Tíminn - 11.08.1948, Side 3

Tíminn - 11.08.1948, Side 3
175. blað. TÍMINN, miðvikudaginn 11. ágúst 1948. ____3 Dánarmsiming: Hiidur Baldvinsdóttir í KEöanlsrmts. Á hverjum degi flytur Tík- isútvarpið margar dánartil- kynningar. Þannig erum viö án afláts minntir á það að dauðinn er alltaf að og kipp- ir á brott samferðamönnun- um smátt og smátt. Oftast teljum við þessar tilkynning- ar okkur óviðkomandi, þegar við þekkjum ekki nöfn þeirra, er nefndir eru í það •skiptið. En stundum finnst okkur sem reiðarslag dynji yfir, þegar skyldmenni eða vinir hefir verið kallaður burt, ef til vill fyrirvaralaust, vinur eða frændi, sem staðið hefir við hlið mína eða þína árum saman. Og í samferða- hópnum er eftir opið skarð, ófyllt. Þann 22. jan. s.l. barst dán- arfregn um Aðaldal og ná- grenni, frétt, sem snerti menn meira og almennara en venjulegt er um slíkar fregn- ir: Hildur í Klömbrum er dá- in. í fyrstu áttu menn erfitt með að átta sig á því að þetta hefði skeð, sízt þeir, sem henni stóðu næstir. Hún hafði klætt sig að vanda að morgni dags, gengið að störf- um sínum sem endranær, lok' ið morgunverkunum. Svo hafði hún hringt til grann- konu sinnar og spjallað við hana í síma stundarkorn, hress og kát. Innan stuttrar stundar var hún liðin. Þann- ig lifum við mennirnir og þannig kemur dauðinn — stundum. Reyndar hafði Hildur í Klömbrum lokið miklu dags- verki er hún lézt. Og þó fannst öllum hún ung ennþá og væntu að enn væri langt eftir af ævidegi hennar. Hún var fædd i Nesi í Aðal- dal 21. júní 1892. Voru foreldr ar hennar Baldvin bóndi Þor- grímsson í Nesi og kona hans Halldóra Þórarinsdóttir. Ólst hún upp í Nesi hjá foreldrum sínum, og þar átti hún heima til þess er hún giftist eftirlif- ■andi manni sínum, Óskari Jónssyni bónda í Klömbrum, 10. júlí 1915. Óskar býr enn 1 Klömbrum með börnum sín- um. Búskaparsaga Hildar og Óskars verður ekki rakin hér og væri það þó efni í mikla frásögn. Á aldursþriðjungi hefir meðaljörð umbreyzt svo, að nú er hún í röð þeirra fremstu í héraðinu, hvað xæktun snertir, byggingar og snyrtilegan umgang. Karl | Kristjánsson oddviti í Húsa- vík flutti húskveðju í Klömbr um við útför Hildar. Þar komst hann m. a. svo að orði um mann hennar, að hann væri „afreksmaður“ í hópi bænda. Ailir, sem þekkja Ósk ar Jónsson vita að þetta er dagsatt. En ef þú efast, les- andi, þá komdu að Klömbr- um og sjáðu það, sem þar er búið að gera. Hildur var bóndakona og verksvið hennar var fyrst og fremst innan vébanda heimil isins. En eng.u áð síður lét hún sig miklu varða almenn mál. Ég held að hún hafi ætíð lagt gott til þeirra mála. Einhver mælti nýlega við mig á þá leið, að mikið tjón hefði það verið, að hún gekk ekki menntaveginn. Satt' er það, Hildur var ekki langskóla- gengin. Sú skoðun er nú mjög ríkjandi, að enginn fái notið sín í lífinu iTema ganga í skóla og læra lengi. Því lengra skólanám, þess betra. Um það verður vitanlega ekk ert sagt, hvað verksvið Hild- ar hefði orðið umfangsmikið, ef hún hefði veriö hámennt- uð kona, eða hverju hún hefði áorkað með slíkan und- irbúning. En hitt má fullyrða, að hún veitti uppeldi, svo að á betra verður varla kosið. Og ‘ um það verður aldréi deilt, j að góð heimili eru máttar- j stoðir þjóðfélagsins. — Hild- j ur í Klömbrum kunni vel að velja lesefni úr því mikla bókaflóði, sem íslendingar eiga nú völ á. Hún var ágæt- lega hagmælt,. þótt lítið birt- ist eftir hana opinberlega. Hún átti t. d. þátt i þeirri bók, er út kom fyrir nokkr- um árum og heitir: „Þingeysk ljóð.