Tíminn - 06.02.1948, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.02.1948, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, föstudaginn 6. febi'. 1948 29. blað P GAMLÁ B!0 Stúlkubarnið Oitte (Ditte Menneskebam) • Vegna fjölda áskorana verður i þessi framúrskarandi mynd sýnd kl. 7 og 9 Börn fá ekki aðgang TRIPOLI-BÍO Mmngöngin (The Tunnal) Stórmynd, með hinum heims- frœga negrasöngvara POUL KOBESON í aðalhlutverki. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BönnuS börnum innan 16 ára. — Sími 1182 — NYJA BÍO « pR 'Síoa'ks drengurlim frá Hostoia ••• (The Great John L) ppennandi kvikmynd, byggð á _œyj . hins heimsfræga hnefa- Kiktíra'Johns L. Sullivan. ' "'Aðalhlutverk: Greg McCIure Barbara Britton I.inda Darnell Sýnd kl. 5, 7 og 9. — Sími 1384 — (íóðtesn|ilarareglsíii (Framliald af 4. cíðu) að það tekst oft vel. Svo verða menn að hafa sínar skýringar á þessum fyrirbær- um, þar sem sannanir þrýt- ur. Sumum þykir ef til vill fínna og vísindalegra að kalla þetta bundna orku í mann- inum sjálfum, kannske kyn- orku, eða þá ímyndun, trú- arlega sjálfsblekkingu, sefj- un og dáleiðslu, og það get- ur vel verið að þeir kunni einhyerjar efnafræðilegar forníúlur þessu til skýringar. Afenn eru svo lærðir' og nienntaðir. .Ég_held samt, að kjarni malsins sé sú einfalda stað- reynd, að í starfi Reglunnar öðjast menn aukinn kraft til siðgæðis og göfgi. Eigum við ekki að viðurkenna þá stað- reynd fyrst, meta starfið eft- if því, og leita svo þeirra skýringa, sem okkur þykja sennilegastar hverju um sig? • Er það ekki sigur að tengj a lífsafl eigin sálar góöum kröftum utan okkar sjálfra, hvort sem þeir eru komnir frá félagssystkinum okkar, annars staðar að, eöa hvort tveggja? Tvenns konar siðfrœði. Sumir segja, að það eigi að vera frjálst aö selja áfengi, dreíqka það og veita. Þeir megi sjálfir drekka, e.nda geri Greiflsm sff Meaate €Iia*ist«> Fi-önsk stórmynd eftir hinni heimsfrægu skáldsögu með sama efni. Aöalhlutverk: Pierre Richard Willm. Michele Alfa. í myndinni eru danskir skýr- ingartekstar. Sýnd klukkan 3,6 og 9 Sala hefst kl. 11 TJARNARBIO r b symng í kvöld i Tíminn bóndans tryggir hag, Tíminn fœrir allt í lag, í Timinn á hinn trausta | brag, | Timinn boðar nýjan dag, K. H. Breiðdal. þeir það í hófi, og það sé þá sjálfum þeim verst, ef út af beri. Svo eigi bindindishreyf- ingin að móta almennings- álitið hófsamlega og öfga- laust, veita mönnum það að- hald, að þeir drekki ekki um of, en hjálpa þeim, sem þó kynnu að gera það og byggja meöal annark . yfir þá hæli. Yfirleitt vílja þessir menn sjálfir vera frjálsir að því, að drekka, og þeir styöja aldrei bindindisstarfsemi sjálfir. Aðrir lita á málið frá raun- hæfara sjónarmiði. Þeir við- urkenna þá staðreynd, að af hverjum 10 mönnum, sem byrja áfengisnautn munu einhverjir drekka „sér til vansa og sorgar.“ Þeir vita að áfengisnautn er þjóðar- böl. Eina ráðiö, sem þeir sjá til að eiga engan þátt í út- breiðslu hennar sjálfir per- sónulega, er að hafa aldrei áfengi um hönd. Því eru þeir bindindismenn. Og oft leggja þessir menn fram krafta sína í bindindishreyfingunni. Illa er þá komið íslenzkum drengskap, ef þjóðin kann eklci greinarmun á þessari tvenns konar rökvísi og sið- fræði, Smáskœruhernaður. Það er að vísu gott að sjá og heyra, að menn eins og t. d. Páll Kolka og Jíannes Pálsson, vopnabræður í öl- málinu, gera æðri og meiri kröfur til okkar bindindis- manna