Tíminn - 31.03.1949, Side 8
E3. ársr.
Reykjavík
„A FÖRNV9I VEGI“ í DAG:
Framhoma
31. marz 1949
70. blað
Skýrsla lögregltistjórans um
oeirðirnar i
Eiiiu lög'rp-g'iujijónn liættiilcga særftnr
í gærkvöldi sendi lögreglustjórinn í Reykjavík eftirfar-
andi skýrslu um óeirðirnar í sambandi við afgreiðslu Al-
þihgis á tillögu ríkisstjórnarinnar um þáttöku í Atlants-
feáfsbandalaginu.
Vegna þeii-ra óeirða, sem
átt hafa sér stað hér í bæn-
um i dag, vill lögreglustjór-
:inn|(taka eftirfarandi fram:
Þar sem vitað var að af
liálfu vissra afla hér í bæn-
m hafði verið vakin nokkur
mótmælaalda gegn samþykkt
.^tlandshafssáttmálans, taldi
Vögreglan sennilegt að reynt
: rSi .að koma óeirðum af stað
:?A£aftibandi við umræður og
ufgreiðslu málsins á Alþingi.
: tilefni þessa var í gær sett-
nr,. lögregluvörður í Alþingis-
íjiúsið og fyrir utan það, er
umræður hófust, til þess að
kpma í veg fyrir óspektir.
•nStrax eftir hádegi í gær-
uag safnaðist allmikill mann
ijöldi fyrir framan Alþingis-
húsið og að áliðnum degi var
mannfjöldinn á Austurvelli
urðinn mjög mikill. Fór þá að
bera á ærslum og hávaða, sem
jo^kt eftir því sem leið á
k.yöidið. Bar mest á ungling-
um, nokkru áður en umræð-
um var lokið um kvöldið, var
grjóti kastað í glugga Alþing
shússins og hélt grjóthríðin
úfram, unz brotnar voru 11
rúður í Neðri deildarsal Al-
bíngis og 3 rúður í aðalinn-
gangi hússins.
I.ögreglan reyndi að sefa
aspektarmennina og vék
peim frá húsinu og féll þá
g-rjótkastið niður i bili. Vegna
.nyr.kurs og mannfjölda tókst
lögr.eglunni ekki að handtaka
arásarmennina. Einnig var
kastað grjóti á Sjálfstæðis-
húsið og brotnar þar nokkr-
arijrúður, en lögreglan drefiði
mannfjöldanum og lauk ó-
spektunum þar með.
Végna þessara atburða og
öfriðlegs útlits í dag og með
þvf;áð boðað hafði verið til
útffUndar í miðbænum án
leýfis lögreglustjóra, var sett
uhböflugur lögregluvörður í
T Of í>
oiiiiri'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiuiiiiiiiiii
I Framsóknarvist J
Framsóknarfélögin í |
n Reykjavík efna til sam- I
| komu í samkomusal mjólk s
| urstöðvarinnar n. k. föstu- |
| dagskvöld.. Verður þar spil 1
| uð framsóknarvist, sungið i
| og dansað. Þá verður einn i
y ig flutt stutt ræða.
jj Þar sem nokkuð er um- f
f liðið síðan síðasta sam- |
| koma Framsóknarfélag- i
| anna var haldin má gera 1
| ráð fyrir að mikil eftir- |
H spurn verði eftir aðgöngu- |
| miðum. Er framsóknar-1
'i fólki sem hefir í huga að |
| sækja þessa samkomu því 1
§ bent á að tryggja sér hið i
| fyrsta aðgöngumiða. Pönt- f
| un aðgöngumiða er veitt §
§ móttaka í síma 6066 og |
| 80300. I
•illlilliilillirillllllllllllllllllllllifrvrllllllllllllii>lllilllllll
Alþingishúsið og í kring um
það.
Eftir hádegi sáfnáðlst mik-
ill mannfjöldi Samán á Aust
urvelli. Var þar á meðtii hóp-
j ur óspektarmanna, er hafði
ii frammi háváða1 ög óþ. Tóku
j þeir að kasta moldarhnaus-
urrí, eggjum og grjóti á Al-
þingishúsið. lögregluna og
friðsama borgara.
Lögreglan reyndi að þagga
niður í árásarmönnum og
fjarlægja þá frá Álþingishús
inu, en þeir réðust þá á móti
með barsmíði og grjótkasti.
