Tíminn - 17.08.1949, Side 1
33. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 17. ágúst 1949
172. blaíi
Skrifstofur i EdcLuhúsin-j, Í!
81302 og 81303
Fréttaslmar: <!
<1
Afgreiösluslmi 2323 <i
(j
Auglýsingasími 81300 <i
y
PrentsmiSjan Edda t
Ritstjöri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Minni síldveiði í gær en
veður batnandi
Báið að salta um 25 fHisund tunnar sildai*.
í gær var dimmt yfir og kaldi á síldarmiðunum við Norð
Austurland og lítil veiði, en síðari hluta dags glæddi til og
kyrrði, og jukust veiðivonir aftur í gærkveldi. Allmörg skip
hafa kq#ið með síld til Siglufjarðar s. I. sólarhring, nokk-
ur til verksmiðjanna við Eyjafjörð og til Raufarhafnar og
Seyðisfjarðar.
í gærkveldi var búið að
salta um það bil 25 þús. tunn
ur síldar á öllu landinu og
síldarverksmiðjur ríkisins
höfðu borizt um 80 þús. mál.
Tvö skip komu til Raufar-
hafnar með slatta í gær, en
löndunarbann er þar enn þá
við verksmiðjurnar. Verk-
smiðjurnar þar hafa nú tek-
ið á móti 55 þús. málum.
í gær barst fyrsta sildin til
söltunar á Akureyri. Voru
það um 500 tunnur, saltaðar
hjá söltunarstöð Snorra Sig-
fússonar. Nokkur skip hafa
komið með síld til Seyðis-
fjarðar undanfarin dægur.
Reknetaveiði hefir verið
mjög mikil undanfarin dæg-
ur við Skaga og á Húnaflóa,
en þar eru einvörðungu er-
lend skip á veiðum. Hefir
afli sumra þeirra verið svo
mikill, að net hafa sprungið
og týnzt. Hefir jafnvel þurft
að henda veiði í sjóinn, því
að ekki hefir verið hægt að
verka síldina nógu ört til sölt
unar um boð í skipunum.
Séra Þorsteinn
Briem látinn
Séra Þorsteinn Briem, fyrr-
um ráðherra, andaðist í gær-
morgun, 64 ára að aldri.
Séra Þorsteinn var Skag-
íirðingur að ætt, sonur Ólafs
Briem alþingismanns á Álf-
geirsvöllum og Halldóru Pét-
ursdóttur. Hann gekk ungur
skólaveg, nam guðfræði og
vígðist aðstoðarprestur að
Görðum 1909. Tveim árum
síðar gerðist hann prestur í
Grundarþingum í Eyjafirði.
1919 flutti hann sig um set að
Mosfelli í'Grímsnesi, og 1921
varð hann prestur á Akra-
nesi.
Árið 1932 varð hann land-
búnaðar- og kirkjumálaráð-
herrá og gegndi því embætti
i tvö ár, og á þingi sat hann
1934—1937, sem uppbótar-
maður fyrir Dalasýslu.
Séra Þorsteinn Briem var
tvikvæntur, og var fyrri kona
hans Valgerður Lárusdóttir
f ríkirkj uprests Halldórsson-
ar, en síðari kona Oktavía
Emilía Pétursdóttir Guðjohn-
sen.
Með séra Þorsteini Briem
er í valinn hniginn mætur
maður, er í engu vildi vamm
sitt vita, og mest mun sakn-
að af þeim, sem þekktu hann
bezt.
Þing keraur saman
14. nov.
Á ríkisráðsfundi í gær voru
samþykkt tvenn bráðabirgða-
lög. Hin fyrri voru um það að
hafa tvo kjördaga í kosning-
unum í haust og þrjá þar sem
þess er talin þörf. Hin lögin
voru um samkomudag al-
þingis. Er hann ákveðinn 14.
nóv. í haust.
Flugslysið við írland
Það er nú talið fullvíst,
átta manns hafi látið lífið, er
ameríska flugvélin fórst við •
írlandsstrendur á dögunum. J
58 mönnum hefir verið bjarg
að.
Hér er verið að skipa upp vænunt strætisvagni — ekki samt
við höfnina í Reykjavík hcldur í Kaupmannahöfn. En kran-
inn, sem Iyftir honum, virðist vera sterkur og ekkert smásmíði
Frá norræna sundmótinu í Helsingfors:
Siguröur Þingeyingur baíði
mikia yfirburði í 200 m.
bringusundinu
Norræna sundmótið Iiófst s. I. sunnudag og var skýrt
frá árangri íslendinganna í gær. Rlaðinu hefir nú borist nán-
ari frásögn af mótinu og verður skýrt frá úrslitum í einstök-
um greinum. Sigurður Þingeyingur hafði mikía yfirburði í
200 m. bringusundi og var langt á uiidan keppinautum sínum.
200 m. bringusund.
1. Sigurður Jónss. (H.S.Þ.)
2:49.1 m. 2. Juha Tikka Finnl.
2:52,9 m. 3. A. Káhkyne
Finnl. 2:54.2 m. Atli Steinars.
í. R. varð 9. synti á 2:59,6 m.
400 m. skriðsund.
1. Per Olaf Olson Sviþjóð
4.52.2 min. 2. Olle Johannsson
Svíþjóð 5:08,3 mín. 3. Ari Guð
mundsson ísland 5:09,3 mín.
