Tíminn - 27.11.1949, Qupperneq 1
-------------------r r r r
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
— -----------——
Skrifstofur í Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, sunnudaginn 27. nóvember 1949
254. blað
Lítil síldveiði í
fyrrinótt
í gær var lítill afli hjá rek-
netabátunum, sem stunda síld
veíðar í Faxaflóa. Flestir bát-
anna lögðu netin í Miðnessjó
og yirtist svo sem um mikla
sild væri þar viða að ræða.
Sáu sjómenn torfur síldar
víðs vegar á nokkuð stóru
svæði á þessum slóðum.
Þegar bátarnir voru nýbún
ir að leggja í fyrrakvöld spillt
ist veður, svo að draga varð
fyrr en ætlazt hafði verið til.
Afli varð því yfirleitt ákaf-
lega litill. Sumir bátanna
fengu engan afla að heitið
geti, aðrir fengu nokkra tugi
tunna.
Akranesbátarnir tíu, fengu
til dæmis til samans ekki
nema 200 tunnur og var sá
þeirra, sem aflaði bezt með
40 tunnur.
Kaffiskömmtun
ekki tekin upp
Út af blaðaskrifum og um
tali um kaffiskömmtun, óska
skömmtunaryíirvöldin að
taka fram, að kaffiskömmtun
verður ekki tekin upp nú. Hef
ir sú ákvörðun verið tekin í
trausti þess að almenningur
geri engar tilraunir til að
kaupa kaffi fram yíir venju-
legar þarfir.
Nokkrar kaffibirgðir oru nú
rétt ókomnar, og töluvert
magn af kaffi er á leiðinni,
svo að ástæðulaust er að ótt-
ast kaffiskort í landinu, ef
dreifing getur farið fram rríeð
eðlilegum hætti. Verði hins-
vegar misbrestur i þessum
efnum, verður að sjálfsögðu
ekki komist hjá hjá því að
taka upp skömmtun á kaffi.
Ræður Sigurðar
skólameistara
meÖ áritun
Ræður Sigurðar Guðmunds
sonar skólameistara sem gefn
ar voru út í bókarformi og
nefndust Á sal er nú hægt að
fá með eieinhandaráritun
hans og tölusett hjá Svein-
birni Finnssyni í Tjarnargö u
10 eða Kristjáni Eldjárn þjóð
minjaverði í Þjóðminjasáfn-
inu.
Þorkell Teitsson
símstjóri Iátiun
Þorkell Teitsson, simstjóri
og póstafgreiðslumaður í Borg
arnesi, andaðist í gær hér í
4jjúkrahúsi Hvitabandsins.
'Þorkell var landskunnur
maður og vel látinn. Mun
hans verða nánar minnst hér
í blaðinu seinna.
BÍSLAG VESALMENNSKUNNAR -
AFREK HÁLFRAR ALDAR
Farsóttahúsið var byggt fyrir 65 árum og þá þegar
dæmt óhæft sem sjúkrahús af útlendum landlækni,
Schierbeck. Félag, stofnað af áhugafólki, sem hraus
hugur við skeytingarleysi bæjaryfirvaldanna um líf
og heilsu manna, keypti íbúðarhús við Skólavörðu-
stíg og kom þar upp litlu sjúkrahúsi. Fyrir fáum ár-
um var bærinn neyddur — bókstaflega neyddur — til
þess að taka við rekstri þess.
Þetta er ailur sjúkrahúskostnaður Reykjavíkur-
bæjar. Á þessari öld hafa bæjaryfirvöldin ekki lagt
stein í vegg í því skyni að lina nauð sjúkra manna.
Aðeins einni framkvæmd getur íhaldið í Reykjavík
hælt sér af. Það er bíslag, sem nýlega hefir verið gert
sunnan við Farsóttahúsið, á að gizka þriggja metra
langt, klætt bárujárni, og eftir því að allri reisn.
Þetta bíslag er framlag íhaldsins til sjúkrahús-
mála Reykjavíkur, það sem af er þessari öld. Af þessu
bíslagi vesa lmennskunnar getur íhaldið státað, en
engu öðru.
Miðjarðarhafsferð fiekln
ferst fyrir
FjArliajíwáft sá sér okkl íaert að vefta
$íjalcle.yri til honnar
Ráðagerðir hafa verið uppi um það, að Skipaútgerð Ríkis
ins sendi Heklu á næsta ári austur í Miðjarðarhaf með fólk,
sem kysi að sjá sig um í heiminum, þótt eigi hefði mikil
gjaldeyrisráð. En nú er víst, að af þessari Hekluferð verður
ekki í vetur.
Við það hafði verið miðað,
að lagt yrði af stað héðan um
miðjan marz og komið aftur
fyrri hluta í maí. Átti að
fara auslur til Spánar, Ítalíu
og Túnis 03 jafnvel til Egipta
lands.
Skipaútgerðin hefir leitað
til fjárhagsráðs um samþykki
fyrir gjaldeyri, sem til skips-
ins þurfti í þessa Miðjarðar-
haisferð. Niðursiaðan varð þó
sú, að fjárhagsráð sá sár ekki
fært að verða við þessu, eins
05 nú er komið gjaldeyrishag
landsmanna. Mun þess vegna
okki koma til Miðjarðarhafs-
feröar Heklu á næsta vori.
