Tíminn - 16.09.1949, Side 8
„ERLEXT YFÍRLI fí ÐAG:
■Hidvttior Giulitmo
33. árg.
Reykjavík
,4 FÓRYUM VEGI(( í ÐAG:
Einn ma&ur os§ heilar stéttir
1G. september 1949
196. blað
úðardalsá sóp
tir yíir flúðir og
SSigímdfmi var nvsloppisin út úr honnm.
Ferðamaður, sem ætlaði yfir Búðardalsá á Skarðsströnd
síðástliðið sunnudagskvöld, festi jeppann sinn í ánni, sem
var í foraðsvexti. Komst hann á síðustu stundu út úr jepp-
tnum og ætlaði að sækja mannhjálp, en er hann kom til
oaka, var bíllinn horfinn með öllu og fannst degi síðar
onýtur langt neðan við vaðið.
Siðastliöið sunnudagskvöld
Jón Hákonarson, gest-
gjáfi í Bjarkarlundi við
porskafjörð, á leið norður um
írá Skarði á Skarðsströnd.
7ar þá komin* úrhellisrigning,
jg ár og lækir í miklum vexti.
Jón var á jeppa, og er hann
som að Búðardalsá, ók hann
viðstöðulaust út i hana, enda
ain-þá ekki orðin svo mikil,
að hún væri ófær.
Er Jón var kominn nær
ilia leið yfir ána, varð steinn
fyrir hjóli, og stöðvaðist jepp
mn. Dvaldist Jóni í jeppanum
ím stund, en kom honum
ekki upp úr ánni, sem var í
mjög' örum vexti. Sá hann sér
bann kost vænstan að vaða
til lands, og mátti ekki tæp-
ara standa, að hann kæmist
yfir. Virtist honum sem yfir-
Dorö vatnsins hefði hækkaö
um 60—70 sentimetra þær
tuttugu mínútur, sem hann
dvaldi við ána.
feppinn horfinn.
Jón hraðaði sér til bæja
eftir hjálp til þess að ná jepp
anum upp. En er hann kom
aftur á vettvang, að einni
Klukkustund liðinni, var jepp
iiffi horfinn. Hafði þá vatns-
oorðið hækkað á annan
metra.
Hagar svo til þarna, að vað
ið, sem er mjög viðsjált og
areytingum undirorpið, er
rétt ofan við streng, sem end
ar i flúðum og fossum nokkru
neðar. Hafði vatnsflaumur-
inn sogað jeppann með sér
fram í strenginn, eftir að
Jón yfirgaf hann.
Jeppi Jóns fannst daginn
eftir, alllangt neðar i ánni.
Náðist hann upp, en var ail-
ír brotinn og bramlaður, svo
að ekki annað var heilt en
hjólin og vélin.
Viðsjál á.
Búðardalsá er hið viðsjál-
asta vatnsfall, þótt lítil sé að
jaínaði og munu hafa drukkn
að í henni nær tuttugu
mapns, svo að kunnugt sé.
Lega vaðsins á henni er með
þ'eiiri hætti, að hiö mesta
iiáskaspil getur verið að fara
hana í miklum vexti, og eru
uppi eindregnar óskir um það,
aöj húm verði brúuð hið fyrsta.
Sarakoma ungra
Framsóknarmanna
í Dalasýslu
Félag Framsóknarmanna í
Dalasýslu efndi til skemmti-
samkomu að Sælingsdalslaug
um síðustu helgi. Tókst sam
komnan riieð ágætum og var
fjölsótt þrátt fyrir vonzkuveð
ur.
i Kristján Benediktsson for-
maður F. U. F. í Dalasýslu
stjórnaði samkomunni. Rann
veig Þorsteinsdóttir lögfræð-
ingur flutti afburða snjalla
ræðu. Lýsti hún í stórum
dráttum þeim meginmun
sem er á stefnu og störfum
t Framsóknarflokksins annars
vegar og Sjálfstæðisflokksins
,hins vegar. Þá talaði Ásgeir
Bjarnason bóndi i Ásgarði,
frambj óðandi Framsóknar-
flokksins i sýslunni, var ræða
hans hin prýðilegasta.
Báðum ræöunum var af-
burðavel tekið. Sigurður Ólafs
son söng einsöng með undir-
leik Árna Björnssonar píanó-
leikara, var þeim vel fagnað
að vanda.
