Tíminn - 03.02.1949, Blaðsíða 4
A
TÍMINN, fimmtudaginn 3. janúar 1949
24. blalð
Reiknar þú eins o
Morgunblaðið?
Um alllangt skeiö hefir
Morgunblaöið haldið uppi
stöðugri baráttu gegn kaup-
félögunum og meöaL annars
krafizt þess, að skattar á
þeim væru stórum þyngdir.
í því sambandi hafa skatta-
málin nokkuö verið rædd hér
i blaöinu og verður því vænt-
anlega haldiö áfram. Hér er
svo mikið mál á ferð, að rétt
er að ræða það til þrautar.
Mbl. sagði fyrir nokkru, að
ríminn hefði gert sér upp
am þessi mál orð, sem það
befði aldrei haft. Tíminn bað
'Mbl. að tilgreina þau um-
mæli. Við því hefir Mbl. ekki
orðið enn, svo að ég viti. En
eitthvaö finnst mér þaö und
arlegt, að bera fölsun á and-
stæðinginn, en fást svo ekki
cil að segja, hver fölsunin
bafi verið. — En Mbl. hefir
sínar aðferðir fyrir sig.
Það mun hafa verið 4. nóv-
ember, sem Mbl. birti útreikn
inga um það, hvað tiltekið
kaupfélag, Kron, hefði greitt
i skatta síðastliðiö ár, ef það
hefði verið hlutafélag eða ein
staklingur. Það er athyglis-
vert, að í þeim tekjum, sem
það þar vill láta kaupfélagið
greiða tekjuskatt af, er meiri
hlutinn fé, sem úthlutað var
í reikninga viðskiptamanna í
hlutfalli við úttekt þeirra það
ár, sem þessi afgangur safn-
aðist.
Þetta fé, sem samkvæmt
samvinnulögunum skiptist
• milli viðskiptamanna í réttu
hlutfalli, er þvi raunverulega
ekki eign félagsins. Það eru
heldur ekki nýjar tekjur fé-
lagsmanna, heldur sparnað-
ur þeirra, vegna þess, að þeir
hafa fundið sér hagkvæmt
fyrirkomulag í verzlun. Þó að
Valtýr Stefánsson fái afslátt
af frakka eða hatti, á hann
ekki að leggja það við rit-
stjóralaun sín, sem viðbót við
skattskyldar tekjur. Kaup-
maðurinn, sem afsláttinn gaf,
á ekki heldur að leggja af-
sláttinn við sínar tekjur.
Þeir, sem myndað hafa
Kaupfélag, fá allir afslátt eft-
ir sömu, föstu reglunum, ef
afkoman leyfir, fara fram á
sama rétt á þessu sviði. Þeir
yilja hvorki láta telja afslátt-
inn skattskyldar tekjur hjá
sér né verzluninni.
í síðustu grein Mbl. um
þessi mál, er komið að kjarn-
anum. Þar segir svo, að ef
kaupfélögin eigi að hafa rétt
til þess, að leggja undir sig
verzlun og annan arðvænleg-
an rekstur í landinu, hljóti
að fækka þeim einkafyrir-
tækjum, sem mestan hafi
gróðann og hæsta greiði
skattana. Og þá verði að
leggja byrðarnar, sem háu
gjaldendurnir beri nú, á al-
menning.
Það er rétt að hugsa þessa
hugsun til hlítar. Við skulum
se_gja, að samvinnufélög út-
vegsmanna næðu allri veið-
arfæraverzlun og öllum þeim
verkstæðum, sem gera við
skip og vélar. Segjum svo, að
kaupfélögin ættu vélaverk-
stæði í sveitum. Bílstjórar
ættu sjálfir bílaverkstæðin.
Allt væri þetta rekið á sam-
vinnugrundvelli, svo að tekju
afgangurinn rynni til við-
skiptamanna og kæmi fram
Ki'íii* Halldúr Krisíjánssoia.
sem hagstæðari viðskipti.