4. E. Christophersen Danm.
5:10,3 mín.
Eftir fyrstu 100 m. var Ari
í öðru sæti og kom hann mjög
á óvart. Eftir 200 m. var hann
mjög jafn hinum keppendun
um, en við Per Olaf þýddi
engum að etja. Eftir 300 m.
drógst Ari heldur aftur úr og
Svíinn komst örugglega í ann
að sæti. Daninn dróg einnig
framúr en Ari tók mjög skarp
an endasprett og tókst að
verða aðeins á undan honum
í mark.
100 m. skriðsund (konur)
1. Greta Andersen. Danm.
1:08.4. 2. I. Fredin Svíþjóð
1:09.0 m. 3. E. Ahlgren Svíþj.
1:09.9 m.
100 m. baksund (konur)
1. K. M. Harup Danmörk
1:19.5 m. 2. Gerda Olsen
Danm. 1:22.3 m. 3. E. Ahlgren
Svíþjóð 1:24.2 m.
4X100 m. boðsund
1. Svíþjóð 4:49.4 m. 2. Finn
land 4:53.2 m. 3. ísland
5:01.9 m. 4. Danm. 5:09.5 m.
Á mánudag var keppt í
100 m. skriðsundi. Þar varð
Ari Guðmundsson þriðji synti
á 1:01.4 m., en Ólafur Diðriks
son varð 8. synti á 1:08.1 mín.
Sauðfjárslátrun
hefst í Reykjavík
Sauðfjárslátrun er nú haf-
in hjá Sláturfélagi Suður-
lands í Reykjavík fyrst á
þessu sumri. í gær var slátrað
þar allmörgum dilkum og
kemur nýja kjötið á markað
í Reykjavík í dag. Kostar það
23 kr. kg.
Aætlunarflug hafið
til Blönduóss
í dag hefjast reglubundna :
flugferðir á hinn nýja ílug ■
völl, sem verið er að gen,
skammt frá Blönduósi. Er pa<
Flugfélag íslands, sem efni:
til þeirra og mun nota til þest:
Dakotaflugvél. Áætlunarflug •
ið verður tvisvar í viku, í,
miðvikudögum og laugardög
um, að því er segir í tilkynn ■
ingu frá félaginu í gær. Urr..
20 mínútna akstur er af flug-'
vellinum til Blönduóss, eins
og nú er háttað, en það get
ur þó stytzt með fyrirhug-'
uðum vegabótum frá flugvell-
inum. Flugvöllurinn er ekk.
fullgerSur enn, en þó orðinr..
nothæfur.
Afgreiðslu fyrir flugið mm
Konráð Díómedesson í\
Blönduósi hafa á hendi, og-
hefir hann síma nr. 4.
Gönguskarðsárstöð-
in tekur til starfa
um áraraót
I sumar hefir verið unnici
að hinu nýja rafkerfi innai .
bæjar á Sauðárkróki. Haft,
jarðstrengir verið lagðir uiri
bæinn og unnin önnur undir
búningsstörf. Einnig hefir
verið unnið að stöðvarhúsinn
á Sauðárkróki.
Nær allt efni vegna virkjun
ar Gönguskarðsár er nú kom
ið, en þó er ekki búist við, ao
unnt verið að hefja starí-
rækslu stöðvarinnar fyrr en
um áramót.
Síðasfa sýning:
Fréttakvikmynd
Sigurðar Norðdahl
Sigurður G. Norðdahl sýnir
fréttamynd sína, „Minnis-
stæðustu atburðir ársins,“ í
síðasta sinn í Austurbæjarbíó
í kvöld, og hefst sýninginn
kl. sjö.
Myndin hefir hlotið góða að
sókn og þeim, er séð hafa,
þótt hún hin skemmtilegasta.
Eins og kunnugt er lýkur
henni með atburðunum, sem
urðu hér, þegar alþingi sam-
þykkti þátttöku íslands í At
lantshafsbandalaginu. Hafa
talsverðar urryæður og blaða
skrif orðið um þann þátt
myndarinnar, og telja máls-
aðilar hann sönnunargagn
fyrir sig.
Eftir helgina næstu verð-
ur fréttamynd þessi sýnd úti
á landi.
Útför séra Friðrite
Hallgrímssonar
Útför séra Friðriks Hall ■
grímssonar dómprófastr. í
Reykjavik fór fram frá dóm ■
kirkjunni i Reykjavík vio
mikið fjölmenni. Séra Jón
Auðuns flutti húskveðju, en
biskup landsins, herra Sigur -
geir Sigurðsson, flutti minn-
ingarræðu í kirkju. Prestsr
báru kistuna í kirkju, en frí-
múrarar stóðu heiðursvörö,
Bjarni Jónsson, vígslubisk-
up jarðsöng.
Walcott vann
Tandberg
Síðastl. sunnudag vanr
bandariski svertinginn Jot
Walcott Svíann Olle Tand
berg í hnéfaneik á „knock
out“ í fimmtu lotu. Mjög mik
ill áhugi var fyrir þessun.
leik, sem fór fram í Stokk
hólmi, og horfðu um 42 þús,
manns á leikinn. Þar sen
Tandberg tapaði fær hann
ekki að skora á heimsmeista.r-
ann Eggard Charles.