Tíminn - 20.07.1949, Page 8
„EKIÆNT YFIIíIJT^ í ÐAG:
fíean Acheson
'3. árg. Reykjavík
„A FÖUNEM VEGI“ í ÐAG:
SSjartsýni sótt í SSorfi€trfÍör&
20. júlí 1949 151. blað
Gríski stjórnarher-
inn vilí fá að ráð-
asi inn í Albaníu
Útvarpið í Aþenu birti síð-
astli'-inn laugardag áskorun
til „stórveldanna" um að
leyfá gríska hernum að ráð-
ast inn í Albaníu.
í þessari ásKorun var sagt,
að /'lbanía væri nú, síðan
Tító iiætti samvinnu við Kom
inform, orðin aðalbækistöð
fy.rir árásirnar á gríská.stjórn
árhérinn, og væri nú komið,
að friðnum á Balkan stafaöi
alvorleg hætta af Albönum
og framferði þeirra og væri
nauSsynlegt að kveða þá
hættu nið'ur, áður en það
væri um seinan.
Cripps í Sviss
Þaö uar /yrir nokicru vid i Danmörku, atí heimUisfaöir myrti konu
sina ng fimm börn. Þessi átakanlegi atburður fékk mfg á fólk. —
Sir Stafford Cripps, fjár-
málaráðherra Breta kom í
dag til Sviss, ásamt konu
sirini, en þar mun hann
dvelja sér til heilsubótar. Á
flugvellinum í London tjáði
hann blaðamönnum, aö hann
myndi dvelja í Sviss í fimm
vikur og kvaðst hann staðráð
inn í því, að hugsa ekkert um
dollaraskort á meðan.
Hermönnum fjölgað
við Lundúnahöfn
Búist z* við, að hermönn-
um þeim, er vinna við höfn-
ina í London, muni fjölga all
verulega á morgun. f dag
unnu þar um 7000 hermenn
við 70 skip, en jafnmörg skip
biðu afgreiðslu, svo að mikil
þörf er fyrir meiri mannafla.
í dag voru voru alls rúm-
lega 15,400 verkamenn iðju-
Iausir, eða lCi-'fleiri en í gær.
Horfur á því, að verkfallið
fari senn að leysast, hafa
ekkert batnað.
Astralíu-verkfallið
að leysast
Fregnir frá Melbourne
herma, að góðar horfur séu
nú á því að kolanámuverkfall
það, sem staðið hefir yfir í á
fjórðu viku í Ástralíu, fari nú
senn að leysast. Allir námu-
menn í vesturhluta landsins
hafa nú snúið aftur til vinnu,
sem og margir í Queensland.
Hinsvegar er engin vinna
hafin enn við stærstu kola-
námurnar í New South
Wales.
Leiðrétting
í grein Hannesar Pálsson-
ar frá Undirfelli í blaðinu í
gær varð meinleg prentvilla.
Var sagt að pantanir á Fergu
son dráttarvélum hefðu verið
110 en þetta er vitanlega al-
rangt. Pantapirnar voru 1100
ellefu hundruð.
Myndin hér aö ofan er jr& útförinni.
Réttarhöldin yfir enska sýru-
rnorðingjanum hafin
Aðeiíss f jörutíii mesBii komast í dómlmsið í
JLewes, eu forvitni fióiks á sér engin
takmörk
Það er æði gestkvæmt í smábænum Lewes í Sussex á
Englandi um þessar mundir. Þetta fólk er þó ekki komið til
þess að skoða virkisleifar þær, sem þar eru frá tímum vík-
inganna — þeir eru ekki komnir til þess að virða fyrir sér
hér um bil þúsund ára gamla kirkju, sem þar eru — þeir
eru eltki komnir til þess að sitja að snæðingi í kránni, þar
sem Hinrik áttundi gæddi sér á steiktu villisvíni forðum
daga. Ástæðan fyrir ferðamannastraumnurn er sú, að í Lewes
eru nú hafin réttarhöld í máli morðingjans John George
Haigh, sem viðhafði þá einstæðu aðferð að Ieysa lík fórnar-
lamba sinna upp í saltsýru.
Réttarhöldin hófust í fyrra
rag. Þá voru öll gisti-
hús bæjarins orðin yfirfull.
Fólk, sem bjó í grennd við
dómhúsið hafði leigt herberg
isglugga sína dýrum dómum
því að forvitni fólksins á sér
lítil takmörk. Sölumenn hafa
komið langt sunnan úr Eng-
landi í von um að geta prang-
að út varningi sínum í að-
lcomufólkið. En á bekkjunum
í dómliúsinu eru aðeins sæti
fyrir fjörutíu menn!
Ástæðan til þess að réttar-
höldin fara fram í Lewes er
sú, að Haigh er ákærður fyr-
ir morð, framið í Sussex, og
það hefir verið notað sem á-
tylla til þess að vísa mál-
inu þangað.
Frægir menn -
En þótt réttarhöldin fari
þarna fram, þarf morðing-
inn ekki að kvarta yfir því,
að viðvaningar fjalli um mál
hans. Verjandi hans er einn
frægasti málafærslumaður
Englendinga, Sir David Max-
well-Fyfe, sem var formað-
ur brezku ákærendanefndar-
innar við réttarhöldin í Núrn
berg, og dómarinn er hinn
áttræði Humphreys, sem er
einn þekktasti sérfræðingur
Englendinga í glæpamálum.
Hann er sagður afkomandi
mjög frægs dómara, sem uppi
var á 16. öld og við er tengt
hið enska orðatiltæki „að lifa
á brauði Humphreys dóm-
ara“, sem raunar þýðir hið
sama og að deyja úr hungri.
Syndaregistrið
j Haigh er ákærður fyrir að
hafa myrt aldraða konu í
fjárgróðaskyni. Hann hagn-
aðist um eitthvað fimmtán-
hundruð krónur á morðinu.
Líkið leysti hann upp í salt-
j sýru, nema fáeinar tennur,
' sem ekki vildu láta sig. Áð-
ur er hann grunaður um að
j hafa myrt að minnsta kosti
fimm manns úr tveirnur fjöl
skyldum með svipuðum að-
ferðum. Einkum virðist hann
hafa sótzt eftir því að kom-
ast í kunningsskap við roskn
ar konur — í þeim tilgangi
að koma þeim seinna fyrir
kattarnef. Það hefir og kom-
ið í ljós, að hann var áður
góövinur þekkts kvennamorð
ingja, Heith að nafni, er
dæmdur var og tekinn af lífi
fyrir eitthvað tveimur árum.
Pæmdur til dauða
Réttarhöldin urðu skamm-
vinn. í gærkvöldi bárust þær
fréttir, að Haiga hefði verið
dæmdur til dáuða, og er því
einstæðum glæpaferli hans
væntanlega lokið innan
skamms.
/
PáíMaksa Hé'eta í felaisclsfferf&iani esa
iMsstst laelðl iiEátt tíö
Ferðamannaskljiið’ Hekla kom hingað tii Reykjavíkur frá
Skotlandi í gæSiíág' með 37 erlenda farþegar, en að öðru
leyíi var fullskíriað íslenzkum farþegum. Er efurspurnin
eftir SkotíandSfiSi'ðunum annars mjög mikil af hálfu ís-
lendinga og nflkl«: meiri en hægt er að fullnægja. Áhugi
Breía er hiris :végar minni fyrir íslandsferðunum, enda
varla við miklu> að búast þar sem fólk þar í landi getur
valið um margííæ.> lengri og fjölbreyttari sumarferðir sem
eru miklu ódýrari en Íslandsferðín.
Með þessarí .. ferð Heklu
frá Skotiandi komu eins og
áður er sagt 37jsrlendir ferða
menn. Tuttugu ,og sjö þeirra
ráðgera að fara aftur með
skipinu til Skotlands á laug-
ardagskvöldið en. tólf verða
eftir til að skaða sig þetur
um og dvelja hér hjá vin-
um og kunnirigjum sumir
hverjir. .
Ferðaskrifstofá.ríkisins ann
ast fyrirgreiðslu hinna er-
lendu farþega og lsýnir þeim
það markverðasta: í Reykja-
vík og nágrenni. Var farið
með þá í bilum um Rvík í
gærdag og sýnd söfn og op-
inberar byggingar. Enn-
fremur er þeim gefinn kost-
ur á að fára aústur að Gull-
foss og Geysi og er þá venju-
lega stuðlalð að Geysisgosi
um leið. Þá er farið með
ferðafólkið til Þingvalla og
því sýndur staðurinn og gerð
grein fyrir .söguhelgi hans í
augum íslenzku þjóðarinnar.