Var gerð tilraun til að rífa
niður trégrindaverk í barefli
á lögregluna. en komið var að
méstu í veg fyrir það. Eftir
þetta mátti heita að nær ó-
slitin grjóthrið væri á Alþing-
ishúsið og þá sem næst því
stóðú. Lemitu sumir steinarn-
ir inn í þingsal meöan á
fundi stóð og féllu glerbort
víða um salinn. Var þá lög-
reglunni og hj/ilparmönn-
um hennar gefin fyrirskipun
um að dreifa mannfjöldan-
um með kylfum. Hörfuðu þá
óspektarménnirnir til baka.
en sóttu brátt að á ný með
barsmíðum og grjótkasti.
Að undangenginni aðvörun
í hátalara var lögreglunni
gefin skipun um að kasta
táragasi á óspektgrlýðinn og
var honum þar með sundr-
að. Aðför þessari var síðan
fylgt eftir af lögreglumönn-
um og Ailsturvöllur gjör-
hreinsaður. Óspektarmennirn
ir gerðu nokkrir fleiri til-
raunir til að þyrpast saman í
miðbænum en þeim var sundr
að með táragasi.
Nokkrir árásarmenn voru
handteknir og hefir lögregl-
an þegar vitneskju um ýmsa
fleiri.
Eftir þetta komst á kyrrð í
bænum.
Eftirtaldir lögreglumenn
urðu fyrir meiðslum, sem hér
segir: Framh. á 7. siðy.
Utanríkisráðherra
farinn vestur um
haf
Bjarni Benediktsson ut-
anríkisráðherra lagði af
stað til Bandaríkjanna í
gærkveldi flugleiðis til
þess að undirrita Atlanz-
hafssáttmálann fyrir ís-
lands hönd á mánudaginn.
í för með honum er Hans
Andersen þjóðréttarfræð-
ingur.
Óeyrðirnar við
Aiþingishúsið
Fram. af 1. ’sfðu.
meö hátalara og fluttu æsi-
fréttir sínar í hann.
Aðalátökin hefjast.
Þegar atkvæðagreiðslu
var lokið í þinginu og
fundi slitið þar um klukk-
an 2,30 dreifðist mannf jöld
inn ekki að heldur og
reyndi lögreglán tvívegis
að dreifa mannfjöldanum,
en hann þyrptist jafnharð
an að aftur. Var fólkið beð
ið að fara og beiðnin flutt
í hátalara, én það kom fyr
ir ekki, enda mun hún ekki
hafa heyrzt nema í ná-
munda við þinghúsdyrnar,
þar sem hávaði var mik-
ill.
Lögregluþjónar gerðu þá
útrás úr Alþingishúsinu og !
reyndu að þrýsta mann-
fjöldanum frá, og nutu til
þess hjálparsveitar sinnar.
Voru það menn, sem lög-
reglan hafði kvatt sér til
aðstoðar og búið hjálmum
og kylfum. Hófu óróasegg-
irnir þá harðari árás á lög
regluna.rifu upp grjót.sem
er meðfram gangstéttum á
vellinum og köstuðu að
henni og hjálparsveit henn
ar. Beitti lögregluliðið þá
kylfum og rétt á eftir tára
gasi og dreifðist mannf jöld
inn þá skjótt. Fóru alþing-
ismenn, sem ekki höfðu
komist úr húsinu fyrr, þá
út.
Fimm lögreglumenn særast.
í þessum átökum urðu all-
margir fyrir meiðslum bæði
af grjótkastinu og höggum.
Meiddust fimm lögregluþjón
ar og einn þeirra illa, og er
nánar sagt frá því í skýrslu
lögreglustjóra hér á eftir.
Ýmsir óróaseggirnir og aðrir
óbreyttir borgarar hlutu og
meiðsl, þótt ekki séu þau tal-
in hættuleg. í slysavarðstof-
una á Landsspítalanum komu
12 menn til aðgerðar og voru
ellefu þeirra sendir heim að
aðgerð Jokinni n einn lagður
inn í sjúkrahúsið. Tveir menn
leituðu læknisaðgerðar í
Landakotsspítala og einhverj
ir munu hafa farið til ann-
arra lækna og ýmsir hlotið
minni sár.
Mannfjöldinn flúði undan
táragasinu og safnaðist í all-
stóra hópa á Lækjartorgi og
víðar og dreifði lögreglan
þeim hópum með táragasi.
Einnig hópuðust menn í Aust
úrstræti og að lögreglustöð-
inni. í gærkveldi var allmargt
fólk á ferli í miðbænum, en
ekki kom til frekari óspekta.
Alþingishúsið ófrítt ásýndum.
