Tíminn - 09.07.1948, Page 3

Tíminn - 09.07.1948, Page 3
149. blað TÍMINN, fösíudaginn 9. júlí 1948. 3 Hópferð kennara um Norðuríönd NiSurl. Norður-Sjáland. Næsta dag ferðuðumst við um Norður-Sjáland í boði Dansk-Islandsk Samfund og enn undir leiðsögn Wester- gaard-Nielsen. Brennandi sól skin var og hitinn faifnst okkur óþægilega mikill. Norður-Sjáland er fagurt og frjósamt land, akrar breiða sig um allt landið með smá skógarlundum og trjá- röðum á milli. — Fólkiö streymdi út á landið frá borg inni til þess að njóta sólar- innar. Bátar með hvítum seglum liðu meöfram strönd- inni og ströndin moraði af baðgestum, svo að vart sást í gulan fjörusandinn. En fljótt taka athygli okkar hin ar skrautlegu hallir og miklu, fornu kastalar, sem þar eru. Við komum nú í Krónborg- arkastalann, sem blasir við sjónum sjófarenda, sem sigla um Eyrarsund, kastalann, sem Shakespeare gerði svo frægan í harmleik sínum, „Hamlet“. Kastali þessi var byggður á árunum 1574—1585. Bygg- ingarlag hans er fjórar álm- ur, er mynda stórt, ferhyrnt svæði. Fjórir gríðarháir turn ar gnæfa þar upp, en út frá kastalanum liggja tveggja km. löng jarðgöng, -sem varn- arlið kastalans átti að geta flúið eftir, ef kastalinn yrði unninn, en margs konar virki eru umhverfis kastal- ann, svo að mjög torunninn þiefði hann orðið. Frá kast- alanum höfðu svo dönsku konungarnir eftirlit með skipaferðum um sundið, og þar var Eyrarsundstollurinn greiddur. Énn þann dag í dag vísa gapandi fallbyssukjaftar nát á sundið og hervörður stendur þar dag og nótt. Við komum í Fredensborg Slot, þar sem áður var að- setur konunga. Höll þessi er mjög glæsileg, og garðurinn umhveríis hana er einhver fegursti garður í Danmörku. Westergaard-Nielsen sagði okkur fjölmargt um þessa liöll, þar sem ýms afdrifarík ráð hafa veriö ráðin, og um garðinn, þar sem hinir tignu konungar hafa gengið um, undir áhrifum víns og kvenna í húmi kvöldsins. En þarna skammt frá er önnur konungshöll, Frederiks borg Slot, í bænum Hilleröd. Höll þessi hefir að geyma ó- trúlegan íburð og skraut, svo að ekki er hægt að lýsa því í stuttu máli. Nú eru varð- veitt þar margskonar söfn. Yfir á Fjón. Að morgni 2. júní lögðum við upp í 10 daga ferðalag um Danmörku. Höfðum við 22 manna leigubifreið og þar í allan okkar farangur. Ókum við frá Höfn suður Sjáland að austan og suður á eyna Mön og þaðan til Vording- borg, ei' við höfðum nátt- stafr. Gistum á „Vandre- hjem“. Um kvöldið sátum við boð í Vordingborg Husholdn- ings Skole. Dvöldu fimm ísl. stúlkur þar við nám í sumar. Skammt frá Vordingborg er hin mikla brú, „Stor- ströms-brúin“, 3200 m. löng «g mjög glæsilegt mann- virki. Næstu nótt gistum við í lýðháskólanum í Ollerup á Fjóni. Tók þar-á móti okkur fyrrverandi skólastjóri og tengdafaðir núverandi skóla- Eíiir Síöfsiia ©laí JéBiss@n. stjóra, Larz Bokhöj. Fengum við þar mjög góðar viðtökur og var skemmtun þar um kvöldið, ræður, söngur og dans. í Ollerup er hinn frægi fimleikaskóli Niels Buchs og íengum við ' að sjá Buch kenna eina