Tíminn - 06.02.1948, Qupperneq 2
TÍMINN, föstudaginn 6. febr. 1948
29. blað
5ra deai tií da
I dag:
Sólin kom upp kl. 8.58. Sólarlag
jit 16.28. Árdegisflóð kl. 3.05. Síð-
degisflóð kl. 13.25.
% nótt:
Næturakstur annast Bifreiðastöð
KCJ'kjavíkur, sími 1720. Nætur-
ireknir er x læknavarðstofunni í
/Vustui fæjarskólanum, sími 5030.
Njæturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1760.
fjtvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
ÍOÍSO Útvarpssagan: „Töluð orð“
rftir Johan Bojer, V. (Helgi Hjörv-
aí). 21.00 Strokkvartett útvarpsins:
.Cviirt.ett í G-dúr op. 54 nr. 1 eftir
Viaydn. 21.15 Erindi: Um Finn
pr^fessor Magnússon; síðara erindi
(,Jpn Helgason prófessor) 21.40
Tónlistarþáttur (Jón Þórarinsson).
22*00 Fréttir. 22.05 Symfóniskir
tónleikar (plötur): a) Symfónia
nr. 43 í C-dúr eftir Mozart. b)
Píanókonsert eftir Arthur Bliss.
23.00 Dagskrárlok.
Skipafréttir:
Brúarfoss kom til Rotterdam 2.
febr. frá Hull. Lagarfoss fór frá
Patreksfirði síðdegis í gær til fsa-
fjarðar. Selfoss var út af Önundar-
firði í gærmorgun á leið til Reykja-
firði í gærmorgun á leið frá Reykja
vík til Siglufjarðar. Fjallfoss fór
frá Reykjavík kl. 20.00 4. febr. til
Siglufjarðar. Reykjafoss fór frá
New York 27. jan. til Reykjavíkur.
Salmon Knot fór frá Reykjavík 21.
jan. til Baltimore. True Knot kom
til Siglufjarðar kl. 21.30 4. febr. frá
Reykjavík. Knob Knot kom til
Siglufjarðar kl. 08.30 5 des. frá
Reykjavík. Lyngaa kom til Kaup-
mannahafnar 3. febr. frá Siglu-
firði. Horsa átti að fára frá Amst-
erdarn 4. febr. til Antwerpen. Varg
var væntanlegur til New York í
gær 5. febr. frá Reykjavík.
Haþpdrætti U.M.F. Samhyggðar.
Þessi íxúrner hlutu vinninga í
happdrætti U.M.F. Samhyggðar í
Gaulverjabæjarhreppi: 3674 stofu-
borð — 3676 útvarpsviðtæki — 2983
ritsafn Jóns Trausta — 1342 kaffi-
stell (sex mapna) — 1231 útskor-
inn borðlampi. — Fólk skal vitjá
vinninganna til Stefáns Jasonar-
sonar í Vorsabæ.
larlinn I kassanum
ýndur í Hafnarfirðl.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefir í
kvöld frumsýningu á gamanleikn-
■jm „Karlinn í kassanum" eftir
Arnold og Bach. Leikstjóri er Ind-
riði Waage, en leikendur eru ann-
s.r? flestir úr Hafnarfirði. Leikur
bessi er skemmtilegur og bráð-
fyndinn, eins og kunnugt er. Hefir
hann víða verið sýndur hér áður.
Skúiatorg,
hefir verið skírt nýtt torg, sem
er á gatnamótum Skúlagötu og
Borgartúns í Reykjavík.
Eigandi happdrættisbílsins
i
"undinn.
í fyrradag kom eigandi Í.R.-
happdrættisbílsins, sem er nýr De
3oto-bíllf í leitirnar. Var það Ás-
nxundur Sigurðsson frá Efstadal í
Laugardal. Dregið var í happdrætt-
inu um síðustu áramót, en þar til
i fyrradag hafði enginn gefið sig
fí-am sem eiganda. Framvísaði Ás-
mundur vinningsmiðanum 22692 til
formanns Í.R., Sigurpáls Jónsson-
ar, og /ikk bílinn í staðinn.
