Tíminn - 22.05.1949, Qupperneq 2
2
TÍMINN, sunnudagina 22. mal 1949.
110. blaft
Jrá kafi tii keiia
í nótt:
Næturlæknir verður í læknavarð
stofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður verður í
Keykjavíkur apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Hreyfill, sími
6633.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Rotterdam 20.
xnaí til Reykjavíkur. Dettifoss fór
frá Rotterdam 20. maí til Leith og
Reykjavíkur. Fjallfoss er í Ant-
werpen. Goðafoss er á Siglufirði.
Lagarfoss er í Reykjavík. Reykja-
foss fór frá Vestmannaeyjum 18.
xnaí til Hamborgar. Selfoss fór frá
Reykjavík 17. maí til Immingham
og Antwerpen. Tröllafoss er í New
York, fer þaðan væntanlega 25.
maí til Reykjavíkur. Vatnajökull
er á Vestfjörðum, lestar frosinn
fisk.
Flugferðir
Loftleiðir.
Hekla kom í gærkvöldi frá Höfn
og Prestvík. Fer nú kl. 8 árd. beint
til London. Væntanleg þaðan aft-
lír kl. 10.30 í kvöld.
í gær var flogið til Vestmanna-
eyja- (4 ferðir), ísafjarðar, Patreks
fjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar og
Klausturs.
Flugfélag íslands.
Guilfaxi fór til Hafnar kl. 1 í
gær. í dag flýgur hann frá Höfn
til Dublin og hingað i kvöld.
í gær var flogið til Akureyrar
(2 ferðir), Siglufjarðar, ísafjarðar,
Hólmavíkur, Djúpavíkur. Vestm,-
eyja, Keflavíkur Í2 ferðir).
Alessur í dag:
Dómkirkjan.
Kl. 11 sr. Jón Auðuns, kl. 5 safn-
aðarfunduv.
Fríkirkjan.
Kl. 5 sr. Árni Sigurðsson.
Hallg rímskirkja.
Kl. 11 sr. Sigurjón, kl. 2 sr.
Jakob (ferming).
Nesprestakall.
Kl. 11 messa í kapellunui í Foss-
vogi, sr. Jón Thorarensen.
Árnað heitla
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Jakob Jónssyni ung-
frú Sveinlaug Sigmundsdóttir frá
Norðfirði og Baldur Leví Bene-
diktsson rafvirki. Heimili: Skipa-
sund 49.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Hálfdáni Helgasyni
ungfrú Titia Hartimink og Ásgeir
Bjarnason (Ásgeirssonar ráðherra)
að Reykjum í Mosfellssveit.
Btöð og t'miarit
Dagrenning;
2. tölubl. 4. árg. tímaritsins Dag-
renningar er nýkomið út. Flytur
það þetta efni: Sameining ísraels-
þjóðar. Atlantsliafsyfirlýsingin, At-
lantshafssáttmálinn. Ævaforn hand
rit úr Bíblíunni nýfundin, Forlaga-
spá Staiins, Auðvald og einræði:
1. Hulda höndin, 2. Dýrið úr und-
irdjúpunum, Sönn menntun, End-
,urskoðun dauðadómsins yfir Jesús
frá Nazaret.
Ritstjóri Dagrenningar, Jónas
Guðmundsson, mun skrifa mest allt
ritið sjálfur.
Gerpir
Austfirðingur er ennþá á feröinni.
Þetta cr aprílheftið, eða 4. tölubl.
3 árg. . .,
Byr jar hann í.. þetta sinn á
kvæði: Vorið kemur, eftir Kristin
Arngrímsson. Næst er grein, sem
heitir Stjórnmálasamtök, eftir G.
J. Um strönd og dal er um ýms
efni. Halldór Stefánsson skrifar
grein, er nefnist: Jafnvægi stjórn-
kerfis og stjórnarfars. Þá skrifar
Gísli Helgason Þátt af Guðmundi
Erlendssyni á Klyppstað og Ólafi
bróður hans, o. m. fl. er í ritinu,
sem er að vanda talsvert læsilegt.
Ur ýmsum. áttum
Fjárveitinganefnd á flugi.
Fjárveitinganefnd Alþingis, á-
samt fulltrúum fiugráðs og for-
manni fjárhagsráðs flaug síðastl.
fimmtudag með Gullfaxa til Osló
og svo þaðan til Hafnar.
