Tíminn - 16.09.1949, Blaðsíða 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Hélgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykj&vík, föstudaginn 16. sptember 1949
196. blað
Raftækjaverksmiðjan í Hafnar-
firði byrjuð smíði kæliskápa
Framleiðsla stranmbreyta handa sveita-
býlum Isefst á uæsta ári.
Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði er nú byrjuð á fram-
leiðslu kæliskápa og hefir í smíðum hús, þar sem á næsta
ári verður byrjað að smíða straumbreyta til notkunar í
sveitum landsins. Raftækjaverksmiðjan er eitt af myndar-
Iegustu iðnfyrirtækjum landsins, og hefir á annan áratug
framleitt vörur, sem fyllilega standast samanburð við er-
lendan varning, bæði hvað verð og gæði snerta. — Fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar er Axel Kristjánsson.
Rafha-kæliskápurinn.
Verksmiðjan er þegar búin
að smíða milli tuttugu og
þrjátíu kæliskápa,. en gert er
ráð fyrir, að smíði um eitt
hundrað skápa verði lokið fyr
ir áramót. Alls á verksmiðjan
efni i 450 skápa.
Af gjaldeyrisástæðum er þó
engin vissa fyrir framhaldi
þessarar framleiðslu, en und-
irbúningi að kæliskápasmíð-
inni hefir verið svo hagað,
að unnt er að framleiða um
fimm hundruð skápa á ári, ef
efni fæst.
Verð kæliskápanna veröur
1800 krónur. Efni í hvern
skáp kostar fimm hundruð
krónum í erlendum gjaldeyri,
og þyrfti verksmiðjan því að
fá 250 þúsund króna gjald-
eyrisleyfi til slíkra efniskaupa
á ári hverju, ef hún á að geta
framleitt þá fimm hundruð
skápa, sem áætiað er.
Sala kæliskápanna hefst
upp úr næstu mánaðamótum.
Rafha-kæliskápurinn er
framleiddur í náinni sam-
vinnu við A/B. Elektrulux, í
Svíþjóð. Kælitækið er keypt
frá Elektrulux en skápurinn
allur smíðaður hér og settur
saman. Kælitækið er af svo-
kallaðri Absorbiton-gerö,
kuldi er framleiddur með hita
en enginn mótor er notaður.
Geymslupláss skápsins er
85 lítrar eða um 3 kúbífet.
Þessi stærð er mest hotuð i
Svíþjóð, og er talin henta vel
öllum almenningi. Fyrst um
sinn verða skáparnir af frí-
standandi gerð en seinna er
ætlunin að einnig verði fram
leiddir innbyggðir skápar.
Straumbreytar handa
sveiíabýlum.
Eins og áður er sagt, hef
ir verksmiðjan í smíðum
hús, þar sem smiða á
straumbreyta handa sveita
býlum. Á iínum þeim, sem
rafmagn er leitt með frá
hinum stærri orkustöðvum
um sveitir landsins, er 10—
11 þúsund volta straumur,
og verður að lækka hann
niður í 220 voít á hverju
sveitabýli, sem not fær af
rafmagninu. Til þess þarf
straumbreyta þá, sem raf-
tækjaverksmiðjan hyggst
_nú að hefja framleiðslu á.
Þessi íramleiðsla á að
byrja á næsta ári, og hefir
verksmiðjan fengið leyfi fyrir
efni í eitt hundrað straum-
breyta, en ekki hefir henni
enn verið leyft að borga það.
Framleiðsla raftækja-
verksmiðjunnar.
Raftækjaverksmiðjan hefir'
hingað til framleitt eldavél- '
ar, borðhellur, þilofna og
þvottapotta, og hafa allar
vörur hennar líkað mjög vel.
Mest stund hefir verið lögð
á smíði eldavéla, enda brýn
þörf fyrir þær. Um næstu ára
mót mun . verksmiðjan hafa
lokið smíði um 13600 eldavéla.
Verður þetta ár mesta fram-
leiðsluárið — væntanlega
með 2600 eldavélar.
Framleiðsla eldavélanna
hófst* 1937, og komst upp í
1400 eldavélar 1938. Á stríðs-
árunum dró úr íramleiðsl-
unni sökum efnisskorts, en
hún færðist aftur í aukana
með árinu 1945.
