Tíminn - 25.06.1949, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 25. júní 1949.
133. blað
Biörn Guðmundsson á Núpi
Haustið 1908 kom ég í Núps
,'sKólann, þá 15 ára. Mér er
<-:nn í minni skólasetningin
pað haust. Hátíðleg stund,
:neð ræðum og sálmasöng.
Fyrst talaði skólastjórinn,
,sr. Sigtryggur Guðiaugsson,
uroulegur og ágætur prestur
og skólamaður, og mér áður
Kunnugur sem prestur, enda
íafði hann búið mig undir
fermingu og fermt mig, vor-
:tð áður.
Mæst á eftir skólastjóran-
im, gekk hár og hvatlegur
mgur maður að ræðupúltinu,
>-r ég hafði aldrei áður séð,
'jo báðir séum við fæddir og
ippaldir í sömu sveitinni. En
:'ngjaldsandur,dalurinn minn,
ir afskekktur, og ég hafði að
Hins einu sinni áður komið
æstur í Dýrafjörð, til læknis-
.ns á Þingeyri, Þessi ungi
naður, sem nú gekk að ræðu-
.júltinu, var frábærlega glæsi
iegur og bauð af sér ágætan
hokka.
Vel var hann búinn, með
hrafnsvart hár, mikið og lið-
að, með dökkt yfirskegg, snú-
:ið, er fór mjög vel, en annars
sléttrakaður. Grannur á vöxt,
en práðbeinn í baki, hreifing-
ar allar mjúkar og fjaður-
magnaðar, svo að sérstaka at
hygli afdalabarns hlaut að
vekja, enda hafði aldrei þá séð
mann, sem leikfimi og íþrótt-
:ir hafði stundað og mótast
par af.
Sg vissi þegar að þessi mað
ir var Björn Guðmundsson
fra Næfranesi, er þá var ráð-
:inn sem barnakennari aö
Núpi, en jafnframt sem að-
stoðarkennari sr. Sigtryggs
'ið ungmennaskóla hans, er
og nú var að hefja nám við.
Eyrstu setninguna úr ræðu
Björns, man ég enn: Sum lög
lata forspil.“ Lagði hann út
df þessum orðum, og sagði að
ikólagangan, ætti að vera for
jpil lífsferils okkar nemend-
anna. Þessvegna væri okkur
nauðsynlegt að notfæra okk-
ir vel það sem hér yrði kennt
cil þess að geta notað það síð-
ar í lifinu, ef að við ræktum
'ei námið, mætti okkur verða
gagn af skólaverunni.
Ett og uppruni:
Björn Guðmundsson er
:æddur í Næfranesi í Dýra-
:árði 26. júní 1879. Foreldrar
hans voru Guðmundur Þór-
armsson bóndi þar og kona
‘.aans Guðbjörg Guðmunds-
dottir, bónda í Hjarðardal,
Þorvaldssonar, hreppstjóra og
skipasmiðs í Hvammi. Var
hann kominn af Jóni Gissurar
syni sagnfræðing á Núpi. í
íöðurætt er Björn kominn af
Skinna-Birni, föður Miðfjarð
ar-Skeggja, og er 32. maöur
trá honum í beinan karllegg.
Hagleiksmenn góðir voru
•ýmsir forfeður Björns. Saga
su er sögð af Þorvaldi afa
hans, að eitt sinn hafi hann
verið staddur á Þingeyri. Var
þar danskur beykir við verzl-
anina, er hældi sér mikið af
smíðakunnáttu sinni, en gerði
fítið úr getu íslendinga á því
sviði.
Þorvaldur hlustaði þegj-
andi á sjálfshól danska beyk
isins, en greip síðan smíða-
öxi hans, er þar lá og lagði
vinstri hönd sína á högg-
stokkinn á handarjaðarinn,
lét íjóra fingurgómana ná alla
jafnt íram, svo neglurnar,
sem voru vel vaxnar, stóðu
jafnt fram. Hjó hann síðan
Efíir Jóiiannes líavíössoii.
allar neglurnar af, það er
fram af fingrunum stóð, án
þess að særa gómana. Þagn-
aði þá raup Danans.
Skipasmiðír hjuggu þá
mjög og telgdu viðinn með
öxum sínum, og þessvegna
æfðist höggfimi þeirra svo
mjög, eins og þarna bar raun
vitni
Björn Guðmundsson er einn
af þeim mörgu íslendingum,
sem eru svo vel af guði gerð-
ir, að þeir leggja á allt gjörfa
hönd. Þeim virðist liggja í aug
um uppi hvernig verkin skuli
unnin, vegna meðfæddrar
hneigðar eða náttúrugreind-
ar.
Þetta hefir sjálfsagt fylgt
ísl. þjóðinni frá upphafi, má
og vera að kynblöndun norr-
ænna manna og Vestmanna,
er hér námu land, eigi sinh
þátt í þessari fjölhæfni þjóð-
arinnar.
Má vera að þúsundþjala-
smiðir séu til um allar jarðir
en hér hafa þeir verið til síö-
an á dögum Gissurar biskups
ísleifssonar, sem var jafnvel-
fallinn til að vera konungur,
víkingaforingi og kirkjuhöfð-
ingi.
| Björn Guðmundsson, er
auk þess að vera kennari,
smiður, dráttlistarmaður og
málari, læknir, sjómaður,
bóndi, leikari og félagsfröm-
j uður.
Kennarinn:
J Björn GuÖmundsson ólst
upp við algenga sveitavinnu.
Stundaði jafnframt sjó, eins
og flestir eða allir unglingar
á Vestfjörðum í þá daga. Tók
hann fótarmein á æskuskeiði,
er átti sinn þátt í því að hann
geklc út á námsbrautina,
j stundaði síöan vinnu um
;skeið á hvalvinnslustöðinni í
Framnesi, fór siðan í Flens-
borgarskólann og lauk þar
kennaraprófi 1906. Stundaöi
síðan barnakennslu við barna
skóla á Núpi næsta vetur.
Sigldi síðan til Danmerkur
vorið 1907 til framhaldsnáms.
Dvaldi í Noregi og Danmörku
við Lýðháskólann í Askov
veturinn 1907—’08. Kom heim
haustið 1908 og tók við barna
kennslu á Núpi, en gerðist
jafnframt kennari við ung-
mennaskólann á Núpi og
kenndi við hann til 1928.
Skólastjóri Héraðsskólans á
Núpi 1928—1942, og kennari
við Núpsskóla síöan 1942. Fór
þó námsför árlangt til út-
landa 1925. Dvaldi þá við
skóla í Noregi, Danmörku,
Sviþjóð og Finnlandi. Var
skólastjóri barnaskólans á
Akranesi 1918—'19, en þann
vetur starfaði skólinn á Núpi
ekki.
Samstarf þeirra sr. Sig-
tryggs og Björns við ung-
mennaskólann á Núpi var
með ágætum, og hygg ég leit
á betra samstarfi' tveggja
mann, sem þó eru í ýmsu ó-
líkir, eða árangursríkara.
Þeir kenndu lengstum tveir
einir við skólann, sem varö
þjóðkunn stofnun að ágæt-
um.
| Kennsla Björns var fjör-
mikil, litauðug. og heillandi.
Kenndi hann einkum náttúru
fræði, eðlisfræði, dráttlist og
leikfimi. Var hann ágætur
leikfimis og glímumaður, ljúf
ur og kátur í umgengni.
Báðir voru kennarar skól-
ans nýkomnir úr utanför
1908. Fullir af fréttum og ný-
ungum. Snortnir af framför-
um, skáldskap og listum
grannþjóðanna.
Nutum við þess nemend-
urnir óspart, bæði beint og ó-
beint, í kennslustundunum.
Við matborðið bar og margt
á góma um atburði og ný-
ungar er þeir höfðu kynnst
ytra. Skólinn á Núpi var þá
1 gegnsýrður af anda Grundt-
^ vigs, þ. e. kristilegu hugsjóna-
lífi, er stuðla skýldi að mann-
göfgi, siðgæði og framíara-
j þrá „Fyrir guð og föður-
Iandið“ voru einkunnarorð
skólans. Var eftir þeim breytt.
Var kennslan mest í fyrir-
lestrum og frásögnum.
I Björn var ljúfur og laginn
kennari, og ástsæll af nem-
j endum sínum. Sá eg fullorð-
‘ inn pilt, nemanda hans,
kveðja hann með tárin í aug-
unum, vorið 1922, er hann
yfirgaf skólann.
I
Félagsfrömuðurinn:
| Haustið 1909 stofnaði Björn
I Guðmundsson Ungmennafél.
! Mýrahrepps. Var áður til
l bindindisfélag í hreppnum,
en ungmennafélagið, er að
sjálfsögðu hafði algert bind-
indi á stefnuskrá sinni, og
i st. Gyða á Núpi voru arftakar
þess. Starfaði Björn í öllum
þessum félögum lengi og vel.
Björn var þegar kosinn for-
maður ungmennafélagsíns og
stjórnaði því til 1933. Var
hann alla tíð hinn leiðandi
kraftur, er mjög bar starf-
semi félagsins uppi, er var
með miklum blóma lengi vel.
Verða margar ræður Björns
á aðalfundum félagsins, og
oftar ógleymanlegar, vegna
tilfinningavarma og hollráða.
Björn var einnig formaður
Héraðssambands U. M. F.
Vestfjarða frá stofnun þess
1911, um 30 ára skeið, og var
lífið og sálin í þeim félags-
skap. Þá var hann um tíð
ritstjóri Skinfaxa, og mætti
oft á Sambandsfundum U.M.
F.í. sem fulltrúi Vestfirðinga.
Þá hefir Björn átt sæti í
stjórn Kaupfélags Dýrfirð-
inga frá stofnun þess 1919 og
til þessa dags og reynzt þar
góður og ótrauður forvígis-
maður. Þá hefur hann einnig
um 40 ára skeið verið fulltr.
sveitar sinnar á þing- og hér-
aðmálafundum Vestur-ísa-
fjarðarsýslu, lengi verið ritari
fundanna og oftast átt sæti
í menntamálanefnd þeirra
Verður þetta látið nægja til
að greina þá félagstarfsemi
(Framhald á 7. síðu)
Hún Dísa er að fá ástabréfin. þó
að bændur hafi nú öðru að sinna
en kvennastúss núna, loksins þeg-
ar vorið er komið. En það fór eins
og mig grunaði: Hún vann hylli
þeirra sumra, og auðvitað hefi ég
ekkert við þann smekk að athuga.
Hér kemur bréf frá Hannesi (ekki
á horninu) til Dísu:
„Dóðan dagnn, Dísa mín! Sökum
þess, að ég hefi að undanförnu
heyrt blíða og að mér virðist frjáls
borna kvenrödd í baðstofu Tímans,
þá freistast ég til þess — senni-
lega af einhverri meðfæddri hvöt
— að láta frá mér ofurlítið og
veikbyggt orðakorn i þann mikla
„málabelg", sem þar er að lita. Og
verður þetta ávarp mitt þá alveg
sérstaklega tileinkað fyrrnefndri
konurödd og svo auðvitað öðrum
þeim konum og körlum, er af ein-
lægni og góðum huga vilja leggja
það á sig að sjá eða heyra það,
sem fram kemur úr huga og penna
íslenzkrar alþýðu, sem dag hvern
og það oft langan dag starfar og
stritar fyrir hinu svokallaða „dag-
lega brauði“.
Og þá er það fyrst þetta: Hvað
er íslenzk alþýða og hvaða þýð-
ingu hefir hún fyrir velferð og
frelsi alþjóðar í hugum ykkar nú
í dag?
Hugsið nú af alhug og einlægni
við sjálf ykkur og þjóð okkar. Og
svarið svo af sömu einlægninni og
áhuganum fyrir hag ykkar og vel-
ferð blessaðrar fósturjarðarinnar
og frelsisins. En svariö vil ég helzt
fá í árangri af störfum ykkar og
svo náttúrlega í framkomu ykkar
hvert við annað; því þar munuð
þið fyrst og fremst finna grund-
völlinn undir hina góðu hlið þjóð-
lífsins og velferð heimilísins.
En hvað er að ske í þjóðlifi voru?
Erum við ekki að reka okkur á
það dag hvern, að leiðtogar og
löggjafar þjóðarinnar séu að glata
eða tapa trúnni á öllu hinu gæfu-
ríka og nauðsynlega samstarfi í
flestum þeim málum, er alþjóð
varðar og alþjóð hefir falið þeim
að vinna að af drengskap og dáð-
riki?
Ég sé hörmulegar staðreyndir.
Og erum við ekki-að reka okkur á
það, að þjóðin er að glata sínu
gamla og góða heimilislífi? Er hún
ekki á hraðri leið með að fær-
ast frá öllum eða flestum þeim
ágætum, sem gott og fagurt heim-
ilislíf hefir veitt henni á umliðn-
um öldum? Er hún ekki að færast
frá uppeldiskröfu starfsins, sem við
brjóst fósturjarðarinnar hefir ver-
ið unnið í „sveita síns andlitis" af
ungum og öldnum?
Er hun í einu orði sagt ekki að
færast frá fjölbreytni og dásemd-
um náttúrunnar yfir í múgmergð
stórborgarlífsins og örtröð malar-
1 innar? Hvar einstaklingurinn á
mjög mikla hættu á að týna sjálf-
um sér og sínum hugsanamætti.
Hættu á því að leiðast úr fylkingu
framtaks og dáða yfir í raðir tild-
urs og tízku, já — og jafnvel alla
leið yfir í skuggahverfi ofbeldis og
spellvirkja.
Þetta eru liugrenningar, er af
gefnu tilefni hafa runnið í gegnum
huga minn nú í seinni tíð. Og ég
hefl spurt: Er þetta það, sem koma
skal? Er öll okkar mann- og
kvenréttindi fyrst og fremst að
finna í múgmergð stórborgarlífs
eða kaffihúsasamkvæmum þess?
En það rekum vð okkur líka á, að
samkomu- og samkvæmislíf er að
verða stór og sterkur þáttur í þjóð-
lífi vor íslendinga. Og það fer ekki
hjá því, að eftir því, hvernig sá
þáttur. er úr garði gerður á hverj-
um tíma, fara vitanlega áhrifin,
sem sá þáttur gefur af sér þeim til
handa, sem hans eru að njóta. Og
ef við lítum á það, að það er
ungdómurinn, hinn lítt þroskaði og
ómótaði efniviður vors litla og
veikbyggða lýðveldis, sem hér kem-
ur mjög mikið við sögu, þá er ekki
nema eðiilegt að spurt sé: Er þessi
þáttur yfirleitt svo úr garði gerð-
ur, að hann hafi dáðrík og frels-
isaukandi áhrif á þjóðina?
^ Nei, mjer finnst, að frelsi, far-
sæld og heilbrigð þróun þjóðar vorr
ar sé í nokkurri hættu vegna of
mikils tildurs og takmarkalauss
„reipdráttar" hjá og milli leiðtoga
og löggjafa vorra. Og að grund-
völlur sá, er mikið af æskufólki
voru byggir hugsana og framtaks-
mátt sinn á, sé of ótraustur.
j Er ekki sugurvissan og afkomu-
j möguleikarnir mestir þar, sem sam
' starfið og friðarviljinn eru í heiðri
höfð?
Eru ekki traustustu uppeldisöfl-
in fyrst og fremst að finna í starfi
og leikjum í hinni fjölskrúðugu og
lifandi náttúru? Að ógleymdu hinu
friðsæla og göfgandi heimilislífi,
hvar móðirin og móðurástin varp-
ar hinum sterku ylgeislum sínum
yfir hinar bljúgu og áhrifaríku
j barnssálir. sem aldrei gleyma
góðri og göfugri móður.
Og konan (jafnvel kvenfrelsis-
konan). Pinnst henni ekki lífsham-
ingju sinni, þrám og freisi nógu
göfugur og áhrifaríkur stakkur
skorinn á góðu og göfugu heimili,
í starfi og stjórn húsmóðurinnar,
eiginkonunnar og móðurinnar?
Hvar eru áhrifaríkari og göfugri
störf unnin? Og hver má án þeirra
vera? — í guðs friði!“
Ég dreg mig í hlé og stend á-
lengdar þegar Hannes talar við
Dísu sína.
Starkaður gamli.
Jtilkynning!
Viðskiptanefndin hefir ákveðið eftirfarandi hámarks |
| verð á Pepsi-cola. |
í heildsölu ..... kr. 0,84
í smásölu ....... kr. 1,20
Hámarksverð þetta gildir í Reykjavík og Hafnarfirði, |
1 en annars staðar á landinu má bæta við verðið sam- |
| kvæmt tilkynningu nefndarinnar nr. 28/1947.
1 Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 23. júní 1949
Verðlagsstjórinn
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiium
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM