Tíminn - 24.09.1949, Side 4

Tíminn - 24.09.1949, Side 4
4 TÍMINN, laugardaginn, 24. sept. 1949 203. blað Langavitleysa Sjálfstæöismanna Langavitleysa íhaldsins. Ef heyra mætti á víxl á- róður tveggja Sjálfstæðis- manna, annars í sveit en hins í Reykjavík, eða jafnvel ef lesið væri saman úr vissum blaðagreinum Sjálfstæðis- flokksins, yrðu fortölur og kehningar flokksins eitthvað á 'þessa leið: Það er frágangsök að kjósa Framsóknarflokkinn í Reykjavík af því að hann er bændaflokkur. í sveit getur enginn kosið hann, af því að hann er bæj- arradikal en gleymir málum bændanna. Hann notar aðstöðu sína til að keyra verðlag landbúnað- arvara upp úr öllu hófi og svíkst um að gæta hagsmuna bænda við verðlagningu af- urða þeirra. Hann gerir bændum skömm og skaða með því, að skipa verðlagsmálum þeirra með gerðardómi, en svo mikil er frekja hans fyrir bænd- anna hönd, að hann heimtar sjálfdæmi þeim til handa. Alveg hefir nú Framsóknar flokkurinn svikizt um að tryggja innflutning nýrra tækja, véla og byggingarefnis fyrir blessað sveitafólkið, en vesalings Reykvíkingar fá ekki að byggja yfir sig, af þvi að Framsóknarflokkurinn svælir svo óhóflega mikið af gjaldeyri og fjárfestingarvör um út um land. Þannig byrjar langavit- leysa íhaldsins og svona er haldið áfram með mótsagn- irnar. Gamli Toggi og kálfs- skrokkurinn. Gamli Toggi seldi tveimur sama kálfinn og át hann þó sjálfur. Þannig ætlar íhaldið lika að fara að. Það þykist vilja nota gjaldeyrinn til að útvega fólkinu í sveitum og þorpum landsins byggingar- efni, jafnframt því sem þáð segir alþýðu Reykjavikur, að þetta fé eigi að nota til að bæta úr húsnæðisþörf í borg- inni. Fyrir þessi loforð vill Sjálfstæðisflokkurinn fá at- kvæði bæði út um land og í Reykjavík. Tveir eiga að borga sama kálfsskrokkinn. En þegar greiðslan hefir farið fram, íhaldinu hafa verið greidd atkvæðin og það hefir verið sett til valda, étur það sjálft sinn kálfsskrokk. Þá er gj aldeyririnn notaður í iburð armiklar óhófsbyggingar fyr- ir auðmenn Reykjavíkur og alþýðufólki ef til vill selt eða leigt með okurverði eitthvert athvarf í kjallara og risi. Svo er haldið áfram að aug lýsa kálfskcokkinn, selja hann tveimur í senn og mat- búa nýja steik heima fyrir. Óskalisti og auglýsing. Á síðasta Alþingi þótti mik ið við liggja, að auglýsinga- starfseamin væri vel rekin. Þá var hálfur þingflokkur Sjálf- stæðismanna látinn flytja til lögur um aukinn innflutning jeppa, dráttarvéla og hvers konar nýrra tækja fyrir bænd ur. Þetta átti að tryggja Sig- urði Bjarnasyni, Ingólfi á Hellu, og fleiru þess háttar fólki þingsæti. Siguröur Krist jánsson var á móti þessari auglýsingu, enda er hann ekki boðinn fram aftur. Sjálfstæðismenn vissu hvað þeir máttu. Þeim var óhætt Látalæti o« fals Sjálfstæðisinaima í land- biinaðarmálum yfirvegað. að auglýsa. Þeir voru búnir að velja sér í fjárhagsráð og ríkisstjórn menn, sem ekki tóku auglýsingar og nasablást ur Sigurðar Bjarnasonar of hátíðlega. Það sýndi sig líka, að ráðherrar flokksins höfðu þessa ályktun að engu og greiddu atkvæði gegn henni. Þrátt fyrir þann niðurskurð á innflutningi til sveitanna, sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði þannig með eigin hendi sinna