Tíminn - 17.12.1948, Qupperneq 6

Tíminn - 17.12.1948, Qupperneq 6
6 r:^!F|W) TÍMINN, föstudaginn 17. des. 1948. 279. blað HtfjaSió'... Ilringstfigiiin (The Spir^l Staircase) Hin framúrskarandi spennandi og dularfulla kvikmynd, gerð sftir sakamálasögu Etel Eina White undir stjórn snillingsins Robert Siodmak. Dorothy McGuire George Brent Ethel Barrymore Sýnd kl. 5, 7 og 9 Börn fá ekki aðgang 7tipoií-któ Kviksettur (Man Alive) Bráðskemmtileg amerísk gaman mynd. Aðalhlutverk leika: Pat O’Briem Adolphe Menjou Elien Drew Sýnd kl. 5, 7 og 9 Sími 1182 Sœjarbív HafnarfirOi Milli laeiitts og Iieljas (A Matter of Life and Deth) Bkrautleg og nýstárleg gaman- toynd í eðlilegum litum. Gerist þessa heims og annars. David Niven Roger Livcsey Raymond Massey Kim Hunter Sýnd kl. 7 og 9 Fjármálastjóni Sjálfstæðis- flokksins. (Framhald af 5. siðu). gjafaféð, ef það fæst, verði ekki notað til sérstakra stór- framkvæmda, heldur til venj u legrar eyðslu. Hörmulegri óstjórn er ekki hægt að hugsa sér en þá, sem viðgekkst meðan Sjálfstæðis ílokkurinn fór með viðskipta málin. IV. Hér hefir verið brugðið upp nokkrum myndum af hinni ólíku fjármálastjórn E. J. og Sjálfstæðismanna. E. J. fer með fjármála- og viðskipta- málastj órnina á hinum verstu krepputimum. Hann heldur samt vel í horfinu, verst bæoi skuldasöfnun hjá ríkinu og skuldasöfnun út á við, lætur rikið halda uppi auknum verklegum framkvæmdum og leggur grundvöll að nýjum, merkilegum atvinnugreinum með fjármálastefnu sinni. Hann hefir skatta og tolla mjög hófsamlega, a.m.k. mið- að við það, sem nú er. Sjálf- TOPPER (Á flakki með framliðnum) Sýnd kl. 9. Tvœr myndir. — Ein sýning! CARMEN Hlægileg amerísk gamanmynd með hinum dáða CHAPLIN Ókiimii maðuriim fr:i Sauia Fe Mjög spennandi amerísk ccrwboy mynd með MACK BROVVN Sýnd kl. 5 og 7 “Tjatwatkíá KITT Y Paramount-mynd eftir sam- nefndri skáldsögu. Paulette Goddard Ray Milland Sýningar kl. 5, 7 og 9 stæðismenn fara með stjórn- ina á hinum mestu gróðatím um og fá sjöfalt meiri ríkis- tekjur og 3y2 sinnum meiri gjaldeyristekjur til jafnaðar. Þetta nægir þeim ekki. Þeir láta ríkissjóð safna stórfelld- um skuldum og skilja þann- ig við gjaldeyrismálin, að þjóðin verður að fara að lifa á betli. Þeir stórhækka alla skatta og tolla og halda enn áfram að hækka þá. Og þó er ótalið Jiað, sem verst er, að fjármálaráðherrar þeirra hafa ekkert gert til að vinna gegn dýrtíðinni, heldur lof- að henni að leika lausum hala með þeim afleiðingum, að aðalatvinnuvegir lands- manna eru ekki lengur sjálf- bjarga, heldur verða að sætta sig við ríkisstyrki. Unir þjóðin slíkri fjármála stjórn lengur? Treystir hún slíkri fjármálastjórn, ef eitt- hvað þrengir að? Er ekki kom inn tími til þess að fela fjár- málaforustúna manni, sem stjórnar með fullri festu, á- byrgðartilfinningu, hyggind- um og framsýni, eins og E. J. gerði meðan hann fór með stjórn fjármálanna? Leiðir það nokkuð annað en lengra út í ófæruna, að láta Sjálfstæðisflokkinn fara með þessi mál? Því verður þjóðin að svara í næstu kosn- ingum- X+Y. Heilsuverndarstöðin Bólusetning gegn barnaveiki held ur áfram og er fóik minnt á að láta endurbólusetja börn sin. Pönt- unum veitt mótttaka aðeins á þriðjudögum frá kl. 10—12 í síma 2781. Vanslul. Þeir kaupendur Tímans, sem verða fyrir vanskilum á blaðinu. eru vinsamlcga beðnir að Iáta af- greiösluna vita um þau. Sími 2323. ÍjÚniiii TifttahH (jathla Sic Njúsiiaföriu (Secret Mission) Spennandi ensk kvikmynd er gerist á stríðsárunum í hinum hernumda hluta Frakklands. Aðalhlutverk leika: James Mason Hugh Williams Michael Wilding Carla Lehmann. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Börn innan 12 ára fá ekki aðg. Uajjharfáatiarbíc Riddarafálkiim (The Maltese Falcon) Skemmtileg, spennandi og vel leikin amerísk mynd. Aðalhlutverk leika: Humphrey Bogart Mary Astor Gladys George Peter Lorre Myndin er með dönskum texta, og hefir ekki verið sýnd hér áður i j Sýnd kl. 7 og 9. — Sími 9249 I Börn fá ekki aögang. PKJÓNABÖKIN ] l.fiiM.H’jniaíar i?# <illt .ifoíkjafld! prjóBÍ, töfS faymliim ojí fitiifistfcci Allar konur vilja eiga PRJÓNABÓKINA. Enn er hægt að fá öll heft- in beint frá útgefanda og flestum bóksölum. Handavinnuútgáfan Nýlendugötu 15A. Sími 7737 Nú eru nýju bækurnar aS koma út sem óðast. Ef þér hafið hug á ein- hverri bók, þá komíð i Bókaverzlnn Ársaels Árnasonar, Laugaveg 10. Sími 80443. Köld borð og heitur veizlumatur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUR Minnist skuldar yðar við iaudið og styrkið Landgræðslusióð. BERNHARD NORDH: | í JÖTUNHEIMUM I FJALLANNA j ........... gert. Gráu timburhúsin, sem byggöu höfðu verið við hin erfiðustu skilyrði og svo miklar vonir höfðu verið bundnar við, yrðu annaðhvort rifin til grunna eða látin standa auð og mannlaus, unz þau grotnuðu niður og féllu, akurreinar og engjaspildur myndu á skömmum tíma breytast í órækt- arland — allt, sem gert hafði verið í nýbyggðunum, unnið fyrir gýg. Og fólkið — enginn vissi, hvaða örlög kunnu að bíða þess. Það átti bara að fara burt af þeim stöðvum, þar sem margt af því hafði drukkið móðurmjólkina og fest rætur frá bernsku — burt á einhverjar aðrar slóðir, þar sem hefja varð baráttuna við órælctina á nýjan leik. Jarðir, sem áður höfðu verið í ábúð, var hvergi að fá. ★ Mönnunum úr byggðunum við Kolturvatn var orðið þægi- lega hlýtt, þegar Hliðarmenn skáskutu sér inn um lágar dyrnar á bækistöð ferðalanganna. Það var tekið að skyggja, og rökkrið úti varð að myrkri inni í húsinu, þrátt fyrir litla stafngluggann. Það var hengt á krók í loftinu. og þótt log- inn væri harla dapur, mátti þó vel greina menn þar inni. Það olli engum áhyggjum, þótt skuggsýnt væri — menn voru vanir því að heiman, þar sem þeir urðu að bjarga sér ijóslausir. Þegar þeir Hans og bræðurnir frá Marzhlið höfðu til- einkað sér rekkjur til þess að sofa í, með því að vefja saman úlpur sínar og leggja þær í höfðalagið, settust Hans og Páll á eikarhnyðjurnar, sem lausar voru, bitu í nýtt munn- tóbak, er þeir höfðu keypt, og spýttu af mestu velþóknun. Jónas fleygði sér endilöngum upp í eitt rúmstæðið, og Sveinn Ólafur settist á stokkinn og hallaði sér makinda- lega upp að rúmstólpanum. Það reið á því að njóta sem bezt hvildarinnar, áður en lagt væri af stað heimleiðis. Úti í skúr voru fjórir sleðar og tvö hundruð pund á hverjum þeirra. Það þurfti krafta í kögglum til þess aö draga þá yfir öræfin. Páll spurði manninn frá Laufskálum. hvernig Aron kynnl við sig. Bræðurnir höfðu hálfvegis búizt við því að hitta hann í Króknum. — Jú, hann unir sér bara vel. Þau Birgitta ætluðu að fara í gær niður í Vilhjálmsstað til þess að biðja prestinn að lýsa með þeim. — Jæja — þau ætla þá að giftast, tautaði Páll dauflega. — Já — auðvitað ætla þau að giftast. Presturinn hefir nógum embættisverkum að sinna, þegar hann messar í Fattmómakk næst. Systir ykkar og Pelli á Saxanesi eru svo gott sem farin að búa saman, hefi ég heyrt. Við verðum allir í mægðum hvor við annan innan skamms, enda veitir ekki af, að við höldum hópinn, því að nú eru Lapparnir aö undirbúa samsæri á móti manni. Þið hafið náttúrlega frétt, hvaö þeir eru að brugga? Pétur frá Miklanesi, sem frægur var fyrir ferlegt yfir- skegg sitt, bólgnaði af heift, þegar hann kastaði fram þess- ari spurningu, og ekki varð hann mýkri á svipinn, þegac Páll sagði, að þeir hefðu ekkert um þetta heyrt. • ■ — Ekki það! Jæja! Það er víst ekki of snemmt, að þið fáið að vita, hvers konar hyski það er, sem þarna í Marz- hlíð eruð svo stimamjúkir við. Hlustið þið bara á, og segið svo föður ykkar fréttirnar — Lapparnir ætla að fara þess á leit við þingið í Stokkhólmi, að öllum frumbýlingunum * verði vísaö burt! — Nei, Pétur — nú ýkirðu. — Ýki ég? Ég þakka fyrir! Farið þið niður í Vilhjálms- stað og spyrjið sýslumanninn. Eöa talið þiö við bændurna á Saxanesi. Þeir gætu sagt ykkur, að Lapparnir hafa setið á hverri ráðstefnu eftir annarri, og Lappafógetinn er í ráðum með þeim. Páll vildi samt sem ekki áður trúa þessum fréttum. En frumbýlingurinn frá Miklanesi fékk óvænt liðsinni. Jónas settist upp og sagði, að hann hefði líka heyrt orðróm um það, að Lapparnir hefðu ráðið einhverjum launráðum. Það mátti heyra á honum, að hann vissi meira en hann vildi segja. En það, sem hann sagði, var samt svo ótvírætt, að djúpar hrukkur mynduðust á andliti Páls. Hann sat hugsi nokkra stund. Svo sagöi hann: — Jæja — látum það' vera, að Lapparnir geri slíka til- raun. En þingið í Stokkhólmi getur aldrei faliizt á slíkt. Pétur með skeggiö mikla hló nístandi kuldahlátur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.