Bakarasveinafélagið 40 ára.
Bakarasveinafélagið átti 40 ára
afmæli í gær. Þegar félagið var
stofnað, voru kjör bakara hér á
landi mjög slæm. En félagið beitti
sér þegar röggsamlega fyrir þ\'í, aö
bau yrðu bætt. Smám saman hefir
íélagið unnið að þvx að fá áhuga-
málum sínum framgengt, svo að
nú eru kjör bakara vel sambærileg
við kjör annarra iðnstétta. Félagið
hefir. samt aldrei þurft að grípa
til verkfalla, þótt aðstaða. þess sé
óneitanlega sterk, ef til slíks kæmi.
Stjórn félagsins skipa nú Guðm-
undur Hersir formaður, Þórður
Hannesson, Stefán Sigurðsson,
Jón Árnason og Geir Ólafsson
meðstjórnendur.
Gjafir þakkaðar.
Ríkisstjórninni hefir borizt eft-
irfarandi þakkarávarp frá borgar-
stjóranum í Budapest:
„Til íslendinga! Fyrir milligöngu
danska barnavinafélagsins „Red
Barnet“. hefir verið tekið á móti
gjöfum þeim, er þér hafið sent
börnum vorum, og biðjum vér yður
að taka við hjartanlegum þökkum
fyrir örlæti yðar.
Með gjöfum yöar hafið þér rétt
þurfandi börnum annarrar þjóar
hjálparhönd, enda þótt sú þjóð sé
yður ókunnug og eigi heima þús-
undir kílómetra í burtu. Með því
! að hjálpa börnum, sem eiga heilsu
• sína á hættu vegna undangeng-
i inna atbui’ða, hafði þér gefið skx'n-
andi fordæmi um mannúðlegt sam-
starf þjóða á milli.“
Fyrir fjársöfnuninni til ung-
verskra barna stóðu Irma Weile
Jónsson, Ásta Magnúsdóttir, ríkis-
féhirðir, Auður Auðuns, bæjarfull-
trúi, Einar Jónsson, myndhöggvari,
og Matthías Þórðarson, fyrrv.
þ j óðmin j avörður.
Thor Thors sæmdur dönsku
heiðursmerki.
Danir hafa sæmt Thor Thors,
sendiherra íslands í Washington,
frelsisorðu Kristjáns konungs tí-
unda.
Afmæli Fram. . .
(Framhald af 1. síðu)
Danmerkur 1939 og til Þýzka-
lands 1935.
Félagið hefir látið ý,ms í-
i;róttamál til sín taka í bæn-
um. Það gekkst á sínum tíma
fyrir því, að gert yrði skauta-
svell á Austurvelli í Reykja-
vík og boðaði til almenns
íundar 1935 þar sem sam-
þykkt var tillaga um stofnun
skautahallar, sem að visu er
ekki ennþá komin upp.
Kvennaflokkur var stofn-
aður 1945 og er sú deild fé-
iagslífinu mikili styrkur. —
Stúlkurnar hafa með sér
handknattleiksflokk. Féiagið
hefir haldið jólatrésskðmmt-
anir barna á hverju' ári.
rokkur undanfarin ár. Einn-
ig hefir félagið haldið árlega
hlutaveltur, til ágóða fyrir
félagsstarfsemina. Og hefir
um þessar mundir bílahapp-
drætti, sem dregið verður um
á morgun, sama daginn og
íéJagið heldur hátíðlegt af-
mæli sitt. Skíðadeild er starf-
andi innan félagsins cg á-
kveðið hefir verið að bjóða
hingað heim erlendum knalt
spyrnuflokk í sumar í tilefni
af afmælinu.
1 stjórn Fram eru nú: Þrá-
inn Sigurðsson formaður, Jórx
Jónsson, Sæmundur Gísla-
son, Sveinn Ragnarsson, Har-
aldur Steinþórsson, Orri
Gunnarsson og Hulda Pét-
ursdóttir meðstjórnendur. í
varastjórn eru: Böðvar Pét-
ursson, Guðbrandur Bjarna-
son og Karl Bergmann.
Félagslíf
Leikhúsið.