Sjálf hefðu þessi fyrirtæki
ekki annað eftir en það, sem
þau hefðu til að tryggja rekst
ur sinn og framtíð. Þar sem
það væri eign almemrings,
lyti það allt öðrum reglum
um skattgreiðslur en persónu
legur einkagróði.
Eftir þessu væri svo öðru
hagað. —
Þetta er sú skelfilega mynd,
sem Mbl. er að ógna fólkinu
með.
Við skulum reikna einn lið
í þessu mikla dæmi. Þá sjá-
um við, hvað kemur út úr
dæminu í heild.
Hugsum okkur þúsund bíl-
stjóra og eitt viðgerðarverk-
stæði. Ef það græddi þúsund
krónur á hverjum, yröi' gróð-
inn 1 milljón. Það er mikill
skattstofn að missa.
Nú myndi þetta fyrirtæki
þó aldrei greiða 100% af tekj-
um sínum til almennings-
sjóða. Væi’i það hlutafélag
myndi það hafa þau fríðindi
ag mega hafa drjúgan hluta
teknanna skattfrjálsan í
varasjóði, þegar það hefði
dregið frá vegna afskrifta.
Auk þess er hætt við, að marg
ur trúi því, að lítil trygging
sé fyrir því, að gróðinn kæmi
allur í lj ós við framtal, svo að
enginn snefill af honum færi |
í vasa eigendanna, sem!
„reksturskostnaður“ fyrirtæk 1
isins eða eitthvað aixnað.
Mergurinn málsins er sá,
að þessi milljón yröi eixgan
vegiixn öll skatttekjur hiixs
opinbera. Það þyrfti því ekki
að taka allaix arðinn af bíl-
stjórunum, þö að þeir yrðu
sjálfir að greiða öll hiix opixx-
beru gjöld, sem ella hefðu
legið á þessum skattstofni.
Ég reikna mitt dæmi þaixix-
ig, að ég vil heldur fá 100
ki’ónur frá samvimxufélagi
mínu og greiða nokkuð af
þeim í opinbera sjóði, og hafa
nokkuð eftir sjálfur, en að
greiða eiixkafyrirtæki 100
krónur og fá aldrei neitt af
; þeim aftur.
Það er gamalt mál, að
betri sé hálfur skaði eix all-
ur. Og einkafyrirtækin taka
alltaf til sín meiri gróða en
nemur opixxberum gjöldum,
sem þau greiða.
Það væri mörgum íbúa
Reykjavíkur ljúft að fá þau
skipti, aö greiða 300 króixur
til ríkis og bæjar í stað 600
króna til húsabraskaraixs.
Það, sem Mbl. tekur ekki
(Framhald á 7. siðu).
Óhóflegt lóðarverð
JEftir Sigurð Júiissou. Efra Lóni.
Á s.l. sumri var metin lóð
undir hraðfrystihús, sem
Kaupfélag Langnesinga var
byrjað að byggja á Þórshöfn,
en varð að fresta vegna fjár-
skorts, er lán, sem lofað
hafði verið úr Stofnlánadeild
sjávarútvegsins, brást.
Samkomulag íxáðist ekki
milli laixdeigenda og Kaup-
félags Laixgnesinga um verð
lóðarinnar, en báðir aðilar
féllust á að fela þriggja
manna íxefnd utaixhéraðs-
mamxa að ákveða verðmæti
lóöarinnar. Eftir ábendingu
nefndai’iixnar var formlega
frá því gengið að matið
skyldi verða bindandi fyrir
báða aðila, hvort sem þeir
yrðu ánægðir með það eða
ekki.
Þórshöfn er verzlunarstað-
ur - með í’úmlega 300 íbúa.
Landrými er mjög mikið.
Niður við höfixina er þó frem
ur þi’öngt vegna íbúðarhúsa,
sem þar hafa verið byggð af
lítilli fyrirhyggju, eins og oft
vill verða, þar sem ekkert er
fyrirfram skipulagt, en til-
viljun ein virðist ráða hvar
byggt er.