en sjálfra sín, en þó væntanlega skemmtilegra fyrir okkur en þá sjálfa. Þrátt fyrir allt vita þeir þö, hvar helzt er trausts að leita. Það er líka ánægjulegt að sjá, að ölið er að gera ým.sa Xö hugsjónamönnum, þö að lirið hafi farið fyrir þeirri náttúru þeirra áður. Nú vilja þeir losa þjóðina við töbak og kókakóla og sjálfsagt berjast þeir gegn óhollu næí- urslarki, háum skóhæium, skálmalausum kvenbuxum og fleiru þess háttar, sem spiilir heilbrigði fólks. En það er bara lakast, aö þetta hug- sjónalíf þeirra skuli einungis vera gjaldeyrir fyrir nýja á- fengistegund. Óþokkabragð. Því miður hefir tekizt að gera Góðtemplararegluna tor tryggilega í augum ýmsra drykkjumanna,, svo að þeir vilja ekki leita trausts til hennar, þó að þeir þrái ekki neitt heitara en að sigrasfc á veikleika sínum. Páll Kolka gengur nú þeirra erinda. Það cr þó ekki göfugra hlutverk, en að segja sjúklingum að forðast lækna nútímans, því að sú stétt eigi nú enga menn eins og Guðmund Björnsson, heldur séu þar fjárplógsmenn og okrarar. sem trúi ekki á lækninga- mátt sinn, heldur alls konar löggjöf, og hafi mörgum góð- um dreng fyrir kattarnef komið. Ég geri jietta ekki að mínum orðum. Ég óska ekki að líkjast Kolku um orðbragð og réttdæmi. En þung er ógæfa þeirra vesölu manna, seni rægja þau samtökin, sem helzt gætu orðið til hjálpar ógæfusam- asta fólkinu á íslandi. Ég kalla það ógæfu, þó að hrcki og hofmóður villi þeim sjálf- um sýn, svo að þeir jafnvel miklist af. Með vaxandi kynnum mín- um af Góðtemplarareglunni er mér ljósari sú skylda að taka svari hennar. Ég skora á hvern góðviljaðan mann að kynna sér starf hennar sem bezt. Þá munu kolkulegar níðgreinar um hana hljóta almenna skömm. Hvers ciga stúlk- urnar að gjalda? (Framhald af 3. síðu) andi kynslóð. Ég hygg, a Ó. G. sem kvað vera kem: ari, telji þennan gjaldey: ekki eftir. í nýlega framkominni fjái hagsáætlun ríkisins er námí kostnaður áætlaður 6 mil kr. í erlendum gjaldeyri. Nú gerir Ó. G. ráð fyrir a stúlkur er matreiðslunái stunda hú í Danmörku f: 30—60 þús. kr. Sézt þá h\ lítið brot rennur til þein af þeim gjaldeyri, er til nán er ætlaður eða y2—1%. End veit ég að þeir, sem ráða úl hlutun gjaldeyris, láta ekl stúlkur þessar gjalda þess a þær eru kvenmenn, sem er að leitast við að efla þekk ingu sína. Ég vil láta þess getið, t þess að ekki valdi misskiln ingi, að ég á enga stúlku mé nákomna, eða vandabundn við matreiðslunám í Dan mörku, eða annars staðar ei lendis. Mér sárnaöi aðeins ur mæli Ó. G. um þær. Þe: vegna varð greinarkorn til. Reykjavík 4. febrúar. 194; Gömul sveitakona. A. J. Croain: Þegar ungur ég var „Viltu gera svo vel að fara með þetta? Ég vildi, að ég gæti sent henni fáeinar pönnukökur, en ....“ Hún tók lokið af leirstampinum, sem hún geymdi mjölið í, og gægðist niður í hann með áhyggjusvip. „Ég er að verða mjölllaus, svo að það verður líklega að nægja, að þú skilir kærri kveðju frá mér.“ Ég rambaði niður Drumbuckveginn og gegnum skemmti- garðinn og beygði síðan til vinstri meðfram verksmiðjunum. Kata átti heima í litlu húsi uppi á brekkubrún í vestasta hverfi bæjarins. Ég var að komast upp á brekkukambinn, þegar ég kom auga á Kötu. Hún kom úr gagnstæðri átt og ók barnavagni á undan sér. Þetta var fallegur, dökkblár vagn, og Kata hafði sérstakt yndi af því að láta sjá sig með hann. Ég er viss um, að hún fór með hann margar mílur í hverri viku. Ég nam staðar og virti hana fyrir mér, án þess að hún yrði mín vör. Hún var broshýr á svipinn. Við og við stanzaði hún og hagræddi teppinu, sem breitt var yfir barnið, sletti í góm og kjáði framan í litla angann. , Sæl, Kata,“ sagði ég lágt, þegar hún var komin alveg að mér. „Ne-ei! Þú hér!