Tíminn - 15.09.1949, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.09.1949, Blaðsíða 1
Ritstjórí: Þörarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Skrifstofur í Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 33. árg. Reykjavik, fimmtuöaginn 15. september 1949 195. blað igsir á Fljótsdalshéraði Vonir standa til, að hev- fengur bænda á Fljótsdal verði fram að því í meðallagi, og þykir það betra en áhorfð- ist framan af sumri. Sums staðar varð þó til baga, að engjar blotnuðu mjög í ágústmánuði, svo að erfitt var að nýta þær, eink- um þó í Hjaltastaðarþinghá. Fyrir nokkru áttu bændur talsvert úti af heyi, en nú nýlega gerði hinn bezta þurrk, mikla hita með allsnörpum vindi, og munu þá allir hafa náð því, sem þeir áttu úti, vel þurru. En sumt af því mun þó hafa verið orðiö nokk uð hrakið. Nú hefir verið ákveðið að fresta göngum þar eystra um eina viku, svo að menn geti lengt sláttinn fram á haustið, sem þvi nemur, og getur orö- ið að því talsverð búbót, ef vel viðrar. Kal og óþurrkar rýra stórlega hey- feng á Ströndura . Talið er að heyfengur bænda á Ströndum ve/5i að þessu sinni yfirleitt stórum rninni en veriö hefir undan- farið. Eru jafnvel til bæir, þar sem engar líkur eru til, heyist nema þriðjungur mið- að við venjulegan heyfeng. Eru orsakir þessa einkum hve mikil brögð eru þar að kali í túnum, eins og raunar mjög víða norðan lands, og svo og slæm heyskapartíð, einkum síðari hluta sumars- ins. Horfir því víða uggvæn- lega um ásetning i haust og þörf allra varúðarráðstaf- ana í tæka tíð, þótt bústofn verði skertur. iiaöi hér á lan Ilæít vIS .Tryjígva HaSelor lisssisS, seias nf~ er Iseaia fs°is msíski í efssisvöi’IkiVssiíf! í 53andapíkjsmuni. Nýlega kom heim frá námi í Eandaríkjunum ungur og efnilegnr efnaverkfræðingur, Tryggvi Balclur Líndal frá I.ækjamóti í Húnavaínssýslu. Hann hefir stundað nám við Massachusetts Institute of Techniology í Bandaríkjunum. Baiðið hefir átt tal við Baldur Líndal um námsdvöíina ísl. íþróttamenn keppa í Kanpmh. í kvöld ísl. íþróttameninrnir, er þátt tóku í norrænu lands- keppninni í Stokkhólmi, þeir Finnbjörn Þorvaldsson, Guð'- mundur Lárusson og Torfi Bryngeirsson, munu taka þátt í íþróttamóti er haldið verð- ur í Kaupmannahöfn í kvöld. Meðal keppenda verða einnig sænskir og danskir íþrótta- menn. Finnbjörn, Guðmundur og Torfi eru væntanlegir heim um næstu helgi. Clausens-bræður munu dveljast í Svíþjóð nokkurn tíma. vestra. Mikil verkfræðistofnun. — Hvar dvaldir þú erlendis og við hvaða nám? — Ég dvaldi í Bandaríkjun um við Massachusetts Insti- tute of Technology sem oft- ast er kallað M. I. T. vegna þess hve nafnið er langt.Þetta eir mikil stofnun og einungis kennd þar verkfræði og hrein ar vísindagreinar. Þar eru 15 mismunandi deildir svo sem í vélaverkfræði, efnaverk- fræði, efnafrægi, stærðfræði, eðlisfræði o. s. frv. Nemendur eru um fimm þúsund og er það lág tala borið saman við ýmsa aöra háskóla í nágrenn inu. Þetta er þó ekki aðeins skóli heldur fullkomin vís- indastofnun, þar sem nú vinna um 3000 sérfræðingar að rannsóknum í þágu vís- inda og verklegra framfara. Kostnaður við þessar rann- sóknir er greiddur úr rílcis- sjóði Bandaríkjanna og starf- semin er styrkt af ýmsum auðfélögum og einstakling- um. Allar niðurstöður eru þirtar opinberlega. Námið sniðið eftir stað- háttum á íslandi. — Hver er sérgreín þín? — Ég lauk prófi í efnaverk- fræði, en nám mitt var að öðru leyti sniðið eftir þörfum og staðháttum hér heima eft ir þvi sem kostur var á og á ég mikið að þakka dr. Warr- en K. Lewis í þvi efni, þar sem hann var óþreytandi við að gefa' mér persóunleg ráð og upplýsingar sem að haldi mættu koma hér á íslandi. Betri leiðsögumann var vart hægt að kjósa sér, og vart mun nokkur einn maður hafa lagt af mörkum eins drjúgan skerf til þróunar efnaverk- fræði sem dr. Lewis. Rannsókn á íslenzkum skeljasandi. — Um hvað fjallaði prófrit gerð þín? — Hún var um rannsóknir, sem ég gerði vestra á íslenzk um skeljasandi, og mun hún bráðlega verða birt i riti vestra, sem fjallar um skyld efni. — Stundaðir þú nokkra at- vinnu meðan þú dvaldir vestra? — Ég dvaldi við M. I. T. í fjögur ár og fékk atvinnu við rannsóknir hjá efnafræði- deild stoínunarinnar árið 1947. Síðan vann ég þar og stundaði nám á víxl það sem Tryggvi Baldur Líndal eftir var námstímans. Upp- haflega ætlaði ég að koma heim um miðjan s. 1. vetur, en ég vildi ógjarnan sleppa starfi þvi, sem ég hafði þarna og lét því tilleiðast að dvelja þar þangað til í júlí. „ . . . Hér er mikil þörf . . .