Tíminn - 20.01.1949, Blaðsíða 8
33. árg.
Reykjavík
20. jan. 1949.
14. blaff
Skos'cjr á káða styrjalilai'ajíila aS Iiæatía
kardöguni og hefja friðarsamiiiiiiga
Kínverska stjórnin hefir nú ákveðið að flytja frá Nan-
king tii Kanton og cru beir flutningar vel á veg komnir. Jafn
framt hefir hun birt áskorun til beggja herja að hætta bar-
dögum o§ hefja friðarsamninga.
Allmargt embættismanna
stjórnarinnar er þegar komið
til Kanton og verður flutningi
allra stjórnardeilda þangað
lokið bráðlega. Jafnframt
þessari tilkynningu hefir
stjórnin birt ávarp þar sem
skorað er á heri beggja deilu-
aðila í Kína að leggja niður
vopn og hefja friðarumleitan
ir. Segir stjórnin að áskorun
þessi sé byggð á þeim al-
inenna þjóðarvilja, sem kom-
ið hafi fram um að stöðva
borgarastyrjöldina og hefja
samstarf um friðsamlega upp
byggingu.
Stjórnin hefir og ráðlagt
sendisveitum erlendra rikja
að flytja bækistöðvar sínar
til Kanton.
Talið er nú, að Peiping sé
í yfirvofandi hættu, þar sem
herir uppreisnarmanna sækja
nú hart að henni og búast til
skipulegrar árásar. Er talið
ólíklegt að stjórnarhernum
takizt að verja borgina lengi
og muni því reyna að komast
að friðarsamningum til þess
að forða henni frá eyðilegg-
ingu.
Allharðir bardagar geisa
um 100 km. frá Nanking, og
er búizt við að herir upp-
reisnarmanna sæki þar fram
bráðlega.
Stjórnin hefir tekið all-
margar flugvélar hersins til
þess að flytja starfsmenn
sina stjórnardeildjr til Kant-
on.
Stjórn mynduð í
Grikklandi
Ný stjórn var mynduð í
Grikklandi fyrir tveim dög-
um og standa að henni allir
stjórnmálaflokkar landsins,
þeir er viðurkenndir eru og
leyfðir. Páll konungur ávarp-
aði þjóðina í útvarpi og
hvatti flokkana til samkomu-
lags og samvinnu um þjóð-
málin svo að ekki þyrfti að
grípa til annarra ráða til
þess að forða landinu frá
stjórnleysi. Eftir það náðist
samkomulag um stjórnar-
myndun.
„Kaldbakur“ afla- og sölu-
hæstur af minni togurunum
Samkvæmt afla- og söluskýrslum íslenzkra togara fyrir
ériff 1948 er Akureyrartogarinn Kaldbakur afla- og sölu-
liæstur nýju togaranna af minni gerðinni á árinu. Togarinn
Neptúnus úr Reykjavík er hæstur, en hann er af stærri gerff-
inni. Kaldbakur fór alls 14 ferffir til útlanda meff afla sinn
á árinu. Heildaraflinn varð 3887 smálestir og söluupphæffin
samtals 162.100 sterlingspund. Neptúnus fór 13 ferðir, aflaði
4067 smálestir og seldi fyrir 171.753 sterlingspund. — Útgerff
Kaldbaks hefir gengið giftusamlega á allan hátt. Til tog-
arans valdist hinn frábæri dugnaffar- og aflamaffur Sæmund
ur Auffunsson skipstjóri. Stjórn öll í landi þykir einnig hafa
fariff prýffilega úr hendi af hálfu framkvæmdastjóra Útgerff-
arfélagsins, Guffmndar Guffmundssonar og starfsliff hans.
Eftir atomsprengingarnar miklu. sem Bandaríkjamenn gerðu í tilraunaskyni við Bikini-eyjar, var ekki
leyft að birtar myndir, sem teknar voru við þetta tækifæri. Nú nýlega hefir þó verið leyft að birta
nokkrar þessara mynda og er hér ein þcirra. Sýnir hún þoku- og gufumökk sem myndaðist við eina
mm sprenginguna.
Öll brezka stjórnin
saraþykkti að senda
flugvélarnar
Henderson, flugmálaráð-
herra Breta, skýrði lávarða-
deild brezka þingsins frá til-
drögum þess, að brezku flug-
vélarnar fimm, sem skotnar
voru niður við landamæri
Egiptalands og Palestínu
á dögunum, voru sendar í
þennan leiðangur. Sagði hann
að tilgangurinn hefði ein-
göngu verið sá að fá áreið-
anlega vitneskju um innrás
Gyðinga í Egiptalandi. Hann
kvað það einnig álit sitt, að
flugvélarnar hefðu ekki farið
inn fyrir landam. Palestínu.
Einnig sagði hann, að flug-
vélarnar hefðu verið sendar
í leiðangurinn með fullri vit-
neskju og samþykki allrar'
brezku stjórnarinnar. Mun
stjórnin hafa talið ástæðu til
þessara upplýsinga vegna
spurningar þeirrar um það,
hver bæri ábyrgð á tapi þess-
ara flugvéla, sem Churchill
kvaðst mundi bera fram í
þinginu seinna í þessari vilku.
Brezk farþegaflug-
vél ferst
29 maiisas liíða bana
Brezk farþegaflugvél týnd-
ist á leiðinni milli Bermuda-
eyja og Jamaica fyrir tveim
dögum og var hennar leitað
af flugvélum og skipum í gær
og fyrradag en árangurslaust.
Til vélarinnar hefir ekkert
spurzt og ekkert fundizt er
gefi til kynna, hver hafi orð-
ið örlög hennar. Með vélinni
voru 22 farþegar auk sjö
manna áhafnar. Vélin er nú
með öllu talin af og þeir, sem
í henni voru, og var það til-
kynnt í báðum deildum
brezka þingsins í gær.
Frakkar viðurkenna
Ísraelsríki
Franska stjórnin hefir nú
viðurkennt Ísraelsríki sem
sjálfstætt og fullvalda ríki og
tekið upp stjórnmálaleg við-
skipti við það. Var þessi við-
urkenning veitt eftir umræð-
ur og samninga um það milli
frönsku stjórnarinnar og full-
trúa ísraels. Munu Frakkar
þegar hefja nokkur viðskipti
við ísraelsmenn.
Umferðarstöðvun í
Reykjavík í gær
Við lá að algjör umferðar-
stöðvun yrði hér í bænum í
gærkvöldi, vegna ófærðarinn
afr. Var svo mikill snjór á
götunum, að bílar stóðu fast-
ir í honum víðs vegar um göt-
ur bæjarins og máttu sig
hvergi hreyfa. Strætisvagn-
arnir gengu þó lengst af, en
gekk illa að halda áætlunum
og urðu stundum að fara aðr
ar götur, þegar venjulegar
leiðir urðu ófærar. Ófært var
með öllu milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur frá því síð-
degis í gær.
Bifreiðastöðum bæjarins
var lokað um klukkan sex og
næturakstur féll niður í gær-
kvöldi.
Ráðstefna í Nýju
Dehly um Indónesíu
raálin
f dag hefst ráðstefna níu
ríkja í Nýju Dehli. Fjallar
hún um Indónesíumálin og
mun Nehru forsætisráðherra
Hindústan verða í forsæti á
henni.
Maður bíður bana
Féll nlður um þak-
glugga
Síðastliðinn mánudag vildi
það sviplega slys til í Reykja-
vík, að ungur maður féll nið-
ur um þakglugga og beið
bana af. Þessi ungi maður
var Jón Ásgeirsson til heimil-
is að Sörlaskjóli 48. Hann var
aðeins 23 ára að aldri.
Slysið vildi til með þeim
hætti að Jón heitinn var að
moka snjó af þakgluggum á
húsi Steinsteypunnar h.f. við
Vitatorg, því að- rafmagns-
laust var og dimmt inni.
Vissu félagar hans, er inni
voru ekki fyrr til en Jón féll
inn um gluggann á gólfið.
Var hann fluttur á sjúkrahús,
en lést þar skömmu síðar.
Fjórtán ára peninga-
falsari
í Kávlinge í Svíþjóð fannst
nýlega heimagerður hundrað
króna seðill. Við nánari rann-
sókn kom í ljós, að 14 ára
drengur hafði búið seðilinn til
og notað til þess „kalki“-papp
ír. Hafði hann teiknað seð-
ilinn eða dregið hann í gegn
á hvítan pappír eftir fullgild-
um seðli.
Síðan hafði drengurinn sýnt
föður sínum seðilinn, og hann
hafði hrósað drengnum fyrir
vandvirknina og dráttleikn-
ina, en ekki komið til hugar,
að drengurinn mundi reyna
nota seðilinn sem gjaldmiðil.
Drengurinn fór nú samt með
bróður sínum, sem var 17 ára
inn í búð og keyptu þeir eitt-
hvað, en þégar þeir ætluðu að
greiða með hinum falska
seðli, sá kaupmaðurinn þegar
að eitthvað var athugavert
við seðilinn.