Tíminn - 25.06.1949, Side 3
133. blað
TÍMINN, laugardaginn 25. júní 1949.
3
ÍÞRÓTTIR
Afmælismót Ármanns:
Jóel Sigurðsson setur nýtt íslands-
raet í spjótkasti, 66,99 ra.
Afmælimót Ármanns í frjálsum íþróttum hófst s. 1.
fimmtudagskvöld, með því að þáttt. gengu fylktu liði, tíu
mínútum of seint, inn á völlinn. Síðan kynnti Jens Guð-
björnsson, finnsku íþróttamennina og þjóðsöngvar landanna
voru leiknir af rammfölskum, gatslitnum grammifónplöt-
um. Ekki var laust við að áhorfendur roðnuðu. Undir níu
liófst keppnin og náðist í flestum greinum frábær árangur.
Keppnin var allt of langdregin og var ekki lokið fyrr en kl. 11.
200 m. hlaup.
1. Finnbj. Þorvaldss. f. R.
22,0 sek., 2. Guðm. Láruss. Á
22,1 sek., 3. Hörður Haraldss.
Á. 22,7 sek., 4. Ásm. Bjarnas.
K.R. 22,8 sek.
Tímarnir eru mjög góðir,
því mótvindur var seinni hl.
hlaupsins. Haukur Clausen,
mætti ekki til leiks. í hag-
stæðu veðri má búast við að
Finnbj. og Guðm. geti hlaup-
ið á 21,4—21,6 sek.
Stangarstökk
1. Torfi Bryngeirss. K. R.
3,80 m., 2. O. Pitkánen Finnl.
3,60 m., 3. B. Linnet Á 3,40 m.
Litlu munaði að Torfa tæk-
ist að stökkva 4 m. Pitkánen
olli áhorfendum miklum von-
brigðum, því hann hefur
stokkið 4,01 m. bezt.
Spjótkast
1. Jóel Sigurðss. í. R. 66,99
m., 2. P. Wjfcterinen Finnl.
64,10 m., 3. Halld. Sigurgeirss.
Á 54,86 m.
Jóel setti nýtt met, gamla
metið var 65,47. Einnig setti
hann nýtt met í spjótkasti
beggja handa, 99.02 m. Að
því er blaöið bezt veit mun
þetta vera annar bezti spjót-
kastsárangur á Norðurlönd-
um í ár. (Finninn Hyytiánen
er með 69,70). Vesterinen er
mjög þekktur spjótkastari
varð m. a. 4. á Olympíuleik-
unum. Bezti árangur hans í
spjótkasti er 69,57. Jóel átti
tvö köst lengri en bezta kast
Vesterinens.
800 m. hlaup.
1. Óskar Jónss. í. R. 1:57,5
mín., 2. R. Haikkola, Finnl.
1:58,9 mín., 3. Pétur Einars-
son í. R. 2:01,1 mín.
Óskar vann örugglega og
er tíminn mjög góður.
Langstökk
1. Torfi Bryngeirss. K. R.
7. 01 m., 2. Örn Clausen í. R.
6,64 m., 3. Stefán Sörenson
í. R. 6,60 m.
Torfi er orðinn nokkuð viss
með 7 m. Örn meiddist í öðru
stökki og varð að hætta.
Kúluvarp
1. G. Huseby K. R. 15,44 m„
2. Sigf. Sigurðss. Self. 14,30 m
3. Friðrik Guðmundss. K. R.
14,23 m.
Það er aðeins tímaspurs-
mál hvenær Huseby tekst að
slá metið, sem er 15,69 m.
1500 m. hlaup
1. N. p«*3ti Finnl. 4:06.0 mín
2. Þórður Þorgeis. K. R. 4:17,4
mín. 3. Stef. Gunnarss. Á
4:27,0 mín.
Þetta var eina greinin, sem
Finnarnir unnu. Óskar Jónss.
gat ekki tekið þátt i þessari
grein, þar eð hann var nýbú-
inn að hlaupa 800 m„ en mjög
líklegt er að hann hefði unn-
ið Posti.
