Tíminn - 14.07.1949, Qupperneq 4

Tíminn - 14.07.1949, Qupperneq 4
TÍMINN, fimmtudaginn 14. júlí 1949 146. blaffi SANDRYK í FLATEY „Harin gerði allt, sem hundur kann, hefði hann aðeins rófu.“ i Þessar ljóðlínur Þorsteins Erlingssonar komu mér í hug,! er ég las greinina: „Vordagar ; i Flatey.“ Grein sú er prent- | uð í Morgunblaðinu 20. júní s. I i.« og undirskriftin er: Eyja- ' maður. Gísli Jónsson er sleikt- ! ur heldur ógeðslega í grein pessari. — Og svo lokaorð nefndrar greinar: „Sérhver hugsandi maður hreppsins ber þvi þá von í brjósti, að Gísli Jónsson verði fulltrúi þeirra á Alþingi meðan hreppsfé- iagið berst fyrir viðreisn sinni.“ i Já, mikið er nú sagt. En' þegar litið er til þeirra lof- orða, sem Gísli hefir gefið kjósendum þessa hrepps, og þeirra steiguryrða, sem eftir honum eru höfð, væri rökrétt- 1 ara að hugsa og álykta hið gagnstæða. Gísli Jónsson get- ar ekki- vænzt fylgis annarra 1 Flateyjarhreppi en þeirra, sem hugsunarlaust láta ginn- ast af fagurgala, þótt þeir verði flekaðir æ ofan í æ. Ég mun víkja' að þessu síðar, en staldra um stund við laugar- daginn fyrir hvitasunnu. Þungamiðjan í grein Eyja- manns: „Vordagar í Flatey“, liggur ekki í frásögninni af því, sem fram fór í Flatey þennan dag, — og er rétt frá sagt í öllum meginatriðum, — heldur í hinu, að koma þingmannsins, Gísla Jónsson- ar, og fylgjunauta hans, verði honum til stjórnmálalegs framdráttar. Þessi skollaleik- ur, þetta sandryk, sem enn á ný er þyrlað upp, til að blinda augu kjósenda, er orsök þess að ég skrifa þessar línur. Þessi dagur, laugardagur- mn fyrir hvítasunnu, er minnisverður í Flatey, því auk þess, að þá bauðst óvenju- leg skemmtun, var hann fyrsti vorboðinn á þessu kalda vori, og lék sitt gieðilag, svo ekk- ert misræmi yrði. Að morgni þessa dags lagðist varðskipið Ægir við hina nýbyggðu haf- skipabryggju í Flatey. Erindi þess var að flytja Lúðrasveit Reykjavíkur, sem ætlaði að skemmta eyjarbúum þá um daginn. Með lúðrasveitinni kom einnig þingm. kjördæmis ins, Gísli Jónss., sem þrátt fyrir allt, verður að teljast .frumkvöðull bryggjunnar, þó ekki yrði hún byggð fyrir hans fé að lokum. — Fleiri gestir komu með skipinu. Oddviti hreppsins bauð gesti velkomna. Þar næst ávarpaði þingmaðurinn eyjarbúa, og skýrði frá því, hver væri or- sök þessarar farar,- Hana kvað hann þá, að formaður Júðrasveitarinnar hefði kom- íð til sín, formanns fjárveit- incjanejndar Alþingis, og boð- íð sér að fara þessa för. Væri þetta því nokkurs konar umbun eða viðurkenning frá ‘hálfu lúðrasveitarinnar, fyrir þann fjárstyrk, sem henni hefði hlotnazt af ríkisfé (og ið, sennilega persónuleg við- þá, þar sem honum var boð- urkenning til formanns fjár- veitinganefndar Alþingis, fyr- ír hlutdeild hans í þeirri veizlu). Ég ætla að trúa þessu — jaínvel þó sannur kunni að reynast orðasveimurinn, að kosningar til Alþingis standi fyrir dyrum, — því drengilega ieizt mér á formann lúðra- IBréf írá Eyjjamanni sveitarinnar, sem og aðra sveitarlimi. Vel skemmti lúðrasveitin okkur um dag- inn. Hafi hún þökk íyrir það og komuna hingað. í