Geta ferðalarigafnir þannig
fengið nokkuð glögga held-
armynd af því markverðasta
sem er að sjá í Reykjavík
og nágrenni og fara heim til
sín aftur mörgu vísari um
menningu og riú.ttúrufegurð
eyjarinnar í norðri.
Þó að þátttakari í þessum
íslandsferðum séuiokkuð dýr
á brezkan mælijcyarða líkar
fólkinu yfirleitt. -yel og sér
ekki eftir því af hafa varið
sumarleyfi sínu -til að fara
til íslands.
Tíðindamaður .Tímans hefir
haft tal af brezk-um farþeg-
um sem ferða.st hafa með
Heklu og líkar þeim vistin
Fyrir nokkru síðan fóru
fram kosningar presta í tveim
prestaköllum og voru um-
sækjendur löglega kosnir í
báðum köllunum:
Um Staðarprestakall á
Reykjanesi í Barðastrandar-
prófastsdæmi var einn um-
sækjandi, séra Þórarinn Þór
settur prestur þar. Var hann
kosinn prestur með 107 at-
kvæðum, einn seðill var auð-
ur en á kjörskrá-voru 209.
Þá var kosið :um Staðar-
prestakall í Steingrímsfirði.
Þar var einnig einn umsækj-
andi, séra Andrés Ólafsson
settur prestur þar. Voru hon
um greidd 208 atkvæði. 18
seðlar voru auðir og einn ó-
gildur. Á kjörskrá voru 503.
um borð nokkuð vel. Þeir
telja skipið þó í það minnsta
til aö vera heppilegt skemmti
ferðaskip og vistarverurnar
fyrir farþegana nokkuð þröng
ar, sem ekki kemur að sök
þegar um stuttar strandferð-
ir er aö ræða og farþegarnir
þurfa sjaldnast að dvelja
nema eina nótt í sveínklef-
unum og fara þá oft ekki
úr fötum. En skipið er hrað-
gengt og viðurgerningur góð-
ur svo að þegar allt kemur
til alls líkar fólki vel vist-
in um borð í Heklu.
Fjórar ferðir með skemmti
ferðafólk eru .eftir á þessu
sumri. Eftirsþurn útlendinga
r svipuð í öllum ferðunum en
ísléndingar fá færri að kom-
ast með en vilja.
Sú ráðstöfun skipaútgerð-
arinnar að gefa íslendingum
kost á skemmtiíerðum í sum-
arleyfum sínum til hinna
fögru byggða Skotlands mæl-
ist vel fyrir og er lofsverð.
íslendingar hafa frá því að
land byggðist verið mikið
gefnir fyrir það að fara ut-
an, þó að löngum hafi almenn
ingur ekki átt þess kost. En
menningargildi utanferða al-
mennings er tvímælalaust
mikið og hið fornkveðna er
áreiðanlega rétt „að vísari
er sá sem víða fer heldur en
sá sem heima er“. Mun það
nú vera í athugun að efna
til slíkra skemmtiferða til
Miðjarðarhafslandanna. Er
ætlunin að þær feröir verði
það ódýrar að allur almenn-
ingur geti tekið þátt í þeim,
en þá fyrst ná þær tilgangi
sínum.
GétSiaa* árasígur
Flest Suður-Afriku blöðin
gerðu í dag ráðstefnu fjár-
málaráðherra brezku sam-
veldislandanna að umræðu-
efni og eru þau yfirleitt á-
nægð með árangur hennar. f
Suður-Afríku hafa þegar ver
ið gerðar róttækar ráðstafan
ir til þess að sigrast á dollara
skortinum, með því að setja
á aukin innflutningshöft.
Flssgsýiiiiig
Flugsýning var nýlega hald
in í Mos.kvu og voru þar m. a.
sýndar nýjar, hraðskreiðar
þrýstiloftsflugvélar. Meðal
gesta á flugsýningunni var
Kirk, sendiherra Bandaríkj-
anna í Moskvu.