Tíminn - 04.11.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINBSON
ÓTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Simar 3891 off 487S
PRKNTSMIÐJAN KDÐA hi.
RITSTJÓRAfUURIMfTOTOR:
KDDUHÓai, UndMffflta 9 A
AFGRETOSLA, INNH35JMTA
| OG AUGLÝSINGASKRIPflTOFA:
EDDUHÓ8I, UndMfffltU • A
í Siml 3888
31. árg.
TÍMIM, þriðjudaginn 4. nóv. 1947
203. blað
Steinþór Sigurösson, magister
bíður bana við Heklu
Varð fyrir grjjóti er hrundi úr hraunbrúninni
Þaff slys vildi til í fyrradag austur viff Heklu, aff Steinþór Sig-
urðsson mag. scient varff fyrir grjótruðningi úr hrauninu og beiff
samstundis bana.
Slysiff. i Kvæntur
Á sunnudaginn var Steinþór Jónasdóttur
austur við Heklu. Hafði hann ismanns.
farið þangað á föstudag, en með
honum voru þeir Árni Stefáns-
son bifvélavirki og Einar Pálss.'
deildarverkfræðingur. Á laug-
ardag fóru þeir upp að Heklu-
hrauni, en gistu að Hólum á
sunnudagsnótt. Aftur var farið
að hrauninu á sunnudaginn upp
að hraunfossunum hjá Hesta-
vörðu og voru þeir þar meðal
annars að taka kvikmyndir.
Það var á 5. tímanum, sem
slysið vildi til. Steinþói; heitinn
var staddur rétt fyrir ofan
stærsta hraunfossinn. Var þar
hraunjaðar á að gizka 10 til 15
metra hár. Féll glóandi hraun-
grýtið öðru hvoru niður úr
hraunbrúninni. Varð Steinþór
fyrir einum slíkum steini og
beið samstundis bana.
Leitaff til bæja.
Strax eftir að slysið vildi til
fór Árni Stefánsson niður að
Næfurholti að sækja aðstoðar-
menn og sjúkraböru^ en jafn-
framt var símað eftir sjúkra-
bifreið að Selfossi til að sækja
líkið. Var komið með það niður
að Næfurholti um eitt leytið á
mánudagsnótt, en hingað til
bæjarins í gærmorgun..
Steinþór Sigurðsson var fædd
ur 11. jan. 1904 i Rvík, sonur
Sigurðar Jónssonar skólastjóra
og konu hans Önnu Magnús-
dóttur. Hann lauk stúdentsprófi
1923, en lagði síðan stund á
náttúrufræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla með stjörnu-
fræði að aðalgrein, og lauk
magisterprófi þaðan 1929. Síð-
an hefir Steinþór gegnt marg-
hátt’jðum störfum hér heima,
m. a. verið kennari bæ£i við
Menntaskóla Akureyrar og
Menntaskólann í Reykjavík.
Skólastjcvi Viðskiptaháskóla ís-
lands var hann meðan sá skóli
starfaði sem sérstök stofnun.
Síðan hefir Steinþór kennt við
Verkfræðideild Háskólans. Þá
var hann og framkvæmdastjóri
og formaður Rannsóknarráðs.
Hann lét íþróttamál og ferða-
málefni mjög til sín taka, var
m. a. varaforseti Ferðafélags ís-
lands. Að kvikmyndatöku vann
hann hin síðustu ár og tók á-
samt Árna Stefánssyni hina
merku Heklumynd, sem nú hef-
ir verið sýnd og verður sýnd í
landfræðifélögum og "öðrum vís-
indastofnunum á Norðurlönd-
um. Er sú kvikmynd meistara-
verk og þrekvirki hið mesta —
en heimtaði líka sína fórn í
staðinn, því Steinþór var að
kvikmyndatöku er slysið vildi
til í gær.
var Steinþór Auði
Jónssonar alþing-
Með Steinþóri Sigurðssyni er
fallinn í valinn óvenjulega fjöl
þættur vísindamaður og starfs-
maður á marga lund. Eins og
getið er hér að framan voru á-
hugamál hans og viðfangsefni
mjög mörg og umsvifamikil.
hverju máli, er hann lét sig ein-
hverju skipta, var hann áhrifa-
ríkur og liggur eftir hann
merkilegt starf á mörgum svið
um þótt starfsárin yrðu svo
miklu færri en skyldi.
Átta ára telpa
bíður bana
Var á leið til guðs-
þjónustu
Síðarihluta dags á Sunnu-
dag varð dauðaslys á Seltjarn-
arnesveginum.
