Tíminn - 25.05.1948, Blaðsíða 8
Tveir íslenzkir
biaðamenn á móíi
yiTv-i ••
'roi.yí
ro ’f-p
Blaðamannamót Norræna
félagsins hófst í Stokkhólmi
í gær. í sambandi við mótið
vejðnr farið í ferðalag í kring
m Siljan, hin fögru héruð
könnuð og ýmsar merkar
ntenningarstofnanir stórfyr-
irtebki heimsótt.
Mótinu lýkur í Gautaborg
hyjúní.
- T-veir íslenzkir þátttakend.
u?r: ,eru á mótinu, þeir ívar
G.uðmundsson, fréttaritstjóri
Moi'gunblaðsins, og Vilhj. S.
ViJhjálmsson blaðamaður hjá
Alþýðublaðinu.
dftíin efnir fif leik-
sýningar fyrir börn
Kvenfélagið Hringurinn i
Reykjavík efnir til barna-
skemmtunar í Austurbæjar-
bíó, næsta fimmtudag og verð
ur þar sýnt leikritið ,,Grá-
mann í Garðshorni", sem er
sanuð. eftir samnefndri þjóð-
sogu af Drífu Viðar. Leikend-
ur eru eingöngu börn, en
Ævár Kvaran leikari h.efir
æft, leikinn og annast leik-
stjcrn. Sif Þórz hefir annazt
dansana, en Sigfús Halldórs-
son málað leiktjöld.
Takmark Hringsins rneð
þessári leiksýningu er fyrst
og fremst þaö að láta börn-
um i té. holla og ódýra
skemmtun við hóflegu verði,
en er ekki gerð í fjáröflunar-
skyni. Verði hins vegar ein-
hver ágóði af þessum sýning
um, mun hann renna til bygg
ingarsjóðs barnaspítala.
Leiksýningin hefst klukkan
3 á' fimmtudaginn í Austur-
. bæjarbíó og þarf varla að
éfa. aö hún verður fjöisótt. |
Nú tr kominn sá tími, a'ð farið er að búa flotann undir síidveiöariiar fyrir Norðurlandi. Flestir vél-
fcátarnir, sein stundað haí.i íijó á vetrarvertíðinni, eru teknir á land að henni lokinni, maiaðir og
dyttað að þeim undir sumarvcrtíð na. Nú cr það timaiíil i verstöövunum sunnaniands, þegar tiltölu-
icga miúnst ef um ao vera. M.ynd n er íekin í Hafnarfirði og sér út yfir höfnina. Á ströndinni eru
■ vélbátar, sein búið cr að taka á land til viðgerða undir síldveiöarnar í sumar.
(Ljósm.: Guðni hóraðarson).
ykjavíkur seldí
milj. kr. sl ár
Priéíí iyrlr vösitsasa á ýisasaosa vöraa-
íeg'ggsacIimB.
Aðalfundur Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis var
haldinn sunnudaginn 33. maí 1948. Fundinn sátu 109 full-
trúar, félagssijórn, framkvæmdastjóri og endurskoðendur,
og cinnig nokkrir starfsmenn félagsins, sem gestir. Formað-
ur íél^ins, Sigfús Sigurhjartarson, fluíti skýrslu félags-
stjörriár, cn framkvæmdastjóri, ísleifur Högnason, flutti
skýrshi ara hag og rekstur félagsins.
Agætur afli hjá tog-
landi
Slðustu dagana hefir ver-
ið ágætur afli hjá togbátum
fyrir Norðurlandi, og hafa |
þeir einkum fengið aflann á 1
Skjálfanda. Fiskurinn er all-
ur látinn ísvarinn í flutninga
skip, sem sigla með hann
nýjan á markað. Liggja fisk-
tokuskipin utarlega í Eyja-
firði, hjá Dalvík eða Hrísey.