hléi, sem varð á leik lúðra- sveitarinnar, talaði þingmað- urinn fyrir minni Flateyjar eða byggðarlagsins. Margt sagði hann þar rétt og fall- ega, en kjassmáll var hann nokkuð, virtist gæta viðleitni að tala þannig, sem líklegt væri að eyrun klæjaði, en ó- höndulega fórst það á köfl- um, og ótrúlegrar fáfræði kenndi víða. Meðal annars fræddi hann áheyrendur sína á því, að Jón T’noroddsen skáld, sem búið hefði hér í Flatey og siðar í Haga, mundi hafa staðið þar hátt í fjalli og litið yfir sólglitrandi og geislamerlaðan Breiðafjörð, þegar honum komu í hug orð- in: ,,Ó, fögur er vor fóstur- jörð“, og þá hafi hann séð, hvar hjörð lék sér í Haga á Barðaströnd. — Samkvæmt þessu ber að athuga, að næst þegar kvæði þetta verður prentað, ber að rita: „og leik- ur hjörð í Haga“. Gísli getur þá glaðst og miklast af upp- götvun sinni, því ekki þarf hann að bera kinnroða henn- ar vegna, fremur en annarra gerða sinna í Barðastrandar- sýslu. í öðru hléi, sem varð á leik lúðrasveitarinnar, hélt þingmaðurinn leiðarþing. — Skýrði frá gerðum síðasta þings og afstöðu sinni til þeirra mála, sem þar var fjallað um. Þótt þingfréttir séu sagðar, allýtarlega, meðan á þingi stendur, er ýmsu hægt við að .bæta. Bros sást leika á vör einstalcra manna, þá er þing- maðurinn skýrði frá, með íjálgum orðum, að ávalt, þá er toguðust á hagsmunir Barðastrandarsýslu og Sjálf- stæðisflokksins, hefði hann — samvizku sinnar vegna — jafnan mikið meira hag*sýslu- búa en flokksbræðra sinna eða flokksins í heild, í huga. Er þetta nú sennilegt? Alllöngu máli varði hann til þess að lýsa viðleitni sinni og örðugleikum sem formanns fjárveitinganefndar Alþingis að hamla á móti og koma í veg fyrir sukk og fjárbruðlun í þinginu, og sannleikans vegna yrði hann að taka það fram, að með öllu væri það ó- satt. mál, sem lesa mætti í Tímanum, að Framsóknar- flokknum væri að þakka það, sem áunnizt hefði í sparnað- aráttina. Helzt mátti skilja þingmanninn svo, að sá heið- ur bæri honum. Reyndar hefðu Framsóknarmenn greitt atkvæði með öllum sparnað- arráðstöfunum, en stundum hefði hann, sem formaður fjárveitinganefndar Alþingis, orðið að lúta svo lágt að leita liðs hjá kommúnistum til þess að fá þeim framgengt. Ekki hefir Sjálfstæðisflokkurinn verið leiðitamur við formann fjárveitinganefndar Alþingis, þegar koma átti í veg fyrir sukk og fjárbruðl á löggjafar- þingi þjóðarinnar. — Ég læt nú útrætt um þennan dag og komu þingmannsins til Flat- eyjar, en sný að því, sem fyr- irsögn þessarar greinar boðar. Saga Flateyjar á síðari ár- um er raunasaga. Til hennar mætti heimfæra vísuna, sem kveðin var um Eimreiðina forðum. Fyrrurn var Eimreiðin elskuö og virt, sem ásynja sælleg og föguv. En — nú er hún hornkerling fríðleika í'yrrt, svo fádæma skórpin og mög- ur. Rás viðburðanna hefir hag að því svo, að athafnamenn eyj arinnar gerigu til moldar j en ekki komu aðrir í þeirra1 stað. Flatey hefir því dregizt aftur úr, en önnur héruö teygt tána framhjá. Mörgum,! sem muna fífil hennar fegri,1 svíður þetta sárt. Auðna ræð ur, hvort hægt verður, að | flytja hana aftur fram á veg! athafnalifsins, og gjöra hana j að lyftistöng nærliggj andi; héraða, eins og hún var áður.. En fáir munu þeir vera nú, sem trúa því að Gísli Jónsson hafi þá giftu. Það var mann- legt, og í alla staði eðlilegt, þó margir, sem ekki þekktu Gísla Jónsson létu ginnast af gyllingum hans, og loforðum um framkvæmdir, sem hann í byrjun, kvaðst mundu gjöra fyrir eigið fé. Sú saga gekk, að hann væri fésterkur at- hafnamaður, sem hefði opin augu fyrir því hvar fengs væri von. Þetta gladdi því marga, og þeir andstæðingar voru til, sem trú höfðu á möguleikum eyjarinnar og hafa enn, sem óskuöu honum þarna góös gengis í upphafi. En jafn fár ánlegt er það nú, eftir það, sem undan er gengið, að Flat eyingar fylli flokki þeirra, sem vilja fleyta honum inn á þing. íbúar Flateyj arhrepps muna vel Vísis greinina — nú er orðin fræg að endem- um — muna hvern fögnuð hún vakti og að þá var hafin vinna sem hét svo að það væri til undirbúnings þess að haf- skipabryggja yrði reist. Sá fögnuður var skammær, vinnan stóð stutta stund. Margir höfðu látið glepjast, af loforðum Gísla, gengið til liðs við hann, svo hann náði kosningu. Það er fljótsögð saga. Hvert sinn er líklegt þótti, eða fullvíst að kosning- ar yrðu var hlaupið til — og unnið að þessum undirbún- ingi um stund. Hreppsbúum er líka fullkunnugt um, allt það sleifarlag, sem var á vinnubrögðum öllum, sem laut að þessum undirbúningi. Loks var svo komið að efni til bryggjunnar var komið, smiðir voru komnir á stað- inn, með pramma og fallham ar, til þess að framkvæma verkið. En þá kom það upp úr kafinu að botnrannsóknir voru gallaðar. Klöpp reyndist að vera undir, þar sem reka skyldi niður staurana. Breyta þurfti um legu bryggjunnar, og bæta við staurum. Verk- inu var frestað. Þessir straur ar komu siðar, en ekki var hafist handa um smíðina. Enn var allt dregið á langinn. — Ekkert efni fæst, svo allt mátti flytja burt, ef það þætti hagkvæmara, virtist mönnum. — En nú fóru marg ir að sjá í gegnum þetta sand ryk, sem stráð hafði verið í augu þeirra. Hreppsbúar á- kváðu nú, að leita eftir kaup- (Framhald á 7. síðu) Haraldur blátönn nefnist sá, ' sem sendir hér bréf í dálitlum umvöndunartón. Ég hugsa, aö , sumum þyki hann geðvondur, en þá er bara aö sVara honum aftur og reka ofan í hann vit- ! leysuna ef úrskeiðis þykir ganga. ! Við skulum bara tala hispurs- ! laust saman: i „Ég sá að þið voruð eitthvað ( að tala um hugsjónir þarna í boðstofunni, — hugsjónir unga fólksins, — minnir mig. O, jæja! Hverjar skyldu þær nú vera, hugsjónirnar á þessum tímum? Svíkjast gegnum lífið með sem léttustum hætti, — hafa sem minnst fyrir því að skemmta sér ' og þurfa sem allra minnst að vinna. Ég þekki pilt og stúlku, sem 1 eru liðlega tvítug. Þau eru bæði1 í sæmilegri atvinnu og hafa því! svo sem nóg auraráð. Þau vinna ! sinn ákveðna tíma á hverjum j virkum degi, svona 9—10 og J fram á fimmta tíma fimm daga vikunnar og til hádegis á laug- ! ardögum, — auðvitað með lög- legum frádrætti matarstunda.' Þau eru bæði í einhverskonar menningarfélögum og