í dag tekur Gullfaxi þessa ferða-
félaga í Höfn og flýgur með þá til
Dublin. Eftir nokkra viðdvöl þar
flýgur svo Gullfaxi með þá til
Reykjavíkur og eru þeir væntan-
legir hingað í kvöld.
Mæðradagxirinn
er í dag og verða þá seld á göt-
um bæjarins mæðrablómin, sem
margir munu fúsir að kaupa til
þess að styrkja þá góðu starfsemi,
sem ágcði af sölu blómanna renn-
ur til. Og svo vilja máske ýmsir
bera lítið blóm í barmi sínum einn
dag á ári til minningar um móð-
ur sína.
Úr Norð'urárdal.
í gær átti starfsmaður hjá Tim-
anum símtal við Dalsmynni í Norð
urárdal. Hafa þar verið harðindi
mikil og fé gefið fram að þessu.
Fannir eru þar miklar í lautum
og dældum. A daginn þiðnar tals-
vert af snjónum og kemur jörðin
hálfgræn undan honum. En frost
| er á hverri nóttu og brátt er jörð-
in orðin grá og grængresið horfið,
sem undan snjónum kom, er hann
leysti.
I Heyleysi hefði ekki borið á enn-
. þá í Norðurárdai.
Steinsteyptur vegur.
Oft er kvartað um holótta og
slæma vegi og það ekki að ástæðu-
lausu. Hérna rétt fyrir innan bæinn
hefir steinsteyptur kafli verið dálít-
1 inn spöl af veginum, þar sem um-
! ferðin er allra mest. Þessi kafli
hefir nú í fjölda ára borið af öll-
| um öðrum vegum. Hvers vegna eru
| ekki vegirnir steyptir hér umhverf-
I is Reykjavík a. m. k., þar sem um-
1 ferðin er allra mest? Steypti veg-
1 urinn hér innanvert við bæinn sýn
i ist sanna ágæti sitt, þótt yfirvöld-
! in vildu ekkert líta út til annarra
landa.
Þorsteinn Þorsteinsson
sýslumaður lætur þess getið, að við
fyrri umræðu þingsályktunartil-
lögu um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina að greiða uppbætur til opin-
berra starfsmanna, hafi hann við
nafnakall greitt atkvæði með til-
lögunni, en atkvæði á móti breyt-
ingartillögum viö hana og hefir því
látið skýrt í ljós skoðun sína á
málinu. En eins og áður var getið,
var hann fjarverandi við lokaaf-
grcíörluna.
Gertir í bænum:
Jónss Jchannsson bóndi í öxnoy
er meðal gesta í bænum.
Leikfélag Rcykjavíkar sýnir
HAMLET
eftir William Sakespeare í kvöld kl. 8. Leikstjóri Edvin
Temeroth. — Miðasala í dag kl. 2. — Simi 3191
VDRIÐ ER KDMIÐ
KVÖLDSÝNING
KVEÐJUÞ ANKAR
Eg hefi nú um nokkurn tíma
skrifað þessa þætti hér á þessum
stað og ýmislegt fieira í blaðið.
Hefi kunnað því vel, eins og stund-
um áður, að geta „hlaupið í skörð-
in“ við blöð Framsóknarmanna,
vitandi þó vel um það, að ég er
hvoiki neinn sérfræðingur í blaða
mennsku né fjármálum.
En ég hefi alltaf viljað starfa
eftir því sem kraftar leyfðu fyrir
þennan flokk okkar Framsóknar-
manna, af því ég hefi alltaf litið
á hann sem gott verkfæri til þess
að koma sem flestum góðum mál-
um fram fyrir þetta land og þessa
þjcð, sem við erum komin af og
höfum kosið okkur" að lifa með,
þótt brosað hafi blíðari lönd við
ýmsum okkar á æskuskeiðinu.
Hins vegar er mér engin laun-
ung á því, utan flokks né innan,
að ég hefði kosið margt öðruvísi
heldur en hefir verið og er í starfi
og blaðamennsku Framsóknar-
flokksins, sem stafar af fjármagns
skorti og fleiru. En fundist, að
annarsstaðar myndi samt lakara,
því þrátt fyrir allt er þó vart hægt
að deila um það, að Framsóknar-
flokkurinn er mesti samvinnu-
mannaflokkurinn, og hefir verið
frá fyrstu tíð og er cnn íslenzk-
asti flokkurinn á íslandi. Ég á við
það, að í honum hafi verð frá upp
haíi mest af liíandi þjóðernis-
kennd. Mun það vera að einhverju
leyti arfur frá fyrri árum Ung-
mennafélaganna. En í þeim félög-
urn fékk fjöldí fullorönari Fram-
sóknarmanna aðalfræðslu sína,
vakningu og félagsþroska.