Mikil þörf fyrir raf-
magnstæki.
Sökum sívaxandi raf-
magnsnotkunar er mikil
þörf fyrir rafmagnstæki
hér á landi. Við rannsókn,
sem gerð var upp úr síð-
ustu áramótum, kom í ljós,
aö hér á landi voru í notk-
un um 13700 rafmagns-
eldavélar. En þá var þörf
fyrir 17 þúsund rafmagns
(Framhaid á 7. siðut
Slys við Múlaá
*
1
Nú í sumar hefir verið í
smiðum brú yfir Múlaá í
Skriðdal, skammt frá Þing-
múla.
Síðastliðinn föstudag varð
þar það slys, að átján ára
piltur frá Seyðisfirði, Ágúst
Sverrisson, varð undir fall-
hamri með hægri höndina, og
tók af alla fingur, nerna litla
fingur og hálfan baugfingur.
Farið var með manninn
niður að Egilsstöðum, en
þangaö er þriggja stunda
akstur ofan úr Skriðdal. Gerði
læknir þar að sárum hans,
en síðan var hann fluttur til
SeyÖisfjarðar,
Heyskaðar við
Gilsfjörð
í stórviðri því, sem gekk
yfir Vesturland, um síðustu
helgi, urðu talsverðir hey-
skaðar við Gilsfjörð.
Veðrið var mest á sunnu-
dagskvöldið, og fauk þá víða
nokkuð af heyi, einkum í
Saurbænum. í Stórholti í
Saurbæ hafði til dæmis verið
nýbúið að sæta allmikið af
heyi, er veðrið skall á, og
hurfu að kalla gersamlega
tuttugu galtar af tuttugu og
fjórum, sem úti voru. — Víð-
ar urðu talsverðir heyskaðar
af völdum veðursins.
Undir Tjaldanesfjalli hafa
vegavinnumenn verið að
störfum. Fuku tjöld þeirra í
veðrinu, og munir ýmsir, er
vegagerðarmennirnir áttu.
Þriðja nmferð Tafl-
mótsins
Þriðja umferð haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur var
tefld s. 1. miðvikudagskvöld og
fóru leikar þannig í meistara-
flokki, að Friðrik Ólafsson
vann Þóri Ólafsson, Ingvar
Ásmundsson vann Guðjón M.
Sigurösson, Árni Stefánsson
vann Þórð Jörundsson, Stein-
grímur Guðmundsson vann
Jón Ágústsson, en biðskák
varð hjá Sveini Kristinssyni
og Hjálmari Theódórssyni, og
er hún talin unnin fyrir
Hjálmar. Leikar standa nú
| þannig í meistaraflolcki, eft-
ir þrjár umferöir, að Árni
Stefánsson er efstur með
vinning, en næstur er Friðrik
Ólafsson með 2 vinninga.
í fyrsta flokki fóru leikar
iþannig, að Jón Guðjónsson
j vann Björn Jóhannesson.
i Kári Sólmundarson vann
Ingimund Guðmundsson,
| Haukur Sveinsson vann Ant-
| on Sig.urðsson, Eiríkur Mar-
elsson vann Magnús Vil-
hjálmsson en Ásgeir Þór Ás-
geirsson og Theódór Guð-
mundsson eiga biðskák.
I Biðskákir frá 2. umferð í
meistaraflokki fói’u þannig,
að Þórir vann Óla Valdimars-
son, Sveinn vann Steingrím
og Þórður vann Ingvar.
Framboð Framsókn-
armaima í Norður-
ísafjarðarsýslu
ráðið
-pe | /
Fiskiojuverio a
Ólafsfirði starfrækt
í sumar
En vantasr vélai*
og dósir.
Frá fréttaritara Timans
i Ólafsfirði.
Fiskiðjuverið hér sauð í
sumar niður síld í um eitt
þúsund kassa, og er það í
fyrsta skipti, að þaö er starf-
rækt að ráði. Skortur var þó
á hráefni.
Enn sem komið er vantar
iðjuverið bæði vélar og dósir
til-þess að sjóða niður aðrar
fisktegundir. Er það mjög
bagalegt, að ekki skuli vera
unnt að reka það á breiðari
grundvelli en enn er orðið.
