Tíminn - 05.10.1949, Qupperneq 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 5. október 1949
212. blað
'Jrá kafi til keiia
í dag:
Sólin kemur upp kl. 6.47.
Sólarlag kl. 17.44.
Árdegisflóð kl. 4.20.
Síðdegisflóð kl. 16.35.
I nótt.
Næturakstur annast Litla bíl-
stöðin, sími 1380. Næturlæknir er
í læknavarðstofunni 1 Austurbæj-
aiskólanum, sími 5030. Næturvörð-
ur er í Laugavegs Apóteki, sími
1618.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
Hekla er í Álaborg. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið. Herðu-
breið er væntanleg til Reykjavík-
ur í dag frá Vestfjörðum. Skjald-
breið er í Reykjavík og fer í kvöld
til Vestmannaeyja og Austfjarða.
Þyrill er í Reykjavík.
Fiugferbir
Loftleiðir:
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja, Akureyrar, ísa-
fjaiðar, Þingeyrar og Flateyrar.
Á morgun er áætlað að fljúga:
til Vestmannaeyja, Akureyrar, ísa
fjarðar, Siglufjarðar og Sands. J
Geysir er væntanlegur frá Prest'
vik og Kaupmannahöfn um kl. 18
í dag. ' i
Árnað heiila
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina Sigurður Helgason frá
Heggsstöðum, Borgarfirði og Helga
Bjarnadóttir frá Patreksfirði, bæði
nernendur úr Kennaraskólanum.
Hiúskapur.
Laugardaginn 17. sept. voru
geíirv saman í hjónaband á
Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú
Eisa Júlíusdóttir, Akureyri, og
Ingi Birgir Stefánsson, rafvirki,
frá Hjalteyri.
Sjötugsafmæli.
Elísabet Guðný Jóelsdóttir,
Hraung. 1 á ísafirði, er sjötug í
dag.
Úr ýmsum áttum
Rílastæði við Hálogaland.
Á fundi síðasta bæjarráðs var
lagt fram bréf frá íþróttabanra-
lagi Reykjavíkur, þar sem lagt var
tiJ, að bifreiðastæðum yrði ætlað
rúm við íþrótts-húsið á Háloga-
iandí. Er mikil þ‘rf á því, að bíla-
stæðum sé komið í lag þar eins
cg v.ðar annars staðar í bænum og
auk þess tiltölulega minni fyrir-
ho n barna en vfðast hvar ann-
ais staðar, þar sem merkingar og
smávegis lögun er það helzta, sem
gera þarf til að hrinda þessu í
frEinkvæmd.
Sigurður Friðfinnsson vann
tugþrautin.
Sigurður Friðfinnsson F.H. vann
tugþrautina á meistaramóti ís-
lands, hlaut 5112 stig og er það
nýtt drengjamet. Eldra metið átti
Sigurður Björnsson K.R. og var
það 5088 stig. Annar í keppninni
varð Ingi Þorsteinsson K.R. hlaut
4878 stig, 3. Bjarni Linnet Á. 4591
stig og 4. ísleifur Jónsson Í.B.V.
hlaut 4551 stig.
Eftir atvlkum er þetta allsæmi-
legur árangur, þvi veður var mjög
óhagstætt til keppni báða dagana.
Afrek Sigurðar í einstökum grein-
um var: 100 m. hl. 12,0 — langst.
6,27 — kúla 11,02 — hástökk 1,70
— 400 m. hl. 59,3 — 110 m. grhl.
18,9 — kringla 33,61 — stöng 2,79
— spjót 46,38 og 1500 m hl. 5:30,2.
B/öð og timarit
Ægir
mánaðarrit Fiskifélags íslands,
6—7 tbl. 1949 hefir borist blaðinu.
Efni m. a. Samtök útvegsmanna.
Lifrarsamlag Vestmannaeyja,
Netjagerð Vestmannaeyja. Olíu-
samlag Vestmannaeyja. Vinnslu-
stöð Vestmannaeyja. Þitt annað
heimili. Vertíðin í Sunnlendinga-
fjórðungi. Hraðfrysting — Sein-
fryst'ng. Aflabrögð á Vestfjörðum
á vetrarvertíðinni. — Minnkandi
veiði í No.ðursjó og m. fl. efni er
í blaðinu ásamt ýmiskonar skýrsl-
um varðandi aflabrögð og útflutn-
ing.