Átta ára gömul stúlka, Guð-
finna Thorlacíus Hjálmarsdótt
ir, dóttir Hjálmars Jónssonar og
'Þórunnar Thorlacíus að Vega-
mótum á Seltjarnarnesi var
leið til guðþjónustu í Mýrar-
húsaskóla er hún varð fyrir
bifreiðinni R-6002. Kastaðist
telpan eftir veginum, er bifreið-
in rakst á hana og var þegar
örend.
Þrír menn slasast
á Hellisheiðarvegi
f fyrrinótt varð bifreiðaslys
á Hellisheiðarvegi, skammt frá
Lögbergi. Voru tveir menn í
bifreiðinni, og hlutu þeir tals-
verð meiðsli.
Bifreið þessi var hálfkassabíll,
og var hún að koma austan úr
Árnessýslu. Sprakk barðinn á
öðru framhjólinu, og kastaðist
bifreiðin út af veginum.
Hið meidda fólk var flutt í
læknavarðstofuna í Reykjavík,
og var gert að sárum þess þar.
Yfirlýsing
frá sýiiing'anu1 i'iicl
Lj ósmy ndar af é-
lags íslands.
Vegna skrifa í Þjóðviljanum
s.l. sunnudag, um tilvonandi
ljósmyndasýningu ljósmyndara-
félagsins og skipti félagsins og
Viðskiptancfndar, vill sýningar-
nefndin taka fram eftirfarandi:
Við, sem að sýningu þessari
stöndum viljum ekki að mál-
efni okkar séu á einn eða ann-
an hátt notuð í pólitísku skyni,
cnda eru umrædd skrif í al-
gjörri óþökk okkar.
Það er ekki rétt að við höf-
um hvorki fengið áheyrn né af-
greiðslu hýá Viðskiptanefnd, því
við höfum nú þegar fengið lof-
orð fyrir gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi, sem reyndar er
mjög lítið, og stöndum í samn-
ingum við nefndina á frekari
úrlausn.
Þó erfiðlega blási í bili,
treystum við Ijósmyndarar á að
úr rætist svo hin fyrirhugaða
ljósmyndasýning 100 ára (ekki
50 ára eins og sagt var í Þjóð-
viljanum) ljósmyndagerðar á
íslandi geti orðið fyrr en síðar.
Sýningarnefndin.
Stúdentaráðskosningarnar
Félag' frjáslyndra stúdcuta vann eltt sæti af
koimnúnistum
Kosningar til stúdentaráffs fóru fram í Háskólanum 1. þ. m.
| Á kjörskrá voru 499 stúdentar, en af þeim voru 12 erlendis. —
Atkvæffi greiddu 414 stúdentar og var þátttakan því 89.5%, miff-
að viff tölu þeirra, sem staddir voru í landinu. Úrslit kosninganna
| urðu mikil sigur fyrir Félag frjálslyndra stúdenta, sem var eina
félagið, er jók fylgi sitt hlutfallslega, og vann eitt sæti af komm-
únistum.
Það hvílir ljómi yfir norsku og dönsku konungsættinni eftir frammistöðu
þeirra í þrengingum hernámsáranna. Hér sjást Friðrik Danakonungur og
Ingiríður drottning á svölum konungshallarinnar, ásamt Hákoni Noregs-
konungi, er kom í heimsókn til frænda sins.
Greinargerð um Andakíls-
árvirkjunina
Frá verkfræðingi rafveitustjórnariimar
Eins og skýrt var frá í blaffinu fyrir nokkru síffan er Andakíls-
árveitan í þann Veginn aff taka til starfa. Árni Fálsson verkfræff-
ingur, er haft hefir umsjá meff verkinu fyrir stjórn virkjunar-
innar, hefir látiff Tímanum í té eftirfarandi skýrslu:
Um þessar mundir er nýlokið
smíði orkuversins við Andakílsá
í Borgarfirði og einnig er að
mestu lokið háspennuleiðslum
frá orkuverinu til Akraness,
Borgarness og Hvanneyrar á-
samt bæjarkerfum Akraness og
Borgarness. Orkuverið er nú
þegar tekið til starfa og hefir
bæjarkerfið á Akranesi verið
tengt við háspennukerfi orku-
versins.
Fyrst um sinn eru það þó að-
eins fá hús á Akranesi er geta
hagnýtt sér orkuna, þar eð
lögnum innanhúss er skammt á
veg komið sakir skorts á efni í
leiðslur, tækjum og öðrum raí-
búnaði og ber fulla nauðsyn til
að vinda bráðan bug að útveg-
un efnis og tækja, svo takast
megi að nýta orkuverið til fulls.
í þessari viku verður bæjarkerfi
Borgarness væntanlega tengt
við háspennukerfið og loks
spennistöð Hvanneyrar, en þá
er náð fyrsta áfanga orkudreif-
ingar.
