Tíminn - 05.09.1948, Side 6

Tíminn - 05.09.1948, Side 6
6 TÍMINN, sunnudaginn 5. sept. 1948. 195. blaS 7ripcli-btó Keppíuantiii' (Kampen om en Kvinde) ; Tilkomumikil og vel leikin -finnsk kvikmynd með dönskum texta. Aðalhlutverk: Edvin Laino Irma Soikkula Olavi Roimas Kersti Luno Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. tlýjœ Síé Græna lyfíaia Sýnd kl. 9. SkríinslissagaB (La Balle et La Bete) Sérkennileg og vel leikin frönsk ævintýramynd byggð á samnefndu ævintýri er birst hef ir í ísl. þýðingu. Aðalhlutverk: Jean Barais Josette Day í myndinni er skýringartexti á dönsku. Aukamynd: Prá Olym- písku leikjunum. Sýnd kl. 3, 5 og 7 Sala hefst kl. 11 f. h. Syffldng koiaa (Synderinden) Sýnd kl. 9 Eidfæriit (Pyrtöjet) Skemmtileg og mjög falleg dönsk teiknimynd í liturn, gerð eftir hinu þekkta ævintýri II. C. Aandersen. Sýnd kl. 3, 5 og 7 Sala hefst kl. 11. TjarHatlfíé Pygmaliou Ensk stórmynd eftir hinu heimsfræga leikriti Bernards Sliaws. Aðalhlutverkið leikur hinn óviðjafnanlegi látni leikari Leslie Howard % Sýning kl. 3, 5. 7 og 9 Sala hefst kl. 11 f. h. Triiin og stjfóriimáliii (Framhald af 4. síðu) Kristindómurinn er meira en fögur kenning. Ilann er líf. Hann er, eins og postul- inn orSaði það, „kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir“. í því, ekki sízt, eru fólgnir yfirburðir hans og styrkur. IV. Og nú er ekki óeðlilegt að spyrja: Á kenning Jesú Krists orð hans, andi og fyrirmynd erindi til nútímans? Getur hann leyst að einhverju eða öllu leyti hin miklu og flóknu vandamál, sem þjóðirnar eiga nú við að stríða, einnig á sviði stjórnmálanna? . Þessum spurningum svar- aði skáldið og spekingurinn Bernhard Shaw fyrir fáum árum á þessa leið: „Ég hlýt að viðurkenna það, að eftir að ég hefi um sextíu ára skeið verið að velta fyrir mér vandamálum veraldarinnar og mannlegu eðli yfirleitt, þá sé ég enga leið út úr ógæfu- og hörmungarástandi heims- þyggðarinnar aðra en þá, sem Kristur mundi hafa fundið og farið, ef hann hefði stað- ið í sporum hinna ráðandi stjórnmálamanna heimsins hú“. Með öðrum orðum: Hann telur, að kenning Jesú Krists, andi hans og fyrir- mynd sé leiðarljósið enn í dag I stjórnmálum heimsins, og það eina, sem vísar færa leið út úr ógöngunum. Án þess ljóss sé ekki hægt að leysa Vandann. Annar stórmerkur höfund- xrí; C. E. M. Joad, segir: „Vér vitum það öll í raun og veru, ,gð, vér eigum að lifa og breyta 'a'samræmi við vilja Jesú Krists. Vér kunnum að vísu að geta sagt, að kenning hans ’óg kröfur til vor mannanna séu erfiðar að uppfylla og sumar jafnvel óframkvæman legar. En það breytir ekki ' ;þeirrj sannfæringu vorri, að í)ær séu hinar einu réttu“. Og L. H. Marshall háskóla- kennari segir: „Hinir miklu baráttumenn fyrir þjóðfélags legum umbótum, Abraham Lincoln, Elísabet Fry, William Wilberforce, David Living- stone, William Booth, svo að- eins fáir séu nefndir, unnu lífsstörf sín tendraðir eld- móði frá áhrifum Krists. Og til þessara sömu áhrifa má rekja lýðræðishugsjónina, jafnaðarstefnuna og komm- únismann, að svo miklu leyti sem þessar stjórnmálastefnur berjast fyrir auknum mann- réttindum‘“. Þannig mætti lengi halda áfram að tilfæra orð og um- mæli merkra og gagnfróðra manna, sem öll hníga í þá átt, að það sé Kristur, kenn- ing hans og lífshugsjón, sem vísa eigi veginn og gefa mönn um kraftinn til þess að skapa bjartari heim og heilbrigðari sambúð og samskipti eih- staklinga og þjóöa. Við íslendingar erum ein þeirra þjóða, sem unna lýð- ræði og frelsi. En lýðræði og frelsi er í því fólgið, að fólk- ið sjálft ráði löggjafarmálum sínum og stjórnarháttum. Þessi dýrmæti réttur fólksins til þess að ráða málum sínum og velja fulltrúa til þess að fara með völdin í sínu um- boði, hann leggur því jafn- framt mikla ábyrgð og skyld- ur á herðar. Það er engan veg inn víst, að meirihlutinn hafi ávalt rétt fyrir sér eða sjái og velji hinar heppilegustu leið- ir til úrlausnar vandamálun- um, enda sjaldan sparað að beita áróðri á vilja fólksins og rugla þannig sjálfstæða dómgreind þess. í öðru lagi er það, að lýðræðinu fylgir jafnan sú hætta, að fólksvilj- inn fálmi fyrir sér sitt á hvað, af því að festuna skortir, þannig að það sem verið er að byggja upp, fær ekki að njóta sín og sýna hvers virði það raunverulega er, vegna þess að aðrir, með hjálp lýðs- ins, ná yfirtökunum í bili, og beita þá valdi sínu til þess að rífa niður og eyðileggja það, sem hinir höfðu byggt, en ekki fengið tóm til að ljúka við. Á þennan hátt hættir lýðræðinu til að sóa kröftum og fé I tilraunir, sem aldrei verða meira en byrjun, tlraun ir, sem hætt er við áður en í ljós er komið hvern árangur þær gætu borð. í sumum lýð- ræðslöndum verða iðulega stjórnarskipti mörgum sinn- urn á ári. Ein stjórnin rífur niður það, sem önnur byrjaði á. Hér hefir einræðið það fram yfir, að þar fær ríkj- andi stefna að njóta sín að fullu, bæði til ills og góðs eft- irþví sem efni standa tii. Til þess að varna því, að lýðræðið lendi út í fálm og ógöngur, þurfa þegnarnir eigi aðeins að eiga þekkingu og sjálfstæða dómgreind, heldur einnig og umfram allt sameig inlega lífshugsjón, sem lyftir þeim upp yfir þröng sjónar- mið sérhagsmunanna, hug- sjón, sem þeir unna, finna að kallar á það bezta í sál þeirra og sem þeir mega aldrei bregð ast. Það hefir verið sagt, og með nokkrum rökum, að lýð- ræðisþjóð fái jafnan það stjórnarfar og þá forráða- menn, sem hún eigi skilið. Sé stjórnmálaástandið sjúkt, löggjöfin gölluð, eftirlit og framkvæmdir í ólagi og trassadómi, þá sé þetta í raun inni spegilmynd af þjóðinni sjálfri. Hér kann að vísu að vera helzt til djúpt tekið í árinni. En því miður verður þó ekki neitað, að lýðræðisríki á fyrst og fremst gengi sitt og far- sæld undir manndómi og þroska þegnanna. Einstakling arnir í slíku þjóðfélagi verða að kunna að hafa sæmilega stjórn á sjáifum sér, ef þeim á að vera treystandi til að stjórna sameiginlegum mál- um svo vel fari. Einstakling- urinn verður að kunna nokk- urnveginn rétt tök á sínu eig- in lífi, ef þjóðfélagið á að vera heillaríkt og fagurt. Og einstaklingarnir verða að eiga lífshugsjón, sem þeir virða og elska, annars verður þjóðfélagið líka hugsjóna- snautt og stjórnmálin fánýtt dægurþras. Engum manni, sem af al- vöru vill kynna sér kenningu, trú, líf og anda Jesú Krists og þau mótandi áhrif, sem þetta hefir haft og hefir enn á þá menn fyrr og síðar, sem, eins og postulinn orðar það, hafa verið „höndlaðir af Kristi," getur dulizt það, að þarna er | ekki aðeins heillavænlegasta, heldur áhrifamesta Ieiðin til (Framliald af 6. siðu) Erlení yfirlit (Framhald af 5. siðu). haft á samverkamenn sína í þess- um efnum og hvert fráfall hans kunni einhverju að breyta um ut- anríkismálastefnu Sovétríkjanna. Shdanoff var frekar lágur vexti en þreklegur, svarthærður, með fjörleg, dökk augu. Hann gat verið harður og ósveigjanlegur, en líka elskulegur og skemmtilegur, ef honum bauð svo viö að horfa. Meðal erlendra sendimanna í Moskvu var hann talinn bezti sam- kvæmismaðurinn af núv. leiðtog- um Rússa. Hann var ágætur ræðu- maður og vei ritfær og var sér- staklega sýnt um rökfræðilega framsetningu. Starfsþrek hans virtist óbilandi. Við fráfall hans sjá Rússar tvímælalaust að baki einhvers mikilhæfasta leiðtoga síns, en úr hinu verður aldrei skor- ið, hve happasæl forustu hans hefði orðiö, ef spádómarnir um hann hefði ræzt. IGUNNAR WIDEGREN: 93. dagur § r I U ngf rú Ástrós — Vaknaðu, manneskja, hrópaði Búi allt í einu — \ hann sá alltaf allt fyrstur. Hann veifar eins og óður | maður. Hann hefir orðið einhvers vísari. —- Inn í bílinn með ykkur tafarlaust, hrópaði Kris- | per. Og svo brunuðum við af stað. — Það hefir auðvitað verið