“ Málrómurinn var hlýr og vingjarnlegur. „Ég sá þig bara alls ekki. Er sá litli ekki fallegur? Þú trúir því kannske ekki, Róbert, en hann er að byrja að taka tennur, og samt heyrist ekki í honum liðlangan daginn.“ Hún laut yfir barnið. „Litli snáðinn — mömmu trítill!“ Já — Kata var sæl. Og einhvern tíma hafði verið stungið upp á því, að hún lærði að spila á mandólín sér til afþrey- ingar! Heimili Kötu var mjög snoturt, og þar voru flest þægindi þeirra tíma. Sterkur' þefur af alls konar hreinsiefnum tók af allan vafa um það, að hún var samvizkusöm húsmóðir. Hjónabandið var mjög ánægjulegt, þrátt fyrir tortryggni og illar grunsemdir pabba, sem harmaði giftingu hennar sáran, því að þá várð hanh áuðvitað af því, sem hún. hafði lagt með sér til heimilisins. Þegar hún hafði látið barnið í vögguna og hlúð að því, setti hún pönnu á eldavélina, og indæl angan af kjöti og lauk fyllti eldhúsið. „Þú verður að borða með okkur,“ sagði hún. „Jimmi er uppi í baðherberginu. Ég er viss um, að hann myndi fara með þig út á knattspyrnuvöll, ef hann væri ekki eins þreyttur og hann er. Hann hefir unnið svo mikið seinustu dagana.“ Jimmi kom niður stundu síðar, hreinþveginn og slétt- greiddur. „Þú ert þá kominn,“ sagði hann. Þessi kveðja og brosið, sem henni fylgdi, var þrungnari hlýju og vinsemd en orö fá lýst. Við settumst undir eins að snæðingi. Kata gaf mér eins mikið og ég vildi af mjúku og góðu kjöti, og Jimmi jós eins miklu af lauk á diskinn og á honum tolldi. Á eftir þessu drukkum við sterkt te og með því brúnað brauð með smjöri. Þau vissu, hve lélegt viðurværi ég átti við að búa heima fyrir og lögðu þess vegna að mér að borða sem mest. Öll unglingsár mín á Sjónarhóli hafði sama krafan eitrað andrúmsloftið: Það var nauðsynlegt að spara, jafnvel þótt um beinar nauðþurftir væri að ræða. Heitasta ósk mín var að losna undan oki þessarar skozku sparsemi — ég vildi heldur fá sæmilegan mat en vita peningana hrúgast upp í banka og sparisjóðum. Mér fannst gjafmildi miklu æðri þessari djöfullegu nízku, sem bældi okkur öll og kúgaði í skugga sírium. Þegar við vorum búin að drekka teið, byrjaði Jimmi að stríða mér. En hann komst fljótt að raun um, að ég var annars hugar þennan dag. „Prófessorinn er í þungum þönkum í dag,“ sagði hann þá. „Þessi gáfnaljós og spekingar — það er erfitt að gera sér í hugarlund, hvað þeim kann að liggja á hjarta.“ Kata kinkaöi kolli og brosti til mín, eins og hún vildi segja, að ég mætti ekki kippa mér upp við glensyröi hans. „Þetta er einstakur hugsuður, hélt Jimmi áfram. „Svona menn vita allt — bæði þessa heims og annars. Ekki sízt, þegar þeir eru stökkmenn líka.“ Þetta síðasta laut að því, að ég hafði borið sigur úr býtum hástökki á kappmóti skólans í íþróttum. Ég roðnaði af gleði, þegar hann minntist á þetta, því að ég hafði sett skólamet og var ærið hreykinn af því. En skapbrigði mín uröu snögg, þegar Jimmi hélt áfram, jafn rólegur og áður: „Annars gæti ég bezt trúað, að hann sé ástfanginn.“ —- Hversu brá mér ekki! Og hversu innilega þótti mér ekki vænt um þessi orð í leynum hjartans, því að ég fann, aö þau

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.