kennslustund. Var hann með 150 stúlkur. Um Suður-Jótland. Frá Ollerúp fcrum við til Jótlanas og suður til Rader- slev. Þar tók á móti okkur Bfaae-Hansen kennari við ker.naraskólann þar. Bauð hann okkur velkomin með ræðu og vísaði okkur svo til gestgjafa okkar, en við vor- um „inkvarteruð" (skipt nið- ur) um nóttina til fólks úr kennaraskólanum. En um kvöldið sátum við svo í skiln- aðarsamsæti kennara og nem enda skólans, því að þetta var lokadagur skólans, 4. júní. — Var margt til skemmtunar, hljóðfæraleikur, söngur, ræð ur og dans. Þakkaði farar- stjóri okkar viðtökurnar og sagði frá Heklugosinu, sem vakti milila athygli eins og hvarvetna, sem á það var minnzt. Á þjóðhátíðardag Dana (Grundlov-dag) 5. júní ókum við um Suður-Jótland. Veður var frekar dumbungslegt, en hvarvetna blöktu fánar við hún og var hátíðablær yfir hverjum bæ. . Braae-Hansen kennari ferð aðist með okkur þennan dag og sagði okkur fjölmargt úr sögu landsins í sambandi við það, sem fyrir augu bar. Við komum á hinn fræga sögu- stað Dybböl, þar sem afdrifa- ríkir bardagar voru háðir, og nú eiga Norðurlöndin minnis varöa þar um faHna menn, ísland líka. Að landamærum Þýzkalands komumst við, en að baki landamæranna feng- um við ekki skyggnzt, það heftu vopnaðir verðir. Við Flensborgarfjörðinn, sem liggur við landamærin, er mjög fagurt; þar á Friðrik konungur IX. sumarhöll (Graasten). Að kveldi þessa dags kom- um við svo til Tönder, smá- bæjar nærri vesturstrond Jótlands, aðeins tvo km. norð an við landamærin. Kennara skólinn í Tönder tók á móti okkur ásaiht deild Norræna félagsins þar.. Sátum við í góðum fagnaði um kvöldið. Barst lítils háttar á góma sambandsslit íslendinga við Dani. Virtist okkur gæta fyrst í stað lítils háttar kala í garð okkar, sem þó hvarf algjörlega, er málið hafði verið skýrt frá okkar sjónar- miði af fararstjóra okkar, enda mun ekkert eyða slíkri misklíð betur en einmitt aukin kynning einstakling- anna. Áttum við svo þarna ánægjulegt kvöld. Það var skemmt sér við söng, ræður og dans. Norður á bóginn. Frá Tönder ókum við norð- ur vesturströnd Jótlands; hafði góðkunningi fararstjór ans okkar slegizt í förina með okkur og fór með okk-, ur alla leið til Hafnar. Hann heitir N. P. Jensen og er kenn ari. Við komum við á ýmsum stööum, m. a. Ribe, Esbjerg, sem er aðalfiskiveiðabær Dana, Herning, þar sem við gistum og sáum merkilegt forngripasafn, ennfremur Vi- borg; þar er hin glæsilega dómkirkja, sem er skreytt b’blíumynöum eftir hinn fræga listmálara Dana, Joa- kim Skovgaard, sem þekja um 2500 ferm. flöt. Landið, sem við höfðum lagt að baki, er fremur fá- breytt, en pegar kemur norð- ur í héraðið umhverfis Silke- borg, er landið fagurt. Það er skógi. vaxið, meö vötnum á milli og grænum ökrum, og svo er sjálít Himmelbjerget í miðju, aö vísu ekki hátt fjall á okkar mælikvarða, en það er stolt Dana. Skógiklætt er það unp á topp og ekki við- sýnt af því fyrr en komið er upp í t.