4x100 m. boðhlaup
1. Landsveit 43,0 sek.
2. K. R. 44,2 sek.
í landsv. voru Hörður Har„
Finnbj., Örn og Guðmundur.
í dag kl. 4 heldur mótið
áf.ram og verður þá keppt í
100 m. hlaupi, hástökki, stang
arstökki, spjótkasti, kringlu-
kasti, 3000 m. hlaupi, tug-
þraut, 4x100 m. boðhlaupi og
hástökki fyrir konur.
H. S.
i
| Maður óskast
í til eftirlitsstarfa við veiðiár í Árnessýslu um 4 mánaða
j tíma. Þeir sem áhuga hafa fyrir starfinu sendi nöfn
Í sín og heililisfang ásamt upplýsingum um fyrri störf
! og menntun til skrifstofu Veiðimálastjóra, Tjarnar-
! götu 10, Reykjavík fyrir þann 28. þ.m.
iuiuiaiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Jarðnæði
Vesturjörðin Arnarhóll í Vestur-Landeyjum, ful- |
i yrkt, er laus til ábúðar eöa sölu nú þegar. Heyskapur 1
| um 500 hestar. Þrjár kýr, fjögur hross og 20—25 ær \
I geta fylgt. Hlutaðeigendur snúi sér til eigandans Jó- i
| hans Tómassonar Arnarhóli. Guðbrandur Magnús- i
| son, Reykjavíkursími 2391, getur einnig veitt upplýs- \
| ingar. • . ' . !
stuiiiiiiiimiiiimmmiiiimiiiimmimmimiiiiiiiiiiifmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiimimmmmimmiirvffimma
Utan úr heimi
Er Skorzeny í Argentínu?
Lögreglan í Austurríki telur sig
hafa komizt aö raun um, að Otto
Skorzeny sé í Argentínu. Skorzeny
varð frægur fyrir það á sínum
tima, að hann frelsaði Mussolini
úr haldi hjá Bandamönnum. Síð-
ar var hann foringi stormsveitar-
manna, er gerðu árásir á ýmsar
iiiiiiiiiimiiimiimmiiitiiiiiiiiitiiiiiiiimiiimimiiiiiiiiiiimiiimiimmiiiimmiiimimmiiiimmiiimmmimiiin
/ slenclingalDættir
iiiiiiimmimmmmmimmmiimmt
IHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Dánarminning: Guðbjörg Eyjólfsdóttir,
Hömrum, Grímsnesi
bækistöðvar Bandamanna á bak
við víglínu þeirra í Ardennafjöll-
um, er Þjóðverjar hófu þar sókn
sína veturinn 1945. Pyrst eftir
stríðið fór hann huldu höfði, en
Bandaríkjamönnum tókst að lok-
um að hafa hendur í hári hans,
en þó aðeins um skamma stund.
Fyrir ári síðan strauk hann úr
fangabúðum þeirra og hefir ekk-
ert spurzt til hans síðan.
Skorzery er rúmlega þriggja
álna hár og þrekinn að sama skapi.
Hann er talinn sameina það hvort
tveggja að vera heljarmenni að
burðum og greindur vel.
Athyglisverð tillaga.
Bandarískur þingmaður, Walter
Norblad frá Oregon, hefir borið
fram þá tillögu, að amerískum
kommúnistum, sem vildu fara til
Sovétríkjanna og setjast þar að,
yrði séð fyrir ókeypis fari þang-
að. Við eigum að greiða fyrir því,
segir Norblad, að kommúnistar
geti komist til þessa fyrirheitna
lands síns og séð og reynt, hvern-
ig hugsjónir þeirra reynast í verki.
Góð eftirlaun.
Furstinn í Bhopal i Indlandi hef
ir tilkynnt, að hann hafi lagt nið-
ur völd og land sitt muni samein-
ast Hinrustan. Furstinn var tal-
inn annar ríkasti maðurinn i Ind-
landi, næst á eftir furstanum af
Hyderabad. Hann missir nú mest
af eignum sínum og allar fursta-
tekjurnar. Hinsvegar fær hann
greidd eftirlaun og nema þau rúm-
um tveimur rnillj. kr. á ári. Verð-
ur ekki annað sagt en að þau séu
hin furstalegustu.
