Tíminn - 19.08.1949, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, föstudaginn 19. ágúst 1949
174. bJað.
'Jtá kati tii keiía
í dag:
Sólin kom upp kl. 5.31.
Sólarlag kl. 21.31.
Árdegisflóð kl. 1.35.
Síéjdegisflóð kl. 14.20.
í nótt:
Næt-urlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólan-
um, sími 5030. Næturvörður er í
Reykjavíkur apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Litla
bílastöðin, sími 1380.
Útvarpið
Útvarpið í kvöld:
. Fastir. liðir eins og venjulega.
Kl. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarps-
sagan: „Hefnd vinnupiltsins",
eftir Victor Cherbuliez; IV. lest-
ur (Helgi Hjörvar). 21.00 Strok-
kvartettinn „Fjarkinn"; Kvart-
ett“ í a-moll eftir Schubert.
21.15 Frá útlöndum (ívar Guð-
mundsson ritstjóri). 21.30 Tón-
leikar: Norræn kórlög (plötur).
21.45 Erindi: Norræn menning-
arsamvinna (Pierre Naert dós-
ent). 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.05 Vinsæl lög (plöt-
ur). 22.30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla er væntanleg til Glas-
göw um hádegi í dag. Esja er á
Áustfjörðum á norðurleið.
Herðubreið fer frá Reykjavík á
morgun til Breiðafjrðar og
Vestfjarða. Skjaldbreið er
væntanleg til Reykjavíkur í dag
að vestan og norðan. Þyrill var
á Vestfjörðum í gær.
Eiilarsson & Zoega:
Foldin fór frá Amsterdam 17.
þ. m. áleiois til Reykjavíkur.
Lingestroom er í Amsterdani,
fer þaðan 21. þ. m. til Reykja-
víkur um Færeyjar.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 13. þ. m. frá Kaupmanna-
höfn, fer frá Reykjavík 20. þ. m.
til Sarpsborg og Kaupmanna-
hafnar. Dettifoss fer frá Reykja
vík til Kaupmannahafnar í
kvöld kl. 20.00. Fjallfoss er i
Reykjavík, fer væntanlega til
London 20. þ. m. Goðaíoss fór
frá New York 15. þ. m. til
Reykjavíkur. Lagarfoss kom til
Antwerpen 18. þ. m., fer þaðan
vtghtanlega 20. þ. m. tii Rotter-
dam. Selfoss kom til Reykjavík-
ur ‘14. þ. m. frá Leith. Tröllafoss
for frá Reykjavík 17. þ. m. til
Néw- York. Vatnajökull fór frá
London 16. þ. m. til Reykja-
víkur.
Millilandaflug: Gullfaxi fer í
fyrramálið kl. 8.30 til Kaupm.-
hafnar.
Loftleiðir:
í gær var flogið til Vestm,-
eyja (2 ferðir), Akureyrar, Isa-
fjarðar, Patreksfjarðar, Siglu-
fjarðar, Bíldudals og Sands.
1 dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), Ak-
ureyrar, ísafjarðar, Þingeyrar,
Flateyrar og Akurs.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Vestmannaeyja (2 ferðir),
Akureyrar, ísafjarðar, Patreks-
fjarðar, Siglufjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Fagurhóls-
mýrar.
Geysir fór til Prestvíkur og
Kaupmannahafnar kl. 8.00 í
morgun: Væntanlegur aftur um
kl. 18.00 á morgun.
Úr ýmsum áttum
Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri var meðal far-
þega með Geysi til Prestvíkur
í gærmorgun.
Landsmót 3. flokks.
Á miðvikudag kepptu Valur og
Víkingur í landsmóti 3. flokks
og var það þriðji leikurinn í
mótinu. Valur vann með þrem
mörkum gegn engu.
Frjálsíþróttaþing
hefst í dag.
í dag kl. 5 hefst Frj álsíþrótta-
þing hér í Reykjavík, Frjáls-
íþróttasamband íslands stendur
fyrir þinginu, en það er stærsta
sérsambandið innan I.S.Í. og
telur 17 sérráð og héraðssam-
bönd. Fer ársþingið jafnan
fram í sambandi við meistara-
mót íslands í frjálsum íþrótt-
um, en það hefst á morgun
fsfisksalan.
Þann 17. þ. m. landaði Röð-
ull 271,3 smálestum í Cuxhaven.
Leiðrétting.
í afmælisgrein um Guðmund
Árnason, er birtist í blaðinu 26.
júlí s. 1., varð sú meinlega villa,
að Guömundur var sagður, í
fyrirsögn greinarinnar, til heim
ilis að Bólstað í Steingrímsfirði,
en það er rangt, því Guðmund-
ur býr að Nautsvík í Árnes-
hreppi eins og kom greinilega
fram í greininni og biðst blað-
ið afsökunar á þessum mistök-
um.
Lciðinleg málviila.
Maður skrifar: „Ég hefi veitt
athygli nýjum amböguhætti í
ritmáli, er sjá má í vaxandi
mæli í íslenzkum blöðum. Ég
tek til dæmis Morgunblaðið
miðvikudaginn 10. ágúst. Þar er
í fyrirsögn talað um sextugsaf-
mæli frú Björgu Björnsdóttur.
í fréttagrein í sama tölublaði
Morgunblaðsins segir um ís-
lenzka lánið í Bretlandi: „en
þetta lán var tekið vegna bygg-
ingu tíu nýrra togara.“ —
Hvernig er það: Er mönnum
farið að fipast svona eignar-
fallsbeygingar algengustu orða?