úrn, er reistur hefir veriö þar. Lengra norður komumst við ekki, en héldum nú austur yfir landið og kom um við í smábæ, er Lyngby heitir. Þar er skólastjóri Lykke-Múller, góðkunningi fararstjórans. Hann býður okkur til kvöldverðar og dvöldum við þar um stund og gengum um nágrennið, en héldum svo um kvöldið til Aarhus og gistum þar. Aarhus er önnur stærsta borg Ðanmerkur, með um 140 þús. íbúa eða nckkru flelri en alla íslendinga. Fátt gátum við séð af þessari miklu borg, vegna þess, að viðdvölin var svo stutt. Næsta dag ókum viö svo suður til Fredericia; sáum við á þeirii leið einn fegursta stað landsins, Grejsdalinn, sem liggur fyrir vestan Vejle- fjörðinn. í Fredericia tók á móti okkur Th. Bögelund skólastjóri barnaskóla þ'ar, nýtízku sköla, búnum full- komnustu kennslutækjum og aðstæðum öllum. Heim aftur. Lá nú leið okkar yfir á Fjón aftur og með viðkomu í Odense, þar sem heimili H. C. Andersen var skoðað, og þaðan til Sjálands og til smá- bæjar á Norður-Sjálandi, sem Faarevejle heitir. Þar tók á móti okkur M. Knudsen skólastj. og frú hans, af ein- stakri rausn og myndarskap. Skammt var nú til Kaup- mannahafnar, og ókum við það næsta dag og, var þar með hringferð okkar um Dan mörku lokið. Nokkra daga dvöldum við svo í Höfn og voru þeir notaðir vel til þess að skoða söfn og ýmsa merka staði. Við sáum m. a. Thor- valdsens-safnið, Glyptotekið og Skólasafnið, Botanisk Have og margt fleira. Að kveldi dags hinn 14. júní stigum við svo aftur um borð í Dr. Alexandrine og kvöddum Danmörku. Réttum 29 sólarhringum eftir að við stigum á skipsfjöl í Reykja- víkt stóðum við þar aftur, glöð og hress eftir hið sér- staklega vel heppnaða ferða- lag. Við komum aftur með ljúfar enduxminningar og dýpri skilning á þýðingu samstarfs Norðurlandaþjóð- anna og bjartar vonir um, að mepningarleg samvinna tak- ist og bönd frændsemi og bræðralags verði sterþ og traust og þau eflist og styrk- ist við aukna ky.nningu þjóð- anna í framtíðinni. Ég yil að endingu geta þess, að ég hefi. sleppt frásögnum af ýmsum smærri ferðum, SjjötiigiW: Guðjón Jónsson EióiicSi í Ásl Guöjón í Ási, -Holtum, Rangárvallasýslu er sjötugur í dag. Hann er fæddur og al- inn upp að Bjóluhjáleigu í sömu sveit, sonur hjónanna Guðrúnar Filippusdóttur og Jóns Eirikssonar. Hann kvæntist 1911, Ingiriði Eiríks- dóttur frá Minnivöllum •' í Landsveit, mikilli dugnaðar- og myndarhúsfreyju. Þau hafa eignasl 5 börn, þrjá syni og tvær dætur, sem nú eru uppkomin og hlð mannvæn- legasta fólk. Guðjón hefir alla ævi starf- að að landbúnaðárstörfum og liggur þar eftir hann mikið dagsverk. Jörð sína -hefir hann stórbætt með ræktun- arframkvæmdum, bygging- um og áveitum. Framan af árum starfaði hann að um- ferðarplægingum vor og haust. Þetta er venjulegur starfsferill þeirra, sem í sveitum hafa lifað og starf- að. En þetta er aðeins annarr þáttur af lífsstarfi Guðjóns i Á.si. Hinn þátturinn veit að fé- lagsstörfum í þágu bænda- stéttarinnar og héraðsins. Hann hefir átt sæti á Bún- aðarþingi síðan 1938, verið í stjórn eða varastjórn Slátur- félags Suöurlands lengst af síðan 