í hinu nýja orkuveri eru tvær
vélasamstæður 2500 hestafla og
er því stærð þess 5000 hestöfl
eða 3500 kilowött, er svarar að
meðaltali til orkumagnsins 1000
watt á hvern íbúa orkusvæðis- j
ins. Er það mun ríflegra orku-
magn en hér gerizt almennt og
skal i því sambandi þess getið,
að á orkuveitusvæði Sogsins er
orkan um 550 watt og á orku-
veitusvæði Laxár liðug 500 watt
,á mann með því vélamagni er
bæði fyrrnefnd orkuver nú hafa.
Að hestaflatölu er Andakílsá
næst stærsta nývirkjun er ráð-
izt hefir verið i hér á landi, þar
eð Laxárvirkjunin var 2400 hest
öfl er hún tók til starfa haustið
1939.
Vinna var hafin vorið 1945 og
hefir því nú staðið í þrjú sum-
ur og að mestu í tvo vetur. Þótt
vélar orkuversins séu nú þegar
tekiw til starfa er þó verki
enn eigi fulllokið, þar sem eftir
er að gera nokkur mannvirki til
vatnsmiðlunar í ósum Skorra-
dalsvatns og verður óhjákvæmi
legt að gera þau á sumri kom-
andi, þar eð orkuverið lætur
eigi fulla orku í té þegar
þurrka og frosta kaflar eru
fyrr en miðlunarvirkin hafa
gerð verið. Þá vantar enn nokk-
uð af öryggisbúnaði véla og há-
spennulína.
Hið virkjaða fall er 51.5 m
og eru það svonefndir Anda-
kílsárfossar, en það er röð af
smáfossum hver upp af öðrum
í gljúfrunum er áin fellur um
á leiZ sinni niður á láglendið.
Efst í gljúfrunum er gerð stífla
með inntakaþró, en þaðan ligg
ur Járngirt trépípa niður að
orkuverinu, um 580, metrar að
lengd.
Eigendur virkjunarinnar er
sameignarfélagið „Andakílsár
virkjun" og standa að því þrír
aðilar, þ. e. sýslurnar Mýra- og
Borgarfjarðarsýsla og Akranes-
bær. Stjórn félagsins er skipuð
sjö fulltrúum hinna þrifgja
aðila, en framkvæmdarstjórn
skipa þeir Haraldur Böðvarsson,
útgerðarmaður á Akranesi, sem
er formaður félagsstjórpar og
Jón Steingrímsson sýslumaður
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Verkfræðilegir ráðunautar fé
lagsstjórnarinnar eru þeir Jak-
og Guðjohnsen og Árni Pálsson
verkfræðingur er gert hefir
frumdrætti að virkjuninni.
Á virkjunarstaðnum hefir
„Almenna byggingarfélagið“
staðið fyrir framkvæmdum
vatnsvirkja. Bæði vatnsvélar og
rafvélar eru smíðaðar í Svíþjóð
hjá firmunum Karlstade Mek
aniska Eerkstad og ASEA sem
bæði eru víðkunn fyrir smíðar
sínar. Hafa vélfræðin^gar frá
báðum firmum staðið fyrir því
að koma vélunum fyrir í orku-
verinu.
Aðfærsluæðin að orkuverinu,
— trépípa girt járngjörðum,
sem fyrr getur, — er smíðuð í
Svíþjóð hjá Boxholms Aktie-
bolaget og hefir sænskur verk-
stjóri af hálfu þess firma staðið
fyrir verki við að setja pípuna
saman á virkjunarstaðnum.
(Framhald á 4. síðuj
Urslit urðu þessi:
Félag frjálslyndra stúdenta
(Framsóknarmenn) fékk 57
atkvæði og einn mann kosinn.
Fékk í fyrra 32 atkvæði og eng-
| an mann.
Stúdentafélag lýðræðissinn-
| aðra sósíalista (Alþýðuflokkur)
fékk 60 atkv. og einn mann
| kosinn.
Vaka félag lýðræðissinnaðra
| stúdenta (Sjálfstæðismenn)
fékk 185 atkv. og fimm menn
| kosna. Fékk í fyrra 194 atkv.
| og fimm menn.
Félag róttækra stúdenta
(kommúnistar) fékk 106 atkv.
og tvo menn kosna. Fékk í fyrra
100 atkv. og þrjá menn kosna.
Úrslit þessi sýna vaxandi
fylgi miðflokksstefnunnar með-
al stúdenta, þar sem Félag
frjálslyndra stúdenta er eina
félagið, sem eykur fylgi sitt
hlutfallslega, en hin félögin
ýmis tapa eða rétt standa í stað.
