Tíminn - 10.03.1950, Blaðsíða 8
„ERLENT YFMRLYT(( É ÍHG:
„Hretnsun44 t Kreml
• - 10I08 AIQ
34« árg,
Rsyltjavík
„A FÖKVl H YEGI(S t ÐAG:
Bvjjóðeirsitfian oy fóUaiíf
10. marz 1950
57. blað
Brezka stjórnin vann sigur
TiIIaga íhaidsinanna kim frestisss st [sjóðnýt-
ftso'u stáiiðnaðai'ins fclld
í gærkvöldi varð hin nýja stjórn brezka verkamanna
flokksins í fyrsta sinn að horfast í augu við vantrauststil-
lögu, þar sem var breyíingaríiílaga íhaldsmanna um að
skjóta framkvæmd þjóðnýiingar stáiiðnaðarins á frest. Var
liilagan felld með 310 atkv. gegn 296. Frjálslyndir greiddu
tillö'runni aíkvæði. Herbert IVTorrison hafði lýst því yfir af
hendi stjórnarinnar, að hún Iiíi á tillögu þessa sem vantraust
og mundi segja af sér og boða til nýrra kosninga, ef liún
yrði samþykkt. Hefir stjórnin þar meá hlotið fyrstu trausis-
yfirlýsingu sína, þótt meirihiufi sé naumur.
Eins og kunnugt er ai fréttum, er Auriol Frakklanúsforseti
um þessar mundir í opinberri heimsókn í London, ásamt
frú sinni. Dvelja þau þar á vegum brezku konungshjónanna.
Mynd þessi var tekin af frönsku forsetahjónunum rétt áður
cn þau lögðu af stað í förina. Þau eru stödd í bókasafni
forsetahallarinnar.
Merkileg handiðnaöarsýn-
ing í Kaupmannahöfn í vor
Handiðnaðarsýning verður haldin í sýningarsal Forum
í Kaupmanna höfn dagana 14.—30. apríl n.k., og er Frið-
rik IX. Danakonungur verndari hennar.
Sýningin er undir umsjá
iðnaðarmannafélagsins i
Kaupmannahöfn. — Markmið
hennar er að sýna þýðingu
handiðnaðarins fyrir þjóðfé-
lagið 4 heild og fyrir ein-
staklinga, ásamt möguleik-
um til að framleiöa fyrsta
flokks vörur. í þessu sam-
handt má geta þess, að hand-
iðnaðurinn er þriðja stærsta
atvinnugrein Danmerkur með
ársframleiðslu á stærð við
stóriðnaðinn.
í sambandi við sýr.ingu
þessa, mun verða haldin
norræn samkeppni, þar sem
ungtlólk í mörgum iðngrein-
um ýbæði meistarar og svein-
ar) rnun keppa um á ákveðnu
verksyiði og tíma að inna af
hendi sem fallegastan og bezt
an handiðnað.
Að minnsta kosti 40 iðn-
greinar munu taka þátt í sýn
inguhni, og flestar munu sýna
frá starfandi verkstæðum,
hvernig vörur þeirra verða til,
og mun þetta gefa sýning-
unni skernmtilegan oj fjör-
ugan heildarsvip. Þar sem sýn
Franska stjórnm
tekur raforkuver
Verkfall starfsmanna í gas-
stöðvum og raforkustöðvum í
Frakklandi stóí í gær og
horfði til vandræða þar.
Stjórnin hefir nú tekið í sínar
hendur rekstur átta raforku-
vera og búizt er við að íleiri
verði tekin, ef verkíallið lreld
ur áfram næstu daga.
ingin auk þess verður sú
1 stærsta af þessari tegund,
sem til þessa hefir verið hald
| in á Norðurlöndum, og sú
' stærsta handiðnaðarsýning i
J héíld, sem haldin hefir verið
í Danmörku í heilan manns-
aldur, álítur nefndin, að sýn-
Jnrin muni geta talizt til stór-
viðburða.
Síðasti bærinn
í dalnum
Sýningar hefjast í
dag
í dag hefjast sýningar á
! kvikmyndinni Síðasti bærinn
í dalnumí sem Óskar Gísla-
son ljósmyndari hefir gert
j eftir samnefndri sögu Loíts
I Guðmundssonar blaðamanns
og. er sagan komin út á veg-
j um ísafoldar með myndum
! úr kvikmyndinni. Verða sýn-
ingarnar í Austurbæjarbíó.
Kvikmyndahandritið * eftir
sögunni gerði Þorleifur Þor-
leiísson. Leikstjóri er Ævar
Kvaran en musík er samin
af frú Jórunni Viðar. Hljóm-
sveitarstjórn annast dr. Ur-
bantschitsch. Leikendur eru
allmargir og ýmsir þeirra
kunnir hér á sviði en aðrir
nýir. Mynd þessi er ævintýra
mynd og er efnið sótt í ís-
lenzkar þjóðsögur og ævin-
|týii, og koma þar fram tröll,
dvergar og álíar. Er myndin
jþví mjög við barna hæfi en
fuilorðnir ættu líka að hafa
af henni ánægju.
Telja úrslit kosninganna
gegn þjóðnýtingu.
Umræðurnar í brezka þing
inu undanfarna daga um há-
sætisræðu konungs hafa mjög
snúizt um frumvarp verka-
mannaflokksins um þjóðnýt-
ingu stáliðnaðarins, sem taka
á gildi í janúar 1951. í ræðu
sinni taldi Churchill, að úr-
slit kosninganna sýndu, að
brezka þjóðin væri andvíg
frumvarpi þessu og meirih'luti
verkamannaflokksins væri af
veikur til þess að það yrði
framkvæmt. Skylda stjórnar-
innar væri því sú, að fresta
frumvarpinu þar til eftir
næstu kosningar og breyta
ákvæðum þess um gildistöku
á þann veg.
Stjórnin telur þetta
úrslitamál.
Herbert Morrison varð fyr-
ir svörum af hendi stjórnar-
innar og sagði, að verlca-
mannaflokkurinn teldi þetta
svo mikið úrslitamál, að flokk
urinn gseti ekki hvikað frá
því, enda hefði það verið eitt
aðalmál flokksins i kosninga-
baráttunni og kjósendur
greitt flokknum atkvæði með
tilliti til þess. Það væri að
bregðast trausti þessara kjós-
enda, ef flokkurinn skyti því
nú á frest. Stjórnin væri því
reiðubúin til að verja það í
þingirm og leita trausts þings
ins um það, ef íhaldsflokkur-
inn bæri fram tillögu um
frestun þess.
Tillaga íhaldsmanna.
íhaldsflokkurinn bar því
fram breytingartillögu þess
efnis við frumvarpið, að það
tæki ekki gildi fyrr en níu
1 mánuðum eftir næstu þing-
kosningar.
I Umræður uih þessa tillögu
hófust í gær, og var Oliver
Littleton framsögumaður af
hálfu íhaldsmanna. Sagði
hann, að meirihluti þessarar
stjórnar verkamannaflokks-
j ins í þinginu væri svo naum-
jur, að það væri óverjandi af
jhenni að knýja fram slíkt á-
j greiningsmál um gerbreyt-
| ingu á atvinnuvegunum, enda
! gæti það orðið afnumið síðar
ji miðjum klíðum og þessum
mikla atvinnuvegi stefrit í
voða vegna glundroða, sem af
því yrði. Skylda stjórnarinnar
væri því sú, að skjóta því á
frest, unz svo sterk stjórn
kæmi til valda að hún gæti
gert annað tveggja, fram-
kvæmt það örugglega eða
fellt það.
Verða að neyta
meirihlutans.
Birgðamálaráðherrann varð
fyrir svörum af hálfú stjórn-
arinnar í dag og sagði, að
íhaldsmenn höguðu sér í
þessu máli eins og þeir hefðu
þegar fengið meirihluta á
þinginu. Hins vegar væri það
svo, að þjóðin hefði veitt
verkamannaflokknum meiri-
hluta þótt naumur væri, og
skylda floklcsins væri að neyta
þess meirihluta, til að knýja
fram þau mál, sem hann
hefði heitið að beita sér fyr-
ir í kosningastefnuskránni.
Það væri svik við þennan
meirihluta, ef undanhald yrði
í þessu máli. Þess vegna
hefði stjórnin ákveðið að
hvika ekki frá því, enda væri
framkvæmd þess nauðsynleg
til að forða þjóðinni frá at-
vinnuleysi og þessum atvinnu
vegi frá yfirvofandi áföllum.
Afstaða frjálslynda flokksins.
í kosningabaráttunni hafði
frjálslyndi flokkurinn, sem
á níu þingmenn, lýst sig and-
vígan þjóðnýtingu stáliðnað-
arins, og gaf því Burns full-
trúi flokksins þá yfirlýsingu
á þingi í gær, að þingmenn
flokksins mundu greiða at-
kvæði með tillögu íhalds-
manna. Búizt var því við, að
stjórnin mundi halda velli
með 6—10 atkvæða meiri-
hluta.
Auriol ávarpar
brezka þingið
Auriol Frakklandforseti á-
varpaði brezka þingið í gær.
Sagði hann meðal annars, að
framtíð og friður í Evrópu á
næstu árum væri að miklu
leyti komin undir vináttu og
samstarfi Breta og Frakka,
og önnur Evrópuríki settu
traust sitt á þessar tvær þjóð-
ir. Þess vegna væri góð sam-
vinna þeirra svo mikilsverð.
í gærkvöldi snæddu forseta-
hjónin kvöldverð í konungs-
höllinni.
Tveir bátar á
loðnuveiðum
Tv-eir bátar úr Reykjavík,
Dagsbrún og Skógarfoss,
stunda nú eingöngu loðnu-
veiðar, en Akranesbátar nota
loðnuna til beitu.
Mikið af loðnu er nú í fló-
anum, og fengu Dagsbrún og
Skógarfoss fimmtíu til sex-
tíu tunnur hvor í fypradag og
gær. Er loðnan veidd í litlar
nætur. Faxaflóabátar hafa
þar til nú notað síld til beitu,
en gera sér vonir um skárri
aílabrögð, ef loðnu er beitt.
Eru þorskgöngur miklar í
fylgd með loðhunni, en hið
mikla æti veldur því, að treg
lega aflast á lóðir.
Hermennennáverði
við Herman-Göring-
verksmiðjurnar
í gær var allt kyrrt við
Herman Göríng-verksmiðj-
urnar í Þýzkalandi og gekk
niðurrif þeirra hindrunar-
laust. Um fimm hundruð her-
manna eru þó enn á verði
við verksmiðjurnar ef til ó-
eirða kæmi á ný.
Danskir kommun-
istar tapa
Síðastliðinn þriðjudag hafa
farið fram bæjar- og borgar-
stjórnarkosningar í 20 bæj-
um í Danmörku. Úrslit þeirra
eru nú kunn og er það helzt
athyglisvert við þær, að komm
únistar hafa beðið mikinn ó-
sigur og tapað 15 fulltrúum
af þeim 24, er þeir höfðu áð-
ur í þessum bæjum. Jafnað-
armenn hafa 148 fulltrúa og
hafa tapað 2, Róttæki flokk-
urinn hefir 19 fulltrúa, íhalds
flokkurinn hefir 54 og hefir
unnið einn. Réttarsambandið
hefir 8 og unnið þá alla og
aðrir flokkar 28 fulltrúa og
hafa unnið 8.
Jaf naðarmannaf lokkurinn
hefir tapað meirihluta sín-
um í fjórum borgum og eru
þar á meðal Esbjerg og Silki-
borg. — Bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í Kaupmannahöfn
og fleiri borgum verða á mið-
vikudaginn kemur. —
Unglingavinna
í Hafnarfirði
Á þæjarstjórnarfundi í
Hafnarfirði var nýlega til
umræðu tillaga, sem Óskar
Jónsson bar fram í bæjar-
ráði 13. febr. s. 1. Tillagan var
svohljóðandi:
„Bæjarráð samþykkir að
mæla með því við bæjar-
stjórn að hefja nú þegar und
irbúning að því, að fram fari
næsta sumar hér á vegum
bæjarins, barna- og unglinga
vinna við garðrækt og mat-
jurtarækt í landi kaupstaðar
ins.
Verði til þess starfa ráðinn
vel hæfur maður hið allra
fyrsta, svo að undirbúningur
geti hafizt nú þegar, eða svo
fljótt sem nauðsyn þykir“.
Óskar vakti athygli á þvi.að
slík unglingavinna hefði til
dæmis verið reynd á Akra-
nesi og hefði gefizt vel, enda
væri nauðsynlegt að gefa ungl
ingum, sem ekki kæmust úr
bænum til sumarvinnu, kost
a nægilegum verkefnum, er
væru við þeirra hæfi.