1914 og deildarstjóri þess félags frá 1907. í hrepps nefnd hefir hann átt sæti síðan 1911, var lengi oddviti, ennffemur sýslunefndarmað- ur, í skattanefnd síðan 1915, formaður skólanefndar frá 1930 og þannig rnætti lengi telja. Sézt af yfirliti þessu, að Guðjón í Ási hefir gegnt ílestum trúnaðarstörfum, sem til eru í hverju sveitar- félagi og auk þess fyrir hér- aðið í heild og samtök bænda. Störf sín öll hefir hann leyst af hendi með einstakri kost- gæfni. Hann íhugar hvert. mál vandlega og gerir svo það sem hann telur réttast og málstaðnum er fyrir ’beztu, sem hann vinnur fyrir hverju sinni. Þess vegn$ þef~ ir Guðjón í Ási notið trausts og álits' samferðamanna sinna. Þótt mikið dágsverk 'sé; 'að baki, er Guðjón enn hinn ernasti og gengur að öllum störfum sem áður, glaðiégur, bjartsýnn, með örugga''trú á, framtíð landbúnaðarins, því. (Framhald á 7. siðu) Skáldastyrkur Hallgrímur Jónasson kenn- ari hefir nýlega skrifaö grein í Tímann um skáldastyrk og úthlutun hans 1948. Hann harmar að H. K. Laxness-var engum styrk úthlutað.. Hann á marga skoðanabræður um þetta. Fylla þann flokk und- antekningarlaust allir komm- únistar i landinu og ýmsir fleiri. En fjöldi manna er á annarri skoðun en höf. og telja rök hans léttvæg. Þeir skilja ekki þann metnað fyr- ir hönd vinnandi fólks í landinu, að troða skáldastyrk upp á H. K. L. ár eftir ár, þótt skáldið ýmist afþakki hann, eða verji honum á mjög ósmekklegan hátt. 1946 neitaöi Kiljan, að taka við skáldastyrk jafn háum og aðrir fengu hæstan. 1947 hét hann honum til verðlauna um flugvallarsamninginn og „landráðamennina,“ sem hánn svo nefnir, en það er meirihluti alþingismanna. sem við fórum og get mjög lauslega um aðrar, vegna þess, hve langt mál það hefði oi'ðiö, ef allt væri tekið með. Svo þakka ég þeim öllum af alhug, bæði innlendum og’ erlendum mönnum, sem leið- beindu og hjálpuðu okkur á þessu feröalagi. Ilallgr. Jónassyni þykiT sélr.. hlutlæg rannsókn muni vart verða að „níði.“ En allir,.sem. hlustuðu á H. K. Laxness á, Portfundinum 1946, vita að’ hann hugsar sér ekki að veita verðlaun í neinn lárviðar- sveig til handa „landráða- mönnunum.“ Hafa menn alrnennt gert sér grein fyrir því, hve mik- ið ofstæki fellst í þessari. einu fullyrðingu skáldsins; að mikill meirihluti alþingis- manna séu landráðamenn';- Hefir dómgreind almenningi í annan mund veriö ofboöið meira eða ofstækið brotizt úi í jafn strípaðri mynd hér á landi og í þessari portfund- arræðu skáldsins? Ef til vili. nokkuru síðaf hjá sama höf. þegar hann beindi þvi tii. einnar mestu menningar- þjóðar heims og okkur 'vin- veittrar, að éta það sem útí ÍW- ...-'-v H. K. Laxness er talinn mikið skáld. Hann héfir skrií að góðar ritgerðir og iæsileg- ar sögur. Hann hefir einnig: skrifað sögur, sem eKi'TáiSi- legar áróðursritgerðn’.'’.Mað- urinn er meii’a en meða,l mað' ur. Og það er miki'Ö að' nart í skáldaheiður: líilj ans lækkar hann ekki. ÞVfTiðnr, (Framliald á 6. síðii.h

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.