Tíminn - 06.02.1948, Side 8

Tíminn - 06.02.1948, Side 8
22 [jiís. mál síldar bárust til Reykja- víkur s.l. sólarhring Síidaraflinn er enn hinn •éami í Hvalfirði og hafa mörg fkip komið hingað inn til Reykjavíkur með fullfermi síðan um hádegi í gær. Veiði- veður hefir verið gott síðast- liðinn sólarhring og er enn. Hkíþin, sem komið hafa með 'sild síðan um hádegi í gær ‘túi jafnlengdar í dag eru þessi: Ingólfur 1100, lngólf- nr MB. 400, Ármann 900, Hiímir og Reykjaröst 1200, Gunnvör 1200, Sædís 150, Skógafoss 300, Þorsteinn AK. 700, Þorgeir goði 650, Freydís 800, Geir goði 500, Freyja 850, Jón Þorláksson 750, Helgi 1625, Bjarnarey 1350, Dóra 800, Morgunstj arnan 550. Áls- ey 1700, Svanur 850, Fell 1500, Illugi 1000, Reynir 700, Særún 570, Ásgeir 750, og Vonin 1000. Nú sem stendur er Hvassa- fell að taka síld tii norður- flutnings og er það að verða fullfermt. Þá er Sæfell frá Vestmannaeyjum líka að taka sitd,. Onnujr skip eru ekki reiðubúin til síldarflutninga, því að flutningaskipin hafa tafjzt nokkuð á norðurleið undanfarna daga vegna veð- urs. Næsta skip, sem von er á til síldarflutninga er Hel, en það er ekki væntanlegt fyrr en á sunnudagsnótt. Far ið veröur að losa í þró úr all- mörgum skipum, en mörg mun þó bíða slídartökuskips. 6. febrúar 1948. 29. biað Það varð ekki hlutskipti íialskra hernianna að fylgja Viktor Em- anúel, fyrrverandi Ítalíukonuiigi, til grafar á dögunum. Það gerðu cgipzkir sjóliðar. — Mynd þessi af líkfylgdinni var tckin á giitu í Alexandríu. Frá bæjarstjórnarfundi: Útsvörin í ReykjavíMæ hafa toiffaldazt síðan 19 yjafjaröar a glæselegan að baki Félagið Iiefir nú starfað í tíu ár og síaftið fyrir miklissai byggingaframkvæmdum í faeraí&iim á því tímabili Samvinnuby^gjngaféíag Eyjafjarðar hefir nú starfað í 10 ár, og á vegum þess hafa verið byggð 89 íbúðarhús, auk fjöl- margra peningshúsa. Gísli Kristjánsson, ritstjóri Freys, var nýlega á ferð í Éýjafirði og kynntist þá m. a. nokkuð starf- semi félagsins þg liefir hann góðfúslega látið Tímanum í té eftirfarandi fregiiir af starfi og framkvæmdum þess. Eftirtektarverbar tilraunir: ,0.,, Islenzkt tal af stál- þræði með kvik- myndum Þeir Magnús Jóhannsson og Sveinbjörn Egilsson út- varpsviðgerðamenn hafa að undanförnu gert tilraun með ýmis konar notkun stálþráð- arins, meðal annars við flutn ing íslenzks texta við kvik- myndir. Hafa þær tilraunir þegar gefið góða raun. I sumar tóku þeir félagar mikið af útvarpsefni upp á stálþráð í sambandi við Heklugosið, og eiga þeir um fimm klukkustunda dagskrá áf slíku efni á stálþræði. — Táéklð, sem þeir nota við þess áf upptökur, er amerískt og er lítið fyrirferðar, á stærð við ferðaritvél. Tækið vegur um 12 kg. v' Að undanförnu hafa þeir félágar, ásamt Pétri Péturs- syhi útvarpsþul, gert tilraun- ir með að samræma íslenzk- an texta kvikmyndum um leið og þær eru sýndar. Ein slík mynd var sýnd blaða- mönnum í gær, en það var kennslumynd í rafmagns- ffgeði, og flutti Pétur talið. Tókst sú tilraun vel og gefur góðar vonir um að takast megi að samræma tal við kvikmyndir með þessum hætti, þótt aldrei verði það eins fullkomið og öruggt og raunverulegar talmyndir. í þeim kvikmyndurn, sem við sjáum venjulega í kvik- (FramHald á 7. síðu) Fuihrúi Framsóknurflokksins, Fálmi Haimessoit, lagSSi til, að «Sroj*'ið yrðl ár á tg jj ÖI dam uni í gærkveldi og siðastliðna nótt ræddi bæjarstjórn Reykja- víkur fjárhagsáætlun bæjarins fyrir hið nýbyrjaða ár. Fund- urinn mun hafa staðið fram á dag, svo að þetta er nætur- verk, eins og oft áður. Er það einkennandi fyrir þetta stór- mál bæjarins, sem varðar hagsmuni allra þegna hans, að það skuli vera rætt að nóttu til og gengið til atkvæða um það af syfjuðum mönnum og þreyttum, þegar aðrir íbúar borgarinnar ganga að starfi sínu eftir livíld næturinnar. 