Þórður Hjaltason, símstjóri
og fyrrum bóndi í Ytri-Búð-
um í Bolungarvík, verður
frambjóðandi Framsóknar-
flokksins í Norður-ísafjarðar- j
sýslu við kosningarnar i ’
haust, eftir tilmælum margra
forvigismanna flokksins í
héraðinu.
Þórður er Norður-ísfirð-
ingur að ættt og uppruiia,
fæddur á Markeyri í Ögur-
hreppi 5. janúar 1904. Hann
stundaði ungur búfræðinám á
Hvanneyri og síðan frarn-
haldsnám í Noregi og Dan-
mörku. Gerðist bóndi að Ytri-
Búðum í Bolungarvík 1935 og
bjó þar og síðar í Meirihlíð,
þar til hann fyrir fáum árum
varð símstjóri í Bolungarvík.
Þórður hefir gegnt margvís-
legum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína og hérað, átt lengi
sæti í hreppsnefnd Hóls-
hrepps, verið formaður bún-
aðarfélags þar síðan 1937, á
sæti í stjórn Kaupfélags ís-
firðinga og verið fulltrúi
Norður-ísfirðinga á fundum
Stéttarsambands bænda. Ýms
um öðrum trúnaðarstörfum
hefir Þórður gegnt, sem sýna
traust það, er hann nýtur,
enda er hann gerhugull og
dugandi að hverju sem hann
gengur. Þar eiga því bændur
og aðrir frjálslyndir menn í
Norður-ísafjarðarsýslu völ á
ákjósanlegum fulltrúa, sem
: þekkir vel málefni þeirra og
lífsbaráttu.
Laxveiðum hætt
í gær var síðasti dagur árs-
ins, er heimilt var að stunda
lax- og silungsveiðar, sam-
kvæmt gildandi löggjöf.
Lélegur heyfengur
við norðanverðan
Breiðafjörð
Heyskapartíð hefir, svo
sem víðar, verið mjög erfið
við norðanverðan Breiða-
fjörð. Um fimm vikna skeið
hafa verið sífelldir óþurrkar,
að undanskilinni tveggja
daga flæsu í síðastliðinni
vilcu. Voru þá mikil hey úti,
en þá náðu margir miklu upp.
Yfirleitt má gera ráð fyrir,
að heyfengur verði í rýrasta
lagi um þessar slóðir.
Aðalfundur Leik-
félags Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavíkur hélt
aðalfund sinn í fyrrakvöld.
Nokkur óvissa er nú um
framtíð og starf Leikfélags-
ins eftir að þjóðleikhúsið tek-
ur til starfa og var samþykkt
tillaga um að fresta stjórnar-
kosningu og fleiri aðalfundar
störfum þar til séð verður
hverjir verða fastráðir leikar
ar við þjóðleikhúsið.
Tveir menn voru kosnir til
að vinna með núverandi
stjórn félagsins að því að gera
tillögur um framtíð félagsins.
Þessir menn eru Lárus Sigur-
björnsson og Þorsteinn Ö.
Stephensen.
Fjárhagur Leikfélagsins er
nú sæmilegur. Litils háttar
halli varð á rekstri þess síð-
asta léikár, en félagið á þó
fyrir skuldum.
Góður árangur í
400 m. hlaupi
Á innanfélagsmóti hjá K.R.
s. 1. miðvikudag náði Magnús
Jónsson ágætum árangri í 400
m. hlaupi, hljóp á 49.6 sek. og
er það annar bezti árangur
íslendings í þeirri grein. ís-
landsmet Guömundar Lárus-
sonar er 48.9 sek., sett í Stokk-
hólmi s. 1. laugardag. Fram-
farir hafa orðið ótrúlega
miklar í 400 m. í sumar. Met
Hauks Clausen var 50.4 í vor,
en síðan hafa þrír menn náð
betri árangri og metinu verið
þríhnekkt.Auk Guðmundar og
Magnúsar hefir Ásmundúr
Bjarnason einnig hlaupið
innan við 50 sek., og varð
hann fyrstur til þess, er hann
náði 49.7 á meistaramótinu.
Landssveit íslands í 4 x 400 m.
er mjög sterk og ein sú bezta
í Evrópu og ætti að geta náð
með góðum skiptingum um
3:15.0 mín, en það myndi
nægja til að ná í stig fyrir
ísland á næsta Evrópu-móti,
sem fer fram næsta sumar.