skólahaldið hefst
1. október. Kennarar við skól-
ar.n munu verða um 50 í vetur.
Auk þess, sem barnafræðsla
fer fram í húsnæði skólans,
verða þar til húsa tvær deildir
úr Ingimalrsskólanum og þrír
flokkar úr námsflokkum Reyja-
víkur. Skólahaldið sjálft verður
með sama sniði og að undan-
förnu.
Verið er að setja nýtt þak á
skólahúsið. Hingað til hefir
flatt steinþak verið á húsinu,
en það hefir reynzt illa. M. a.
lak það svo mikið, að óttast var
um það, að það myndi geta
valdið skemmdum á húsinu. —
í stað steinþaksins verður sett
á húsið ris, en ysta lagið á þak-
inu verður úr eir. Önnur mikil-
væg endurbót hefir verið gerð á
húsinu, en hún er sú, að plötur
er einangra hljóð, hafa verið
settar innan á alla veggi skóla-
stofannna. Er þetta talin mjög
mikilvæg umbót.
Miðbæjarskólinn.
í þeim skóla verða um 1000
börn í vetur, en kennarar 34 að
forfallakennurum meðtöldum.
Eins og í Austurbæjarskólanum
fá Námsflokkar Reykjavíkur 4
stofur til umráða. Undirbúnings-
deild, er að undanförnu hefir
starfað við skólann, verður nú
lögð niður. Þá hefir verið rætt
um það í sambandi við rekstur
skólans, að 12 ára börn ljúki nú
burtfararprófi samkvæmt nýju
f ræðslulöggj öfinni.
Miðbæjarskólinn hefir nú
starfað um 50 ára skeið í hús-
'inu v\ö Fríki'íkj uvegiinn. Var
húsið fyrst tekið í notkun 1898.
Þrátt fyrir að húsið er svo gam-
alt, er það samt í bezta ástandi.
Hefir nú gagngerð endurbygg-
ing farið fram á því að undan-
förnu. Meðal annars hefir verið
settur krossviður innan á allar
skólastofur og ganga og nýr
dúkur á gólfin, auk þess. sem
húsið hefir verið málað hátt og
lágt. Þá hefir ný lýsing, dags-
ljósalýsing, verið sett í húsið.
Laugarnesskólinn.
Hið nýja hús skólans má nú
heita fullbyggt, þó að eftir séu
við það ýmsar minniháttar að-
gerðir. Á komandi vetri verða
um 1200 nemendur í skólanum.
Er skólinn yfirfullur með þess-
um nemendum. Alls mun hann
starfa í 42 deildum en kennarar
verða 36.
Svæði það, er skólinn tekur
börn frá, er mjög víðáttumikið
og hefir íbúum á því fjölgað
mjög ört síðari ár. Mun nú í
ráði að byggja nýja-skóla til
viðbótar í núverandi skólahverfi
Laugarnesskólans. Er fyrirhug-
að að byggja einn skóla fyrir
Kleppsholtið, annan fyrir Soga-
mýrina og þann þriðja fyrir
svæðið inni við Elliðaárnar og
byggðina í Blesagróf og Vatns-
endahæð. Munu þeir skólar að
sjálfsögðu verða fremúr litlir
borið saman við hina stóru
skóla, er byggðir hafa verið
á undanförnum árum.
Melaskólinn.
Þar munu verða um 1000
börn í vetur. Skólinn starfaði í
í fyrravetur. en hafði þá mjög
takmarkað húsrúm til um-
ráða. Nú eru 17 kennslustofur
tilbúnar og verða þær allar
teknar í notkun í vetur — Mun
skólinn starfa í 33 deildum en
kennarar verða 30 að meðtöld-
um varakennurum.
Mikið vantar á enn að skóla-
byggingunni sé lokið, en verkinu
miðar nú óðum áfram. Vegna
vöntunar á húsnæði verður ekki
unnt að hefja kennslu í leik-
fimi, smíði og handavinnu
stúlkna og drengja fyrr en í
nóvember, en þá verður það hús
rúm tilbúið, sem ætlað er til
þeirrar starfsemi skólans.
Skömmtun
Um þessi mánaðamót kemur
til framkvæmda víðtæk
skömmtun, sem nær til flest
allra nauðsynja. Er þetta lang-
samlega umfangsmesta skömmt
un, sem komið hefir hér á
landi, þar sem flest allar vörur
eru nú skammtaðar. Gefnir
hafa verið út skömmtunarseðl-
ar, með nokkuð nýju sniði og
verður byrjað að úthluta þeim
hér í Reykjavík í dag í Góð-
templarahúsinu. Er athygli les-
enda vakin á auglýsingum frá
skömmtunarstjóra, sem birtar
eru á öðrum stað hér í blaðinu.
Innbrot í vöruskemmn
sölunefndar setu-
liðseigna
Um helgina var framiff
innbrot í vöruskemmu sölu-
nefndar setuliffseigna viff
Njarffargötu. Var stoliff þar
1000 krónum í peningum og
orlofsijierkjum.
Nefndin hefir nokkrar stórar
vöruskemmur til afnota þarna
suður við Tivoli og var brotizt
inn í skála sem var áfastur einni
þeirra. Var farið inn í skálann
með því að rífa upp járn-
plötur á hlið hans.
Þjófarnir brutu ugþ peninga-
kassa sem var inni í skálanum
og stálu úr honurp tveimur
minr/ kössum. í öðrum þeirra
voru um 450 kr í orlofsmerkjum,
reikningar o. fl. Hinn kassinn
var tómur. Auk þess fundu þjóf-
arnir og Höfðu á brott með sér
um 1000 kr. í peningum, sem
geymdir voru í skú/fu þarna
inni. Rannsókn þessa máls og
fleiri þjófnaðarmála, sem kom-
ið hafa til sögunnar upp á síð-
kastið stendur yfir.