Tíminn - 11.03.1949, Qupperneq 2
2
TÍMINN, föstrudaginn 11. marz 1949
54. blað
í dag:
Sólin kom upp kl. 7,02. Sólarlag
verður kl. 18,16.
20. dagur í Góu.
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunn, sími 7911. Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss kom til Vestmanna-
eyja í gær. Dettifoss fór frá Leith
í gær til Rotterdam. Pjallfoss fór
frá Reykjavík 10/3. til Keflavíkur.
Goðafoss fór frá Reykjavík 9/3.
til New York. Lagarfoss er í Kaup-
mannahöfn, fer þaðan væntanlega
12/3. til Reykjavíkur. Reykjafoss
fer frá ísafirði 10/3. til Siglufjarð-
ar. Selfoss er í Kaupmannahöfn,
fer þaðan væntanlega 12/3. til
Reykjavíkur. Tröllafoss er í New
York. Vatnajökull er í Antwerpen.
Katla fór frá New York 3/. til
Reykjavíkur. Horsa er á Siglufirði,
lestar frosinn fisk.
Ríkisskip.
Esja var á Akureyri, i gær á
austurleið. Hekla fór frá Reykja-
vík kl. 22 í gærkvöldi austur um
land í hringferð. Herðubreið var á
Seyðisfirði í gærmorgun á norður-
leið. Skjaldbreið er á Húnaflóa á
suðurleið. Súðin er í Ítalíu. Þýrili!
var væntanlegur til Reykjavíkur
kl. 19,30 í gærkvöldi. Hermóður
var á Ólafsvík í gærmorgun á leið
til Grundarfjarðar og Stykkis-
hólms.
Skallagrímur.
Laxfoss fer til Akraness og Borg-
arness á morgun kl. eitt. Fer frá
Akranesi á suðurleið kl. 7 síðdegjs.
Flugferðir
Flug.
Gullfaxi fer n.k. þriðjudagsmorg'
un til Prestvíkur og Kaupmanna-
hafnar. Og var búið að panta hvelt
rúm hans í gær, eða 40 manns.
Hekla og Geysir eru í Reykjavik.
Ekkert flogið í gær innanlands.
Arnað heilla
Austara-Landi, Haraldur Bjarna-
son bóndi Áiftanesi á Mýrum.
Fisksala á Englaudi.
Piskverð í Englandi hefir aldrei
verið eins hátt og þegar togararnir
voru yfirleitt-.að selja. í sinni síð-
ustu ferð áður en þeir tóku sér
hvíld við hafnárgarðana í Reykja-
vík.
Um það leyti var send sjö manna
nefnd af hálfu íslendinga til Eng-
lands til þess- að semja um fisk-
sölu þangað og þar situr hún enn-
þá. Er ekki laust við að Englend-
ingar c eri skop að þessari fjöl-
mennu sendinefnd íslendinganna,
er þeir senda til þeirra um leið
og þeir binda togaraflota sinn við
hafnargarðana á meðan Englend-
ingar þurfa helzt með að fá keypt-
an fisk frá íslandi.
Helgi Helgason, Eldborg o fl. hafa
selt undanfarið bátafisk á Eng-
landi fyrir ágætt verð.
Vegirnir.
Hellisheiði og' Mosfellsheiði eru
nú orðnar slarkfærar, einnig fyrir
Hvalfjörð. Krýsuvíkurvegurinn er
alauður. Kerlingarskarð slarkfært.
Var í gær verið að moka Bröttu-
brekkuveginn og Öxnadalsheiði.
Er í ráði að bifreiðar fari í dag
milli Akureyrar og Akraness, a.
m. k. af stað frá hvorum staðnum
fyrir sig áleiðis þessar leiðir. Enn
þá verður þó að draga bifreiðarn-
ar með hjálp jarðýtu yfir alllang-
an kafla á Hiltavörðuheiði.
. . •
Komnir heim.
. Porsætisráðherrann Stefán Jóh.
Stefánsson, ásamt Helga Hannes-
syni' 'for^ta Alþýðusambands fs-
lands, eru komnir heim úr Dan-
merkurför sinni.
Alþýðub'aðið, aðalblað forsætis-
ráðheirans segir í gær að forsætis-
ráðherrann hafi í ferðinni haldið
ræðu í félagi íslenzkra stúdenta í
ÍCauþmannahöfn.
Frá danska sendiráðinu.
í tilefni af 50 ára afmæli Prið -
riks IX. Danakonungs hefir sendi-
herra Dana, frú Bodil Begdrup,
móttöku gesta í sendiherrabústaðn-
um í dag kl. 4—6 e. h. fyrir Dani
og vini Danmerkur.
Mjólkurafurðir.
Nóg mjólk hefir borizt til bæjar-
ins, að undanteknum örfáum dög-
um þegar var allra mest snjókom-
an. Einnig hefir skyr verið nóg
undanfarna daga og oftast nægjan
legur rjómi.