54 miljónir. Frumvarpið að fjárhagsá- ætluninni gerði ráð fyrir 54 milljóna króna gjöldum. Þar virtist lítil viðleitni til hófsemdar eða sparnaðar. Þó átti þessi upphæð eftir að hækka allverulega í meðför- um næturfundarins. Varasamt að auka sífellt álögurnar. Fulltrúi Framsóknarflokks- ins, Pálmi Hannesson, benti rækilega á það í ræðu á fundinum, hver hætta væri fólgin í þessari stefnu, að auka stöðugt álögurnar á borgurunum. Nálega allar til- lögurnar miðuðu að því, að þyngja byrðarnar á herðum fólksins. Skattþegnar Reykja vikur, hinir vinnandi íbúar bæjarins, yrðu að borga alla þessa styrki, sem að vísu væri ánægjulegt að samþykkja, ef ekki er hugsað um hvernig fjár til þeirra er aflað. Bæjarstjórnin ætti að hugsa málið vel. Fjármála- öngþveitið er þegar orðið svo mikið, að einhvers staðar verður að byrja að spyrna við fótum. Útsvörin tólf- faldazt á 10 árum. 1938 voru útsvörin í Reykja vík 4 millj. 347 þús. en 1947 eru þau 51 millj. króna. Þau hafa með ö. o. nálega 12 fald- azt meðan vísitala fram- færslukostnaðar hefir þre- faldazt. Þetta eru geigvænlegar töl- ur, sagði Pálmi. Hér er al- vara á ferðum. Bæjarstjórn- in lækkar útsvörin, ef hún setur sig vel inn í líf borgar- anna. Fjöldi mæðra í þess- um bæ hefir ekki efni á að kaupa sér hjálp við störf sín. Það er ekki betra verk að heimta peninga af þeim en að neita sér um að sam- þykkja eitthvað af þessum 60 millj. króna útgjöldum, sem talið er forsvaranlegt að greiðslur Reykjavíkur nemi á árinu 1948. — Lœkkunartillögur Pálma. Pálmi Hannesson flutti breytingartillögur um að lækka framlag til gatnagerða úr 5 í 3^2 millj. kr. og fram- lag til húsbygginga úr 3y2 í 2 millj., eða á þessum tveim- ur liðum um samtals 3 millj. króna. Þau er auðvitaö nauðsyn- legt, að byggðar séu góðar í- búðir. En eins nú er ástatt í landinu, myndi ekkert meira verða byggt, þótt bærinn ráð- izt í stórfelldar íbúðarbygg- ingar. Fjárhagsráð getur af gjaldeyrisástæðum aðeins leyft byggingu ákveðinnar tölu íbúða, og sú tala myndi ekki hækka, þótt Reykjavík- urbær væri þar aðili að. — Breytingin yrði sú ein að færri fengju að byggja sjálfir. Húsnæðismálum Reykjavík ur er því ekki að neinu leyti betur borgið, þótt bærinn verji mörgum milljónum til bygginga. Borgarstjóri tók dauflega í þessi mál, en véfengdi þó ekki rök Framsóknarfulltrú- ans. Samvinnu^yggingarfélag Eyjafjarðar vyr stofnað á vegum Kaup,félags Eyfirðinga! og hóf starfsériíi sína árið ’38, og hefur KEA ætíð síðan veitt starfseminni stuðning, meðal annars með því að veita fé1 til þess að greíSa laun bygg- ! ingafræðings," 'ér samvinnu- j byggingaf élagið hefir haft sem ráðunatffc?->:‘- Miklar byggingafram- kvœmdir á vegum félagsins. v A fyrstu árú'm félagsins hafði það engífi afskipti ,af öðrum byggirigtim en íbúðar- húsu.m, eða fráfn til ársins 1943, en hin síðari ár hefir verkahringurinrr vikkað svo, að flestar byggingarfram- kvæmdir sveitanna haía færzt inn á stajffssviðið. Á þessum tíu starfsárum hefir félagið staðið fyrir byggingu 86 íbúðarhúsa, 1 samkomuhúss,' 9 geymslu- húsa, 5 fjárhúsá,1 47 fjósa, 34 hlaöa 2 mykjuhúsa og 7 þvag gryfja. Á þessu yfirliti sést, að byggingarframkvæmdir fé- lagsins eru allmiklar. Árið 1943 var fyrsta, fjósið byggt, og síðustu árin voru þau mjög mörg og samtímis fór félagið að hafa afskiþtl af byggingu alls konar útihúsa. Yfirgncefandi meirihluti bygginga í héraðinu á vegum félagsins Að sjálfsögðú hefir eitt- hvað verið byggt af penings- húsum og öðrum útihúsum í héraðinu þau árin, sem félag- ið hafði þau ékki í verka- hring sínum, og einnig mun eitthvað hafa verið byggt af öðrum en þeim, sem gerzt hafa félagar í Samvinnubygg- ingafélaginu. En yfirgnæf- andi meirihluti þeirra bygg- inga, sem reistar hafa verið í sveitum héraðsins á þessu tímabili og tilheyrðu verka- hring félagsins, munu hafa notið aðstoðar félagsskapar- ins á einn eða annan hátt Starfsemi félagsins til. fyrirmyndar. j Um starfsemi þessa hefir j verið furðu hijótt utan hér- aðs — því miður — því að ' vissulega hefir þar verið eitt ! og annað, sem vel mátti vera öðrum fyrirmynd til eftir- breytni í starfsháttum og skipulagi, og mundi ekki mið j ur fara, þótt reynsla þessa félagsskapar yrði tekin til eft irbreytni, þar sem við á, þeg- ar til framkvæmda koma ræktunar- og húsagerðarsam þykktir í sveitum, samkvæmt lögum frá 12. jan. 1945. Á s.l. ári breytti Samvinnu- byggingafélagið samþykktum sínum að nokkru til samræm- is við húsagerðarsamþykktir samkvæmt nefndum lögum og hafa þær breytingar hlot- ið staðfestingu stjórnarráðs- ins, enda þótt í þeim séu at- riði, sem telja má að víki í nokkru frá hliðstæðum ákvæð um byggingasamþykkta ann- arra héraða, Ástæðan til þess* að sam- þykktunum var ekki breytt til fullt samræmis við húsa- gerðarsamþykktir almennt, var sú, að menn töldu ekki rétt að kasta með öllu fyrir borð þeim starfsaðferðum, sem notaðar hafa verið og reynzt vel undanfarin ár, enda mun starfseminni nú verða- haldið áfram á líkum grundvelli og verið hefir. Stjórn og ráðunautur félagsins. Félagið hyggst hafa í þjón- ustu sinni byggingafræðing, svo sem verið hefir 'til þessa. Gerir hann teikningar handa bændum og ferðast um félags svæðið til eftirlits á með- an byggingaframkvæmdir standa yfir. Félagið lýtur þriggja manna stjórn, og hefir Valde- mar Pálsson, fyrrum bóndi á Möðruvöllum, verið formaður frá stofnun þess og er það enn, en ráðunautur félags- ins er nú Snorri Guðmunds- son, byggingameistari á Akur eyri. Vetrarvertíðá Sandi að hefjast Frá fréttaritara Tímans á Sandi á Snæfellsnesi Trillubátarnir hér á Sandi eru byrjaðir róðra, en afli er enn lítill, aðallega vegna ógæfta. En nú nálgast sá tími, að mikill fiskur gengur á miðin, ef að vanda lætur. Bátarnir á Sandi eru 4—7 smálestir. i haust var aftur á móti ekki sóttur sjór frá Sandi, meðal aixpars vegna þess, að hraðfrystihús kaupfélagsins var fullt af fiski, er ekki hafði tekizt að losna við nógu snemma. En nú er á hverjum degi von á skipi til þess að sækja fiskinn, sem í því er, og nýtt fjör aö færast aftur í atvinnulífið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.