Flestar rúður í framhlið Al-
þingishússins eru brotnar
sem fyrr segir og húsið slett-
ótt eftir eggjakastið og mold-
arhríðina.
Góð framkoma lögreglunnar.
Lögreglan kom yfirleitt
Mynlin sýnir Belsay-kastala í Englandi en þar er nú starfrækt eins
konar æskulýðsheimili, þar sem drengir dvelja við störf og nám.
Bevin kominn tii New York
ásamt fleiri ráðherrum
Bevin utanríkisráðherra Breta kom til New York í gær
með Queen Mary ásamt Spaak utanríkisráðherra og fleiri
ráðherrum Evrópuríkja, sem undirrita Atlanzhafssáttmál-
ann á mánudaginn.
Fréttamenn áttu tal við
Bevin í gær og ræddi hann
sáttmálann. Sagði hann að
stofnun Bandalagsins sýndi
gerla, að lýðræðisríkin gætu
komið sér saman, þegar þau
vildu og tryggt þannig var-
anlegt öryggi sitt og velmeg-
un. Hann sagðist ekki álíta
að styrjöldi væri*yfirvofaiidi
og bandalagið væri ekki stofn
að af beinum ótta* við það
heldur til þess að vera við-
búinn, ef nauðsyn krefði.
Þjóðirnar hefðu vænzt þess
að S. Þ. gæti veitt nægilega
vernd og tryggt frið en nú
væri komið í ljós, að svo væri
ekki. Þess vegna yrði mynd-
uð varnarbandalög á ákveðn-
um svæðum í samræmi við
sáttmála S. Þ.
Hann sagði, að Atlanzhafs-
bandalagið væri liður í slíkri
varnarkeðju til verndar friði
í heiminum og til varnar gegn
stríði.
Er Bevin var að því spurö-
ur, hvort undirbúningur að
stofnun Miðjarðarhafsbanda-
lagsins væri hafinn, kvað
hann nei við því.
fram með festu og öryggi í
þssum óspektum og var fram
koma hennar mjög góð. Beitti
hún ekki kylfum eða tára-
gasi fyrr en brýna” nauðsyn
bar til og fólk hafði þverskall
azt við að dreifa sér og óróa-
seggirnir sýnt henni mikla
áreitni.
Aðeins örlítill hluti
þeirra manna, sem þarna
voru saman komnir, hafði sig
í frammi í þessum óeirðum,
en framkoma alls almennings
var með fullkominni stillingu.
enda hann kominn af allt öðr
úm ástæðum enkommúnistar,
Hlaut því margur óverðskuld
uð óþægindi af óeirðunum og
þeim aðgerðum, sem nauðsyn
legar reyndust.
Skýrsla lögreglustjóra um
þessa atburði og aðdraganda
þeirra er birt á 8. síðu hér í
blaðinu og visast að öðru
leyti til hnnar.
Óspektir í
gærkveldi
r . *:' * ‘ f f'
Brotiiar riíður í lög-
rcglu stöðiimi. Lög-
rcglan varð að bcita
táragasi
Seint í gærkveldi reyndu
óróaseggir að efna til ó-
spekta í Austurstræti og
Pósthússtræti og söfnuð-
ust þeir aðallega um lög-
reglustöðina, köstuðu að
henni grjóti og brutú
nokkrar rúður þar og'víð-
ar. Varð lögreglan að grípa
til táragass til þess að
dreifa mannfjöldanum en
ekki þurfti að beita kylf-
um.
Her Sýrlands steyp-
ir stjórn landsins
Herinn í Sýrlandi hefir
steýpt stjórn landsins af stóli
og sitja nú ráðherrarnir og
aðrh’ embættismenn í stofu-
varðhaldi. Yfirforingi hers-
ins tilkynnti í dag, að stjórn-
inni hefði verið hrundið
vegna þess að hún hefði beitt
liðsforingja hei'sins hörðu og
i nauðsyn hefði borið til að
hreínsa burt þj óðernissinna,
sem.séu í æðstu stöðum ríkis
ins.. Þetta muni hins vegar
engi.n áhrif hafa á utanríkis-
stefnu Sýrlands. Ný stjórn
mundi verða mynduð innan
skamms og ekki sé hugað á
einræðisstjórn. Bunche sátta
semjari hefir látið í ljós von-
ir um það, að þetta hafi ekki
nein áhrif á sáttaumleitanir
milli Sýrlendinga og Gyðinga
og viðræður þeirra geti haf-
izt bráðlega eins og ráð hafi
verið fyrir gert.