hann, hélt Krisper á- | fram og sveigði fyrir horn af mikilli leikni,. Ljóns- | rnakkinn þinn sótti Gretu fyrir hálfri klukkustund og | hélt svo áfram til Linköping. Þar ætluðu þau að hitta | frænda Gretu, var mér sagt. — Þá höfum við þó veður af þeim, sagði ég iðandi i í sæti mínu. —- Og nú dettur mér nýtt í hug, sagði Krisper eftir | stundarþögn. Greta var einhvern tíma að tala um | mann, sem hún og frændi hennar voru með erlendis | í vor. Það var áður en við kynntumst. Hún fór með I þeim, af því að hún er góð í tungumálum — hún átti | aö vera elnhvers konar ritari þeirra. — Di-de-lí-bom-BOM, sönglaði ég vonglöð eins og 1 fugl í skógi. Hvað heldurðu, að hann hafi heitið? bætti I ég við. „ — Það man ég ekki, sagði Krisper. Ég hef hvorki 1 séð hann né frænda Gretu, og Greta nefndi hann bara | rétt á nafn. Helduröu, að ungur, ástfanginn maður = sé að leggja á minnið nöfn ókunnugra karlmanna? — Það virðist meira að segja vera til hópur af kven- | fólki, sem ekki veit, hvað þeir heita, sem það ætlar | að giftast, sagði Búi,... .Annars er ég orðinn svangur, I ef einhver kynni að vilja taka það til greina. — Siíkan hégóma hirðir enginn um, svaraði ég. — Það getur verið vissara fyrir okkur að hafa hrað- I an á, sagði Krisper. Ég veit ekki, hvort þau ætla að 1 gista í Linköping í nótt. Við getum keypt fáeina ban- | ana í einhverri búð við veginn. En í næstu andrá hemlaði hann svo skyndilega, að | hvein í öllu. Úti í skurðinum lá bíll, og annar virtist | hafa hafnað á lágum steingarði við veginn. — Þér verðið að bera vitni, æpti lítill, ótótlegur mað- | ur. Hún ók of inriarlega á veginum. Þér getið sjálfur I séð förin. Krisper stökk út með málband, og Búi skundaði á | vettvang, honum til aðstoðar. Ég horfði á þá og reyndi | að vera eins gáfuleg á svipinn og mér var frekast | unnt. — Stúlkan hefir ekið 24 sentimetra inn á braut | yðar, sagði Krisper. Gerið svo vel — hér eru nöfn | okkar, ef þér kynnuð að þurfa á þeim að halda. — Það er þó viðurkennd regla, að karlmenn eiga | aö víkja fyrir dömum á förnum vegi, sagði stúlkan — | beinaber telpa með málaðar varir. — Það eru ekki dömur, sem aka svona á þjóðveg- | unum, svaraði Krisper. Verið þér sælar. Nú höfum við fengið enn eitt umræðuefnið, og þessu ) æsilega feröalagi var haldið áfram, þótt sulturinn | væri farinn að skera okkur að innan. Bananarnir, 1 sem við höfðum keypt, gátu ekki sefað hann. Það I hristist svo fljótt niður í manni í bíl. En svo bar nýrra við. Ég varð bílveik. En áfram var | haldið. Við ókum í gegnum Gránna og brunuðum til | Austur-Gautlands. Loks sáum við ljósin í Linköping. | Rétt utan við bæinn komum við auga á mikla þröng | kringum tvo bíla, sem virtust einna helzt vera í inni- | legum faðmlögum. — Það hafa viða orðið árekstrar í dag, sagði Krisper | um leið og hann hægði ferðina. — Hemlaðu, hemlaðu, æpti Búi. Annar er bíllinn | Ijónsmakkans. Við vorum fljót að stökkva út úr bilnum og ryðja 1 okkur braut í gegnum þvöguna. —- Átti ég ekki. kollgátuna, sagði Búi — ég þekkti | skrjóðinn aftur. Mér fannst ég standa á helgum stað. Þó áræddi ég 1 aö reka höfuðið inn um opinn bílgluggann, svo að ég | gæti gægzt á nafnspjaldið, sem ég sá. En ég verð að 1 viðurkenna, að ég varð fyrir.vonbrigðum — ljónsmakk- 1 inn hét Andersson — bara blátt áfram Eiríkur Anders- | son. Allt endurtekur sig, segir Strindberg. Ég hafði I alla ævi hætt stjúpmóður mína fyrir að hafa fæðzt með | ættarnafninu Andersson, og svo átti ég að heita Anders ~timinnii»i»iii»»»iniam»»m«nuniiiii»iniiiim»imuiiiiiimiiuiimmmmmii»m«iiiuniOHmimnummiiiu limiiiiuiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiimimmiiiiiil nimiHunmniiuHmiuiiiiHuuiiiiiiiiuuiiiuiiiiinuuiiniuiiiiiumMWMHnu»mrfr;/wimii5aiisHismii:iis«ts3:ii«MMii«His.««uaiiiiHiiiiinn5ir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.