Að áliti frystihúsasérfræð-
ings S. í. S. reyndist því ekki
unnt að ætla húsinu stað við
höfnina, en í þess stað var
því valinn staður á svonefnd-
um Löixgufjörubakka yst í
þorpinu. Hvað sem um þá
ráðstöfun má segja virtist þó
eitt mæla með lóð þar. Húix
hlaut að verða ódýr.
Meixn uröu því býsixa hissa,
er þeir fréttu að matsnefnd-
in hefði talið hæfilegt að
landeigendum væru greiddar
kr. 51.000,00 fyrir 3000 ferm.
lóð á grýttu og nytjasnauðu
landi. Þess má geta hér, að
sennilega verður kaupfélagið
að fá þarna viðbótarlóð, ef
hægt verður að halda bygg-
ingunni áfram. Má jafnvel
búast við að tvöfalda þurfi
þá lóð, sem nú er fengin.
Yrði lóðin þá öll um 100 þús.
krónur með sama verði).
Skilja menn ekki hvaða rök
hníga að því að þetta verð
sé hæfilegt á þessum stað.
Hefir matsnefndin þvi hlotið
allóvægan dóm fyrir mat
sitt. Hinsvegar er ekki vitað
að nokkur hafi treyst sér til
þess að færa rök að mati
nefndarinnar.
En með því að nefndaf-
mennirnir eru allir búsettir
utan þessa verzluixarhéraðs
og geta því ekki persónulega
skýrt sín sjónarmið fyrir fé-
lagsmönnum Kaupfélags
Langnesinga, sem fá að
borga brúsann, þykir mér
rétt að gefa þeim tilefni til
þess að skýra opinberlega frá
því með hvaða rökum þeir
úrskurðuðu lóðarverðið svona
hátt.
Sé þetta lóðarmat í sanx-
rænxi við verð á öðrum lóðum
í Þórshöfn og sambærilegum
stöðum annars staðar á land
inu, þá er það víst, að nxenn
hafa ekki áttað sig á þeirri
aðstöðu, sem landeigendur á
slíkum stöðum hafa til þess
að skattleggja almenning.
Hér virðist þá vera verkefni
fyrir Alþingi að koma í veg
fyrir slíkt okur nxeð íxýrri lög
gjöf. Það væri auðvelt og rétt
látt og ekki lakari dýrtíðar-
ráðstöfun en sumt annaö.
Ræða sr. Jakobs Jónssonar, sú
sem birt er í blaðinu Þjóðvörn
hefir vakið verulegt umtal. Mér
finnst nú rétt að segja frá ferð
minni til kirkju í Hallgrímssókn
síðasta sunnudag. Þá var flutt þar
ræða, sem ekki var útvarpað, en
vakið hefir nokkurt umtal. Ég held
að það. sé rétt, að ég segi dálítið
frá henni. Ræðumaður vill sjálf-
sagt ná til sem flestra og það er
líka bezt að menn hafi frétt frá
þeim sem heyrði, heldur en lausa-
fregn sem milli margra hefir farið.
Séra Sigurjón Árnason messaði.
Hann hafði guðspjall dágsins fyrir
ræðutexta, en það er frásögn af
því, þegar Jesús kyrrir vind og sjó.
Það er gamall siður að minnast
sjómanna í kirkjunum þennan dag,
vegna þess, að vetrarvertíðin sunn
anlands fór í hönd. Nú sagði prest-
ur, að slysavarnafélagið hefði beð-
ið að minnast sín og fór hann
nokkrum orðum um það og sjó-
mannsstarfið. En svo fór hann á
önnur svið.
Viðar geysa stormar en á hafinu.
Það rísa líka öldur í lífi þjóðanna.
Óró og kvíði fyllir hugi manna.
Herveldið mikla í austri hefir svipt
litlu Eystrasaltsþjóðirnar þrjár
frelsi sínu og skorið sjálfu sér
væna sneið af Finnlandi. Aðrar
þjóðir óttast yfirgang þess. Norður-
landaþjóðirnar litlu á meginland-
inu halda ráðstefnur. Þær tala um
varnarbandalag sín á milli. En
mörgum finnst að það sé ekki
nóg. Hér dugi ekki annað en varn-
arbandalag allra þjóða við Atlants
hafið. En hvað gerist á íslandi
meðan þessu fer fram?