í dag leggur Pólstjarnan af
stað til Þýzkalands með full-
fermi. Þá er Straumey byrj-
uð að taka bátafisk til út-
flutnings. Pólstjarnan er ann
að skipið, sem fer utan með
norðlenzkan bátafisk. En
Snæfellið er væntanlegt til
Akureyrar í dag úr fyrstu
söíuferðinni.
Akureyrartogarinn Kald-
bakur var að veiðum úti fyr-
ir Norðurlandi síðast cg afl-
aði vel. Hann er farinr. fyrir
mokkrum dögum til Þýzka-
lands með fullfermi, sem
íiann fékk á 9 dögum.
Vörusala félagsins árið 1947
nam kr. 17.698.205.76, en
tekjuafgangur kr. 778.294.98.
Samþykkt ■ ar að úthluta í
stofnsjóð og til útborgunar
7% af ágóðaskyldum við-
skiptum félagsmanna.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga: Theodór B. Líndal,
Sveinbjörn Guðlaugsson og
Guðrún Guðjónsdóttir, og
voru þau öil endurkosin.
Meðal tillagna þeirra, sem
samþykktar voru, var áskor-
un á yfirvöldin að auka leyfi
til innflutnings handa félag-
iun, vítur til meirihluta al-
þingis um að fella á síðasta
vetri frumvarp, er tryggði
samvinnufélögunum réttlát-
an inní'lutning', og: áskorun
til samvinnumanna að sam-
einast undir forustu Sam-
bands íslenzkra samvinnufé-
liggja sex daga í sandinum.
laga til baráttu fyrir leiðrétt
ingu á því ranglæti, sem nú
ríkir, krafa um aukna hlut-
deild samvinnufélaganna í
innflutningi heimilisvéla og
áskorun um rýmkun á kaffi-
og sykurskammti.
Banska dragnóta-
bátnum náð á flot
Danski dragnótabáturinn
Klitmöller, sem strandaði við
Landeyjarsand fyrir nokkru
náðist á flot fyrir helgina.
Voru það tveir danskir bát-
ar, sem unnu að björguninni
og náðu bátnum út. Hann
var algeriega óskemmdur
þótt hann væl'i búinn að
• •
Arnulf Overland les
upp í Hátíðasal Há
skólans í kvöld
Norska skáldið Arnulf Över
iand les í kvöld upp úr skáld-
verkum sínum í hátíðasal Há-
skóians á vegum Nordmanns-
laget. Úpplegturinn hefst
klukkan 8.30 og er öllum heim
ill aðgangur meðan húsrúm
leyfir. Aðgöngumiðar fást í
verzlun L. H. Muliers í Aust-
urstræti 17. Er þetta síðasta
tækifærið, sem mönnum gefst
til þess að hlusta á Överland
að þessu sinni.
Överiand hefir þegar farið
til Þingvalla í boði Norræna
félag.sins og mun fara að
Gullfoss og Geysi á morgun.
Á fimmtudaginn mun hann
ef til vill lesa upp í útvarp-
ið og síðan fer hann heim
með flugvél á föstudags-
morgun.
Lögreglu og her
skipað að vera við-
búnum, ef til óeirða
dregur í Finnlandi
Allmikil verkföll hafa átt
sér stað í Finnlandi vegna
brottvikningar Leino innan-
ríkisráðherra. Hafa komm-
únistar efnt tii fjöldafunda
til andmæla og krefjast þeir
þess, að fá flokksmenn sína
bæði í embætti innanríkis-
ráðherra og aðstoðar-utan-
ríkisráðherra, sem einnig er
laust um þessar mun.dir.
Hóta þeir verkföllum og of-
beldi, ef ekki verður faliizt
á þessa málaleitun þeirra.
Leino fiutti ræðu á fjölda-
fundi í Helsingfors í gær-
kvöldi. Paasikivi hefir skip-
að svo fyrir, að lögregla og
her verði reiðubúin að koma
í veg fyrir óeirðir, ef til
þeirra skyldi draga.
Finnska verklýðssamband-
ið hefir þó lýst yfir hlutleysi
sínu í þessum átökum.