Síamiskir tvíburar.
Um seinustu mánaðamót átti
svertingjakona í Los Angeles síam-
iska tvíbura. Höfuðin eru samvax-
in, en að öðru leyti virðist allt eðli-
legt. Læknar hafa enn ekki talið
sér fært að rannsaka, hvort þeir
hafa einn eða tvo heila. Fyrr en
þeirri rannsókn er lokið, verður
ekki tekin ákvöröun um, hvort
tvíburarnir verða aðskildir eða
ekki.
„Deutschland, Deutschland
úbes alles“.
Þýzki þjóðsöngurinn „Deutsch-
land ubes alles‘: var í fyrsta sinn
eftir styrjöldina sunginn opin-
berlega í Þýzkalandi á sunnu-
daginn var. Það var gert á úti-
fundi, sem haldinn var í Gött-
ingen og Hubertus prins af Löv-
enstein hafði boðað til. Prinsinn
hélt þar ræðu um nauðsyn þess,
að Þýzkaland yrði sameinað.
Fasteignasölu-
miöstööin
Lækjargötu 10B. Sími 6530.
Annast sölu fastelgna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygglng-
ar, svo sem brunatryggingar,
lnnbús-, líftryggingar o. fl. I
umboðl Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h.f. Viðtalstíml alla
virka daga ki. 10—5, aðra
tima eftir samkomulagi.
Á nokkurra mánaða, já,
fárra vikna fresti kveðja
gamlir og góðir Grímsnesing-
ar jarðlíf sitt. Þessir Gríms-
nesingar voru nágrannar
bernskuheimilis míns, og það
svo góðir, að ég efast um, að
betra nágrenni geti átt sér
stað. Með því að bernsku- og
æskuminningar mínar eru og
verða alltaf nátengdar þessu
fólki, setur mig hljóðan, þeg-
ar mér berast andlátsfregnir
þess. Meðal þessa elskulega
fólks er konan Guðbjörg
Eyjólfsdóttir, Hömrum, Gríms
nesi, sem andaðist á síðasta
afmælisdegi lýðveldis vors.
Guðbjörg var fædd að Efra
Apavatni 24. september 1886.
Foreldrar hennar voru hjón-
in Helga Guðmundsdóttir og
Eyjólfur Árnason. Guðbjörg
ólst upp hjá góðum foreldr-
um í stórum systkinahópi.
Þar lærði hún bænir sínar,
þar lærði hún ung að vinna.
Þar vakti hún sem telpa yf-
ir túni föður síns, sat yfir
kvíaám hans, lagði Lyngdals-
heiði undir fót í smala-
mennskum, lærði að raka
heyi í flekk, eða hún var í
búri hjá móður sinni, lærði
,þar að strokka smér, gera
gott skyr og önnur þau inn-
anbæjarstörf, sem húsfreyju-
efni þeirra tíma gátu numið
á góðum heimilum.
Haustið 1896 giftist Guð-
björg Guðmundi Bjarnasyni
frá Höfða í Biskupstungum.
Það var ekki augnabliks-
hrifning eða ímynduð ást,
sem leiddi þau saman, þau
voru svo hamingjusöm, að
samfylgd þeirra var fyrir-
myndar hjónaband í full 52
ár. Þau hjónin áttu barna-
láni að fagna, eignuðust þrjú
efnileg og góð börn, sem öll
eru á lífi. Börn þeirra eru:
Eyjólfur, æskuvinur minn og
leikbróðir, sem nú býr að
Hömrum, giftur ágætri konu,
Ingu Ágústsdóttur, Helga,
gift Ingólfi Þorsteinssyni lög-
regluvarðstjóra og Bjarni, ó-
kvæntur, stundar bú með
bróður sínum.
Mann sinn missti Guðbjörg
9. janúar s.l. í minningar-
grein, sem ég skrifaði og birt
ist í þessu blaði um þann
látna vin minn og merkis-
mann, drap ég á það, sem ég
vissi sannast um búskap
þeirra og endurtek það ekki
hér. Ég minntist þar á hið
óvenjulega góða tvíbýli að
Seli, en þar bjuggu þau lengst
í austurbænum, eða nærfellt
34 ár.