æðstu manna, hefir ekki heyrzt, að Sigurður Bjarnason né nokkur þing- maður Sjálfstæðisflokksins annar, hafi misvirt það við ráðherrana. Þeir fara blátt áfram út um land til að berj- ast fyrir áframhaldandi völd- um þessara sömu ráðherra, svo að þeir geti haldið áfram að rífa niður og fótum troða auglýsingar og ályktanir sinna eigin flokksmanna. Þeim er auglýsingin meira virði en framkvæmdin. Þeir meta loforð meira en efnd- ina. Bændur landsins hafa löng um talið sig hafa lítið með slík hjú að gera. Það gæti sýnt sig enn þegar þeir velja sér þjóna til þingmennsku. En stefna Sjálfstæðis- manna er hér eins og víðar sú, að lofa og svíkja. Þetta er í samræmi við það, að semja óskalista um framkvæmdir fjögurra næstu ára, en þegar listinn hefir hangið á þilinu í nokkrar vikur verður það allt í einu kosningamál flokks ins aö auka neyzluvöruinn- flutninginn, tóbak, áfengi, skrautgripi og glingur, svo að hægt sé að hafa óskalistann óskemmdan af framkvæmd- um og uppfyllingum. Sama máli á að gegna um ályktanir og samþykktir um innflutning fjárfestingarvöru í sveitir, enda eru þær einn þáttur þessa mikla óskalista. Fótakefli Sjálfstæðis- manna í sveitum. Nokkur atriði úr sögu Sjálf stæðisflokksins og framkomu hans við bændur eru þessi. Einn ráöherra var með bráðabirgðalögum látinn skipa nefnd, — Búnaðarráð, til að ráða öllu verðlagi á framleiðslu bænda. Þegar Framsóknarflokkur- inn krafðist þess við stjórnar þátttöku, að Stéttarsamband bænda fengi verðlagsvaldið, var það að vísu viðurkennd- ur aðili, en hinsvegar kröfð- ust Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn þess gerðar dóms, sem Sjálfstæðismenn svívirða nú Fram’sóknarflokk inn fyrir að hafa komið á. Meðan íhaldið þorði reyndi það að svelta Stéttarsamband bænda í hel og neitaði því um starfsfé, þó að það reyni nú að sleikja sig upp við sam bandið og eigni því óskir um endurvakningu Búnaðarráðs Sjálfstæðisflokkurinn not- aði Búnaðai’ráð til að halda verðlagi á afurðum bænda niðri, svo að þrátt íyrir gerð ardómsákvæðið, sem Sjálf- stæðisflokkurinn kom inn í núgildandi lög, hefir verðlag- ið verið bændum hagstæðara síðan Búnaðarráð hvarf. Innflutningur landbúnaðar véla margfaldaðist eftir að „nýsköpunarstjórnin" var hrunin og Framsóknarmenn komnir til valda. Stjórn Ólafs Thors lofaði 50 af 300 milljónum ixj'bygging- arsjóðs til raforkumála og landbúnaðarmála sameigin- lega. Þetta loforð, svo rausn- arlegt sem það var, var stór- kostlega svikið gagnvart sveit unum. m Þegar Framsóknarflokkur- inn kom í stjórn vai’ð stefnu- breyting í málum bænda. Kúgunarfjötur Búnaðarráðs- var leystur af þeim, stéttar- samtök þeirra viðurkennd að lögum og hlutdeild þeirra í innflutningi fjárfestingar- vöru stóraukin á öllum svið- um. Þetta var ekki gert vegna batnandi árferðis fjárhags- lega. Það var hið pólitíska árferði sem batnaði við það, að Framsóknarflokkurinn náði tökum á þessum málum. En svo mikið er blygðunar- leysi og ofsi Sjálfstæðis- manna í landbúnaðarmálum, að enn hóta þeir sömu stefnu og áður, Búnaöarráði, rétt- leysi bændasamtakanna og svo framvegis. Svör bænda. Bændur eiga að svara til slíkra hótana um Ieið og þeir svara fyrir allan viðurgjörn- ing Sjálfstæðisflokksins í verki