Árnað h.eilla
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína Gerður Pálsdóttir hús-
mæðrakennari, Bólstað í Rvík
og Friðrik Kristjánsson frá Ytri
Tjörnum í Eyjafirði.
Nýlega opmberuðu trúlofun sína,
ungfrú Hanna Pálsdóttir, Drápu-
hiíð 40 og Pálmi Arason, Ásvalla-
götu 16, Reykjavík.
Hjónaband.
S.l. laugardag voru gefin saman
í hjónaband af séra Birni Magn-
ússyni^ ungfrú Margrét Sighvats-
dóttir og Haraldur Örn Sigurðs-
con, bifreJðástjóri. Heimili þeirra
< r á Be: gstaöastræti 43.
SLATTUVELAR
fyrir flestar tegundir dráttarvéla, nýkomnar.
Kristján G. Gístason & Co. h.f.
Sími 15555.
Flugferðir
Flúgíélag ísiands:
Innanlandsflug: í dag eru
ráÁgerðar flugferðir frá Flugfé-
lagUíslands til. þessara staða:
Akúhéyrar (2 ferðir), Vestm.-
eýjá; Kirkjubæjarklausturss,
Fágurhólsmýrar, Hornafjarðar,
Keflavíkur og Sigiufjarðar.
Á morgun verða farnar áætl-
unarferðir til Akureyrar (2 ferð-
ir), Vestmannaeyja, Keflavíkur
(2 ferðir), Siglufjarðar, Blöndu-
óks' ‘Og ísafjarðar.
f gær var flogiö til Akureyrar
(2 ferðir), Reyðarfjarðar. Fá-
skrúðsfjarðar, Neskaupstaðar,
Vestmahnáéýjá,/; ' ^é'fláý'íkui*,
Siglufjarðar óg'Ólafsfjarðar.
Við kosningarnar í Þýzkalandi
var sú nýbreytni höfð í fáeinum
kosningaumdæmum í Köln og við-
ar, að kjörseðill karlmanna var
öðruvísi litur en kjörseðill kvenna.
Var þetta gert til þess að afla
fróðleiks um það, eftir hvaða
hlutföllum fylgi karla og kvenna
deilist á flokkana.
Nú fara í hönd kosningar hér
á landi. Væri það brot á íslenzkum
kosningalögum, þótt kjörseðlar
væru t. d. af fjórum litum —
handa konum og körlum, ungu
fólki og rosknu?
Með því móti væri unnt að
afla skemmtilegs fróðleiks um
það, hvaða flokk eða flokka æsku-
fólkið í landinu styddi, hvaða
flokks kvenþjóðin bæri mest traust
til o. s. frv. Þetta væri ekki aðeins
fróðleikur til fkemmtunar, heldur
gætu flokkarnir kannske eitthvað
af þessu lært. ,,Ef æskan þér rétt-
ir örvandi hönd, þá ertu á fram-
tíðarvegi“,, sagði Þorsteinn Er-
liþgsson forðum. Þau orð eru í
fullu gildi enn. Æskulýðurinn er
Vélskólinn í Reykjavík \
verður settur 1. október 1949. Þeir, sem ætla að stunda *■
nám við skólann, sendi skriflega umsókn, ekki siðar *I
en 10. sept. þ. á. Um inntökuskilyrði, sjá ,,Lög um
kennslu í vélfræði, nr. 71, 23. júní 1936“, og Reglu- '■
gerð fyrir Vélskólann í Reykjavík nr. 103, 29. sept.
1936. Þeir utanbæjarnemendur, sem ætla að sækja um
heimavist, sendi umsókn til Húsvarðar Sjómannaskól-
ans fyrir 10. sept. þ. á. Nemendur sem búsettir eru í í
Reykjavík eða Hafnarfirði koma ekki til greina. £
Skólastjórinn. .*
ningarör
framtíð þjóðarinnar, og stjórn-
málaflokkur eða stjórnmálastefna,
sem ekki á. ítök meðal æskulýðs-
ins, íiglir hraðbyri til grafar. Það
væri þýðingarmikil vitneskja um
strauma í þjóðfélaginu, ef glögg-
lega væri hægt að sýna; að æsku-
fólkið hallaðist frekar að einum
flokki eða stefnu en annarri.
Það væri líka næsta fróðlegt að
vita, hvar í flokki konur landsir.s
væru hlutfallslega fjölmennastar.
Framundir þetta hafa konur ekki
notfært sér nema að sáralitlu leyti
pólitískt jaínrétti. Þær eru sjald-
an og óvíða í framboði, aðeins
sáraíáar konur hafa komizt á þing
og þátttaka kvenna í kosningum
er jafnan hlutfallslega minni en
j karla. En áður en líður hljóta kon-
( ur að sækja fram á þessum vett-
j vangi, taka vaxandi þátt í stjórn-
málum og krefjast raunverulegs
! jafnréttis til allra trúnaðarstarfa
j í þjóðfélaginu. Afstaða kvenna í
j kosningunum er því einnig rík
i bending um það, hvert okkur er
Útvegum frá Englandi gegn gjaláeyris- og innflutn-
ingsleyfum Simplex aluminium raflagningarör.
Ven'Eið er Isagkvœsní
Gæðlíi eria viSnrkéimd
Afg’rei&slHíísamii es* gkaHUBiHi*
Geíum einnig útvegað gegn gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfum stál raílagningarör frá Þýzkalandi með
stuttum fyrirvara.
Talið við »ss aSiiií* esa fsér ffesíið kanp
arniars staSar*
Samband ísl. sámvmimfélaga
Fresfið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
v - .'-/á v r £
að bera í pólitískum efnum.
i;