Þegar ég nefni sem dýrmæta
eign þjóðerniskenndina, á ég við
að mönnum sé kært landið sitt og
þjóðin, málið, bókmenntirnar, sið-
•irnir, sagan og yfirleitt allt, sem
íslenzkt er, sérkennilegt og gott.
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30
Aðgöngumiðar seldlr frá kl. 2. Sími 2339
Dansað til kl. 1
•>’,—*—(’^"'(,^—»—,—»^»'l»—1*('«—(»^»-(»^—»^(>^»-|»«—l'1^‘»—’i,—(»—»—»»»**»■<»«*»>«»
] LEIKFÉLAG HAFNARFJARÐAR sýnir revýuna
GULLNA LEIÐIN
| annað kvöld (mánudag) kl. 8,30. — Miðasalan opin
| kl. 2 í dag (sunnudag) — Sími 9184
I
S.K.T,
Nýju og gömlu dansarnir í G. T,-
húsinu sunnudagskvöld kl. 9 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiöar seldir frá kl. 6.30.
4m***»«H***<
En auðvitað ekki það, sem er lág-
kúrulegt og lélegt, þótt það sé ís-
lenzkt.
’ Aldrei hefir mér þótt eir>s vænt
, um að vera íslendingur eins og
þegar ég hefi verið staddur með-
al erlendra þjóða — og allra mest
þó þegar þær hafa verið stórar og
| fjærskyldar. Þó að heimurinn sé
nokkuð stór,
„ættjörð samt er innst í honum
endurminning krýnd og vonum“.
| Én á aéttjörðinni he.'ir mér jafn-
an fundist Framsókrfarflokkurinn
vera innsti kjarninn í þjóðmála-
starfreminni.
i Samt eru í öllum flokkum góð-
ir menn og nýtir, sem ánægjulegt
væri að liafa samstarf við.
Er það mikil óhamingja að geta
ekki sameinað alla þá krafta um
þjóðar okkar. Ef það tækist, er
framför og velferð þessarar litlu
varla efamál, að nógir kraftar eru
, til þess að búa farsællega og hafa
fyrirmyndar þjóðfélag hér á þessu
einkennilega landi í norðurhöfun-
um. En
„menn eru að þræta og ýtast á
unz þeir falla í valinn".
Þótt ég búist ekki við að vera
að flytja til himnaríkis né í aðrar
heimsálfur strax, þá vil ég þakka
ágæta samvinnu við starfsmenn
Tímans og prentara í Eddu nú þeg-
ar ég liverf úr því „skarði" Tím-
ans, sem ég hefi „hlaupið í“ um
skeið.
I S. G. T. GÖMLU DANSARNIR
♦♦
♦♦
♦♦
H að Röðli í kvöld kl. 9. — Sími 5327. í|
1 1
| ^JJanntyrJasýninc^ j
( nemenda Júlíönu M. Jónsdóttur, Sólvallagötu 59, verð- ?
| ur opin til mánudagskvölds kl. 10.
WcJracL
Slctnabútirnar
ClCjll
nnn
Hvað sem öllurn flokkum líður
með kostum þeirra og göllum þá
eicum við allir eitt sameiginlegt,
sem þennan hólma byggjum, og
það cr, að við erum allir íslend-
ingar. En þá ættum við líka að
muna það í verki, að vera ekki
um of háðir hvorki flokkum né
.1 erlendum þjóðum. V. G.
eru opnar í dag frá kl 10—3. Ágóðinn rennur til Mæðra
styrksnefndar.
FÉLAG BLÓMAVERZLANNA í REYKJAVÍK
Jörb í Mýrasýstu
er til sölu, laus til ábúðar. Jörðinni fylgir stórt vél-
tækt tún, veiðiréttindi mikið skóglendi og ágætt fjár-
landi.
Upplýsingar ekki gefnar i síma
EGILI, SIGURGEIRSSON
hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 3