Skálholt Kambans sýnt í Iðnó í
kvöld kl. 8.
Skemmtxin.
Framsóknarfélaganna byrjar
með Framsóknarvist í Mjólkur-
stöðinni kl. 8 í kvöld.
Árshátíð
Eyfirðinga og Þingeyinga verð-
ur í kvöld að Hótel Borg kl. 6. '
Þingstúka Reykjavíkur
heldur fund í kvöld kl. 8,30 að
Friíkirkjuvegi 111.
Leikarar.
halda skemmtun í kvöld að Hótel
Ritz. Húsinu lokað kl. 8.
Templarar.
Söngfélag I.O.G.T.hefir skmmti-
samkomu í G. T.-húsinu í kvöld
kl. 8.
A
Odýrar auglýsingar
BenxínrafstöK
5 kw. 220 Volta riðstraum með
rafgeyma og gangsetningu, og
ónotuð, til sölu. — Sími 5013.
Ferðaineim
sem eru gestir í Reykjavík, kaupa
máltíðir í Breiðfirðingabúð.
Matisr
Það er þægilegt að fá tilbú-
inn, góðan mat í Matarbúðinni
Ingólfsstræti 3, sínxi 1569.
Ilösksai0
drengur óskast til að selja
Tímann á götunum. Góð kjör.
Uppl. á afgr. Tímans..
Sisaoklngföí
á meðalmann, lítið notuð til
sölu. — Sími 5013.
Á förnum vegi
Það hefir komiö greinilega í Ijós
þessa síðustu daga, hversu brýna
nauðsyn ber til þess fyrir þetta
þjóöfélag, að. vinnuorka þjóðar-
innar nýtist r*m bezt og sem allra
mest sé iramleitt af söluhæfum
vörum í landinu. Ég hefi áður
minnzt á það, hversu mikið liggi
við, að vinnuafköst fólksins geti
batna frá því, sem nú er — og
gegnir sama máli, hvort á það er
litið frá sjónarmiði þjóðarheildar-
innar eða einstaklinga og stétta
meðal hins vinnandi fólks.
Ég ætla ekki að ræða þetta frek-
ara í dag, en víkja fáeinum orð-
um að vandamáli, sem er þessu
skylt, að minnsta kosti að nokkru
leyti.
Það er á hvers manns vitorði, að
í þjóðfélagi okkar er stór hópur
manna, sem ekki er hægt að kalla
manna en sníkjudýr af lægstu teg-
und — fyrirbrigði, sem í senn er
þjóðinni til skaða og skammar.
Menn þurfa væntanlega engum
getum að því að leiða, að ég á
við auðnuleysingja þá, sem orðið
hafa ofnautn áfengis að bráð og
eiga þá lífsnautn eina að sötra í
sig dreggjar, oft beina ólyfjan, er
aflað hefir verið fyrir aura, sem
betlaðir eru út úr vorkunnlátum en
skammsýnum vegfarendum og
kunningjunx frá fyrra æviskeiði.
Ég veit ekki, hversu margir þeir
menn eru, sem þessu marki eru
brenndir, en ég er viss um, að þeir
skipta allmörgum tugum hér í
Reykjavík, og hinir líklega hundr-
uðum, sem eru við merkjalínuna
milli mannheima og þessarar út-
lagatilveru í hinu íslenzka mann-
félagi.
Eins og nú er ástatt eru þessir
menn þjóðinni glatað fólk. Þeir
stríða ekki undir merkjum ann-
arra borgara þessa lands — fólks-
ins, sem leitast við að skapa sér
og samborgurum sínum mannsæm-
andi afkomu og lífsskilyrði í nútíð
og framtíð. Eft.ir þá liggja engin
nýtileg störf. Þeir eru snýkjudýr
og meinsemd á þjóðarlíkamanum.
En sökin er ekki þeirra einna.
Þeir hafa að vísu ekki haft þann
manndóm, sem þurfti til þess að
berjast gegn straumnum cg bjarga
sér í land. En þjóðfélagið, sem
horfir á þá sogast lengra og lengra
út í iðuna, hefir líka haldið að
sér höndum, ef ekki hefir verið
óbeint við þeim stjakað.