“ Um líkt leyti birtist eft- ir hana í blaðinu ,.Framsókn“ í Reykjavík kvæði, er hún hún nefndi: „Bændahvöt.“ Þá var hagur íslenzkra bænda á margan hátt mjög örðugur. Um það verður ekki fjölyrt hér. En ég hefi lieim- ild fyrir því áð Hildur Bald- vins.dóttir orti þetta kvæði með eldhúsverkunum. Þá áttu sér stað í blöðum okkar mjög heitar umræður um landsmál, ekki síður en nú. Kvæði þetta vakti mikla at- hygli. Og raunar var það stór um meira innlegg í umræð- urnar en tugir blaðagreina frá sumum talsmönnum bændanna, sem flúið hafa af hólminum og sezt að í skrif- stofum höfuðborgarinnar. Heimili Hildar bar þess vott, að um það væri hugsað. Þar held ég að allt hafi ætíð verið í röð og reglu. Hún segir m. a. í „Þingeyskum ljóðum“: „Ylrík hrifning að mér vefst, er ég hlusta á góðan prest, andi minn til hæða hefst. En —- heima þjóna ég guði bezt.“ Þeir, sem bágt áttu máttu alltaf fagna samúð Hildar. Og æskuna skildi hún flestum öðrum betur. Ég leyfi mér að birta örfá orð úr bréfi, er hún skrifaði nokkrum mánuðum fyrir and lát sitt. Þetta bréf var til roskinnar konu, er mætt hafði miklu andstreymi. Meðal annars mótlætis hafði dóttir hennar verið mjög lengi alvarlega veik og tvísýnt um bata hennar. En loks náði hún nokkurri heilsu og fékk að fara heim. Þá skrif- aði Hildur hinni aldurhnignu konu m. a.: „Þessar línur áttu að vera fagnaðar- og sigursöngur til þín í tilefni af bata blessaðr- ar dóttur þinnar. Já, ég óska þér af öllu hjarta til ham- ingju með heimkomu hennar og endurheimta heilsu. Þó eitt hvað vanti nú á fullan bata ^nnþá er samt yndislegt fyrir þig að vera búin að fá hana heim aftur. Ef til vill skilur það enginn nema sá, sem veit hvað sárt það er að vita sína veika og megna ekkert að hjálpa.“ . . . Hildur hafði reynt rnikið sjálf. Elzta dóttir hennar hafði veikst af berklum 4 eða 5 ára gömul. Varð Hildur að fara með litlu stúlkuna fár- veika á Vífilsstaðahæli. Móð- irin fékk aðeins að vera fá- j eina daga hjá veika barninu sínu. En svo — það var eng- j in misliunn. Hún féklc ekki leyfi t;l þess aö vera þarna j lengur, varð að skilja barnið j eftir í höndum ókunnugra —; sjálfsagt góðum höndum —-j og greipum dauðans. Svo dó litla stúlkan og foreldrarnir fengu ekki að hlúa að leiði hennar, þar sem frændur og vinir hvíla. Því betur eru margar mæð- ur til, sem ekki vita hvað það er að mæta slíkri raun sem þessari. En við þetta tækifæri sýndi Hildur bezt og sannaði hvílíka hetjulund hún átti. | Klambrahjónum varð 9 barna auðið. Tvö eru lálRn, Hulda lézt á Vífilsstaðahæli, eins og áður er sagt, og Hreinn d. 1946. Þessi eru á lifi: Dagur flugvirki, búsettur í Reykjavík, kvæntur Iiólm- J fríði Jónsdóttur frá Kaldbak, I Heiðbjört, gift Vilhjálmi Hall grímssyni frá Hólum í Laxár- dal, búsett á Sauðárkróki, Baldvin, Málfríður, bústýra hjá föður sínum, Jón búfræð- ingur, Haukur, Sigurpáll. Útför Hildar Baldvinsdótt- 1 ur fór fram að Grenjaðarstað 7. febr. Börn hennar, aö einu undanteknu, voru fjarver- andi er dauða hennar bar að höndum. En öll komu þau heim til þess að standa yfir moldum hennar. Voru þó að- stæður þeirra að ýmsu leyti örðugar: Slæm vetrarveðr- átta, miklar vegalengdir, og sum þeirra nýstaðin upp úr veikindum. Og drengirnir hennar létu sér ekki fyrir brjósti brenna að kasta niður námi langan tíma til þess að fylgja móður sinni siðasta spölinn. Húsfyllir fólks var í Klömbr um þennan dag. Þeir voru margir, sem vildu votta hinni látnu konu vinsemdar og virð ingarvott. Þessi þorradagur var kald- ur og climmur. Hríðaél dundu yfir eitt af öðru. En þegar lík- fylgdin fór frá heimili hinnar lá'tnu birti til, einmitt í sólar- átt. Var ekki sólardýrðin í suðvestrinu á þessari stundu eins konar fyrirheit um það, að öll él birta upp um síðir? Þannig var kveðjustundin. Þanpig var hinzta för Hild- ar Baldvinsdóttur frá heimili hennar. Hildur sendi dóttur sinni, er dvaldi fjarvistum, eftirfar- andi vísu í bréfi nokkrum dög um áður en hún dó. Er hún birt hér með leyfi viðkom- anda: Gæfan er fallvölt og frægðin er hjóm og fjármunir glatast og dvína. En ástin og göfgin þau eilífðarblóm, sem Alfaðir lætur hér skína. Hildur í Klömbrum leitað- ist alltaf við að hlúa að því fegursta og bezta, sem birtist í mannlífinu. Þórgnýr Guðmundsson. Átíræð: Þorbjörg Björnsdótíir frá ISvaíasteyE,i. I sumarleyfinu er um að gera að hafa skemmtilega bók til lesturs. Bókin „Á valdi örlaganna," er tilvalin. Fæst í Bókaverzl. Sigf. Eymundssonar. Eg vissi ekki fyrr en nú samstundis, að Þorbjörg Björnsdóttir frá Hvanneyri á nú áttræöisafmæli. Þótt ég sé þvi lítt vanur að skrifa af- mælisgreinar, þá get ég ekki annað en sent hinni öldruðu heiðurs- og sæmdarkonu kveðju og þakkir fyrir öll okk ar kynni. Það eru nú 35 ár síöan ég kom ungur til náms að Hvanneyri. Margs minnist ég þaðan og frá veru minni þar. Hin glæsilesju og stórbrotnu skólastjórahjón, sem tóku hug minn fösturfi tökum við fyrstu sýn, mikilhæfir lcenn- arar, sem ég ávallt hugsa til með þakklæti og virðingu. Ó- rjúfanlega tengd þessum fyr.stu minningum mínum frá Hvanneyri er mynd af ráðs- konu skólastjórahjónanna, Þorbjörgu Björnsdóttur. Ég minnist mjög vel hinnar svip miklu, myndarlégu og mikil- hæfu konu, sem gekk um og stjórnaði húsverkum, tigin í fasi, en þó látlaus í fram- komu. Þorbjörg virtist aldrei eiga annríkt, hversu mikil ’sem störfin voru, en aílir, sem kynnzt hafa vinnubrögð um og stjórnsemi Þorbjarg- ar vita,' hver afburða verk- kona hún er og stjórnsöm að sama skapi. Þorbjörg Björnsdóttir er Austfirðingur að ætt. Alin upp í Hróarstungu á Héraði. í æsku gekk hún i Kvenna- skólann í Reykjavík og út- skrifaðist þaðan 1891. Þeg- ar Halldór Vilhjálmsson tók við skólastjórn og búsforráð- um á Hvanneyri vorið 1907, réðist Þorbjörg ráðskona til hans; þar gegndi hún ráðs- konustörfum alla skólastjóra tíð Halldórs á Hvanneyri eða í 30 ár. Hin síðustu árin eða frá 1937 hefir Þorbjörg dval- ið hjá börnum skólastjóra- hjónanna og frú Svövu Þór- hallsdóttur hér í Reykjavík. Þorbjörg varð svo samgróin Hvanneyri, störfum þar og skólastjórafjölskyldunni, að hún var öll hin síðari ár -tal- in til fjölskyldunnar sjálfr- ar. Þorbjörg gekk að ráðs- konustarfi sínu á þessu stærsta heimili landsins með þ'eim dugnaði, þeirri árvekni og trúmennsku, að fátítt er. Hún beitti sínum miklu hæfi leikum heil og óskipt að störf unum. Um Þorbjörgu á Hvanneyri má fullyrða það, að hún hefir ávallt og æfin- lega, við hvaða starf -sem var, talið sjálfsagt að vinna það jafn vel í þágu annarra, eins og hún væri að vinna aðeins fyrir sjálfa sig. Eg var um 15 ára skeiö öðru hvoru heimilismaður á. Hvanneyri og gegndi þar margvíslegum störfum. Ég var þar nemandi, vinnumað- ur og síðast kennari. Ég fékk því tækifæri til þess að kynn ast ráðskonunni á skólabú- inu frá í'leiri en einum sjón- arhóli. Eftir því sem ég kynntist Þorb'jörgu lengur og frá fleiri hliðum, því meir virti ég hana. Þorbjörg er vit- ur kona og þessvegna hófsöm í skoðunum, og er hún þó géð rík. Hún fann gleði í störf- um sínum og þessvegna irafa þau blessast svo vel. Þorbjörg gerði kröfur tií. þess, að það fólk, sem húr. stjórnaði, starfaði vel, er. hún gætti þess ávallt að gera mestar kröfur til sjálfrar sm í þeim efnum. Hún hikaði aldrei við að ganga að erf- iðustu verkunum, þótt ekki væri nauðsynlegt — og þess- vegna var flestum Ijúft að starfa undir hennar stjórn. Allir, sem kynntust Þor- björgu, urðu þess fljótt var- ir, hvílik drengskaparkona hún var, enda þótt sumum fyndist hún dálítið hrjúf við fyrstu kynni. Ef einhver var lasinn eða átti við aðra erf- iðleika að stríða, vildi hún. ávallt milda og bæta, hver sem í hlut átti. Þess varð ég oft var gagnvart mér og svc veit ég, að var um miklu fleiri. Þorbjörs dvelur nú í hárri. elli hjá börnum skólastjóra- hjónanna frá Hvanneyri, Fyr ir þá fjölskyldu hefir hún starfað yfir 40 ár og tekic þátt í gleði þess fólks og sorg- um. Þótt 80 ár séu að baki, er Þorbjörg enn létt á fæti og ber bjartan svip og tígulegt yfirbragð. Á áttræðisafmæli sínu ber Þorbjörg Björnsdóctir svip þeirrar konu. sem hefir unn- ið vel og dyggilega og skilað geysimiklu dagsverki, og það starf allt hefir verið innt al höndum með því hugarfarí að styðja, styrkja og gleðja aðra. Ef slík kona á ekki skil- ið fagurt æfikvöld, eiga eng- ir rétt á því. Ég flyt þér, Þorbjö.rg Björns dóttir, alúðarþakkir fyrir öll okkar kynni. Ég veit, að þar mæli ég ekki fyrir mig. ein- an, heldur fjölmarga Hvann- eyringa eldri og yngri, sem því láni áttu að fagna að kynnast þér og þínu starfi & Hvanneyri. Reykjavik, 10. ágúst 1948. Steingrímur Steinþórssom Það voru ekki Borgnesingar Auglýsfö í Tímanum. Herra ritstjóri! Sunnudag- inn 8. þ. m. birtist í blaði yð- ar feröapistill undir nafninú: „Gott er að vera í góðum hóp“. — Á blaðsíðu 7, frá fyrstu greinarskilum, er þar talað um 2 menn úr Borgar- nesi, sem hafi spilað drukkn- ir fyrir dansi að Hofgörðum í Staðarsveit umrætt laugar- dagskvöld. Nú vill svo til, að yið und- irritaðir Borgnesingar spilum í hljómsveit, sem kölluð hefir verið Danshlj ómsveit Borg- arness, og erum við einu Borgnesingarnir, sem hafa spilað opinberlega fyrir dánsl síðastliðið sumar. Enginn. ckkar var staddur á þessari. dansskemmtun og uröum við harla undrandi, þegar viö sá- urn ofangreinda klausu og urðum varir við, að fólk vai farið að tala um okkur í þessu sambandi. Við leituðum okkur þvi upplýsinga um þessa 2 spil- ara og kom í ljós, að hvorug- (Framhaíd á fí. síöu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.