Tíminn - 31.03.1950, Qupperneq 2
2
TÍMINN, föstudaginn 31. marz 1950
73. blað
1 nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
simi 6633.
Hvar eru. skip'in?
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Jón Ara-
son“ eftir Gunnar Gunnarsson;
(höfundur les). 21,00 Strengja-
kvartett Ríkisútvarpsins: Kvartett
í d-moll (Dauðinn og Stúlkan) eft
ii Chubert. 21,35 Frá útlöndum
(Jón Magnússon, fréttastjóri). 21,50
Spurningar og svö rum íslenzkt
mál (Bjarni Vilhjálmsson). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. DaDgskrár
luk. (22,10 Endurvarpað dagskrá
fiá Kalundborg til Grænlands).
tinarsson, Zoéga & Co.
Foldin e rá förum frá Hull áleið
ia til Miðjarðarhafsins. Lingestroom
er á Vestfjörðum, lestar fiskimjöl
tii Hollands.
h íkisskip.
Hekla var Y®ntanleg til Seyðis-
fjarðar seint í gærkvöld á suður-
liið. Esja fór frá Reykjavík um
hádegi í gær austur um land til
Siglufjarðar. Herðubreið var vænt
anleg til Patreksfjarðar í gær-
kvöld á norðurleið. Skjaldbreið var
væntanleg til Akureyrar seint í
gærkvöld. Þyrill er í Reykjavík.
Ármann á að fara frá Reykjavík
síðdegis í dag til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Kaupmanna-
höfn í dag til Frederikstad og
Reykjavíkur. Dettifoss fór frá
Hafnarfiðri á hádegi í gær til
Keflavíkur. Fjallfoss fór frá Leith
28. marz til Siglufjarðar. Goða-
fcss fer frá Hamborg 3. apríl til
Gdynia. Lagarfoss er í New York.
Selfoss fer frá Reykjavík í kvöld
vestur og norður og til Noregs.
Tröllafoss er á leið til New York.
Vatnajökull fór frá Marseilles í
gær til Palestínu.
Skipadeild S.f S.
Arnarfell fór í gær til ísafjarðar.
Hvassafell fór í gærkveldi til Ítalíu.
Blöð og tímarit
Smvinnan
janúar—febrúarheftir er nýlega
komið út. Ritstjóranum Hauk
Snorrasyni hefir tekist að gera
Samvinnuna eitt albezta tímarit
sem út kemur á íslandi. Blaðið
er sérstaklega vandað að efni og
frágangi og flytur fjölbreytt efni
eftir því sem hægt er að gera í
tímariti af þessari stærð.
Á forsíðu er heilsíðumynd af
skíðafólki við Eyjafjörð. Efnahags
legar öryggisráðstafanir fjalla um
samvinnumál. Greinar um íslenzk-
an iðnað gefa glögga hugmynd um
framtakssemi forystumanna sam-
vinnustefnunnar. Lýst er hinni
nýju ullarþvottastöð Gefjunar og
hinni fjölbreyttu framleiðslu Ið-
unnar og frá sýningu þeirri sem
Iðunn hélt á framleiðslu sinni í
Reykjavík í febrúar.
Annað efni. Hvenær koma atom
orkuverin? Leyndardómurinn
mesti . . Heili mannsins. Einnig
er þar besti stíllinn úr ritgerða-
samkeppni um hótel KEA. Lista-
tízkan ( París. ðmásögur bg fraitt-
; 'i yj'/ ÍIiCi
haldssaga. Mikill annar fróðleik-
ur er í tímaritinu.
Árbók
íþróttamanna or nýkomin út.
Bókin er fyrir árið 1948 og er því
nokkuð sein á sér en mikinn fróð
ieik er þó að finna fyrir áhuga-
menn íþrótta. Ritstjóri er Jóhann
Bernhard. Þetta er 6. útgáfa bók-/
arinnar. Fyrstu 2 árgangarnir hétu
Árbók frjálsíþróttamanna en í
þessa bók hefir verið bætt fróð-
loik um aðrar íþróttagreinar.
Því miður vantar bókina allt
það sem gerðist á sviði íþróttanna
árin 1948 og 49, sem voru athafna-
söm ár. Bókinni er skipt niður eft
ir tegund íþrótta í þessari röð.
Frjálsar íþróttir, knattsppyrna,
sund, glfma, golf, handknattleik-
ur, hnefaleikar, og skíðaíþróttin.
Auk þess er að finna samanburða
töfiur yfir afrek innlendra og er-
lendra íbróttamanna.
Úr ýmsum áttum
Jarðarför
Jóhanns Magnússonar, Hamri
í Borgarnesi, fer fram í dag. Grein
um hann mun birtast í blaðinu
síðar.
Hrognkelsaveiðin.
er nú aftur byrjuð og er nú
þessi vorfæða bæjarbúa aftur á
boðstólum. Ekki hefir veiðst nóg
FÉLAGSLíF _
Páskavikan
Kolviðarhóli
Þeir, sem óska eftir
að dvelja að Kol-
viðarhóii um páskana, mæti í
Í.R.-húsinu í kvöld kl. 8—9 til að
láta skrá sig. Skíðakennari verð-
ur á Hólnum um páskana og geta
dvalargestir notið tilsagnar hans.
Ath. Þeir, sem ekki panta í kvöld
eiga á hættu að fá ekkert piáss.
Skíðaferðir um helgina: í kvöld
kl. 7, á morgun kl. 2, 6 cg 7 og
sunnudag kl. 9, 10 og 1. Farmiðar
við bílana hjá Varðarhúsinu.
Stansað við Vatnsþró, Undraland
og Langholtsveg. Skíðakennsla á
laugardag kl. 3—4 og sunnudag kl.
10—11.
Skíðadeild í. R.
til nð fullnægja eftirspurninni en
búast má við aukinni veiði næstu
vikur.
Skömmtunarseðlar.
Afhending skömmtunarseðla fyr
ir annað tímabil hefst á morgun
ki. 10 f. h. í Góðtemplarahúsinu.
Afhent verður á morgun og föstu-
dag frá kl. 10—5> e. h. Laugardag
frá kl. 10—12 f. h.
Á þeim skömmtunarseðli, sem af
hentur verður, verða engir vefn-
aðarvörureitir.
jörnum veai
Nýr fáni við hú n
Á skrifstofubyggingu Sambands
íslenzkra samvinnufélaga í Reykja
vík hefi rundanfarna daga blakt
grænn fáni með einkennisstöfum
sambandsins í tígli á miðjum
feldi. Þessi fáni hefir ekki sést hér
oft við hún áður, enda er hann
tákn um mikinn og nýunninn sig
ur á vettvangi samvinnustarfsins
í landinu. Þetta er skipaútgerðar-
fáni Sambandsins. Hvassafell og
Arnarfeil, hafa bæði gist Reykja-
víkurhöfn undanfarna daga. Ekki
eiga þessi skip þar þó tíðar legur,
því oftar eru þau að færa sam-
bandsfélögunum víðs vegar um
iandið björg í bú, eða taka þar
fiamleiðsluvörur til útflutnings.
Það vildi aðeins svo skemmtilega
til, að systurskipin, ef svo mætti
kalla þau, hittust hér á förnum
vogi, og áttu hér skamma sam-
vist. Arnarfell var að koma úr
fyrstu vöruferð sinni frá Ameríku,
en Hvassafell hafði lokið við að
taka saltfiskfarm á höfnum norð-
an lands og vestan. Og í gær skild
ust leiðir á ný. Arnarfell hélt vest-
ur og norður með vörurnar til
kaupfélaganna þar og fólksins, sem
bíður þeirra, en Hvassafell hélt
suður á bóginn áleiðis til Ítalíu
með framleiðsluvörur landsmanna.
Með þessum nýju skipum og
starfsemi skipadeildar Sambands-
ins hefir samvinnuhreyfingunhi á
íslandi bætzt nýr hornsteinn í
grunninn, hornsteinn, sem siðar
verða reistar á stoðir mikillar bygg
ingar. Með tilkomu þessara skipa
hefir rætzt draumur, sem sam-
vinnumenn hér á landi hafa alið
í brjósti allt frá fæðingu fyrstu
kaupfélaganna.
Fyrífr' seitíú1' árutn ' átti fyísta
: if}ta ;ióivi -s 'j’iii.
kaupfélagið í landinu sérstaklega
í völt að verjast eitt vorið, og þá
kreppti svo að, að minnstu munaði,
að félagið liði undir lok. Það var
orðið áliðið vors, en skipið með
vörurnar til kaupfélagsins var ekki
komið. Þurrð var orðin í búi
flestra kaupfélagsmanna, og sums
staðar farið að sverfa harðlega
að. Illa horfði, ef ekki rættist úr
innan skamms. Það var átakan-
legt fyrir heimilisfeður að verða
að horfa fram á bjargarleysi fjöl-
skyldna sinna, en aðeins ein ieið
virtist til bjargar. Hún var sú
að snúa sér til faktorsins á staðn-
um og verzla við hann, en því
fylgdi eítt ófrávíkjanlegt skilyrði.
Þeir urðu að ganga úr kaupfélag-
inu.
En kaupfélagsmenn seldu ekki
hugsjón sína fyrir brauð í þetta
sinn fremur en endra nær og áð-
ur en algert þrot varð, kom skip-
ið með vörurnar til kaupfélagsins.
Þrautseigja þeirra hafði sigrað og
bjargað kaupfélaginu. En hver ef-
ast um, að draumurinn um það
að kaupfélögin ættu sína eigin far
kosti, sem færðu þeim vörur, hafi
búið í brjósti þessara manna,
hvort sem þeir hafa átt langsýni
til að færa hann í búning hugs-
ana og orða.
En nú eiga íslenzkir samvinnu-
menn þessi skip, og okkur sem nú
njótum þessa mikla sigurs er hollt
að minnast þess, að ef til vill
eigum við hann fyrst og fremst
að þakka mönnunum, sem áttu
þrautseigju til að bíða skipskom-
unnar fyrir sextíu árum. Hlutur
þeirra í sigrinum er að minnsta
kosti mikill.
- A. K.
Sýhing norrænna
atvinnuljósmyndara
Síðasti dagur sýningarinnar er í dag. — Látið ekki
þessa stórmerku sýningu fara fram hjá yður.
Sýningin er í Listamannaskálanum,
opin frá kl. 10 f. h. til kl. 23.
Skátaskemmtun
verður haldin í Skátaheimilinu sunnudag 2. apríl kl.
4 fyrir ljósálfa og ylfinga. Mánudag 3. apríl kl. 8 fyr-
r skáta. — Miðar seldir í Skátabúðinni föstudag og
augardag kl. 2—4.
TONLISTARFELAGSKOLINN
OG
SYMFONIUHLJOMSVEITIN
FLYTJA
Jóhannesarpassíuna
eftir Joh. Seb. Bach
n. k. sunnudag Pálmasunnudag kl. 5 í Fríkirkjunni.
Stjórnandi: dr. Urbantschitsch.
Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal
og Bókum og ritföngum.
Húnvetningar!
Húnvetningafélagið heldur skemmtifund í Flug-
vallarhótelinu laugard. 1. apríl kl. 8.30 e. h.
Skemmtiatriði:
Kórsöngur: Söngfélagið Húnar.
Söngur: karla-kvartett. — —Dansað til kl. 1.
Kvikmyndir: Kjartna Ó Bjarnasson sýnir nýjar
ísl kvikmyndir.
Aðgöngumiðar seldir í verzl. Brynju í dag og laugard.
Einnig við innganginn. Húnvetningar fjölmennið.
Stjórnin.
Happdrætti
hússjóðs Framsóknarmanna
Eignist vonina í eigulegum hlut!
Greiðið fyrir sölu happdrættismiðanna!
Margt smátt gerir eitt stórt!
Dregið verður í happdrættinu 15. apríl n. lc.
♦
AIJGLÝSINGASÍMI TÍMANS ER 8130»
'Í!J