Tíminn - 18.12.1948, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.12.1948, Blaðsíða 3
280. blað TÍMINN, laugardaginn 18. des. 1948. 3 Jén Svemsson bindi. Á Skipslóni Jon S\reinsson er sennilega einhver víðförlasti íslend- ingur, sem uppi hefir verið. Mikinn hluta sinnar löngu ævi, eða frá því að hann fór alfarinn frá íslandi 1870 og þar til hann andaðist suður í Köln á Þýzkalandi haustið 1944, var hann á ferðalögum víðs vegar um heim. Hann ferðaðist um flest lönd Norðurálfu, Vestur- heim og Austuríönd, alla leið til Japan. Erindi þau, sem hann flutti um ísland og íslendinga á þessum ferð- um sínum, urðu á fimmta þúsund talsins. Ættjarðar- astm var líftaug hans. Sennilega er séra Jón Sveinsson líka einn hinn víð- kunnasti allra íslenzkra rithöfunda fyrr og síðar. Þeir skipta miljónum litlu kollarnir, alla vega litir, sem grúfa sig yfir Nonnabækurnar og stafa sig fram úr þeim á mismunandi máium og með margbreytilegu letri. Sumar þeirra bóka eru þýddar á milli 20 og-30 tungur. Nú er að koma út heildarútgáfa af ritum Nonna. 1. bindið: Á SKIPALÓNI er komið. Freysteinn Gunnars- son og Haraldur Hannesson sjá um útgáfuna, en Hall- dór Pétursson hefir teiknað myndirnar. Nonnabækurnar eiga enndi til allra Islendmga, hvort sem þeir eru ungir eða gamlir, karlar eða konur. Bókaverzlun ísafoidar litla kisii fæst í hverri bókabúð. Þetta er barnasagan eftir Loft Guðmundsson, sem heillaði yngstu lesendurna í barnatíma útvarpsins. Hinn stutti formáli höfundar er þannig: „Þessa sögu hefi ég samið og skrifað fyrir litlu drengina mína og alla drengi og telpur, sem hafa gaman af dýrum og sögum. Hún seg ir frá lítilli kisu, svartri með mjallhvíta bringu og hvítan blett aftast í stýrinu. Hún kvaðst heita Ella-kisa. Á HAFÍSJAKA Eftir Peter Tulein Bók þeirra, er unna frásögnum af sævolki og svaðilförum! Sumarið 1924 flutti hið gamla leiðangursskip Shackletons „Quest“ sem þá var norskt selveiðiskip, til Reykjavíkur danska skipbrotsmenn, sem saknað hafði verið í tvö ár. Vakti koma þeirra geysimikla athygli, því þeir höfðu lent í furðulegustu mannraunum, meðal annars siglt 1000 km. leið á hafísjaka norður í íshafi. — Frá öllu þessu, svo og móttökunum í Reykjavík, segir höfundur í bók þessari, en hann var einn leiðang- ursmanna. — Bókin var metsölubók á sínu sviði í Danmörku, er hún kom út fyrir tveim árum, og valin í bókaflokk úrvals ferðasagna. Bláfjallaútgáfan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.