Tíminn - 04.01.1950, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.01.1950, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn i —------—-----------—-----> -------------—------.— Skrifstofur i Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusimi 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda ■ »---------------------------- 34. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 4. janúar 1950. 2. blað Ráðgert að gera 18 báta út frá Akranesi Enginn byrjar fyrr cn í’ÍIíissi júnihi liof- ir opinbcrað nr- ræðin Ráðgert er að gera út 18 báta frá Akranesi til línu- veiða á vetrarvertíðinni. Er unnið að undirbúningi vertið arinnar en enginn bátur mun byrja róðra fyrr en ákveðið hefir verið af stjórnarvöldum landsins hvað gert verður í dýrtíðarmálunum. Fyrr verð- ur ekki byrjað á samningum milli sjómanna og útvegs- manna og er almennt ekki búizt við að róðrar geti hafizt fyrr en 10.—12. janúar þó að stjórn Ólafs Thoi's standi við fyrirheit sln um skjóta úr- lausn dýrtíðarmálsins eftir að Alþingi er aftur komið saman. Einn bátur sem byrjaður var róðri, hætti um nýárið og byrjar ekki aftur fyrr en samningar hafa verið gerðir. Afli var þó ágætur og fiskuð- ust 8 smál. á 26 bjóð í síðasta róðri bátsins. Alþingi kemur saman Alþingi kemur aftur sam- an t-il fundar í dag. Eiga fund ir að hefjast í sameinuðu þingi klukkan hálf-tvö. / •stiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiniini 1 Næsta Framsókn-) | arvist 13. janúar j | Undanfarið hafa margari | fyrirspurnir verið um þaðjj I hvenær næsta Framsókn-| 1 arvist yrði. Og hafa ýmsiri | óskað eftir að ,.vistin“| | yrði meðal jólaskemmtan-i | anna. Þessu fólki er núi | hægt að segja það aði i næsta Framsóknarvisti I verður í Listamannaskál-| | anum annað föstudags-i i kvöld hér frá eða þ. e. 13.1 | Síðasta Framsóknarvistini i var rétt fyrir jólin. Vari | hún f jölsótt og fór hiði | bezta fram. En einn var þóf | galli við þá samkomu, aði i karlmenn voru þar í 'tals-j i vert miklum meiri hlutai | og urðu því allmargiri = þeirra að spila sem „gervi-i | dömur“ En nú virðist berai j mun meira á fyrirspurn-j | um frá kvenþjóðinni umi j það hvenær næsta Fram-j | sóknarvist verði. Þetta er ítalskur maður, De Cornarrihola, og fjölskylda hans á bæn. Maður þessi varð frægur á Ítalíu fyrir skömmu vegna þess að hann hafði ráðgert að myrða páfann, en að frásögn ítalsks blaðs hætti hann við þá ákvörðun og sagði páfanum frá öllu saman og bað hann fyrirgefningar, sem hann fékk. Hann færði páfanum að gjöf biblíu og rýting. Hann hefir einnig skýrt frá því, að María guðsmóðir hafi birzt sér í skúta einum, sem hann leitaði hælis í undan óveðri, og síðan hafi skeð ýmis kraftaverk í skúta þessum. Hugmyndina um að myrða páfann fékk maður þessi er hann barðist í styrjöldmni á Spáni •IIMIIIIMIIIIIIIIIIimimilllMIIIIIMIIimniilMIIIIMIIIHMMIi | Þeir eru ekki í j | þeim húsum hæfir | I 28. nóvember síðastlið- \ I inn veitti f járhagsráð f jár j j festingarleyfi vegna eitt I I hundrað íbúða í tuttugu og j j fimm húsum handa 1 § Reykjavíkurbæ, til viðbót- j j ar þeim leyfum, sem áður I j höfðu verið veitt. Tillaga | j var borin fram um það, að j j leyfið yrði bundið því skil- | \ yrði, að þessar ibúðir yrðu j j „fyrst og fremst notaðar til | i þess að útrýma heilsuspill | | andi íbúðum“ eftir mati I I borgarlæknis og heilbrigðis | i nefndar. | Báðir fulltrúar Sjálf- 1 j stæðisflokksins i f járhags- | j ráði greiddu atkvæði gegn j j þessari tillögu, og var þetta j j ákvæði samþykkt gegn j j þeirra vilja. | Skyldi forsprökkum Sálf j j stæðisflokksins finnast j I fólkið í bröggunum ekki í | j húsum hæft? Aftur á móti j j virðist mörgum borgurum i | þessa bæjar sem forustulið j I Sjálfstæðisflokksins sé ekki j j hæft í þeim húsum, þar f j sem málefnum Reykjavík- | I ur er stjórnað. Ofullnægjandi eftirlit með atkvæðagreiðslum við almennar kosningar t Sjálfsöjift krafa, að botra eftirliti verlii k(»mið á við ba»jarstj«»rnarkosniiig'ariiar Við kosningar þær, sem fram eiga að fara til bæjarstjórnar í vetur, er full ástæða til þess, að betra eftirlit sé með því' liaft en verið hefir við kosningar að undanförnu, að fólk [ það, sem kemur á kjörstað til þess að greiða atkvæði, sé í raun og veru það, sem það segist vera. Sá háttur hefir verið á fram að þessu, að fólk geng- ur inn í stofu, þar sem kjör- stjórnin situr, og segir til nafns síns, en einhver úr kjörstjórninni spyr um fæð- ingardag og fæðingarár. Ann að eftirlit er ekki haft með því, að sá, sem greiða vill at- kvæði, sé í rauninni sá, sem hann segist vera. Það segir sig sjálft, að slíkt fyrirkomulag tryggir alls ekki, að engin svik eigi sér stað í sambandi við atkvæða- greiðsluna, og sízt af öllu í svo stórum bæ sem Reykja- vík er nú orðin. Kjörskrár eru í höndum fjölda manna á kosningadaginn, og þar er skráður aldur og fæðingardag ur allra, sem á kjörskrá eru. Full vitneskja liggur og fyrir um margt fólk, sem ekki get- ur ýmissa ástæðna vegna greitt atkvæði, og skrár eru gerðar um það, hverjir eru búnir að greiða atkvæði. Það segir sig sjálft, hvort fólk á svipuðum aldri getur ekki far ið á kjörstað, ef vilji er til þess að beita brcgðum, og nefnt sig nafni hins fjar- stadda eða tálmaða kjósanda og tilgreint fæðingardag hans. Það má og benda á, að hér í Reykjavík er það orðin fast ur siður, að verið sé að greiða atkvæði fram eftir öllum nótt um, þegar fólk er yfirleitt gengið til náða eða að minnsta kosti búið að loka húsum sínum. Hvernig á þeim atkvæðagreiðslum stendur í svo stórum stíl sem þær eiga sér stað, er hrein ráðgáta, og skal engum getum að því leitt. En full ástæða er hins, að krafizt verði við þessar kosningar, að kjósendur sýni sönnunargögn um það, að þeir séu þeir, sem þeir segja sig vera. Og næt (Framhald á 2 síðu.) Eiga 20 ára starfs- afmæli í lögreglunni í fyrradag áttu 12 lögreglu menn 20 ára starfsafmæli. Þeir vinna nú ýmist hjá saka dómara eða lögreglustjóra. Minntust þeir afmælis síns með sameiginlegu borðhaldi í Tjarnarkaffi. Menn þessir eru: Ágúst Jónsson, Ingólf- ur Þorsteinsson, Jakob Björns son, Magnús Eggertsson, Magnús Hjaltested, Matthías Guðmundsson, Matthías Sveinbjcrnsson, Pálmi Jóns- son, Sigurður Ingvarsson, Skúli Sveinsson, Stefán Thor arensen og Sveinn Sæmunds- son. Frönsku fiárlögi samþykkt í fyrrakvöld samþykkti franska þingið fjárlögin og hinar síðustu skattatillögur stjórnarinnar en þó með litl- um meirihluta. Höfðu þá far- ið fram tvær atkvæðagreiðsl- ur um helztu skattatillögurn ar og var það um leið trausts yfirlýsing til handa stjórn- inni. Umræður um frönsku fjárlögin hafa þá staðið ná- lega fimm vikur og stundum nótt með degi og verið mjög harðar. Hefir stjórnin þar með unnið traust til setu eitthvað framvegis þótt naumt sé, og fengið sam- þykkt nær tekjuhallalaus fjárlög eins og hún gerði krcfu til. Bóndi á Langanesi finnst örendur á víðavangi Sæmundur Lárusson, bóndi á Heiði á Langanesi, fór að heiman síðastliðinn föstudag til þess að hyggja að hesti, en kom ekki aftur. Tveir menn fóru að leita Sæmundar, er heimkoma hans þótti dragast óeðlilega á langinn, en fundu hann ekki. Er hann var enn ófund- inn á gamlársdag, var mönn um frá Þórshöfn safnað sam an til leitar. Heyrðu leitar- menn hundgá, en hundur hafði fylgt Sæmundi, er hann fór að heiman. Gengu leitar- menn á hljóðið og fundu þeir Sæmund örendan í svo- nefndum Þverárdal. Hafði rakkinn setið þar yfir lík hús bóirda síns. Sæmundur var maður um fertugt, og lifir hann kona háns og aldurhnignir foreldr ar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.