Tíminn - 03.01.1950, Side 1
< Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi: 1
Framsóknarflokkurinn
---------— --------------------j
Skrifstofur í Edduhúsinu ]
Fréttasímar:
81302 og 81303 ]
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda 1
----------------
34. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 3. janúar 1950.
1. blað
Friðsamt gamlaárskvöld
í Reykjavík
Lílið um óspeklir, mikil ölvun o«' mar»ar
iirennur haldnar
Gamlárskvöld var með friðsamara móti í Reykjavík að
þessu sinni. Undanfarin mörg ár hefir kveðið* all mikið að
allskonar ólátum og ærslum í miðbænum þetta kvöld. Hefir
þetta stundum keirt svo úr öllu liófi að legið hefir við slys-
um og skemmdum á mannvirkjum. Hefir lögreglan jafnvel
orðið að beita táragasi til að dreifa mannfjöldanum þegar
illa hefir horft. Eru það aðallega unglingar sem staðið hafa
fyrir þessum ólátum frekar af óvitaskap en ætlunin hafi
verið að gera neinum tjón.
Muna ekki jafn frið-
samt gamlárskvöld.
Að þessu sinni var yfirleitt
rólegt á gamlárskvöld í mið-
bænum. Segja lögregluþjón-
ar sem lengi eru búnir að
vera í starfinu að þeir muni
ekki svo friðsamt gamlárs-
kvöld sem þetta því alltaf
hefir verið mikið um að vera
þetta kvöld í miðbænum og
bæjarbúar safnast all mikið
þangað um miðnættið.
Fyrir miðnættið safnaðist
þó saman mikill mannfjöldi í
Austurstræti og Pósthús-
stræti. Voru það aðallega ung
lingar og sumt börn. Mikið
var sprent að kínverjum og
ljósum en fáeinar stórar og
krarftmiklar sprengjur
sprungu í miðbænum en
gerðu ekki tjón og var það
tilviljun ein að svo vel fór.
Sumar þessar sprengjur voru
stórhættulegar.
Unglingar reyndu að gera
starf lögreglunnar erfiðara
og hefta hana í því að hafa
upp á óróaseggjunum, sem
voru fáir, en aldrei þurfti að
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiMii
I Happdrætti Hús-1
I byggingarsjóðs |
I Framsóknar- |
( manna
I Eins og áður hefir verið =
I tilkynnt hér í blaðinu verð |
| ur umsjónarmaður happ- |
i drættis húsbyggingarsjóðs I
I Framsóknarflokksins fram i
1 vegis til viðtals í skrifstofu 1
| flokksins Lindargötu 9A á f
1 þriðjudögum milli 5 og 6 |
f síðd. í dag verður hann við i
i á þessum tíma, og eru |
1 menn beðnir að snúa sér I
| til hans ef þeir vilja gera |
i skil fyrir selda happ- I
| drættismiða eða taka miða |
| til sölu. Framsóknarmenn, |
i herðið nú sóknina fyrir |
| sölu happdrættismiða og |
| styðjið með því þetta |
i mikla nauðsynjamál flokks |
= ins. 4 ;
iriiiaiiiiimiin 11111111111111111111111111111 iii iii n ■iiiiiiiiiiiiiiii
grípa til neinna rótækra að-
gerða allt kvöldið.
Viðbúnaður í lagi.
Samkomuhúsin við Austur-
völl, Hótel Borg og Sjálfstæð-
ishúsið höfðu haft nokkurn
viðbúnað til að mæta óspekt-
unum, enda var ástæða til
að búast til jafn miklum ólát
um þetta kvöld og önnur
gamlárskvöld, ekki sízt vegna
þess að vitnast hafði um
kraftmiklar sprengjur, sem
búnar höfðu verið til í bæn-
um og sumar voru sprengdar
í miðbænum og úthverfum.
Voru settir voldugir hlerar
fyrir glugga samkomuhús-
anna.
Fólk hafði gaman að
brennunum.
Sú nýbreitni var tekin upp
þetta gamlárskvöld að leyft
var að hafa brennur á nokkr
um stöðum í úthverfum bæj-
arins. Gafst þessi nýjung vel
og voru haldnar brennur, sem
drógu að sér mikla athygli
og urðu til skemtunar þeim,
sem nærri þeim bjuggu. Mun
þetta leyfi til að halda brenn
ur áreiðanlega hafa dregið úr
mannaferð um miðbæinn um
miðnætti.
Ölvun var hins vegar með
mesta móti þetta gamlárs-
kvöld en óspektir voru litl-
ar hafðar í frammi. Mest
bar á ölvuninni, þegar líða
tók á nóttina er fólk fór að
halda heimleiðis úr veizlum
og skemmtistööum Mátti
þá sjá valta menn og kon-
ur á gangi víðsvegar um
götur bæjarins, því leigu-
bílar voru fáir á ferð um
nóttina.
Listi Framsóknar-
manna á Siglufirði
Framsóknarmenn á Siglu-
firði hafa lagt fram lista sinn
við bæjarstjórnarkosningarn
ar á Siglufirði 29. jan. Efstu
menn listans eru þessir: Ragn
ar Jóhannessoh, forstjóri,
Bjarni Jóhannsson, forstjóri,
Hjörtur Hjartar, kaupfélags-
stjóri frú Ólina Hjálmars-
dóttir og Jón Kjartansson,
bæjarstjóri.
Frönsk verksmiðja í París hefir nýlega hafið framleiðslu á algerlega vatns- og vindþétt-
um lilífum handa hjólreiðamönnum. Mynd þessi var tekin, þegar verksmiðjan sýndi
þessar regnverjur í fyrsta sinn. Þær eru gerðar úr olíubornu lérefti.
i________________________________________________________________________________
Ágætur afli á
Sauðárkróki
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Ágætur afli hefir verið hjá
Sauðárkróksbátum þegar á
sjó hefir gefið að undanförnu
Það eru þó fáir bátar, sem
sjó stunda. Fiskurinn er að-
allega hraðfrystur en einnig
1 saltað lítils háttar.
Hin nýja rafveita, sem tek
in var í notkun og hleypt á
allmikinn hluta kaupstaðar-
ins fyrir jólin reynist vel.
1 Búið er að hleypa rafmagni
á nokkra bæi í nærsveitun-
um. Enn vantar þó spenni-
stöðvar til þess að hægt sé
að hleypa rafmagninu á allt
kerfi kaupstaðarins.
TOGARAFISKUR
SALTAÐUR
í gærmorgun kom togarinn
Bjarni Ólafsson til Akraness
með um það bil hálfermi af
fiski eða um 150 smálestir.
Hafði togarinn fengið aílann
á Halamiðum og verið að veið
um rúmlega hálfan mánuð.
En afli er yfirleitt mjög treg-
ur hjá togurunum.
Fiskurinn er saltaður jafn
óðum og annast Haraldur
Böðvarsson um söltunina fyr-
ir bæjarútgerðina á Akranesi.
Gert er ráð fyrir að lokið
verði við að salta þennan afla
skipsins á morgun. Nokkur
hluti aflans, eða ýsan var lát-
in i niðursöðu og fiskibollu-
gerð.
Góð færð á akvegum
Samkvæmt upplýsingum
sem Tíminn hefir fengið hjá
Ásgeiri Ásgeirssyni, skrif-
stofustjóra Vegamálaskrif-
stofunnar, eru akvegir á aðal
leiðum nú vel færir og hefir
verið fremur snjólétt það sem
af er vetrinum.
Hlákan undanfarna daga
bætti mikið um færðina, sem
farin var að versna víða
vegna snjóa. Var til dæmis
orðið ófært að kalla um tíma
til Akureyrar og milli Akur-
eyrar og Húsavíkur um Vaðla
heiði.
Nú eru þessar leiðir hins
vegar ágætlega færar og snjó
léttar en vegir sem lokuðust
snemma í vetur eins og vegur
inn til Austurlands er að
sjálfsögðu ekki fær. Sunnan-
lands er góð færð vestur^í
Dali um Bröttubrekku og
einnig vestur í Stykkishólm.
Austur er fært til Víkur í Mýr
dal.
En framundan eru þeir
mánuðir sem venjulegast eru
erfiðastir í samgöngumálum
landsmanna, janúar og febrú
ar. Aðstaða vegagerðarinnar
til að mæta erfiðleikum er
svipuð og síðastliðið ár hvað
það snertir að vélarnar eru
til sem hægt er veita mikla
hjálp með til að halda leið-
upnum opnum þegar snjóar.
Auk þess hefir Krisuvíkurleið
ii4 mikla þýðingu og hún
bjargaði í fyrra um langt
skeið að samgöngur féllu ekki
að meiru eða minnu leyti nið
ur milli Reykjavíkur og Suð
urlandsundirlendisins.
Síðastliðinn vetur var mjög
erfiður fyrir samgöngukerfið
á landi þá höfðu miklir erfið
leikar komið til sögunnar
fyrir nýár þó að mestu erfið
leikarnir yrðu ekki fyrr en
eftir nýár.
Maður ferst í
snjóskriðu í
Fljótum
Föstudaginn 30. des. s. 1.
fór ungur maður, Þórhallur
Frímannsson, að Austara-
Hóli í Flókadal í Fljótum að
heiman frá sér til rjúpna-
veiða í Austara-Hólsfjall. Var
þetta árdegis en þegar leið
á daginn og Þórhallur kom
ekki heim, var farið að ótt-
ast um hann og leit hafin-
Nokkuð hafði verið gengið
þarna við rjúpur í fjallinu
undanfarna daga og þvi illt
að átta sig á slóðum, en þó
komu leitarmenn um siðir að
nýföllnu snjóflóði. Að því lá
ein slóð en engin frá, og var
því farið að grafa í fönnina.
Fundu menn Þórhall þar ör-
endan fyrir miðnætti um
kvöldið. Læknir taldi, að
hann hefði látizt þegar flóð-
ið féll á hann, og úr hans
hafði stöðvazt klukkan að
ganga tólf um morguninn,
og er búizt við, að þá hafi
flóðið fallið.
*
Island viðurkennir
Indónesíu
Ríkisstjórn íslands hefir
veitt lýðveldinu Bandaríkjum
Indónesíu viðurkenningu
sína, og hefir forseti íslands
sent dr. Soekarno forseta
Bandaríkja Indónesíu, heilla
óskir í tilefni af stofnun lýð-
veldisins.
(Frétt frá ríkisstjórninni.)