Það er nú. kominn tími til þess,
að stefnubreyting verði í þessu
efni. Það er kominn tími til þess,
að forsmánin sé þvegin af- höfuð-
stað landsins og öðrum bæjum,
þar sem þetta fyrirbæri kann að
hafa átt sér stað. Það er kominn
tími til þess, að þeirri plágu, sem
þessir menn eru vandamönnum, sé
aflétt, og það er ekki sízt kominn
tími til þess, að þjóðfélagið veiti
þessum reköldum 'aðra aðbúð en
nú er, hvort heldur þeir eiga sér
viðreisnarvon sem nýtir og f. jáls-
ir þegnar eða ekki.
Það ætti að vera samhljóma
krafa borgara landsins, að komið
yrði upp hæli og vinnustöð handa
mönnum af þessu tagi, hæfilega
fjarri skarkala lífsins, þar sem
þeir, sem enn eiga sér uppreisnar
von, væru styfktir og þjálfaðir til
lífsbaráttunnar á ný, en hinir ættu
sér ævjilega vist við góða aðbúð,
en takmarkað frelsi og nytsamlega
vinnu, sem þeir eru færir um að
leysa a/ höndum. Það líf yrði þeim
þó alltaf betra en sú útlagaævi, er
þeir nú lifa.
Hér þyrfti ekki endilega að byrja
stórt, en það þyrfti örugga laga-
setningu og örugg tök frá upphafi.
Það mætti byrja á því að láta þessa
menn byggja yfir sjálfa sig og sína
líka, og þegar því væri lokið, tæki
við vinna að verkefnum, sem bættu
úr þörf eða^æfu arð og gætu borið
uppi kostnaðinn við rekstur hælis-
ins og kannske vel það, ef góð
stjórn væri á öllu.
En mesta gagnið að slíkri stofn-
un væri þó ef til vill það aðhald, er
hún veitti, því að frelsisskerðing
sú, sem yfir vofði, myndi reynast
þung á metunum.
Hér á landi eru mjög fjölmenn
samtök manna, er helga sig bar-
áttu gegn áfengisnautn. Þess ætti
að mega vænta, að þau myndu
leggja fram liösinrxi sitt á þessum
vettvangi, því s.ð hér er það óneit-
anlega, sem brýnust þörf er vei-u-
legra átaka.
J. H.
Eldri dansarnir í G. T.-húsinu
annað kvöld kl. 9. Húsinu lokaö
kl. 10.30. —
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
ATOMORKAN
NÚTÍÐ OG FRAMTIÐ
opin daglega frá klukkan 1—11.
Ef þið viljið fylgjast með tímanum, þá verðið þið að
kimna skil á mest umrædda vandamáli núíímans.
Skýringar-kvikmyndir á byggingu efnisins, rafmagn-
inu og sprengitiiraununum við Bikini, sýndar allan
daginn, sem hér segir: kl. 11 f.h. 2—4—6—8.30 og kl.
10 síðdegis.
♦♦ Félag íslenzkra leikara:
::
::
§
♦ -»
::
H
:: að Hótel Ritz, föstudag 6. og laugardag 7. þ.m. kl. 7, ::
:: ::
♦♦ ♦♦
;♦ Félagar úr Félagi íslenzkra leikara skemmta undir H
Jt ♦♦
ii borðum ásamt hljómsveit J. Felzman. Ðansað til kl.l. u
♦| ix
♦♦ ♦♦
Samkvæmisklæðnaður. — Húsinu lokað kl. 8. ::
:: ::
:♦ Aðgöngumiðar seldir í Iðnó föstud. og laugard. kl. 1—3. H
g «
h «
í Hrunamannahreppi er laus til ábúðar í næ.stu far-
dögum. Upplýsingar gefa Brynjólfur Guðmundsson
bóndi Sólheimum eða eigandi jarðarinnar, Hildur J.
Thorarensen, Lindargötu 61, Reykjavík.
VINNIÐ ÖTULLEGA AÐ ÚTBREIÐSLU TÍMANS