hug- sjónaflokkum. Brennandi í and- anum í pólitik og ætla sér að lifa til að frelsa landið. En þau ætla sér víst að gera það, með því einu að greiða atkvæði á sinn rétta hátt við almennar kosningar og hvetja aðra til þess. Svo mikið er víst, að ekki ætla þau að safna fé með sjálfsaf- neitun til að frelsa þjóðina. Þau hafa verið aö venja sig á tóbak síðustu mánuðina. Reyndar hafa þau sagt, að þau færu ósköp vægt í sakirnar, hefðu fullkom- ið vald á nautninni og gætu látið þetta vera. Nú hafa þau þó séð, að það er búið að vera. Nú reykja þau sinn pakkann hvort á dag og það mun gera með núgildandi verðlagi hér um bil 2 þúsund krónur á ári hjá hvorú þeirra. Ef þau skyldu nú verða hjón eftir að hafa reykt í 10 ár, er það því 40 þúsund króna höfuðstóll, sem þau eru búin að brenna. Tíu árum seinna væri það 80 þúsund króna sjóð- ur og hamingjan má vita hvað það væri orðið með 4% vöxt- um, en með þeim vaxtafæti tvö- faldast höfuðstóll á 18 árum, svo að eftir 20 ára reykingar eru svona hjón raunverulega búin að brenna íbúð ofan af sér og börnum sínum. Það eru nú hug- sjónirnar þeirra á því sviði. Svo skulum við líta á þetta frá sjónarmiði heilbrigði og menningar. Ég er hræddur um að það verði eitthvað svipað uppi á teningnum þar. Útkom- an yrði neikvæð, þrátt fyrir þann gorgeir og yfirlæti. sem oft má heyra. — Og svona fólk er verið að skjalla og segja, að æskan sé á framtíðarvegi og stefna hennar sé stefna lífsins. Þessi líka glæsilega æska! — Nei. Ætli aldurinn sé ekki held- ur lítil rök fyrir réttdæmi og drengskap? Og ég held. að það beri meira á öðru en hugsjónum hjá mörgu unga fólkinu. Þið ættuð að líta á skemmtistaðina suma, eða sjá gleðskap fólks í heimahúsum." Ekki lái ég bréfritara, þó að honum sé þungt í skapi og heitt í hamsi yfir því, sem honum þykir miður fara, og vandalaust er að' finna margt athugavert við fólk á æskuskeiði. Svo hefir löngum verið og margur séð að sér með aldri og reynslu, þegar æskuárin voru horfin, þó að það hafi aldrei orðið hlutskipti allra. Vitanlega var blátönn ekki að gera neinn samanburð á nútío og fortíð og breytir það því engu í málflutningi hans, hvernig fortíðin var. En hitt verðum við að sjá og játa, að það er til margt af ungu og góðu fólki, sem á sér hugsjónir og lifir í samræmi við það. Og það er einmitt þetta fólk, sem gefur okkur trú á lífið og mennina, svo að við lítum björtum aug- um fram á veginn, þrátt fyrir allt scm að er. Starlcaður gamli. Innilegustu hjartans þakkir færi ég öllum sem minntust mín með gjöfum og skeytum eða á annan hátt af tilefni 80 ára afmælis míns 12. júlí s. 1. Bið guð að blessa ykkur allar stundir. Þórður Jónsson, Finnbogahúsi Bifreiðastjórar, Bifreiðaeigendur , * Höfum ávallt fyrirliggjandi demparagúmmí stærr og minni gerðir. GÚMMÍBARÐINN II. F. Sjávarborg við Skúlagötu — Sími 7984. Frestið ekki lengur, að gerasi áskrifendur TÍMANS JIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIinillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHllllllllllllllllllllltBIICf

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.