Það eru barin 3 högg á
austurbæjardyrnar. Það gild-
ir einu, hvort höndin, sem
höggin ber, er hönd barns eða
fullorðins, stórbónda eða fá-
tæks vinnumanns, hefðar-
konu eða umkomulítillar
vinnukonu, embættismanns
eða umrennings, til dyra kem
ur Guðbjörg húsfreyja, fín-
gerð kona og prúð, heilsar
hverjum gesti og býður hon-
um í bæ sinn með gleði og
ástúð í svip, án alls mann-
greinarálits.
Guðbjörg hefir ekki hræri-
vél við kökugerð sina, hún
getur ekki geymt nýmeti í
ísskáp, hún hefir ekki raf-
magnseldavél, hún hefir ekki
fengið að læra matargerð eða
heimilishald á húsmæðra-
skóla, en það sem hún ber
á borð, hvort heldur er mat-
ur eða drykkur, er svo full-
komið og. gott og snyrtilega
framreitt, að það stenzt all-
an samanburð við það bezta,
sem nútíma, skólagengin hús
móðir ber fyrir gesti sína. Það
er til margskonar gestrisni og
það örlar stundum á yfirborðs
gestrisni, en gestrisni Guð-
bjargar kom beint frá hjarta
hennar. Ég veit, að þeir eru
margir, sem eru mér sam-
mála, þegar ég leyfi mér að
segja, með allri virðingu fyrir
gestrisnum konum, að ég hefi
aldrei þekkt og mun aldrei
kynnast gestrisnari konu en
Guðbjörgu á Seli.
Guðbjörg var í orðsins sönn
ustu merkingu góð kona. Hún
trúði á guð og treysti honum
í öllu lífi sínu. Sem elskuleg
eiginkona, sem dásamleg
móðir, sem nærgætin dóttir
og tengdadóttir, sem húsmóð-
ir, sem nágrannakona, sem
íslenzk sveitakona, og síðast
sem amma, gekk hún á —
guðs vegum. Hún sleit öllum
skóm sínum í Grímsnesinu,
elskaði það og veitti börnum
þess, sem sóttu þau hjónin
heim, af óvenjulegri rausn.
Guðbjörg lá þungt haldin,
þegar líkkistu bezta vinar
hennar var rennt út um bað-
stofugluggann að Hömrum,
þá var sem ég gæti lesið í
fölu andliti hennar síðustu
óskina, — að líkkista hennar
mætti sem fyrst fara sömu
leið. Þá lamaðist það, sem
eftir var lífsþróttar hennar,
hún drakk af bikar mikilla
þjáninga síðustu mánuði ævi
sinnar, en það hefir hjálpað
henni yfir erfiðasta áfang-
ann að hliði dauðans, að hún
var umvafin fórnandi um-
önnun elskulegra sona og á-
gætrar tengdadóttur; hún
vissi og, að hugur fjarlægrar
dóttur dvaldi jafnan við
sæng hennar.
í dag er líkkistu hinnar á-
gætu konu rennt út um bað-
stofuglugga að Hömrum og
ég samgleðst henni á ferð
hennar upp í Mosfellskirkju,
þar sem hún verður kvödd,
— þar sem ég sá hana í blóma
lífsins meðal tíðustu og trygg
ustu kirkjugesta föður míns.
Börn hennar, sem öll voru
fermd í þeirri litlu, vinalegu
kirkju, fylgja í dag sinni góðu
móður með hjörtun full af
þakklæti og vökva grængres-
ið umhverfis gröf hennar með
saknaðartárum. Tengdabörn-
in fylgja henni og þakka líf-
inu fyrir elskulega tengda-
móður. Barnabörn eru í hópn
um, sem þrátt fyrir gleði
æsku sinnar sakna ástríkrar
ömmu. Svo eru margir, sem
ásamt mér votta Guðbjörgu
síðasta þakklætið fyrir marg-
ar ljúfar stundir á heimili
hennar með því að geta ekki
varist að fella tár. Grímsnes-
ið harmar eina sína trygg-
(Framhald á 6. siBu).