Tíminn - 18.12.1948, Blaðsíða 8
32. árg.
Reykjavík
18. des. 1948.
280. WaS
reisnarmenn í þann vi
inn að taka Peiping
Hershöfðingi setuliðsins reynir að semja
við tBppreisnarmenn til þess að forða horg'-
inni frá eyðileggingu.
Herir uppreisnarmanna í Norður-Kina eru nú komnir
inn í Peiping og sækja að gamla borgarhlutanum. Setuliðið
hefir tekið tii þess bragðs að brjóta niður hús, svo að þau
verði uppreisnarmönnum ekki að gagni.
Uppreisnarmenn hafa nú
umkringt Peiping algerlega
og halda inn í borgina. Þeir
munu þó ekki enn komnir
inn fyrir gömlu borgarmúr-
ana. Setuliðið hefir gripið til
þess ráðs að brjóta niður hús
við múrana, svo að þau geti
ekki orðið uppreisnarmönn-
um að gagni. Yfirmaður setu
liðsins mun hafa reynt að
hefja samninga við uppreisn
armenn um uppgjöf til þess
að koma í veg fyrir eyðilegg-
ingu borgarinnar.
Kommúnistar halda áfram
sókn sinni til Nanking og veit
ir stjórnarherinn litla mót-
spyrnu. Eru stjórnarhersveit
ir nú farnar að búa um sig
til nauðvarnar í borginni
sjálfri, ef á þarf að halda.
Hoffman er enn staddur í
Nanking. Hann segir, að um-
mæli sín um afstöðu Banda-
ríkjanna til Kína hafi verið
misskilin og afvegafærð. Seg
ist hann aðeins hafa viljað
vekja athygli á því, að ekki
væri með öllu útilokað, að
Bandaríkin veittu Kína stuðn
ing, þótt stjórnarskipti yrðu
þar.
Áætlunarbílar á íeið
til Akureyrar
Áætlunarbílar, sem fara
áttu til Akureyrar- lögðu af
stað frá Reykjavík í gær-
morgun, og var búizt við, að
gist yrði á Blönduósi eða
Sauðárkróki í nótt. En þaðan
á að reyna að komast til Ak-
ureyrar í dag. Er margt fólk
með bílum þessum.
Unnið hefir verið að snjó-
mokstri af veginum í Húna-
vatnssýslu, Langadal og Öxna
dalsheiði.
Þriggja raanna
nefnd í Korfn-
máfinu
Alþjóðadómstóllinn í Haag
hefir skipað þriggja ríkja
nefnd til þess að rannsaka
framkomin gögn í Korfumál-
Inu. E,vu nefndarmenn frá
Noregi, Svíþjóð og Hollandi
og eru allir sérfræðingar á
þessu sviði. Á nefndin að
skila áliti fyrir 10. jan nk.
en 17 sama mánaðar mun
dómstóllinn taka málið fyrir
á ný.
Frakkar hef ja nýja
sókn gegn frelsis-
hreyfingunni í
Indó-Kína
Franskt fallhlífarlið réðist
skyndilega á liðsveitir sjálf-
stæðismanna í Indó-Kína í
gær. Kom það þeim á óvænt
og vann þeim talsvert tjón.
Frakkar virðast nú vera að
hefja nýja herferð gegn frels
ishreyfingunni í Indó-Kína,
en sæta harðri mótspyrnu
landsmanna, sem vilja allt
frernur en beygja sig undir
ok Frakka.
Belgar koma sér upp
nýjum herstöðvum
í Kongó
Belgar leggja nú mikið
kapp á að koma sér upp her-
stöðvum og flugvöllum inni
í miðju Kongó. Þessar aðgerð
ir eru taldar eiga rót sína að
rekja til þess, að Belgar ótt-
ist sjálfstæðiskröfur af hálfu
Kongó-Svertingja, og hyggist
að beita ’ vopnavaldi til þess
að bæla slíka hreyfingu nið-
ur.
Allsterk frelsishreyfing gríp
ur um sig víða meðal Svert-
íngja í Afríku, þótt enn sé
þessi hreyfing ekki eins öflug
og sóknviss og meðal Asíu-
þjóða, sem búið hafa um lang
an aldur við undirokun hvítra
manna.
Ofsatrúarmenn í
Hindústan fara
enn á kreik
Hindúar úr ofsatrúarflokki
þeim, sem talinn er bera á-
byrgð á morði Gandhis, láta
allmikið á sér bera. Hvetja
til óhlýðni við stjórn lands-
ins, og á þessi herferð þeirra
að neyða hana til þess að Iáta
lausa þá foringja trúarflokks
ins, sem varpað hefir verið í
fangelsi.
Virðist flokkur þessi eiga
allsterk ítök í sumum héruö-
um Indlands, og margir ver-
ið handteknir fyrir æsinga-
starfsemi sína.
Stjórnin býr sig undir það
að beita vopnavaldi til þess
að bæla þessa óheillahreyf-
ingu niður, ef með þarf.
iiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiitiimiiiiiimiiiimiiimi
| Skattamál sam- j
| vinnuféfaga |
I Aðalfundur kaupfélags i
| ráðstafar tekjuafgangi. |
\ Nokkuð af tekjuafgangi |
| rennur til óskiptanlegra |
" sameignarsjóða, en þeir i
| eru samkvæmt landslög- i
I um almannaeign, — eign =
É ahnennings í héraðinu — |
§ og standa undir stjórn §
I þess fólks, sem í kaupfé- É
i laginu er. Þessir sjóðir 1
É kaupfélagsins 1 eru ekki É
\ einkaeign félagsmanna i
| þess fremur en varasjóður É
i sparisjóðs er eign ábyrgð- |
i armanna hans eða sveitar É
| sjóður eign hreppsnefnd- §
| armanna.
i Að öðru leyti rennur |
| tekjuafgangur kaupfélags |
i til viðskiptamannanna aft |
É ur sem sanngjarn afslátt- |
i ur frá búðarverði, svo að 1
i þeir njóti sannvirðiskjara, |
i enda er blátt áfram stofn- I
Í að til kaupfélaganna í \
| þeim tilgangi, en af þeim \
i sparnaði er rangt að taka i
í tekjuskatt. i
fliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiii^iiiiiiiiiimiiimiiiimiiiiiii
É V.-Barðstrendingar kom-
ist í samband við þjóðvega-
kerfið
I»eir leggja áherzln á, að þessuiu áfanga
verði náð á næsta sumri.
í fréttapistlum, sem blaðinu hafa borizt úr Barðastrand-
arsýslu, er m. a. sagt, að þrjár jarðýtur hafi unnið að vega-
gerð í vestursýslunni í sumar. Heyskapartíð var góð í sumar
og heyskapur mikill. Fé va,r með vænna móti.
Matvælaframleiðsl-
an í nýlendum
Breta
Síðasti fundur neðri deild-
ar brezka þingsins á þessu
ári var haldinn í gær. Sir
Stafford Cripps flutti þar
ræðu, og talaði hann um ráð-
stafanir þær, sem brezka
stjórnin hefði gert til auk-
innar matvælaframleiðslu í
nýlendum Breta. Er það eink-
um jarðhneturækt, sem leggja
á stórum aukna stund á. —
Hét hann því, að almenningi
skyldi gefinn kostur á að
fylgjast vel með því, hvernig
þessum fyrirætlunum um
aukna matvælaframleiðslu
miðaði áfram.
Hjálparstarfið í
Palestínu skipu-
lagt
Haaði-Krossinn og
Kvekarar taka það
að sér.
Hjálparstarfsemin í Pales-
tínu hefir nú loks verið skipu
lögð, og eru Rauða-kross-leið-
angrar 1 þann veginn að fara
þangað austur, ásamt kvékur
um.
Eins og kunnugt er hafa
hundruð þúsunda Múhameðs-
trúarmanna flúið frá öllu sínu
í landshluta þeim, sem Gyð-
ingar hafa á valdi sínu, og er
neyð þessa fólks meiri en orð
fá lýst. Hefir MúhameðStrú-
armönnum fundizt lítið til
um bróðurkærleika hinna
kristnu þjóða og þótt seint og
illa hafa verið brugðið við til
hjáíþar.
Erfiðar samgöngur.
Vegna erfiðra staðhátta
mun Barðastrandarsýslá vera
eitt þeirra héraða, sexp. þýr
enn við mjög erfiðay _-sam-
göngur. Menn verða enn að
láta sér nægja að ferðast upp
á gamla móðinn milli hreppa
og sýsluhluta, nota hesM eða
fara fótgangandi, og getur þó
hvort tveggja verio mjög erf-
itt, þar sem leiðin liggur víða
yfir bratta hálsa og utáh í
fjallskriðum. Verða aðdfætt-
ir til heimilanna því oft taf-
samir og erfiðir.
Nokkuð unnið s.l. sumar.
Þó má segja, að á s.l. sumri
hafi orðið nokkur bót á. Hafa
þrjár jarðýtur unnið að vega-
gerð í vestursýslunni ásamt
einni ámokstursvél, og er ár-
angur af því auðsær, þar sem
ruddir haf®. verið á þessu
sumri vegir, sem eru fast að
því jafnlangir og ýegir, þeir,
sem gerðir hafa verið á síð-
ustu tólf árum, og eru þá með
talin öll nýsköpunarárin!
Nú er svo komið áleiðis, að
akfært er á kraftmiklum bif-
reiðum frá Hvestu í Ketil-
dalahreppi um Bíldudal,
Tálknafjörð, Patreksfjörð og
að Brjánslæk á Barðaströnd.
Vestursýslan ekki komin
í samband við aðalveg.
Vestursýslan er þó ekki enn
komin í samband við , aðal-
þjóðvegakerfið og er órudd
nær því 90 km. leið frá
Brjánslæk austur að Þorska-
firði. Hefir sýslunefndin nú
sent áskorun til Alþingis um
að veita fé til þess að leið
þessi verði rudd á næsta
sumri. Telja kunnugir menn,
að þessa vegalengd mætti
ryðja fyrir svipað fjármagn
og veitt var til vega i sýsl-
unni á þessu ári.
Gera Barðstrendingar sér
góðar vonir um, að þessum
áfanga í vegagerðinni verði
náð á næsta" sumri og leggja
á-það mikla áherzlu. Yrði þar
með rofin sú einangrun, að
nokkru, sem þeir hafa orð'ið
að búa við til þessa.
Innan hreppanna er svo
unnið að vegagerð fyrir fé úr
sýslusjóði, en þeim fram-
kvæmdum miðar mjög hægt,
þar sem ekki hefir enn tek-
izt úf> fá keyptar jarðýtur til
þeirra framkvæmda, en land
þar vestra er yfirleitt vel fall
ið til vegagerðar með þeim
verkfærum. Það er þess vegna
ekki réttmætt, að *það sé lát-
ið viðgangast lengur, að al-
ger vöntun á slíkum verkfær
um sé hér þrándur í götu.
Góður heyfengur.
S.l. vor var góðviðrasamt,
en þó fremur kalt og greri
því seint. Grasspretta reynd-
ist þó í meðallagi í sumar og
heyskapartíð var farsæl o g
heyfengur góður. Uppskera
úr görðum var og fremur góð.
Sauðfé reyndist fremur vænt.
Úr sýslunni var selt allt að
því 5 þús. fjár, aðallega í
Húnavatnssýslur. Haustið
var óvenju þurrviðrasamt, og
næturfrost komu í fyrra lagi.
*
Upptaka Israefs
felld í öryggis-
ráðinu
Öryggisráðið kom saman
fundar í París í gær til þess
að ræða Palestínumálið og
upptöku ísraels í S. Þ. Upp-
tökubeiðnin var felld. Með
henni greiddu fimm riki at-
kvæði en eitt gegn henni.
Tvö riki sátu hjá og voru það
Bretar og Frakkar. Banda-
ríkjamenn og Rússar greiddu
atkjvæði, með btúðninná en
Sýrland gegn. Er upptöku-
beiðnin því felld, þar sem sjö
ríki verða að greiöa atkvæði
mjð 'til þess aö samþykki
kallist.
Sjnkrahúsið
á Siglníirði,
(Framhald af 1. síðu)
verndarstöð bæjarbúa og auk
þess gegna störfum fyrir fólk,
sem vinnur þýðingarmikil
störf fyrir þjóðina við síldar
iðnaðinn á Siglufirði á sumr
in, er þaö fyllilega tímabært,
að minna á það, að sjúkra-
hús Siglufjarðar er í raun
og veru landsspitali og ber
fjárframlag frá ríkinu sem
slíkum-
Fjárfestingarleyfi fékkst á
árinu 1948, en aðeins fyrir
útgreftrinum. Nú mun farið
fram á áframhaldandi leyfi
til að koma verkinu áleiðis
á næsta ári og byggja tvær
fiæðir á því ári. Vonast Sigl-
firðingar og aðrir, sem koma
til með að hafa not af þessu
sjúkrahúsi, eftir þvi að leyfið
fáist, þar sem hér er um að-
kallandi framkvæmdir að
ræða.