Frainséknarmcnn í
Reykjavík
Hafiö samband við kosninga-
skrifstofu Franisóknarflokksins,
Lindargötu 9 A. Opin allan dag-
inn til kosninga. Símar varðandi
kosningarnar í Reykjavík eru
5564 og 81300. Varðandi kosning-
arnar úti á landi 6066.
Gefið vinsamlegast strax upp-
lýsingar um kjósendur í Reykja-
vík, sem fjarverandi verða um
kosningarnar, svo atkvæði
| þeirra berist nógu snemma.
Gefið ennfremur upplýsingar
um kjóscndur utan Reykjavík-
ur, sem vevða hér fram yfir kjör-
dag, 23. okt.
B-Jistinn er listi Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og tví-
menningskjördæmunum.
i Framsóknarmenn um
land allt.
Gætið þess nú þegar, hvort þið
eruð á kjörskrá. Kærufrestur er
til 2. október.
Samvinnan
júlí-ágúst heftið, er nýkomið
út. Flytur m. a. þetta efni: Horn
steinar samvinnufélaganna, rit-
stjórnargrein. Frásögn af aðai-
fundi SÍS. Fiskimaðurinn —
’ Grænlendingur nútímans, eftir
Peter Freuchen. Birt með leyfi
höfundar. Sænska samvinnu-
sambandið 50 ára. Fyrsta hóp-
ferð Islendingar til Skotlands,
eftir Vilhjálm S. Vilhjáimsson.
Kaupfélag Hrútfirðinga 50 ára.
Verzlun á Borðeyri eftir séra Jón
. Guðnason. Nýja Mjólkurstöðin í
Reykjavík, eftir Guðna Þórðar-
son. Samvinnumenn í brezka
j þinginu. Leitað að bróður, smá-
saga eftir Vilhjálm S. Vilhjálms
son. Auk þess eru í heftinu barna
saga, framhaldssaga og fleira
efni. Fjölmargar myndir eru í
þessu heftí, sem er 44 bls. að
stærð.
Framsóknarmenn í
Reykjavík.
Hafið samband við kosninga-
skrifstofu Framsóknarflokksins,
Lindargötu 9 A. Símar 5564 og
81303.
Sníðabókin.
Biaðinu hefur borizt Sníðabók
in eftir Herdísi Guðmundsdóttur,
kennara í kjólasaum við Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur.
Bók þessi mun einkum ætluð
kennurum í kjólasaum við hús-
mæðraskóla landsins og er með
útkomu hennar bætt úr brýnni
þörf, því að engin slík bók var
áður tii á íslenzku, en konur al-
mennt munu einnnig geta haff
mikil not af henni við kjólasaum
og barnafatasaum.
í bókinni er fjöldi sniðteikn-
inga af ýmiskonar flíkum, álls
ellefu snið, og enhfremur leið-
beiningar um það hvernig taka
I eigi mál. Allar eru teikningar
I skýrar og stórar, enda er bókin
I í mjög stóru broti. Bókaútgáfan
I Garðarshólmi gefur bókina út.
; en Offsetprent h. f. hefur prent-
! að hana.
Fjöimenn útför
Síðastliðinn iaugardag fór út-
för Kristjáns Gestssonar að j
Hreðavatni, fram að Hvammi í
Norðurárdal. Var hún svo fjöi-
menn, að aldrei áður hefir eins
fjölmenn útför far þar frant,|
erida var Kristján mjög vinsæll1
maður og mörgum kunnur.
Leitað að gömlum flug-
vélaflökum.