og leggja mat á fyrir- litlegar auglýsingar og mark- lausar ályktanir hans. Það mun ekki vanta þetta haustið heldur en fyrr, að frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins úti um land segi sem svo. Við erum bændavin- ir. Við erum samvinnumenn. Við viíjum auka rétt héraðs- ins og hlutdeild þess í fjár- festingu. Reynslan hefir sýnt það nú þegar, að slík loforð eru lítils virði. Það er ekkert hald í ályktunum Sigurðar Bjarna- sonar, Ingólfs á Hellu, Jóns Pálmasonar og hvað sem þeir heita nú allir saman þessir al þingismenn, sem sett hafa séra Magnús og Odd í fjár- hagsráö og Bjarna og Jóhann í ríkisstjórn til að líta eftir því, að ekkert mark yrði í framkvæmdinni tekið á þvi, sem þeir eru að álykta. Þetta að gera hávaðasamar auglýs- ingar og rétta svo sínum eig- inum mönnum hnífinn til að skera sjálfra sin tillögur, er stundum kallað að fá leyfi til að gelta húsbændunum að meinlausu, en þjóna þeim annars af mikill dyggð. í slíkum flokki er bændum lítið traust að einskismetn- um mönnum, þó að sveita- sinnar séu eins og Jón á Reynistað og Pétur Ottesen, svo að ekki sé nú minnst á hálflita mann i Dölum, því að það eru heildsalarnir sem ráða flokknum eins og hverju öðru fyrirtæki sínu. Bændastéttin íslenzka ætti sannarlega að lofa íhaldinu að spila sína lönguvitlausu fyrir sjálft sig en og reka af höndum sér í haust gæðinga heildsalanna, sem leita nú fóðurgöngu hjá þeim. Þeim mun hafa fjölgað stórum síð- ustu árin, sem sj á nú við kosn ingafalsi íhaldsins, þegar það reynir að sundra þeim, sem saman eiga að standa. ..VIÐSVEGAR AÐ BERAST nú fréttir um lítinn heyfeng og slæm- an. Árferði hefir verið illt í sveit- um. Sums staðar er spretta lítil og annars staðar hafa verið vand- ræði með nýtinguna og ýmsir hafa orðið að mæta þessu hvoru tveggja. SKRIFSTOFUMENN, sem vinna verk sín undir þaki innan fjög- urra veggja, bera sig stundum ilia undan leiðinlegri veðráttu. Þó er það hégómi í þeirra lífi, hvernig viðrar. Þá má einu gilda að því leyti, aö hitinn er svipaður við skrifborðið og kaupið jafnt. BÆNDUR OG SJÓMENN eiga afkomu sína bundna við veðrátt- una.Svo stopult og óstöðugt sem góðviörið er á íslandi er það ein- hver mesta nauðsyn þjóðarinnar, að hún sigrist á óþuri’kunum við heyskapinn. Ef við gerum ráð fyr- ir að meðalbóndinn tapaði tveimur kýrfóðrum og þau væru virt á þrjú þúsund krónur hvort, hefir þjóðar- búið þar með tapað 15 milijónum króna. Þó er það lítið tap á fóð- urgildi, sem liér er reiknað með, miðað við hið algenga. Ég grip bara á þessu til að sýna, að það þarf ekki mikið út af að bera til þess, að tjónið megi reikna í tug- um milljóna. ÞESSAR TÖLUR NEFNI ÐG til þess eins að mönnum verði ljóst hvílík geysileg verðmæti það eru. sem íslenzkir bændur hafa jafnan undir höndum. Það finnst eflaust mörgum, svona hið innra með sér, að það fjái’magn, sem lagt er í endurbætur og framkvæmdir við landbúnaðinn ávaxti sig illa fyrir þjóðina. Fulltrúar neytenda við verðlagningu landbúnaðarfram- leiðslu hafa líka haldið því fram, að bændur eigi enga rentu að fá af því fjármagni, sem i búrekstr- inum iiggur. En sannleikurinn er sá, og það ætti hver og einn að geta séð sjálfur, að fátt er þaö fé, sem ávaxtar sig betur