Þetta virðist sánna, að hér sé
þróunin sú sama og annars
staðar, að straumurinn hafi
snúist frá öfgaflokkunum.
Á lista Félags frjálslyndra
stúdenta höfðu verið gerðar út-
strikanir á sex seðlum með
þeim afleiðingum, að röð
tveggja efstu mannanna á list-
anum breytist. Fulltrúi Félags
frjálslyndra stúdenta í stúd-
entaráði var kosinn Páll Hann-
esson. stud polyt, sem var annar
maður á listanum. Efsti maður
listans var Jón Hjaltason stud
jur.
í stúdentaráði eiga því sæti
þessir menn:
Frá Félagi frjálslyndra stúd-
entá: Páll Hannesson stud.
polyt.
Frá Stúdentafélagi lýðræðis-
sinnaðra sósíalista: Jón P.
Emils stud jur.
Frá „Vöku“, félagi lýðræðis-
sinnaðra stúdenta: Tómas
TómaAson stuti jur, Víkingur
H. Arnórsson, stud med.; Bragi
Guðmundsson, stud polyt.,
Jónas Gíslason, stud theol.,
Páll Líndal, stud jur.
Frá Félagi róttækra stúdenta:
Hjálmar Ólafsson, stud phil.,
Árni Halldórsson, stud jur.
í Félagi frjálslyndra stúdenta
ríkir nú mikill eining og áhugi
fyrir starfinu á komandi vetri,
og munu úrslit þessara kosn-
inga efla samtök þeirra í Há-
skólanum.
Uppgripa síldveiði
í Hvalfirði
Fjörkippur færist í atvimmlíf verstöðvanna
viS Faxaflóa
Mikil síldveiffi er nú kominn víffa í Hvalfirffi og hafa nokkrir
bátar fengiff þar uppgripa afla. Aflinn hefir verið lagffur upp
á Akranesi og er verksmiðjan þar nú tekin að bræffa síld. Hefir
fjörkippur komiff í allt athafnalíf á Akranesi og í öffrum ver-
stöffvum viff Faxaflóa viff þessa miklu og óvæntu síldveiði í
Hvalfirði.
Margir bátar hafa stundað
reknetaveiðar að undanförnu á
Faxaf’óa og nokkrir hafa verið
að leita fyrir sér með síldveiði
í nætur. Fyrir nokkrum dög-
um urðu skip vör mikillar síld-
ar i Hvalfirði og er þar nú upp-
gripa síldveiði.
í kollafirði er einnig nokkur
síldveiði. Bátar þeir sem hafa
stundað veiðar hafa fengið all
góðan afla i reknet, þar til í
gær, að afli var lítill, enda
hvassviðri og gátu ekki allir
bátar vitjað neta sinna af þeim
sökum. Þeir bátar sem vitjuðu
fengu aðeins 20 til 30 tunnur.
í gær var hvasst á miðunum
í Faxaflóa og erfið aðstaða til
síldveiða. Nokkurt skjól er þó
til veiða í Hvalfirði, en þar
verður síldar vart víðs vegar í
firðinum. Aðallega hefir síldin
þó verið veidd út af Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd og þar fyrir
innan. í firðinum stunda nú all
mörg skip veiðar og bráðlega
er von á fleirum. Eru 8 bátar að
búast á snurpunótaveiðar frá
Akranesi, í viðbót við þá sem
þegar eru komnir á veiðar. Þá
eru bátar frá Keflavík og fleiri
verstöðvum Suðurnesja i þann
veginn að leggja út á síldveiðar.
í fyrradag komu til Akraness
'tveir liátar með Hválfjarðar-
síld. Voru það Keilir, sem var
með 500 mál og Rifsnes, sem
var með 1300 mál. í gærmorgun
kom Fagriklettur til Akraness
með um 1200 mál úr Hvalfiröi.
Verksmiðjan á Akranesi hóf
vinnslu í fyrra-morgun og er
nú unnif í henni nótt og dag.
Nokkrar tafir hafa orðið á
vinnslunni, sem orsakast af
byrjunarörðugleikum, en þegar
verksmiðjan verður kominn i
fullan gang, getur hún brætt úr
10—14 hundruð málum á sól-
arhring.
Frystihúsin á Akranesi hafa
tekiö á móti eins miklu af
síldinni og þau hafa getað af-
kastað, en aðallega hefir hún
farið í bræðslu.
Mikill fjörkippur hefir nú
færzt í atvinnulíf á Akranesí,
sem venjulega er dauft yfir um
þetta leyti árs. Sömu sögu er
að segja úr öðrum verstöðvum
við Faxaflóa.