Áður en ábyrgir aðilar hafa nokk
uð sagt um málið er hafinn öfl-
ugur áróður gegn öllu bandalagi.
Og það sem mest er. Kirkjunnar
menn vaða fram fyrir skjöldu og
hefja ósæmilegan áróður, jafnvei
Úr prédikunarstól. Þar er ekki
minnst einu orði á hættuna úr
austri. „Þetta er svo blygðunar-
Savþt j.tal'; úr prédikrj(rarstól og
hættulegt, að ég tel skyldu mína
að lýsa því yfir í prédikunarstól,
að þetta er ekki stefna kirkjunnar".
Siðan sagði prestur, að kirkjan
segði ekki fyrir um það, hvað gera
skyldi í utanríkismálum. Hún á-
minnti menn um skyldur sínar.
Guð ætlaðist ekki til þess að við
hlypum frá stýrinu og létum reka
stjórnlaust. Það, sem okkur sýnd-
ist að athuguðu máli, að væri
hollast íslenzku þjóðinni og ham-
ingju hennar, ættum við að gera
Guð ætlaðist til þess, að við not-
uðum vit okkar og þá myndi hann
leiða og vernda.
Eftir þetta ræddi prestur um
sinnuleysi mannfóiksins og versta
afbrigði þess, sinnuleysið um and-
lega velferð sina. Menn vonuðu að
þetta slampaðist allt einhvernveg-
inn, ef ekki í þessu lífi, þá hinum
megin.
Mér virðist svo margt um þessa.
ræðu talað í bænum, að ég vil segja
frá henni. Ef til vill er líka gott,
að prentuð frásögn geymist. Út-
varpshlustendur út um land eiga
líka fullan rétt á að frétta af
þessu. Bandalagsmálið sjálft er
rætt á öðrum vettvangi en minum.
En það vil ég taka glöggt fram. að
í þessari frásögn minni á ekki að
felast nein afstaða og ég sé ekki
neitt athugavert við það, að sr.
Sigurjón lýsti því yfir, að hann
væri ekki sammála því, sem sumir
stéttarbræður hans hefðu sagt. Hitt
er annað mál, hvort hann hefði
ekki náð því, sem hann vildi segja,
án þess að tala um ósæmilegan
áróður og blygðunarlaust tal. Það
veit hann en ekki ég, en þau orð
hans mun ég ekki verja í þessu
sambandi. — En svo skulum við
ekki alveg gleyma honum sr. Pétri.
Hann mætti kannske teijast kirkj-
unnar maður líka og talað hefir
hann um þessi mál.-Og því skyldu
prestar ekki mega tala?
Vegna villandi frásagnar hjá
Hannesi á Horninu vill Hall-
dór á Kirkjubóli taka það fram,
að hattinn sinn keypti hann i
Kron og þegar kalt er í veðri geng-
ur hann með loðhúfu. Að öðrn
leyti vill hann láta heilaspunann
á horninu liggja milli hluta.
Starkaður gamli
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför konunnar minnar og
móður okkar,
Helgu Þórðardóttur.
Pétur Hjálmtýsson og börn.
Námskeið
Stjórn Verkstjórasambands íslands hefir ákveðið
að halda síðdegis- og kvöldnámskeið fyrir verkstjóra í
Reykjavík og nágrenni. Námskeiðin byrja um 20.
febrúar n.k.
Sérstök námskeið verða í vinnubókhaldi, hjálp í
viðlögum, land- og hallamælingum, ef nægilega þátt-
taka fæst. Önnur kennsla verður í fyrirlestrum.
Þeir verkstjórar, sem hafa í hyggju að sækja nám-
skeið þessi, þurfa að tilkymxa það formanni sambands-
stjói’narinixar, Jóhanni Hjörleifssyni, Barmahlíð 11,
sími 2588, fyrir 10. febrúar. Hann gefur og allar upp-
lýsingar um tilhögun námskeiðanna.
Stjórnm.