113. blað
Daglegar ferðir bif-
reiða til Aknreyrar
hef jast nm mánaða-
mót
Fastar, daglegar ferðir
munu hefjast milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur 1. júní. —
Það er póst- og símair.áia-
stjórnin, sem hefir þessar sér
levfisferðir og verður þeim
nagað með svipuðum hætti
og í fyrra. Eru traustar og
góðar bifreiðir í þessum för-
um og eru þar m.a. 3 Renault
hifreiðar, en tvær þeirra voru
teknar í notkun lítils háttar
í lýrra og reyndust mjög vei.
Að undanförnu hafa verið
tvær ferðir í viku noröur. —
Upp úr mánaðamótunum
mu.nu og hefjast ferðir aust-
ur um land frá Akureyri ög
verður ekið um Mývatnssveit
og austur yfir Fjöll, yfir hina
nýju brú á JökuLsá. Sést nú
geria, hve sú brú er rnikils
virði, er ferðir geta liafizt
austur miklu fyrr en áður
vai, enda er Reykjaheiði und
ir snjó enn og þess langt að
biða, að hún verði fær bif-
reiðum. Én auk þess styttist
vegurinn austur að miklum
mun. Færð er nú talin sæmi-
leg á Fjöllunum austan Mý-
Vc tns, og hafa bifreiðar þeg-
ar í'arið frá Grimsstöðum á
Fjöilum ofan í Reykiahlið.
En hætt er þó við, að veg-
urinn vspillist á þessum s:óð-
um við mikla umferð, þvi að
hann er aðeins ruddur og nið
urgrafinn.
Valkyrjan hlaut
rausnarlegar gjafir
á afmælinu
Ísafjsas'ílíaiplssfiy gaf
fclagima 10 |ussamd
ka*ósiaia*.
ísafjarðarbær sæmdi kven-
skátafélagið Valkyrjuna á
ísafiröi með 10 þúsund króna
gjöf, er það minntist tuttugu
ára afmælis síns. 5 þúsund
krónur bárust félaginu að
gjöf frá öörum.
Þetta fé verður látið renna
i bygglngarsjóð, því að eitt
helzta viðfangsefni félagsins
er i'ú að koma upp féJags-
heimili.
Gyðingar flykkjast
til Palestínu
Gyðingar og Arabar áttu
að hafa svarað tilmælum
Öryggisráðsins um vopn^hlé-
klukkan 16 í gær, en þá
hafði ekkert ,svar borizt frá
Aröbum, annað en beiðni um
frest á svarinu og átti sá
frestur að vera 36 stundir.
Fulltrúar Arabaríkjanna,
sem heri eiga í Palestínu,
sátu á fundi í gær til þess að
ræða svarið og er búizt við
því í fyrramálið. Bandarík-
in hafa og sent öllum Araba
ríkjunum, sem þarna eiga
hlut að máli, sérstaka orð-
sendingu og mælast til vopna
hlés.
í morgun eru óljósar fregn
jr af vígstöðunni í Palest-
ánu, en þó virðist svo, sem
Gyðingar hafi unnvið nokkuð
á, einkum utan Jerúsalem.
Hafa þeir náð á sitt vald veg
inum milli Jerúsalem og Tel
Aviv. Er þetta mikils verður
sigur, því að það ætti að bæta
mjög afstöðu Gyðinga í Jerú-
salem.
Mikill skriður er nú kom-
inn á flutninga Gýðinga til
Palestínu. Eru skip með una
1250 innflytjendur um það
bil að taka land í Haifa, og
fleiri skip eru væntanleg á
næstunni. Fjöldi Gyðinga
bíður nú skiprúms til Paiest-
ínú víða um heim.
Suöur-Afríka viðurkenndi
Ísraels-ríkið í gær og er það
fyrsta samveldlsland Breta,
sem það gerir, og eru þá rík-
in, sem búin eru að viður-
kenna ísrael, orðin 9.