Það kom greinilega fram
hjá samkomugestum að þeir
voru staðráðnir i þvi að vinna
ötullega fyrir málefni Fram-
sóknarflokksins og sjá um að
Ásgeir í Ásgarði verði næst
þingmaður Dalamanna.
Rússnesku skipin
sektuð
Rússnesku skipin, sem tek-
in voru í landhelgi á Bakka-
flóa á dögunum, voru í gær
dæmd af bæjarfógetanuiíi á
, Seyðisfirði. Voru þrjú dæmd í
' 14700 króna sekt, og afli og
veiðarfæri gerð upptæk, en
hið fjórða í fimm hundruð
króna sekt fyrir smávægilega
yfirsjón.
í fyrrakvöld
Nokkur sildveiði var á aust-
ursvæðinu í fyrrakvöld, og
munu sjö eða átta skip hafa
fengið dágóð köst, 100—600
mál. Sum skipanna komu
með afla sinn til hafnar í gær,
ögYár hann saltaður.
Jóhannes Markns-
son fær réttindi
til að síjórna
Skymaster-vélum
Jóhannes Markússon, sem
að undanförnu hefir veriö
flugmaður hjá Loftleiðum h.
f., og er nú þriðji elzti flug-
vill hafa sérstakan
kirkjudag
Séra ISIrákiir I. Eirákssoii kosinn for-
nutlSnr þess.
Laugardaginn 10. þ. m. hófst aðalfundur Prestafélags
Vestfjarða í Bjarkarlundi í Reykliólasveit. Mættir voru 9
starfandi prestar af félagssvæðinu og prófessor Ásmundur
Guðmundsson, formaður Prestafélags íslands.
maður þess félags, hefir nú
fengið réttindi til að stjórna
Skymastervélum.
í gær fór Jóannes í fyrstu
för sína, eftir að hafa fengið
þessi réttindi, og stjórnaði
hann „Heklu“, millilandaflug
vél Loftleiða, í för hennar til
Parísar. Vélin fór þangað að
sækja farþega, sem fara eiga
(Framhald á 7. siðu)
Kaupa þar sera
hagkværaast er
Forustumaður brezkra járn-
brautarverkamanna hefir í
ræðu hvatt til þess, að aukin
verði viðskipti Breta við
Rússa og Austur-Evrópuþjóð-
irnar. Kvað hann það stefnu
brezku stjórnarinnar að
kaupa þar vörur til innflutn-
ings, er þær fengjust með
hagstæðustum kjörum.
Jónas Tómasson tónskáld
frá ísafirði, stjórnaði söng í
fundarbyrjun. í upphafi fund
arins minntist formaður |
félagsins, séra Eiríkur J.Eiríks
son Núpi, séra Páls Sigurðs-
sonar, Bolungarvik, félaga
Prestafélags Vestfjarða en
hann lézt á árinu.
Aðalmál fundarins var:
Kirkjan og menningarlíf þjóð
arinnar. Umræður um það
stóðu á laugardag og mánu-
dag og urðu almennar.
Annað mál fundarins:
Bændakirkjur og safnaðar-
kirkjur. Þriðja mál: Kirkju-
dagur. í því máli og í sam-
bandi við það var gerð eftir-
farandi ályktun: Aðalfundur
Prestafélags Vestfjarða álykt
ar að stefna beri að þvi að
komið sé á í söfnuðunum al-
mennum kirkjudegi, þar sem
aflað sé fjár til fegrunar
kirknanna og umhverfis
þeirra og stuðlað á annan
á annan hátt að kirkjulegri
menningu. Jafnframt beinir
fundurinn þeim tilmælum til
biskupsins, Prestafélags ís-
lands og kirkjuráðs, að sam-
ið verði sérstak helgisiðaform
fyrir slíkan kirkjudag, fyrsta
sumardag, sjómannadaginn,
1. maí og 17. júní.
Fjórða mál: Kirkjan og út-
varpið.
Fimmta mál: Skýrsla stjórn
arinnar.
Þá fór fram stjórnarkosn-
ing. Stjórnin var öll endur-
kosin, en hana skipa: Séra
Eiríkur J. Eiríksson, Núpi,
formaður Einar Sturlaugsson,
Patreksfirði, gjaldkeri Jón Kr.