Það er Krýsuvikurvegurinn, sem
hefir bjargað flutningunum að
austan um langt skeið, þó að heim-
ildarmaður Morgunblaðsins úr bíl-
stjórastéttinni að austan reki
hníflana í Krýsuvíkurveginn í við-'
tali hér í blaðinu nýlega. Var það
sérstakt lán, og þó dálítið ein-
kennilegt, að Krýsuvíkurvegurinn
skyldi verða fyrst slarkfær sama
daginn, sem heiöarnar að austan
urðu ófærar fyrir mjólkurflutn-
inga til Reykjavíkur.
Togaradeilan.
Ekki var togaradeilan leyst í gær
kvöldi. Er nú senn mánuður síðan
hún hófst. Þegar samið var um
sm'ði hinna nýju togara vildu
Pramsóknarmenn gera ráðstafan-
ir til þess að stöðva verðbólguna,
sem þá var rniklu auðveldara að
gera he'dur en nú. Þess gerðist ekki
þörf sögðu ráðandi menn þá í
öðrum herbúðum. Verðbólguna væri
hægt að lækna- með einu penna-
striki, þegar þess gerðist þörf. Hin
dýru skip liggja nú fyrst og fremst
í höfn vegna verðbólgunnar, en
ekki hyllir samt ennþá undir mann
inn með pennastrikið.
Fundur á Selfossi.
Alþýðublaðið í gær segir í stór-
letraðri fyrirsögn á forsíðu sinni:
„S. U. J. skorar á S. U. P. til ein-
vígisfundar austur á Selfossi. Fund
urinn verður á sunnudag og ræðir
öryggi ís'ands og Pramsóknar-
flokksinns".
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band Ingibjög Þorsteinsdóttir Lfn-
dal og Benedikt Kristjánsson skip-
stjóri Skipasundi 19.
Trtilofanir.
'Nýlega hafa birt hjúskaparheít
sitt ungfrú Jóna Ingimundardóttir,
Keflavík ig Ragnar Pétursson frá
Reyðarfirði.
Einnig Marsilía Kristinsdóttir
frá Húsavík og Eggert Sveinsson
málmsteypumaður Reykjavík.
Ennfremur ungfrú Kristín Hin-
riksdóttir og Þórarinn Andrésson
(Andréssonar klæðskerameistara)
Úthlíð 3, Rtjykjavík.
Skemmtanir
Samvinnuskólinn.
í kvöld minnast samvinnuskóla-
nemendur 30 ára afmælis Sam-
vinnuskólans með samkomu að
Hótel Borg. Hefst hófið með snæð-
ingi klukkan sex síðdegis.
Árshátíð.
Hestamannafélagið Pákur hefir
árshátíð sína að Þórskaffi annað
kvöld og hefst hún kl. 6 e. h.
Úr ýmsum áttum
Gestir í bænum:
Lárus Björnsson bóndi í Gríms-
tungu, Bjarni Benediktsson bóndi
Þjóð í nauðum
Eg hitti í fyrrakvöld tvo þýzka
kunningjá mína, sem báðir eru á
togará, (' kóm hér til hafnar vegna
veiðarfæramissis. (Innan sviga sagt,
þá var myndarlega greitt úr því,
af kunnum manni hér í bænum).
Þessir menn höíðu frá mörgu að
segja, og sú barnalega skoðun m'n,
að ástandið í Þýzkalandi færi sór-
um batnandi, hrundi til grunna.
. Þegar þessij menn komu inn í
stofuna mina, sem ekki er stór,
sagðí annar þeirra: „Ef þetta her-
bergi væri i Hamborg, myndu búa
hér að minnsta kosti þrjár fjöl-
skyldur með tvö, þrjú eöa fjögur
börn hvér“.
Skorturinn á flestum hlutum er
svo gífurlggur, .að það mega undur
kallast, hvernig fólk dregur fram
lífið. Það er að segja: Margt er
til, en það er selt á svörtum mark-
aði, og þar er verðið svo hátt, að
engir geta keypt, nema þeir, sem
komizt hafa yfir peninga með ævin
týralegum hætti. Börnin ganga til
dæmis þúsundum saman berfætt
og skólaus í vetrarkuldunum. Hvers
konar sjúkdómar herja, og nú er
komið ægilegt atvinnuleysi. En eitt
getur fólkið veitt sér sjálft: Það
er áfengi — ef hægt er að kalla
það því nafni. Allir brugga sjálfir
— flestir virðast geta haft úti klær
til þess að ná í það, sem til þess
þarf.