fyrir þjóðarbúið en einmitt það, sem tryggir landbúnaðinn. Það er nefni lega ósamboðið menningarþjóð að hafa þúsundir fólks ár eftir ár við það að reyna að þurrka við sól og vind verömætj, sem nema mörg- um tugum milljóna og vita fullvel fyrirfram að alltaf öðru hvoru hlýt ur þetta að verða vonlaust verk, enda nóg úrræði önnur til þess að bjarga þessum eignum. BÓNDI SEM HÁÐUR ER ó- þurrkunum getur alls ekki unnið fyrir sér sum árin. Hann verður að draga af launum sínum hin árin til að fleyta sér fram yfir j óþurrkakafiann. Þetta er að nokkru j leyti tekið með í verðlagningu framleiðslunnar, en þó aldrei svo, að bóndinn megi við áföllum af þeim sökum. Ég vona, að allir skilji mikilvægi þessa máls þegar minnst er á það, og jafnframt sjái ies- endur mínir i Reykjavík, að það er ekki neitt hégómamál fyrir þá, — og þá eina á þrengsta h^gs- munasviði, hvort bændur búa þarna við afkomuöryggi eða ekki. Þó að látlaust sé verið að reyna aö rægja Framsóknarflokkinn í eyru Reylcvíkinga fyrir það, að hann ann bændurn sanngirni og skilur að nauðsyn þjóðfélagsins og j allra þegna þess krefst velgengni og framfara í sveitunum, þá vænti I ég þess að slík iðja komi rógber- j unum sjálfum i koll. Ég treysti því, j að Reykvíkingar fari nú almennt j að sjá, að ýmsir þeirra hafa látið j hafa sig að fíflum og æsa sig upp í heimskulegan og ósanngjarnan óvildarhug til bændanna. Þeirri sögu ætti sem fyrst að verða lokið. SVO VIL ÉG BIÐJA BÆNDUR að hugsa nú alvarlega um öryggis- mál sín og ræða það sín á milli í vetur um allt land, hvernig þeir geti beitt samtakamætti sínum til þess að sagan af hrakningunum fari að taka enda og heyfengurinn verði öruggur og viss, hvernig sem rignir. Votheyshlöður yfir helming af heyi hvers bónda á að vera iágmarkið, (auðvitað eru turnar líka hlöður). Og lágmarkið verður að nást á allra næstu árum, helzt alls staðar næsta sumar. Að minnsta kosti mætti safna skýrsl- um og gera áætlun í hverri sveit, hvað mikla fjáríestingu þurfi til að ná því marki. En enginn veit hvar óþurrkarnir leggjast á næsta sumar. ÞAÐ ER GOTT AÐ VITA, að í Reykjavík og öðrum kaupstöðum er margt fólk, sem vill stuðla að þessari þróun fyrir sitt leyti og er því hlynnt að gjaldeyri og inn- flutningsmálum verði svo stjórnað, að ekki verði þessum málum til tafar. Það er ekki ætlast til ann- ars en að fólk þoli réttláta stjórn gjaldeyrismálanna að þessu leyti og það ætlist til að bændur mæti fullri sanngirni þegar þeir vilja vinna þessi nauösynjastörf, sem varða svo mjög þjóðina í heild. Þetta er eitt' af mörgu, sem við tökum til athugunar, þegar við ráðum afstöðu, okkar við alþingis- kosningarnar. Starkaður ganili. ts Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát og útför föður okkar og tengdaföður MAGNÚSAR BJARNARSONAR, fyrrum prófasts að Prestsbakka Björn Magnússon, Charlotta Jónsdóttir, Ragnheiöur Magnúsdóttir, Hermann Hákonarson. Við þökkuxn innilega fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu okkur og börnum okkar, við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR JÓHANNSDÓTTUR frá Ásgarði Jóna Sigmundsdóttir, Andrés Magnússon, Salbjörg Magnúsdóttir, Jónas Bcnónýsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.