Tvær barnabækur
Nýlcga hcfir bókaútgáfan
Björk sent frá sér tvær snoir
ar barnabækur. Nefnist önn-
ur Börnin hnns Bamba og er
framhald bókarinnar Bambi,
sem kom út hjá sömu útgáfu
fyrir nokkrum árum með
myndum eftir Walt Disney.
Þessi bók er með myndum
eftir Robert Kuhn. Þetta er
falleg bók við hæfi yngrl
j barna. Hin bókin heitir Nú er
I gaman og hefir að geyma
nokkrar barnaSögur með
myndum. Vilbergur Júlíusson
: kennari safnaði og endur-
Isagði.
Ný skáldsaga
Ný skáldsaga eftir Þórunni
Magnúsdóttur er komin út.
Hún heitir í biðsal hjóna-
bandsins. Þetta er lítil bók
enda ekki nema fyrri hluti
sögunnar.
Þessi bók kemur út hjá
nýju forla'gi, Bókaúagáfu
Sambands íslenzkra berkla-
sjúklinga og er fyrsta bók
þess. Frágangur bókarinnar
er allur hinn snoturlegasti og
eru meðal annars smekklegar
skreytingar yfir lesmáli við
upphaf kapitula.
Minningarlundur Jóns bisk-
ups Arasonar að Grýtu
í Eyjafirði
Fjársöfnun Iiafin og undirÍHÍningur vel
á vp»' kominn
Hafinn er undirbúningur að ræktun skógarlundar við
fæðingarbæ Jóns biskups Arasonar, Grýtu í Eyjafirði, til
minningar um hann. Hefir þegar safnazt nokkurt fé í þessu
skyni og verið kosin framkvæmdanefnd. Aðalhvatamaður
að þessu er Guðmundur Jónsson, garðyrkjumaður á Akur-
eyri. Tíðindamaður Tímans hitti hann að máli í gær.
— Hver voru tildrög þess,
að hafizt var handa í þessu
máli?
— Ég hafði um nokkurt
skeið haft í huga, sagði Guð-
mundur, hvernig Eyfirðingar
gætu heiðraö minningu Jóns
biskups. Svo var það snemma
í hausc, að ég kvaddi mér
hljóðs eftir messu á Mxinka-
þverá og bar fram þá hug-
mynd, að rækta skógarlund í
: landi Grýtu, sem er næsti
bær viö Munkaþverá og fæð-
ingaibær Jóns. Var þessu
I máli þegar vel tekið af safn-
jaðarfólki og kosin nefnd til
j að hinda málinu fram. 'Er ég
formaður hennar, en auk
mín voru kosnir séra Benja-
mín Kristjánsson sóknarprest
ur, sem er ritari nefndarinn-
ar, Garðar Halldórson odd-
viti, sem er gjaldkeri, Guð-
mundur Sigurgeirsson, bóndi
í Klauf, formaður ungmenna
j félagsins í sveitinni og frú
I Gunnfríður Benediktsdóttir,
Björk, formaður kvenfélags-
ins.
, Staðurinn valinn.
Þegar nefndin var komin á
laggir, var þegar hafizt handa
03 rætt við eigendur Grýtu,
sem er frú Rósa Jónasdóttir
og börn hennar. Verð ég að
segja það, að ég hef aldrei
fengið aðra eins undirtektir
við nokkurt mál sem hjá
henni, þegar við komum að
biðja um landið. Var ekki ein
ungis að það væri frjálst held
ur máttum við velja hvaða
blett úr landareigninni, sem
við vildum, og þótt við hefð-
um tekið af túninu, mundi
það hafa verið talið sjálfsagt.
Völdum við fagran blett í ná-
munda bæjarins, þar sem læk
ur rennur gegnum svæðið
mitt og myndar foss í gili
með fallegum hvammi fyrir
neðan. Þaðan er víðsýni og
(Framhald á 8. síðu).
Fyrsti skeramti-
fundur F.U.F.
F.U.F. í Reykjavík heldur
fyrsta skemmtifund vetrar-
ins í V.R. föstudaginn 2. des.
Til skemmtunar verða eftir-
talin atriði: Tvisöngur, ræða,
upplestur og dans.
Ungir Framsóknarmenn,
fjölmennið á þessa fyrstu
vetrarsamkomu.
iniiMiiiiiimiiiiiiiiiiiHMiiimMiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiMiiMniiiiiiiiiniiiiiiMiimiiMiiiiiiiiiiiHi
| Qlafur Thors tekur að sér [
j myndun minnihlutastjórnar I
Um það leyti er blaðið var að fara í prentun í |
| i gærkvöldi, barst þvl svohljóðandi fregn frá forseta- 1
r ritara:
„Formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, fyrr I
1 verandi forsætisráðherra, hefir í dag, laugardaginn |
| 26. nóv., tjáð Forseta íslands, að hann, í samræmi við |
| vilja flokksins taki að sér að mynda stjórn, svo sem |
1 Forseti hefir farið fram á við hann.
Mun hann leggja ráðherralista sinn fyrir Forseta, 1
| til skipunar ráðuneytis, fyrri hluta næstu viku“.
Á þessu stigi er ekki vitað um að Ólafur hafi tryggt I
1 sér, annan stuðning en Sjálfstæðisflokksins eins. Vera I
í má þó að kosningar, sem væntanlega fara fram i þing- |
1 inu á mánudaginn, gefi bendingu um það, að hann 1
I liafi tryggt sér víðtækari stuðning, en nú er kunn- §
i ugt um.
t r
IIIIIIIMMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIItlllllMIIIIIIIIIIIIMIil 1111111