Bjcrgunarflugvél frá Keflavík
urflugvelli hef-ir að undanfömu '
ieitað að gömium flugvélaflök- j
um frá styrjaldarárunum víðs-
vegar um óbyggðir landsins. Eins
og kunnugt er fórust nokkrar
herílugvélar hér á landi á styrj-
aidarárunum, og hafa flök ‘
sumra þeirra ekki fundizt enn. j
Sláíurgerð og
Það var hringt tO mín í gær
og mér bent á bað, að ekki feng-
ist siátur núna í sjálfri slátur-
tíðinni. Það eru óyfirstíganlegir
erfiðleikar fyrir húsmæður bæj-
arins að ná i slátur, sagði
hann, enda bótt þær séu allar af
vilja gerðar.
Ég er ekki viss um, sagði hanr
ennfremur, að menn hafi gert
sér fyllilega Ijóst, hvað þetta
hefir í för með sér, bæði fyrir
bæjarbúa og þá, sem hingað til
hafa getað komið slátrinu í verð.
En mér virðist augljóst, að á
nokkrum árum verði húsmæður |
í Reykjavík og annars staðar. |
þar sem iafn erfitt er að ná í
slátur, vandar með öllu af því
sláturneyzla
að hugsa til sláturgerðar. Þótt
tilbúið slátur, blóðmör, lifrar -
pylsa og bess háttar, fáist í búð-
um, mun fólk fljótlega venjast
af bví að neyta þess, ef slátur-
gerð á heimilunum leggst niður
árum saman. Þar með missir
bæjarfólkið af góðri fæðuteg-
und, en bændur og félagssamtök
þeirra af markaði, sem áreiðan-
lega mun reynast erfiðara aö
vinna aftur en viðhalda.
Á þessu sagðist maðurinn vilja
vekja athygli beggja aðila
vegna. Þers er r.ð vænta. að
þessu verði kippt í æskilegt horf,
ef ekki begar í haust, þá að
minnsta kosti í framtíðinni.
J. II.
NÝTT SÖNGVASAFN
HANDA SKOLUM OG HEIMILUM
§
Friðrik Bjarnason og Páll Halldórsson bjuggu til
prentunar. — í þessu safni eru lög, útsett fyrir har-
moníum og píanó, við öil ljóð, sem eru í skólasöngvum
þeim, er þeir Friðrik og Páll völdu fyrir Rikisútgáfu
námsbóka og út voru gefin fyrir um það bil 2 árum.
Bókin kostar kr. 40.00.
1
♦•♦♦-
Aðalútsölu annast:
Sckaútqáfa tÍleHh/HgaMjcfo
Hverfisgötu 21
♦•♦♦»♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
♦ ♦♦♦♦♦«♦•♦♦♦> ♦♦♦♦♦!- * *'
:««:»«!
I Strætisvagnar Reykjavíkur |
tilkynna:
Hraðferðir hefjast 1. okt. milli Lækjartorgs — Vest- |
| urbæjar—Austurbæjar á hálftíma fresti fyrst um |
| sinn til reynslu.
Ekið verður af Lækjartorgi um Austurstræti, Aðal- |
| stræti, Vesturgötu, Bræðraborgarstíg, Kaplaskjóls- 1
| veg, Faxaskjól, Sörlaskjól, Furumel, Hringbraut I
\ Miklubraut, Lönguhlío, Stórholt, Þverholt, Laugaveg |
| á Lækjartorg.
Viðkomustaðir í hraðferöunum verða:
Frá Lækjartorgi:
Vesturgata,
Verkamannabústaðir,
Faxaskjól.
I Sörlaskjól,
I Hagamelur,
Elliheimilið,
| Mikilatorg,
| Langahlíð,
| Háteigsvegur,
Rauðarárstígur,
Frakkastígur.
Hraðferðavagnarnir og viðkomustaðir þeirra eru |
| einkenndir með bláum og hvítum lit eins og áður.
Fyrsta ferð af Lækjartorgi hefst kl. 7.20 og siðast |
i kl. 23.50.
Fargjald kr. 1,00 fyrir fullorðna og 50 aura fyrir §
| börn.
ATH. Peningaskipti fara ekki fram í hraðferðar- |
I vögnunum.
: :
“ 5
inilMIIIHIIIIIIIIMIMtllrtllMIMMtlllfllMinfUMIMIIMIIMntMltMtlMimMIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIlUIMIIUIfllHllltlllllll
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
initiiltniiiiiÉiiiiihiíliilitiiiliiUHili