ísfeld, Bíldudal. ritari.
í samþandi við fundinn var
guðsþjónusta haldin að Reyk-
hólum sunnudaginn 11. sept.
þar sem prófastur héraðsins
setti hinn nýkjörna prest að
Reykhólum, séra Þórarinn
Þór, inn í embættið. Skírn og
altarisganga fór fram í guð-
þjónustunni. Séra Þorsteinn
Björnsson, Þingeyri, annaðist
altarisgönguna. Söng í kirkj-
unni annaðist nýstofnaður
kirkjukór Reykhólakirkju,
undir stjórn Jónasar Tómas-
sonar tónskálds.
Eftir guðsþj ónustuna bauð
forstj óri tilraunarstöðvarinn-
ar að Réyhólum, Sigurður El-
íasson búfræðikandidat, prest
(Framhald á 7 síBu)
Aukið kolanám
á Svalbarða
Norðmenn hafa í hyggju að
auka kolavinnsluna á Sval-
barða upp í eina miljón lesta
á ári. Gert er ráð fyrir, að
kolanámið nemi á næsta ári
650 þúsundum lesta, og full-
nægi þá þörf Norðmanna fyr
ir slík kol sem þar fást.
Nú eru kolin unnin á tveim
ur stöðum, og vinna eitt þús
Und manns við aðrar kola-
námunrar.
Rýmkaður ráðstöfunarréttur
allra Marshall-ríkja á
Marshall-fénu
Það var tilkynnt í Washington í gær? að samkomula?
hefði orðið á ráðstefnu fulltrúa hinna helztu Evrópuríkja
og Bandaríkjanna, að samkomulagsákvæði frá þríveldaráð-
stefnunni á dögunum verði einnig látinn ná til annarra
Marshallríkja en Bretlands.
September-mótið
hefst á sunnudag
September-mót frjálsíþrótta
manna verður á íþróttavell-
inum n. k. sunnudag. Keppt
verður i 100 m. og 800 m.
hlaupum og 4x200 m. boð-
hlaupi, langstökki, kúluvarpi
og 80 m. grindahlaupi kvenna.
Finnbjörn Þorvaldsson, Guð-
mundur Lárusson og Torfi
Bryngeirsson eru væntanleg-
ir heim á morgun og verða
þeir því meðal keppenda. Sér-
staklega' má búast við mjög
skemmtilegri keppni í 300 m.
hlaupi og er líklegt, að Guð-
mundur Lárusson setji þar
nýtt met.
Samkvæmt þessu fá önnur
Marshallríki rýmkun á þeim
! skilyrðum, sem í öndverðu
1 voru sett um það, að Mars-
hall-féð skyldi nota til vöru-
kaupa í Bandaríkjunum, og
, mega þau nú ráðstafa all-
miklum hluta til vörukaupa
annars staðar.
Á þeim sama fundi og þetta
var ákveðið, var einnig rætt
um málefni Þýzkalands, frið-
arsamninga við Austurríki og
Asíumál, einkum að því er
tekur til hagsmuna Frakka
austur þar, en þeir eiga við
að etja vaxandi frelsishreyf-
ingu þjóða þeirra, sem búa í
þeim löndum, er þeim hafa
lotið. Hafa Frakkar lagt mik-
ið kapp á að halda yfirráða-
aðstöðu sinni austur þar og
tekið mjög óvægilega á Viet-
Nam-hreyfingunni í Indó-
Kína, þegar þeir hafa haft
bolmagn til.
Rússar sviptir
skaðabótura frá
V.-Þýzkalandi
Sú ákvörðun var tekin í
gær, að Vestur-Þýzkaland
skuli hætta að greiða Rússum
stríðsskaðabætur. Var eftir að
inna af höndum 60% af skaða
bótum þeim, sem þeir áttu aö
fá frá Vestur-Þýzkalandi.
Svo hafði verið umsamið, að
Rússar fengju rífan hluta af
iðnaðarvörum og vélum úr
verksmiðjum, sem rifnar
væru niður í Vestur-Þýzka-
landi, en stæðu aftur á móti
skil á kornvörum og timbri að’
austan. Nú um langt skeið
hafa orðið vanefndir á vöru-
sendingum að austan, og hafa
vesturveldin ákveðið að láta
það koma á móti, að svipta
Rússa stríðsskaðabótunum.