Þjóðin er mergsogin, vonlítil og
flestir hugsa aðeins um það að
hrammsa það, sem náð verður með
einhverjum hætti. Og þá eru marg
ir óvandir að meðölunum. Þegar
sjómennirnir koma heim af fjar-
lægum miðum með fiskinn og hafa
kannske í föggum sínum gamla
skó eða sokka, sem þeim hafa
verið gefin á börnin sin, þar sem
þeir kunna að hafa komið í land,
til dæmis hér í Reykjavík, leggja
tollverðirnir óðar hald á þetta, ef
þeir finna það — ekki þó til þess
að láta það ganga í sameiginlegar
birgðaskemmur borgaranna, heldur
til þess að stinga því í eigin vasa.
Stúlkur, sem komast að sem
^ skækjur hjá hinu erlenda her-
námsliði, þykja hafa himin hönd-
um tekið.
En þrátt fyrir allt, sem nú hrjáir
þýzku þjóðina, er þó óttinn við
nýja styrjöld geigvænlegastur. Og
undirbúning þess telja Þjóöverjar
sig sjá í a'gleymingi, beggja megin
járntjaldsins. „Ég fer ekki aftur í
styrjöld", sagði annar sjómann-
anna, sem ég talaði við. „Ég vil
þá heldur að þeir skjóti mig
heima". Þessi maður var eindreg-
inn jafnaðarmaður og fór rnjög
hörðum orðum um framferði S.S.-
og S.A.-mannanna þýzku, bæði
heima og erlendis meðan á styrj-
öldinni stóð. J. H.
^JéíciCfálíj^
U. M. F. R.
Æfingar í Menntaskólasalnum:
Miðvikudaga kl. 9—10 Handbolti
og frjálsar íþróttir kvenna.
Pimmtudaga kl. 9—10 Vikivakar.
Stjórnin
Skíðaferðir í Skíðaskálann. Laug-
ardag kl. 2, til baka kl. 6. Sunnu-
dag kl. 9 og kl. 10. Farið frá Aust-
urvelli ig Litlu Bilstöðinni.
Farmiðar þar og hjá L. H. Miiller
til kl. 4 á laugardag. Selt við bíl-
ana ef eitthvað óselt.
Skíðanámskeiðið stendur yfir.
Kennsluskirteini hjá MUller og í
Skíðaskálanum.
Skíðafélag Reykjavíkur.
M.s. Dronning
Alexandrine
Næstu tvær hraðferðir frá
Kaupmannahöfn 11. marz og
29. marz. Flutningur óskast til
kynntur til skrifstofu Samein
aða í Kaupmannahöfn.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen.
Erlendur Pétursson.
mmimimmimmmmiiimimimimmmmmmimmimmimimimimmmimmiimmmiiimimimimimmmmimmmmimmmmmmmmmmiimmi
S. U. F.
^l^anóieiLur
í samkomusal Mjólkurstöðvarinnar í kvöld kl. 9.
• =
Mioasala í anddyri hússins frá kl. 8.
iiimimiiimiiimmiiimiimiiiiiimmiiiiimiiiimmiiimiiimmiiimiuiimimiimiiiiimiimmmiMiiiiiiiiiiiiiimT
Járniðnaðarmenn
Nokkrir vanir j árniðnf'ðarmenn óskast nú þegar
Vélsmiðjan Jötunn h.f.
IIIIIIIIIIIIIMIIM.II.IIIIIIIM.Mllllll.I.IMMIIMMIIIMMIIIMIIIIIIMM.MIIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMI
Maðtir vanur landbúnaðarstörfum
óskar eftir atvinnu með vorinu. Er vanur vélmjöltum
og bilkeyrslu og hefir unnið sem gervismiður við húsa-
smíðar. Einnig kæmi til greina leiga á viðráðanlegri
jörð, ásamt áhöfn, á stað er vel lægi við samgöngum.
Þrifnaði, samvizkusemi og góðri umgengni heitið.
Ef einhver vildi sinna þessu, vinsamlega sendi nafn
og heimilisfang til afgreiðslu „Tímans,“ og tilgreini þá
X væntanlegt kaup, vinnutíma og annað er máli skipt-
ir, eigi síðar en 25. marz merkt: „Búnaður."
IIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII.MIMIUMIIIIIIIMIIIMIIIMIMMIIMMIMMMMMMIIIMMMMMMMMMMMMIMI
VÖRUJÖFNUN
á vefnaði og skófatnaði hefst í dag, 11. þessa mán.
Vörujöfnunin verður á verðmætisgrundvelli og gef-
ur hver eining rétt til kaupa á 10 kr. verðmæti. Af-
greiðsluröð fer eftir .númerum vörujöfnunarkorta.
Byrja á nr. 1—25 kl. 9 f. h. og heldur áfram 25 núm-
er á klukkustund tvo fyrstu dagana. Athugið að milli
kl. 12 og 2 verður ekki afgreitt.
Fylgist með auglýsingum um vörujöfnun í matvöru
búðunum.
\A Á, ÍVj I 1
l
iiiiiniiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíínMiiiii: