Tíminn - 09.07.1949, Page 3
143. blað.
TÍMINN laugardaginn 9. júli 1949
3
ÍÞRÓTT
Valur vann Ajax 1:0
Halldór Halldórsson skoraði
Valur vann Ajax með einu marki gegn engu s. 1. fimmtu-
dagskvöld, eftir spennandi og skemmtilegan leik. Veður var
óhagstætt til keppni, all hvasst og háði það mikið að liðin
gætu sýnt sinn bezta leik. Hollendingarnir léku nú ekki eins
vel og á móti K.R., aftpr á móti lék Valur mun befur en K.R.
gerði. Mark Vals skoraði Halldór Halldórsson, eftir mjög
nákvæma sendingu frá Ellert Sölvasyni.
Fyrri hálfleikur 1:0
Valur lék undan vindi í
fyrri hálfleik og hófu strax
nokkra sókn í byrjun leiks.
Ajax tók vel á móti og varð
leikurinn nokkuð þófkennd-
ur og náðu liðin ekki að leika
vel saman. Framl. Vals var þó
alltaf mjög hættuleg og
Sveinn Helgason átti mörg
góð skot á markið. Á 20. mín.
spyrnti Sveinn föstum knetti
á markið, en Leentvaar sló
knöttinn frá og náði Sveinn
hohum og skaut strax aftur,
en knötturinn lenti í stöng-
inni og hrökk til Ellerts, sem
þegar spyrnti mjög nákvæmri
spyrnu til Halldórs og náði
hann að skalla í markið. Við
markið færðist fjör í Hollend
ingana og hugðust þeir jafna
leikinn, en vörn Vals var mjög
traust og brást hvergi.
Seinni hálfleikur 0:0
Margir bjuggust við að
Ajax myndi takast að skora,
er þeir léku undan vindi. En
þeim tókst sjaldan að skapa
sér góð tgekifæri, þeir léku
mjög vel á miðju vallarins, en
þegar að markinu kom brást
allt. Vörn Vals var líka mjög
heilsteypt, sérstaklega Sig-
urður og Hermann, og strand
aði öll sókn Hollendinga yfir-
leitt á þeim. Valur náði af
og til upphlaupum, sem virt-
ust mun hættulegri en upp-
hlaup Ajax. Á siðustu mín.
komst Jóhann Eyjólfsson
frír heim að marki Ajax, en
|spyrnti yfir markið. I seinni
hluta hálfleiksins færðist
mikil harka í leikinn, þar
| sem hvorugt liðið vildi láta
hlut sinn, en dómaranum
Hauki Óskarssyni tókst að
J halda leikmönnum alveg
niðri.
I
Liöin
Lið Vals var mjög heil-
steypt í þessum leik og má
segja að hvergi hafi verið gat
á liðinu. Tveir lánsmenn léku
með, Dagbjartur Hannesson
frá Akranesi, og Óli B. Jóns-
son (K.R.), og áttu þeir báð-
iir ágætan leik. Hermann Her
' mannsson varði mjög vel
og er tvímælalaiyt bezti
markmaður íslendinga,
einnig voru útspörk hans á-
gæt. Sigurður Ólafsson, lék
miðframvörð, og er óhætt að
fullyrða að hann hafi verið
bezti maðuririn á véllirium.
Guðbrandur Jakobsson lék
Imjög kröftugt og hélt hinum
hættulega útherja Ajax alveg
' niðri. Framlína Vals náði oft
ágætum leik. Sveinn Helga-
^son var beztur og Halldór og
Ellert áttu báðir mjög góðan
leik. Áberandi var hve skot-
'menn Vals áttu mikið fleirri
og hættulegri skot á markið
en skotmenn Ajax.
Hjá Ajax voru beztir mark-
maðurinn Leentvaar og
Stoffelen, vinstri framvörður.
Dómari var Haukur Óskars
son. Áhorfendur skiptu þús-
undum. H. S.
Efnilegur námsmaður
Utan úr heimi
Daglegt líf Stalins.
Stalin er orðinn sjötugur, og
hárið, sem áður var hrafnsvart,:
er nú orðið grátt. Orðrómur
hefir gengið um það nýlega, að
hann hafi þjáðst af hjartveiki,
en ekkert er vitað um það með
vissu. Hitt er víst, að hann er
farinn að fylgja nákvæmum
heilbrigðisreglum nú í elli sinni.
George W. Herold heitir amer
ískur blaðamaður, sem um
margra ára skeið hefir unnið
í Moskvu. Hann segir, að ein-
valdurinn í Kreml hafi nú mjög
stytt vinnudag sinn frá því,
sem áður var. Nú er hann ekki
nema 5 daga vikunnar i Kreml.
Alla sunnudaga og þriðjudaga
er hann með fjölskyldu sína
á sveitasetri sínu um það bil
50 km. frá Moskvu.
Hina vikudagana fimm fylgir
hann nákvæmlega fyrirsögn
læknis síns. Hann fer snemma
á fætur, fær sér kalt steypibað,
og síðan gönguferð, hversu sem
viðrar. Morgunverður hans er
fimm brauðsneiðar með smjöri.
Aðrar máltíðir hans eru mjög
hófsamlegar. Eftir hádegisverð
fer hann aðra gönguferð og er
! svo við vinnu þangað til klukk-
j an 8 eða 9 að kvöldi. Venjulega
borðar hann einn sér og alltaf
er hann háttaður fyrir mið-
nætti.
Sagt er að Stalin sé hættur
að drekka Vodka og hafi vanið
sig af aö reykja sígarettur. Það
eina sem hann lætur eftir sér
af slíku tagi er tóbakspípa af
og til.
Herold segir, að Stalin fari
nú svona gætilega vegna þess,
að hann hafi gengið fram af
sér á stríðsárunum og fengið
astma og of háan blóðþrýsting.
Það var því nauðsynlegt fyrir
hann að taka upp nýja hætti,
enda er hann nú orðið helming
ársins suður við Svartahaf.
Þó að Stalin sé nú bilaður að
heilsu á efri árum, þarf það
ekki að þýða að hann sé kom-
inn á grafarbakkann. Til dæmis
segir fyrrverandi læknir hans,
Antonio Giordano, sem hafði
æðsta eftirlit með heilsu hans
1931 til 1944:
— Heilsufar Stalins er í raun-
inni gott. Hann er hraustur og
stæltur og jafnvel á striðsár-
unum hélt hann hreysti og
þrótti svo aö aldrei bar út af
með heilsu hans.
NYJAR BÆKUR
Einar I. Siggeirsson, sonur
þeirra Siggeirs Bjarnasonar
og konu hans Guðrúnar Guð
jónsdóttur í Reykjavík, er í
fyrravor útskrifaðist með
„Bachelor of Science“ mennta
stigi frá Landbúnaðarháskól
anum (State College of
Agriculture) í Fargo, Norður-
Dakota, lauk þann 6. júní
s. 1. meistaraprófi (Master of
Science) í landbúnaðarvísind
um á sama háskóla, með á-
gætiseinkunn í öllum náms-
greinum.
AÖalnámsgrein hans var í
náttúrufræði, en sérgrein í
grasafræöi. Fjallaði meist-
araprófsritgerð hans um
tæknilegar og stærðfræðileg-
ar mælingar á fóðuruppskeru
beiti- og afréttarlanda. Verð-
ur hún birt í kunnum ame-
rískum timaritum í þeim
fræðum, fyrri hlutinn í
„Journal of Agronomy", en
seinni hlutinn í „Journal of
Range Management".
Einar hefir nýlega verið
kjörinn félagsmaður í félag-
inu Phi Kappa Phi, eh þann
heiður hljóta þeir einir, sem
skarað hafa fram úr í námi
sínu. Ennfremur hefir hann
verið gerður félagsmaður í
„The American Society of
Agronomy" og „The American
Society of Range Manage-
og er þar einnig um mikla
viðurkenningu að ræða.
Hinum glæsilega námsferli
hef ég að öðru leyti lýst nán
ar í grein minni um hann í
Vestur-íslenzku blöðunum og
„Tímanum“, er hann lauk
námi í fyrra, og verður það
eigi frekar rakið að þessu
sinni.
Eigi ætlar hann þó að láta
staðar numið á námsbraut-
inni, heldur hefir þann þeg-
ar innritast til framhalds-
náms í Landbúnaðarháskóla
New York ríkis í Ithaca, New
York, sem er deild af hinum
kunna háskóla, Cornell Uni-
versity, þar í borg. Er það
takmark Einars að ljúka'þar
doktorsprófi í landbúnaðar-
fræðum, og bendir allt til, að
honum takist það á tilsett-
um tíma, jafn ótrauður og
hann hefur reynzt á náms-
brautinni.
Þegar hann nær þvi loka-
takmarki sínu, verður hann
einnig ágætlega undir það
búinn að vinna þjóð sinni á
sviði landbúnaðarins, og er
þess að vænta, að honum veit
ist tækifæri til að notfæra
sér í hennar þágu ávexti víð-
tækrar skólagöngu sinnar og
margháttaðrar hagnýtrar
reynslu.
Richard Beck
Fasteignasölu-
miðstöðin
Lækjargötu 10B. Sfmi 6530.
Annast sölu íastelgna,
sklpa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
lnnbús-, líftryggingar o. fl. 1
umboði Jóns Finnbogasonar
hjá Sj óvátrygglngarfélagi ís-
lands h.f. Viðtalstlmi alla
virka daga kl. 10—5„ aðra
tima eftlr samkomulagl.
Eiríkur Sigurðsson: Alf-
ur í útilegu. Barnasaga.1
Stærð: 114 bls. 18x12 sm.
Verð kr. 16.00 innb. Bóka-
útgáfa Pálma H. Jónssonar. |
Það er efni þessarar sögu,
að Álfur litli fylgir pabba
sínum inn mí>ð firði og fram 1
í dal með féð um vorið, og
þar eru þeir yfir því viku-
tíma til að spekja það, með- '
an gróðri fer fram.
Það gerist ekki annað í
þessari ferð en það sem • við
ber í lífi íslenzkra sveitabarna
en sumt af því verður þeim
þó að merkum viðburðum og
svo verður Álfi litla.. Hann
sér ýmislegt og reynir, hann
dreymir ævintýradrauma og
pabbi hans segir honum sög-
ur. Það eru íslenzkar alþýðu-
sögur, krummasögur, tófu-
sögur og gömul útilegumanna
saga.
Það er góð regla, að segja
ekkt margt um barnasögur
fyrr en einhver hefir lesið
þær á aldri þeirra, sem þær
eru einkum ætlaðar. Eg stend
svo vel að vígi að ég hef látið
þessa bók Eiríks ganga undir
slíkt próf og hefir hún stað-
izt það með prýði. Þeim, sem
lásu hana fyrir mig, þótti
gaman að henni. Og þá held
ég að sé óhætt að mæla með
henni.
Nokkrar myndir eru í bók-
inni og hefir Steingrímur Þor
steinsson teiknað þær.
Þetta er íslenzk bók, sem
meðal annars hjálpar börn-
unum til.-að skilja og þekkja
land sitt og náttúru þess, at-
vinnusögu og menningu þjóð-
ar sinnar og gerir þau þar
með að betri íslendingum.
Embla. Ársrit er flytur
ritverk kvenna. 3. ár. Stærð:
116 bls. 24x16 sm. Verð kr.
20,00 ób.
Hér eru á fe£ð ýmsir kven-
rithöfundar, sem flestir eru
meira og minna kunnir áð-
ur. Efnið er næsta fljölbreytt
kvæði og sögur að ferðasögu
og ritgerðum. Allt er efni
heftisins læsilegt, enda eng-
ar fréttir að til séu ritfærar
konur. Þarna vantár þó
mjög margar konur, sem
prýði myndi vera að í hópn-
um.
Ekki verður efni þessa heft
is flokkað hér eftir neinu
gæðamati, en gott er að lesa
greinina um Guðlaugu í Ól-
afsdal, umhugsunarefni eru
sögur Ragnheiðar Jónsdótt-
ur: Samt sem áður og Val-
dísar Halldórsdóttur: í ófærð,
og kvæði eru þarna ?>*tur
og smellnar vísur.
í stað þess að fara hér um
fleiri orðum skal lesendum
Tímans flutt af einu blaði
bókarinnar til sýnis. Öðru
megin er kvæðið: Ef fyndi ég
— Ingibjörg Tryggvad. þýddi
lauslega:
Ef finndi ég búr, þar sem
bros væru geymd,
ég berðist með líkama og önd,
unz lykillinn góði, sem
gengi þar að,
h'ann glitraði í minni hönd.
Þá skyldi ég blessuðum
brosunum strá,
til bjargar um gjörvallan
■ f heim,
á barnanna andlit og
borgara svip,
svo að birti um löndin af
þeim.
Og þekkti ég kistu, sem
koma mætti í,
öllum kulda og úlfúðar svip,
sem mætist á vegum, á
heimili, í hug,
og hefir á lífinu grip —
þá skyldi ég leggja mitt líf
í það eitt,
að læsa þann ólundarher
í kistuna niður, svo léki
hann ei laus
til lánslit^ mér eða þér.
Hinu megin á þessu blaði
er kaþólskt ljóð eftir Halldóru
B. Björnsson.
Hvort dreymdi þig,
eða var það veruleiki,
að værirðu dálítil hrisla
í skóginum þétta,
og fannst svo undur, undur
gaman að spretta.
Og gekk ekki dökkeygur
drengur
um skóginn þinn,
drengur, sem blikaridi hnifi
stofninn þinn lagði?
Þetta er efni i fallega
Madonnumynd hann
sagði.
En var ekki kallað á dreriginn
og drengurinn hljóp?
Hvort dreymir þig enn„..
eða var þetta dauða-
•syndin,
að rót þín va^ slitin,
en ófullgbrð Madonnu-
myndin?
Þessi skáldskapur myndi
mörgum þykja samboðinn
fremstu skáldum.
H. Kr.
S^IPAUTGCKD
KIUISINS
n
HEKLA"
fer frá Reykjavik mánudag-
inn 11. júli kl. 20 til Glasgow.
Farþegar þurfa að vera komn
ir um borð kl. 19, og hafa þá
lokið við að láta tollskoða far
angur sinn. Flutningi verður
veitt móttaka burtferðardag-
inn fram til kl. 2 síðdegis.
„BALDUR”
Tekið á móti flutningi til
Salthólmavikur og Króksfjarð
arness árdegis i dag og ár-
degis á mánudag.
„HEKLA”
Þeir, sem pantað háfa far
með skipinu til Glasgow 23.
júlí n. k. eru beönir áðuinn-
leysa farseðla sina í skrifgtofu
vorri fimmtudaginn 14., júlí
kl. 1—4 e. h. Afgreiddir ■verða
sama dag hjá Ferðaskrfistofu
ríkisins farmiðar í skeíhhiti-
ferðir í Skotlandi. ffa^ðsyn-
legt er, að farþegar sýni <vega
bréf sin. ' '