Tíminn - 20.02.1948, Side 4
TÍMINN, föstudaginn 20 febr. 1948
39. blað
Sveitagistihús til menningarauka
og gjaldeyrisöflunar
Eftlr Gnðlatig iSúsÍHkranx yfirkennara
una óunna eða hálfunna úr
landi. Enda hefir reynslan
sýnt, að þær þjóðir, sem lagt
hafa nokkra stund á móttöku
ferðamanna eins og t. d.
Norðmenn, Svisslendingar og
Svíar (nú upp á síðkastið)
hafa stórauðgast á því.
Þeim, sem ekki sjá neina
aðra leið til þess að afla þjóð-
inni gjaldeyris en þá að selja
fiSí, er hingað til hefir að
vísu aflað okkur drýgzt gjald-
eyris, finnst það sjálfsagt fá-
vizka að láta sér detta í hug
að afla gjaldeyris á annan
veg, eins og t. d. með gisti-
liúsarekstri fyrir erlenda
ferðamenn. En þetta hafa
samt aðrar þjóðir gert og
skapað sér með því mikla og
örugga gjaldeyristekjur.
Það er því af tveim aðal-
ástæðum, sem við eigum að
reisa gistihús og dvalarheim-
ili í sveitum landsins. í fyrsta
lagi til þess að efla menn-
ingu og hreysti okkar sjálfra
og í öðru lagi til þess að
skapa öruggan atvinnuveg er
veitir erlendum gjaldeyri
ríkulega í þjóðarbúið.
I-Ivernig á að afla fjár til
gistitiúsabygginga ?
Hvar eigum við að fá fé til
þess að reisa gistihúsin? mun
margur spyrja, nú í þessum
gjaldeyrisvandræðum og fjár
magnsleysi sem jafnan er tal
að um. Hvers vegna getum
við ekki farið að líkt og Norð-
menn, þegar þeir byggðu, fyr
ir mörgum árum, sín ferða-
mannagistihús? Þeir fengu til
þess lán hjá Englendingum
og lánin hafa þeir síðan greitt
með þeim sterlingspundum,
sem enskir ferðamenn hafa
greitt. fyrir gistingu, mat og
ýmsa muni, sem seldir eru í
þessum gistihúsum.
Ef leyft yrði að taka erlent
lán til byggingar eins eða
tveggja gistihúsa, mundi vafa
laust vera hægt að fara svip-
aða leið og Norðmenn í þess-
um efnum og hafa af því mik
inn menningarauka og arö.
Tilraun til úrbóta hafin.
Norræna félagið hefir geng
izt fyrir, af brýnni þörf á því,
að koma upp boðlegu gisti-
húsi á þeim stað, sem þess er
mest þörf, á Þingvöllum, að
hafin hefir verið þar bygg-
ing á góðu gistihúsi, sem yrði
til sóma fyrir landið, ef upp
kæmist. Þeir sem að byggingu
þessa gistihúss standa, vænta
þess að stjórnarvöld landsins
sjái þá þörf, sem er á gisti-
húsi á þessum stað. Svo hóf-
lega er líka stillt með stærð
þessa gistihúss, að með rekstr.i
þess mætti fljótlega fá úr því
skorið hversu vel slíkur gisti-
hússrekstur ber sig hér. Þarna
er um hinn ákjósanlegasta
stað aö ræða, hæfilega langt
frá Reykjavík, fær vegur að
jafnaði allt árið, fagur sögu-
staður og.sá frægasti á land-
inu, tækifæri til veiða og báta
ferða á Þingvallavatni og
gönguferða um fjöll og firn-
indi á sumrum, en til skíða-
og skautaiðkana á vetrurn.
Meö því að koma þessu húsi
upp, er úr brýnni nauðsyn
bætt í bili og mundi veita
dýrmæta reynslu fyrir fram-
hald á þessari braut.
Afstaða stjórnmálaflokkanna
Meih hluti fulltiða íslend-
inga 'fer uppalinn í sveit, að
ollu eð'a nokkru leyti. En þró-
un stvinnulífsins í landinu
hefif-valdið því, að nú dvelja
um ýá 'hlutar þjóðarinnar í
kaupstöðum og kauptúnum.
Þeir, sem í kaupstöðum
búa, hafa þó ekki, þótt þeir
dvelji þar nú, slitnað svo úr
tengslum við svitina, að þeir
þrái.hana eklci. Síður en svo.
Það er staðreynd, að bæjar-
búar, , sem hafa alizt upp í
sveit eða dvalið þar langdvöl-
um. .Áafa mikla löngun til að
dvelja í sveitinni, þegar þeir
hafa( tækifæri til þess. Þetta á
ekki aðeins við um okkur ís-
lendinga, heldur engu síður
þjóðir, sem miklu lengur hafa
dvalið í horgum, eins og til
dæmis um Englendinga og
aðra Norðurlandabúa. Þessar
þjóðir leggja á það mikla á-
herzlú að skapa sem flest-
um begnum þjóðfélagsins
tækifæri til dvalar í sveit á
hverju sumri og telja slíka
dvöi bókstaflega nauðsyn
fyrir andlega og líkamlega
iieilbrigði þjóðarinnar.
Meðal þessara þjóða hafa
tjölmörg gistihús og dvalar-
heimili verið reist út um sveit-
írnar. á fögrum stöðum, þar
,sem tækifæri eru til ýmssra
athafna eða íþrótta. Gistihús
þessf eru jafnan búin eins vel
og fópg eru á, svo vistlega og
aðlapandi, að gestirnir geti
funfeUð sig þar heima og það
skaþist hlýja í huga þeirra til
staóarins. Slík dvalarheimili
vantar hér á landi algerlega
gististaði, sem fólk getur
farið t'il um helgar eða dvalið
lengri eða skemmri tíma, eftir
þvi sé‘m efni og aðstæður leyfa
og 'iiótt sér hressingu og
starfsþrótt í skaut náttúrunn-
ar. Þeir kaupstaðabúar, sem
ekkí hafa efni á eða aðstöðu
til þess að eiga sumarbústað,
fara allt of margir á mis við
þá endurnæringu og gleði,
sem x þvi er fólgin að dvelja á
hvildardögum sínum í sveit 1
rkautx náttúrunnar.
Mótéaka erlendra gesta á að
verou arðvœnlegur at-
vinnuvegur.
Enginn efi er á því, að það
mynau ekki aðeins vera við
Ldendmgar, sem vildum
dveija í þeim gistihúsum, sem
við byggöum á fögrum stöðum
a Islúndi. Land vort er svo sér-
'kennilegt, frábrugðið öðrum
lönclum að landslagi og
gróóri, auk þess sem það hef-
ir- upp á hin furðulegustu
nattúruundur að bjóða, að
auðvelt myndi vera að fá
fiingaö erlenda ferðamenn i
tsórhópum og fylla mörg
fjalla- og sveitagistihús. Enda
hefxr þaö nú þegar sýnt sig,
að margir vilja koma hingað,
ef aðeins væri hægt að taka
amóti þeim. En það er ekki,
emS og ástatt er hér með
gistihús. Með góðri kynningu
a okkar fagra og sérkennilega
landi og með þeirri samgöngu-
tsékni, sem komin er, mun
auöveit að fá hingað erlenda
leröamenn í stórum. stíl og
gera móttöku ferðamanna að
arðvænlegum atvinnuvegi,
íyrri fjölda manns. Það er á-
reiðanlega ekki síður hægt að
afla erlends gjaldeyris með
því að selja framleiðsslu okk-
ar fullunna erlendu fólki í
landinu, eins og að senda vör-
Þegar bæjarflokkarnir hafa
til þrautar barizt um fylgi
kaupstaðarbúa snúa þeir
væntanlega vopnum sínum og
áróðri gegn sveitunum. Hing
að til eru það einvörðungu
tveir flokkar, sem þar hafa
átt fylgi að fagna.
Við skulum í fáeinum atr-
iðum gera okkur ljóst hvers
við megum vænta okkur til
hagsbóta frá bæjarflokkun-
um, að óbreyttri stefmi þeirra
og málefnaflutningi.
Fyrst'má fræga telja komm
únista. Þeir ligg.ia undir því
ámæli, að afstaða þeivra til
þjóðmála miöist við vilja og
fyrirskipanir frá erlendu stór
veldi. Framkoma þeirra í
ýmsum málum hefir stj'rkt
þessa trú. f því sambandi
nægir að minna á afstöðu
þeirra augum og nálgaðist
varðandi máli.
Meðan heilt var á yfirborð-
inu milli Rússa og Hitlers,
snerust íslenzkir kommúnist-
ar til hatramlegrar mótstöðu
gegn brezka setuliðinu, er hér
dvaldi. Öll íSlenzk, hjálp því
til handa var fordæmanleg í
þeirra augum og málgaðist
föðurlandssvik.
Eftir að Hitler réðist á Rúss
land 1941 sneru íslenzkir
kommúnistar blaðinu við og
köiluðu sörnu vinnu, (setuliðs
vinnuna) landvarnavinnu.
Þetta er gott dæmi um snún
ingalipurð kommúnista fyrr
og síðar. Eitt er víst, að rúss-
neskir stjórnarhættir hafa á
sér sjúkdómseinkenni ein-
ræðisskipulags. Einnig hefir
land þetta náð tæknilegum á
rangri í áróðri fyrir stefnu
sína og beitt honum hlíföar-
laust í öllum löndum. Full-
yrða má, að rússneskir stjórn
arhættir falla ekki í jarðveg
íslenzkra sveita né yfirleitt
samræmanlegir íslenzkum
hugsunarhætti.
Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti flokkur landsins, bæði
hvað þingm. tölu snertir og
atkvæðamagn. Hann byggir
tilveru sína á óheftu ein-
staklingsframtaki. Hér á
landi starfa undir merkjum
þessa flokks rikustu borgar-
arnir: kaupsýslumenn og
stóratvinnui-ekendur. Auk
þess trúa undarlega margir
á ágæti þessrar ómannúðlegu
stefnu, bæði við sjó og í sveit.
Stefna þessi hefir í öllum
löndum skapað ósætti, sam-
fara ódrengilegum aðferðum
í fjáröflunarleiðum. í auð-
mannaþjóðfélögum hafa efna
hagsástæður jafnan skipzt í
tvö horn: auömenn og ör-
eiga. Kommúnistar vaxa því
hvergi örar og hvergi með
jafnmiklum rétti, eins og, af
(Framhald á 6. síöu)
„Kvenréttindakona innan vi5
tvítugt“ sendir mér línu og held ég
að ég lofi ykkur að sjá erindi
hennar.
„Þar sem ég er kvenréttindakona
get ég ekki látið afskiptalaus um-
mæli „Sveitamanns" um kvenfólk
nú á dögunum, sem birtust í þess-
um pistli hinn 16. þ. m. Hann talar
um að stúlkur, sem eru fæddar og
hennar sti á jörð, sem ekki væri
uppaldar í sveit," segi „frat“ á þá,
vegna þess, að það er húsalykt af
þeim og heystrá eða mosakló í of-
análag.“ Hvað er eðlilegra? Hvern-
ig heldur hann að þrifin stúlka
geti t. d. þolað að maðurinn hennar
korni aö matborðinu með skítugar
hendur og angandi af fjósalykt?
Húsmæður urðu að þola þetta fyrr
á tímum, en ekki húsmóðirin 1948,
því að það er alger óþarfi. Þeir
eiga að fara úr skítagallanum
frammi og þvo sér áður en þeir
koma inn. Það er ekkert á móti því
að gerast bóndakona á góðri jörð
með nýlegu húsi þar sem hægt er
að hafa það huggulegt. En eftir
því, sem „Sveitamaðurinn" talar,
ætti hann að geta veitt tilvonandi
konu sinni það. Svo vona ég að
hann taki það ekki illa upp þó að
ég gefi honum góðar ráðleggingar,
sem hann getur notað næst, þegar
hann fer í konuleit. Pyrir það
fyrsta ætti hann að láta þrengja
buxurnar sínar ofurlítið, það er
svo hlægilegt að sjá. menn labba
í pilsvíðum buxum. Svo væri ekk-
ert á móti því að stífa flibbann,
svo að hann standi ekki beint út í
loftiö. Þaö er líka óttalega ljótt
að sjá knallrauð slifsi og óburst-
aða skó. Svo vona ég að þessi heil-
ræði reynist vel.“
Sveitama'ðurinn svarar fyrir sig,
þyki honum ástæða til, þegar hon-
um berst þetta blað, sem ekki verð-
ur allra næstu daga, því miður, þar
sem hann er langt í burtu. En
benda vil ég okkar ungu vinkonu
á það, að ekki sagði maðurinn, að
húsalyktin fylgdi þeim sveitungum
að borði og sæng, en því skilst mér,
að stúlkan geri ráð fyrir. Hitt er
annáð mál, að bústörf í sveitum
eru misjafnlega hreinleg, þó að
heilagur sé vinnusaurinn, eins og
máltækið segir (heilagur i fuilum
rétti) og því er það ærinn munur
að þvo föt af sveitamönnum eða
skrifstofumönnum.
„I*að er ekkert á móti þvi, að
gerast bóndakona á góðri jörð, með
nýlegu húsi, þar sem hægt er að
hafa það huggulegt," segir stúlkan.
En hvað finndist henni, ef elskhugi
hennar sæti á jörð, sem ekki væri
búið að byggja á og ekki nema að
nokkru leyti búið að gera góða,
því að fæstar íslenzkar jaröir 'nafa
verið góðar frá hendi náttúrunnar?
Maöurinn ætlaði sér að gera jörð-
ina góða og byggja á henni góð
hús. Vildi hún ganga með honum
að því uppbyggingarstarfi eða snýr
hún baki við honum, af því hann
ætlar sér að vinna þetta þjóðþrifa-
verk sjálfur, en aðrir eru ekki bún-
ir að því fyrir hann? Eða lætur
hún víddina á buxunum hans ráða
úrslitum, flibbann, bindið og
skóna? Það væri óneitanlega fróð-
legt að sjá í hug hennar og fá að
vita þetta. Hvað hugsa okkar ungu
kvenréttindakonur? Vilja þær
ganga út í harða baráttu til að
skapa betra og farsælla þjóðfélag
t. d. með því að rækta landið og
byggja upp? Eða vilja þær aðeins
leita þangað, sem þægindin eru
komin og njóta ávaxtanna af unnu
starfi annarra?
Pétur landshornasirkill.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
Ingikjai'gar Þópðardóttiir,
Hofsstöðum.
Vandamenn.
Við þökkum innilega vinum og vandamönnum auð-
sýnda samúð við fráfall og jarðarför
séra Árna l*órarmss©iiar
frá Stórahrauni.
Sérstaklega þökkum við fyrrverandi sóknarbörnum
hans og prófasti og presti Snæfellsnessprófastsdæmis.
Elísabet Sigurðardóttir.
börn og tengdabörn.
o
o
n
o
o
n
o
o
o
Því fleári sem við erum,
því melra getum við.
Leggjmai ©II lið ©kkar til
starfs samwimmfélagaima
©g kætram liaimig kjjör
al'inesmings í lanelism.
I
Samband ísl. samvinnufélaga