“ — Áttu kannske kost á þessu starfi aftur síðar? — Já, ég á kost á því hve- nær sem ég vil. En ég vildi heldur koma heima, þvi að markmiðið með förinni var upphaílega það að gera mig hæfari til að leysa af hendi verkeíni, sem bíða hér heima. Hér er mikil þörf á aukn um verkvísindum og land- ið að mínum dómi mjö vel ið að mínum dómi mjög vel fræðilegs iðnaðar. íslander frá náttúrunnar hendi mjög auðugt land og auð- lindir þess hafa ekki verið nytjaðar að ráði. Kalk- og kolsýru- verksmiðja. — Stofnaðir þú ekki til fyr irtækis í efnaiðnaði áður en þú fórst vestur? — Jú, ég var einn af þrem aðalstofnendum verksmiðj- unnar h. f. Sindri á Aukreyri, sem hefir framleitt kalk og kolsýru úr íslenzkum skelja- sandin undanfarin ár. Við framleiðsluna sr notað raf- (Framliald á 8. siðui Vilhjálmur Árnason lögfræðingur í kjon a Seyðisiiröi Framsóknarmenn á Seyðis firði hafa ákveðið, að Vil- hjálmur Árnason lögfræðing- ur verði í kjöri af þeirra hálfu við kosningarnar í haust. Vilhjálmur Árnason er Seyðfirðingur að ætt og upp- runa, sonur Árna Vilhjálms- sonar útvegsbónda á Hánefs- stöðum, fæddur 1917. Hann lauk stúdentsprófi frá Akur- eyrarskóla 1942 og lögfræði- prófi við háskóla íslands 1946. Hann er mjög vel kunnug- ur högum fólksins á Seyðis- firði, eins og að líkum lætur, og stundaði sjó þar eystra og gegndi öðrum störfum, er til féllu, á unglingsárum sínum og siðar jafnhliða námi sínu. mran barnaskóli íekinn í notkun í Ólafsfirði í hansí Frá fréttaritara Tímans í Ólafsfirði. Vonir eru til þess, að lokið verði byggingu hins nýja barnaskóla hér í kaupstaðn- um á þessu hausti, svo að unnt verði að starfrækja hann í vetur. Verður bygging þessi ein hin fullkomnasta skólabygg- ing, sem til er i sambærileg- um kaupstöðum hérlendis. í henni er.# sex kennslu- stofur, stór leikfimisalur og handavinnustofur piltna og stúlkna. Ungur listmálari kemur fram á sjónarsviðið Opnar sýningu í dag Fremur rýr kart- öfluuppskera í Vík Frá fréttaritara Tímans í Vík í Mýrdal. ] Eins og kunnugt er er stund uð allmikil kartöflurækt i ÍVík í Mýrdal. í vor var sett þar seint niður einsog' víðast jannars staðar á landinu og skilyrði til sprettu í sumar virðast ekki hafa verið ákjós- anleg, því að líkur eru til að uppskera verði með rýrara rnóti i haust. Upptaka kart- aflna þar eystra er um það bil að hefjast. j Héraðsmót Fram-1 I sóknarmanna í j | Kjósarsýslu í Fé- j ii á laug-1 í dag opnar ungur listmál- ari, Hörður Ágústsson, sýn- ingu í Listamannaskálanum. Hörður Ágústsson hefir langt og erfitt nám að baki hér í bæ, í Kaupmannahöfn og í París. Meira en 60 olíulitamyndir og fjöldi teikninga, sem hanji sýnir á þessari fyrstu sýningu sinni hér á landi, eru nær all- ar frá síðasta vetri og þessu vori. Á þeim fjórum árum eða fimm, sem hann hefir stund- að nám erlendis, hefir Hörður jafnframt lagt stund á list- fræði og listsögu, og mun hann á sýningu sinni halda nokkra fyrirlestri um mynd- listir og sýna skuggamyndir. Hörður lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1941 og hefir síðan helgað sig myndlistinni, þótt ekki hafi hann viljað sýna op- inberlega fyrr en þetta. Hann hélt fyrstu opinbsru sýningu sina í Galeries Raymond Duncan í París dagana 18. júní til 1. júlí í sumar. ardaginn Framsóknarmenn í Kjós | arsýslu efna til héraðsmóts | að Félagsgarði í Kjós á | laugardaginn kemur. Hefst i það kl. 8,30 siðdegis. Á héraðsmótinu flytja | i ræður Steingrímur Stein- | ! þórsson búnaðarmálastjóri \ : og Steingrímur Þórisson, | j frambjóðandi Framsóknar | ; flokksins í Gullbringu- og | ! Kjósarsýslu, Svanasystur | ; syngja við gítarundirleik f ; og að lokum verður dans- | i að. Hljómsveit þeirra f ; Braga Hlíðberg og Halldórs I | frá Kárastöðum, f jórir I { menn, ‘ leikur fyrir dansin- f j um. í upphafi samkomunnar f I verður stofnað Framsókn- f i arfélag fyrlr Kjós, Kjalar- | I nes og Mosfellssveit. í Ferðir verða á samkom- | I una úr Reykjavík frá f Í Ferðaskrifstofu ríkisins I i klukkan átta og nín á laug | \ ardagskvöldið. =

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.