Tíminn - 28.04.1948, Blaðsíða 8
Reykjavík
28. apríl 1948.
94. blaö
Mvei’s eiga sjómesmls*mr ai gjalda?
Óviðunandi aðbúnaðursjómanna
í verbúðunum í Sandgerði
í báöum þessum húsum cru íbuðir sjórnanna í SandgerSi uppi á lofti,
en aðgerð og beitning fer fram niðri.
(Ljósm.: Guðni hórðarson)
liesl sk3g*«Sa«fí2 Sasrisf moð ráðskonu sitiaii
á essasa boriiergi, |»ar sena livorki er vatns-
Eög’n uó skélisreima «$»' ekki anuað sal-
erni en fjaran
Með hverju árinu sem líöur verður erfiðara að fá sjó-
i menn á bátana, sem gerðir eru út frá Sandgerði. Er Sand-
I gerði þó ein bezta verstöð sunnan lands, og hlutir þar oft
' með þeim liæstu við Faxaflóa. Ein meginástæðan fyrir
þessu mun vera sú, að aðbúnaður sá, sem vertíðarsjómönn-
um er þar boöið upp á, er fyrir neðan allar hellur og alls
ekki mönnum bjóðandi. Svipaða sögu verður raunar að segja
af verbúðum í fleiri verstöðvum. Tíminn hefir sent blaða-
mann til Sándgerðis, meðal annars til að kynna sér þetta
vandræðaástand.
Bátur kcmur úr róðri í Sandgerði. Landmennirnir eru fyrstir á
bryggjuna til að laka á móti bátnum.
(Ljósm.: Guðni Þóröarson)
Fimm ný sundmet sett á
meistaramótinu í gær
Met Sigurðar Jónssouar Þingcymgs
sérstaklega glæsilegt.
Sundmeistaramót íslands hófst hér í Reykjavík í gær-
kveldi. Þar setti Sigurður Jónsson, Þingeyingur, glæsilegt
íslenzkt met í 409 metra bringusundi. Þá setti Ari Guðmunds
son, úr Ægi, nýtt íslandsmet í 100 metra skriðsundi karla.
Helztu úrslit urðu þessi:
100 m. skriðsund:
Ari Guðmundsson, Æ, 1.00,8
mín. (ísl. met), 2. Sigurður
Jónsson, HSÞ, 1.04,6 mín., 3.
Ólafur Diðriksson, A, 1.07,5
mín. og 4. Ólafur Guðmunds-
son ÍR, 1.07,6.
100 m. baksund kvenna:
Kolbrún Ólafsdóttir, A,
1.32,6 mín. (ísl. met), 2. Anna
Ólafsdóttir, A, 1.38,0 mín., 3.
Anný Ástráðsdóttir, A, 1.45,9
mín. og 4. Guðrún Jónmund-
ardóttir, KR, 1.55,8 mín.
400 m. bringusund karla:
Sigurður Jónsson, Þing.,
HSÞ, 5.52,7 mín. (ísl. met),
2. Sigurður Jónsson, KR,
6.10,0 mín., 3. Atli Steinars-
son, ÍR, 6.24.2 mín. og 4. Egg-
ert Guðjónsson, KR, 7.10,8
mín.
3x50 m. boðsund kvenna:
Glímufél. Ármann (A-sveit)
2.01,7 mín. (ísl.mp-t), 2. Ár-
mann (B-sveit) 2.K7, 1 mín.
og 3. KR 2.23,0 mín. j A-sveit
Ármanns voru: Anna Ólafs-
dóttir, Kolbrún Ólafsdóttir og
Þórdís Árnadóttir.
4x59 m. skriðsund karla:
Ægir 1.54,8 mín. (ísl. met),
KR 1.58,7 mín., 3. ÍR 1.58,7
mín og 4. Ármann 2.01.7 mín.
50 m. skriðsund drengja: 1.
Georg Franklínsson, Æ, 21,0
sek., 2. Jón Arnason, IR, 32.3
sek., 3. Guðjón Sigurbjörns-
son, Æ, 32.7 sek. og 4. Pétur
Pétursson, KR, 32.8 sek.
Mótið heldur áfram í kvöld.
jVerður þú m. a. keppt í 400
I m. skriðsundi karla, 100 m.
! baksundi karla, 200 m. bringu
j sundi kvenna og 3x100 m. boð
sundi karla.
Bretar og
Batidaríkjamenn
gera sameiginlega
varnaráætiun
Það Ix'tir nú verið gert
kunnugt, að Bretar og Banda
ríkjamenn hafi gert sameig-
inlega varnaráætlun, ef Rúss
ar eða aðrir gerðu skyndiárás
J á eitthvert ríki Evrópu. Munu
þeir þá koma fram sem einn
aðili og hefja sameiginlegar
varnarráðstafánir. Samning
ar um þetta hófust fyrir
nokkru, og hefir nú hermála
: nefndum brezka og banda-
j ríska þingsins verið skýrt frá
' þessu.
Mannabústaðir eða
aðgerðarskúr /
í stórum tvílyftum húsum
niður við bryggjurnar eru
hvorttveggja í senn aðgerðar-
og beitningarpláss bátanna
og mannaíbúðir. Húsin eru
?ömul og gersneydd öllum
þægindum nútímans, svo sem
vatnslögn og salernum. En
þetta eru samt heimili hátt á
þriðja hundrað sjómanna og
nær tuttugu kvenna yfir ver-
tíðina, kaldasta og illviðra-
samasta tíma ársins.
Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir tekst manni ekki að
finna innganginn upp á ibúð-
arloftið neðan úr aðgerðar-
salnum. Ýmist lendir maður
þar inn um dyr, sem verið er
að gera að fiski, stokka línu
eða raga saltfisk. Hvergi sjást
nein rúm, svo að þetta geta
ekki verið hinar illræmdu ver-
búðir.
En þarna ekur ungur sjó-
maður á undan sér hand-
kerru, með vatnsilátum, sem
upp úr skvettist við annað
hvert fótmál. Við skulum
fylgjast með honum inn í í-
búðir sjómanna, því hann er
að sækja vatn handa ráðs-
konunni.
Tvœr skipshafnir
búa á loftinu.
Loks er farið inn um þröng-
ar dyr og gengið upp gamlan
og slitinn stiga.sem hriktir í
viö hvert fótmál. Á loftskör-
inni standa tvær dyr opnar,
því að á þessu lofti eru tvær J
verbúöir — íbúðir tveggja j
skipshafna.
Verbúðin er hvor um sig'
me'ðalstórt herbergi, heldur í
lengra lagi. Líklega einir tíu t
metrar á lengd og fj órir á
breidd.
í annarri sjóbúðinni er ráðs ■
konan aö baka kleinúr. Það
hlaut líka að vera, því aö
kleinulyktin angaði á móti i
manni alla leið út á bryggju. j
. Feitin gnestur í pottinum og;
i lítið borð við hliðina á elda- \
| vélinni, sem er í horni frammi j
l við dyr, er alþakið óbökuðum,'
en mótuðum kleinum. í gegn- ,
um reykjarsvæluna sér grilla '
í spariföt sjómanna, sem í
hanga á veggnum, andspænis
eldavélinni og alla leið inn að ,
, glúggakytrúnni á gaflinum.
Loftiö í báðum þessum her-
bergj um er þungt og daunillt, j
og kunnugir tjáðu tíöinda-’
' manni blaðsins, aö það væri i
hreysti sjómanna einni að
þakka, aö fjöldi manns hefði
ekki veikzt í þessum híbýlum
i vetur.
Ekki rúm fyrir fœturna.
Með öðrum veggnum eru
allar kojurnar undir súö. Þær
eru tólf, þvi það á að heita að
hver maður hafi sína koju.
En þó ekki aö öllu leyti, því
að þeir félagarnir verða aö
lána hver öðrum dálitið pláss
fyrir fæturna.
Koj urnar eru svo stuttar, að
sjómennirnir hafa orðið að
brjóta fótagaflana til aö geta
legið endilangir í fletunum.
í annarri sjóbúöinni eru
flestir landmennirnir heima.
Fyrir framan kojurnar flest-
ar eru koffort — einu hirzl-
urnar, sem þekkjast í þessu
húsi. Sumir sitja klofvega á
koffortum og spiia. Aðrir
liggja uppi í kojum og lesa og
enn aðrir snúast i kringum
ráðskonuna, sem allir elska,
og hjálpa henni við erfiðustu
verkin. — Þeir eru að bíða
eftir að báturinn þeirra komi
að. En hann er seinn í dag, og
þess er getið til, að hann hafi
sótt suöur á Grindavíkurdjúp.
Hvítþvegin gólf
En það eru fleiri hliðar á
þessari sj óbúð en þrengslin og
hin slæma aðbúð. Þrifnaður-
inn er hér svo mikill að af ber.
Trégólfið er svo hvítt og
hreint, að maður fer hjá sér
að ganga þar inn á skóm. Allt
er í röð og reglu. í eldhús-
skápnum, sem er lítil hilla úr
sex þumlunga borði yfir elda-
vélinni, er allt í röð og reglu.
En hér eru engin þægindi,
hvorki hrærivél né ísskápar,
og ættu þó kannske fáir frem
ur skilið að njóta slíkra tækja
Hér er aðeins ein eldavél,
sem er kolakynt.
karlmanna og einnar stúlku.
— Ertu ekki feimin að sofa
hérna innan um karlmenn-
ina? verður manni á að spyrja
ráöskonuna. En hún brosir
bara og segir: — Það er ekki
á öðru völ hér, og hvað þýðir
þá að vera aö setja það fyrir
sig? Sjómennirnir eru kurteis-
ir og viðmótsþýðir. — Það er
auðséð að þessi tvítuga stúlka
kippir sér ekkert upp við það,
þótt ekki hafi hún sérher-
bergi.
Nábýlið viö karlmennina
ekki það versta.
En svo bætir hún við: — Úr
því að þú ætlar að skrifa um
þetta i blööin, þá, góði bezti,
segðu, að það sé hér annaö
verra en nábýlið við karl-
mennina. Og það er vatns-
leysiö og að ekki skuli einu
sinni vera skólprenna niður
af loftinu út í sjóinn, sem er
hér alveg viö vegginn. Þaö er
ekki nóg meö, að við þurfum
að bera allt vatn upp — það
þarf líka að bera þaö niðurr
Um salerni ræðir maður ekki
á þessu stigi — sjórinn og
fjaran eru hérna við húsvegg-
inn. —
Ráðskonan er í einu liorn-
inu — elclavélin i hinu.
En hvar sefur ráðskonan?
Jú, hún sefur þarna í hinu
horninu, þar sem eldavélin er
ekki. Það er hægt að rétta
höndina úr neðri kojum karl-
mannanna yfir í rúmið henn-
ar, og þó kvað þaö aidrei vera
gert. Uppi við vegginn á milli
ráðskonurúmsins og eldavél-
arinnar er borð, svo aö hvergi
er veggpláss ónotaö í þessu
herbergi, sem er heimili tólf
Breytinga þörf.
Þannig er þá aðbúðin, sem
íslenzkum sjómönnum er boö-
ið upp á á tuttugustu öldinni,
meðan hvert stórhýsið á fæt-
ur öðru er reist, sum yfir miö-
ur þarfa starfsemi. Hér er
heill og velferð þjóðarinnar í
voða — fólkið hlýtur aö flýja
svona aðbúð. Þetta getur þjóð
með þúsund ára menningu
ekki sætt sig við í dag. Mun-
urinn á þessum sjóbúðum og
moldarkofunum fyrir hundr-
að árum er sáralítill.
Það þarf sem fyrst að bæta
aðbúð vermannanna í Sand-
gerði, svo að þeir geti búið
við svipuð skilyrði og aðrir
þj óðf élagsþegnar.
En síðar meir þarf að reisa
í þessari miklu verstöð stór-
hýsi yfir margar skipshafnir,
þar sem hægt er að búa við
þægindi nútímans, án þess að
stofna heilsu sinni í voða.
Munu þá fleiri úrvalssjómenn
fást til að sækja frá Sand-
geröi gull í greipar Ægis á hin
fengsælu mið úti fyrir Reykj a
nesinu.
Munið Framsóknar-
vistina á morgun
Síöasta Framsóknarvistin á
þessum vetri verður í sam-
komusal nýju mjólkurstöðv-
arinnar við Laugaveg næstk.
fimmtudagskvöld og hefst
stundvíslega klukkan 8 s.d.
Sigurður Ólafsson mun
syngja einsöng. Framsóknar-
fclk, sem ætlar sér að sækja
vistina, er áminnt um að
tryggja sér aðgöngumiða í
tíma í síma 6066, þvi að bú-
ast má við, að aösókn verði
meiri en hægt er að sinna,
eins og vant er.